Már Gunnarsson

Unga Fólkið

Society IS ↓ 89 episódios

Már Gunnarsson, tónlistarmaður og sundkappi, fær til sín ungt fólk sem hefur sögu að segja eða skarar fram úr á sínu sviði í lífinu. Í lok hvers þáttar er síðan tónlistaratriði í beinni.

Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: ungafolkid.utvarpsaga.is

Autor

Már Gunnarsson

Categoria

Society

Site do podcast

ungafolkid.utvarpsaga.is

Último episódio

11 de abr de 2024

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,8 iOS em breve

Episódios

Þáttur 14, Sveinbjörn Darri 11.09.2020

Már Gunnarsson ræðir við Sveinbjörn Darra sem er 14 ára og einn yngsti svifflugmaður í söguni. Í þættinum er einnig rætt við flugstjórann Einar Dagbjartsson um flug og stöðu flugs í dag.

Þáttur 13, Sigríður Thorlacius 03.09.2020

Már Gunnarsson ræðir við söngkonuna Sigríði Thorlacius um ferilinn og hvort það sé eitthvað til í þeim orðrómi uma að hún og Sigurður Guðmundsson séu kærustupar. Að sjálfsögðu er spilað lag í lokin.

Þáttur 12, Auðunn Sölvi 25.08.2020

Már Gunnarsson ræðir við Auðunn Sölva, níu ára leikara og rithöfund sem þrátt fyrir ungan aldur ber af á sínum sviðum. Í þessum þætti er mikið um hlátur og að sjálfsögðu er tekið lag í lokin. Í þættinum er líka leynigestur.

Þáttur 11, Ívar Daníels 21.08.2020

Már Gunnarsson ræðir við ívar Daníels stórsöngvara um lífið, erfið áföll sem á daga hans hafa drifið og hversu mikilvægt það er að bregðast rétt við á ögurstundu. Að sjálfsögðu er spilað lag í lokin.

Þáttur 10, Ragga Gröndal 14.08.2020

Már Gunnarsson ræðir við söngkonuna Ragnheiði Gröndal um ferilinn, lífið, stefnumótasíður og margt fleira. Í þessum þætti eru tvö lög spiluð í beinni.

Þáttur 9, Sanna Magdalena 06.08.2020

Sanna Magdalena er yngsti borgarfulltrúi Reykjavíkurborgar í sögunni. Á uppvaxtarárum hennar glímdi hún við gríðarlega fátækt þar sem hver króna skipti máli. Draumur Sönnu sem stjórnmálamanns er að uppræta fátækt. Að sjálfsögðu er tekið lag í lokin.

Þáttur 8, Páll Óskar 30.07.2020

Meðalaldur þáttar dagsins er 35 ár. Már Gunnarsson ræðir við Pál Óskar um áhrif corona veirunnar á tónlistarlífið, hrillingsmyndir og margt fleira. Að sjálfsögðu er tekið lag í lokin.

Þáttur 7, Séra Pétur 23.07.2020

Már Gunnarsson ræðir við séra Pétur sem að eigin sögn er klikk-klerkur um trúmál og hve miklu skiptir máli að vera öðruvísi og njóta sín í lífinu!

Þáttur 6, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir 16.07.2020

Már Gunnarsson ræðir við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um Covid19 faraldurinn, skimun ferðamanna og starf dómsmálaráðherra. Að sjálfsögðu er tekið lag i lokin!

Þáttur 5, Arna Sigríður Albertsdóttir 09.07.2020

Már Gunnarsson ræðir við Örnu Sigríði Albertsdóttur, þrítuga landsliðskonu í handahjólreiðum, um hvernig það er að takast á við lífið eftir að hafa lent í alvarlegu slysi sem breytti öllu. Arna er einstök kona með frábær viðhorf og fallegt hjartalag sem allir ættu að taka sér til fyrirmyndar. Að sjálfsögðu er síðan tekið lag í lokin.

Þáttur 4, Ari Ólafsson 03.07.2020

Már Gunnarsson ræðir við sigurvegara Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2018, Ara Ólafsson, um tónlist, lífið og að sjálfsögðu Eurovision. Þeir félagar taka lagið í lokin.

Þáttur 3, Brynjar Karl 03.07.2020

Már Gunnarsson ræðir við Brynjar Karl, 16 ára strák með einhverfu, um mikilvægi þess að rækta hæfileikana í sjálfum sér en Brynjar fann sinn hæfileika þegar hann var 10 ára gamall þegar hann byggði eftirlíkingu af Titanic úr 60.000 lego-kubbum. Einnig kemur söngvarinn Kid Isak í heimsókn sem einnig lætur sína einhverfu ekki aftra sér í lífinu, og að sjálfsögðu er lag í beinni í lokin.

Þáttur 2, Þorri Þórarinsson 03.07.2020

Már Gunnarsson ræðir við Þorra Þórarinsson, nýstúdent, sem útskrifaðist úr framhaldsskóla með 10 í meðaleinkunn. Einnig kemur í heimsókn söngkonan Iva, og taka þau Már lagið í lokin.

Þáttur 1, Engill Bjartur

Már Gunnarsson ræðir við 22 ára ljóðskáld, Engil Bjart Einisson, um ljóðamarkað nútímans, að muna eitt þúsund aukastafi af Pí, ástarmál og margt fleira. Einnig kemur söngkonan Ísold og syngur lag í lok þáttar.

Ouça o podcast Unga Fólkið no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos