Boxing David - Cliff W - Nóri Breiðholt

Þvottahúsið

Þvottahúsið er áhugamanna lífsspeki hlaðvarp í umsjón bræðranna, Davíðs Karls Wiium og Gunnars Dan Wiium. Fúsi óttars sér um tæknimál og semur einkennisstef þáttarins. Alkastið er örverpi Þvottahússins. Alkastið samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium a.k.a Cliff W. og Arnóri Jónssyni a.k.a Nóra Breiðholt ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi.  Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland. 

Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.buzzsprout.com

Autor

Boxing David - Cliff W - Nóri Breiðholt

Categoria

Society

Site do podcast

www.buzzsprout.com

Último episódio

19 de mai de 2025

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,8 iOS em breve

Episódios

Þvottahúsið#58 Magnús er BDSM 17.11.2021

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en Magnús Hákonarson fyrrum formaður B.D.S.M á Íslandi, sjósyndari og almennt mikill meistari. Magnús hefur verið viðloðin BDSM senuna á Íslandi síðastliðin 25 ár. Hann fór yfir það hvernig hann færðist yfir í þessa átt sem ungur maður er hann fór að gera sér grein fyrir vissu tilfinningarrisi við það ei...

Þvottahúsið#57 Einar Carl er Primal 16.11.2021

Nýjasti gestur bræðrana Gunnar og Davíðs Wiium er engin annar en Einar Carl Axelson fyrrum landsliðsmaður í Tae kwon do og einn af stofnendum Primal Iceland. Einar sem fyrir allmörgum árum lenti í alvarlegu snjóbrettaslysi í frönsku ölpunum fann sig knúinn til leita á ný mið með sjálfan sig vegna þeirra meiðsla sem hann hlaut.  Sú hreyfing færði hann yfir í nuddnám sem svo varð kveikjan á því sem...

Þvottahúsið#56 Ingólfur Níelss Frelsun mannkyns er ekkert djók 🤡 07.11.2021

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar er Ingólfur Níelsson. Ingólfur kom fyrir um átta mánuðum síðan í þáttinn og þá lýsti því hvernig hann fór í gegnum mikið ferðalag þjáninga sem svo leiddi hann inn í dauðareynslu sem hann varð fyrir í fangaklefa í Kaupmannahöfn. Dauðareynslan hafði djúp sálræn áhrif á hann og byrjaði vegferð hans þaðan in...

Þvottahúsið#54 Hlynur H_EliteLifestyle 31.10.2021

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíð Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en Hlynur M. Jónsson betur þekktur fyrir nokkrum árum sem ICEFIT en kenndur við H. Elitelifestyle í dag. Hlynur sem er  er búsettur á norður Kýpur, starfar þar sem fasteignamiðlari ásamt því að vera áhrifavaldur og Instagramstjarna.  https://www.instagram.com/h_elitelifestyle/

Þvottahúsið#55 Berglind Rúnars um DMT öndun og ástar og kynlífsfíkn 21.10.2021

Öndunarþjálfinn Berglind Rúnarsdóttir var gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í Þvottahúsinu. Hún er ástar- og kynlífsfíkill í bata og kennir fólki að öðlast hugarró, tækla streituna og læra að elska sig.  Þau ræða um þráhyggjuna, hneigðina til að fara hratt úr einu sambandinu í annað, óttann, kvíðann og viðkvæma egóið, hvernig hún fór á botninum í samtök ástar- og kynlífsfíkla og hóf að þros...

Þvottahúsið#53 Þórhildur Magnúsdóttir er sundur og saman 12.10.2021

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíð Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er elskuleg Þórhildur Magnúsdóttir. Þórhildur sem heldur úti Instagrammið sundur og saman hefur komið til bræðrana áður þá útfrá naumhyggju þema.  Nú kemur hún hinsvegar í Þvottahúsið í stórasta sambandsþáttinn.  Hún lifir saman með eiginmanni sínum í svokölluðu opnu sambandi þar sem reglur eru ekki margar svo lengi sem...

Þvottahúsið#52 Guðrún Eva Mínervudóttir Skapari himins og jarðar 11.10.2021

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin önnur en Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur og lífskúnstner. Guðrún Eva sem hefur gefið út yfir tug metsölubókverka sem og þýðingar fer yfir feril sinn í þessu jarðtengda og hlýlega viðtali.

Þvottahúsið#51 SHAFT the tantric sex guru 05.10.2021

Bræðurnir Gunnar og Davíð Wiium fengu til sín merkilegan gest í nýjasta hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Um er að ræða engan annan er Shaft Uddin sem starfar sem tantrískur sex gúrú. Shaft sem er af Bangladesísku bergi brotin en uppalin í Bretlandi er um þessar mundir staddur á Íslandi þar sem hann heldur námskeið og fyrirlestra fyrir ástríðufengna Íslendinga.  Viðtalið er á ensku. The Wiium brother...

Þvottahúsið#49 Róbert ROYAL Gíslason 22.09.2021

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er Róbert Royal Gíslason tónlistarmaður sem fyrir rúmu ári síðan missti faðir sinn hinn ástkæra leikara Gísla Rúnar úr sjálfsvígi eftir margra ára þrautargöngu fjötraður í alkahólisma og andleg veikindi. pieta.is sorgarmidstod.is  

Þvottahúsið#50 Helga Snjólfs um þunglyndið 21.09.2021

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er verkfræðingurinn, yogakennarinn og tantrarinn Helga Snjólfsdóttir. Helga kom til bræðrana sem gestur númer eitt í jánúar á þessu ári og nú níu mánuðum síðar kom hún svo sem gestur í þætti númer fimmtíu.

Þvottahúsið#48 Sigga Dögg og kynfræðslan 17.09.2021

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin önnur en kynfræðingurinn og fjölmiðlastjarnan Sigga Dögg. Í þættinum fór hún í gegnum hinar ýmsu hliðar kynlífs á sinn einkennandi hispurslausa hátt. https://siggadogg.is/

Þvottahúsið#46 Ragnhildur Gyða og kvennlegir vöðvar 02.09.2021

Nýjasti gestur bræðrana í Þvottahúsinu er engin önnur en Ragnhildur Gyða Magnúsdóttir. Ragnhildur er heilsunuddari, Íþrótta og heilsufræðingur, afreksíþróttamanneskja, hampræktandi og þerapisti með heildræna nálgun. Hún erum fyrrum sterkasta kona Íslands sem og að hún á farsælan feril innan vaxtaræktar.  Í þessu viðtali talar hún opinskátt um sína 8 ára löngu steraneyslu sem og breytingar á sálarl...

Þvottahúsið #45 CBD olíu kynning og bræðramelting. 26.08.2021

Í þessum þætti kynnum við nýja CBD olíu frá okkar stuðningsaðila sem er gottcbd.is ásamt meltingu á síðustu fjórum viðmælendum. Þetta er síðasta meltingin í þessu formi í bili.

Þvottahúsið #44 Kristín Amalía fer yfir syndir forfeðrana 24.08.2021

Í nýjasta þætti Gunnars og Davíðs í hlaðvarpinu Þvottahúsið voru gömul mál gerð upp. Í byrjun þáttarins les Gunnar upp yfirlýsingu sem snýr að syndum forfeðra þeirra Gunnars og Davíðs. Um er að ræða bein ættartengsl þeirra 8 kynslóðir tilbaka til sýslumannsfeðgana Jens og Hans Wiium. Feðgar þessir léku aðalhlutverk í lengsta sakarmáli Íslandssögunar þar sem Sunnefa Jónsdóttir og Jón bróðir hennar...

Þvottahúsið#43 Árni Björn. Vegan Max 22.08.2021

Nýjasti gestur Gunnars og Davíðs í hlaðvarpsþættinum  Þvottahúsinu er afreksíþróttamaðurinn og veganinn Árni Björn Kristjánsson.  Árni Björn fann sig knúin til að svara síðasta viðmælanda Þvottahússins fullum hálsi.  Síðasti viðmælandinn, Þorbjörg Hafsteinsdóttir, mestöluhöfundur, hjúkrunarfræðingur, keto-flexari og reynslubolti innan næringar sagði í viðtalinu að hún hefði kynnst fáum í gegnum tí...

Þvottahúsið#42 Þorbjörg Hafsteinss heilsugúrú 12.08.2021

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs í Þvottahúsinu er engin annar en Þorbjörg Hafsteinsdóttir heilsuguru. Þorbjörg er hjúkrunarfræðingur að mennt sem hefur farið sínar eigin leiðir hvað varðar að fínstilla líkaman með réttri fæðu og iðkun. Hún er metsöluhöfundur bóka  sem fjalla um hvernig manneskjan getur hámarkað getu sína, lengt lífið og aukið á lífsgæðin með sára einföldum leiðbeiningum....

Þvottahúsið#41 Björgvin bakari og markvörður 29.06.2021

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður og bakari er nýjasti gestur bræðrana Gunnars Dan og Davíð Karls Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Björgvin mætti auðvitað í þáttinn sem afreksíþróttamaðurinn sem hann er en fór samt sem áður yfir sögu sína. Rótlaus æska og brostið uppeldi sem leiddi hann inn í allskonar úræði af hinu opinbera fyrir “svokölluð” vandræðabörn og unglinga.  Hann fer í þessu ma...

Þvottahúsið #40 Bræðramelting á þrem ofurkonun og einu ofurkvár 22.06.2021

Bræðramelting á þrem ofurkonun og einu ofurkvár. Þar eftir er tímamóta kynning á vörum styrktaraðila þáttarins GottCbd. Við segjum tímamótarkynning því um er að ræða kynning á “húðolíunni” svokallaðri  sem er svo hrein að það má drekka hana, sem við svo í Þvottahúsinu mælum eindregið með að sé gert heilsunni til hagsbóta. Annars jarðtengd bræðramelting þar sem Gunnar er til friðs og ekki með neina...

Þvottahúsið#39 Embla Ordal. Hin og þessi kyn. 22.06.2021

Embla Ordal er nýjasti gestur bræðranna Gunnars Dan og Davíðs Karls Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Embla er kynsegin, og vafðist það eitthvað fyrir bræðrunum sem fengu hán* í heimsókn til að ræða hin ýmsu kyn.

Þvottahúsið #38 Tóta, stofnandi Hampfèlagsins. Kannabis og Krabbamein. 15.06.2021

 Þórunn Thors Jónsdóttir, frumkvöðull og viskubrunnur hvað varðar kannabis og iðnaðarhamp er nýjasti viðmælandi bræðrana Gunnar Dan Wiium og Davíðs Karl Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Þórunn er einnig stofnandi Hampfélagsins þar sem hún ásamt öðru góðu fólki vinnur að lögleiðingu fæðubótarefnisins CBD sem og almennri vitundarvakningu hvað varðar óendanlega vinnslumöguleika iðnaðarhampsins....

Þvottahúsið #37 Elín Vigdís Guðmundssdóttir fer með okkur í ferðalag innan átröskunar. 11.06.2021

Elskuleg Elín kom til okkar með alla sína sögu, sitt blæðandi sár sem hún reyndi að heila með svelti. Henni var komið í meðferð um tvítugt þar sem vegferð hennar til gæfu og gengis hófst. Hún er eldklár og full eldmóð, komin í andlegan sem og félagslegan þroska. Búin að rýna í djúpið nógu lengi til að getað greint og komið orðum að því sem hún er og er ekki, í þeirri kristöllun fortíðar sinnar lei...

Þvottahúsið #36 Sara María Júlíudóttir. Frumkvöðull innan hugvíkkandi efna. 08.06.2021

Sara María kom til okkar í upplýsandi spjall um ferðalög vitundar með hjálp hugvíkkandi efna. Hún deildi með okkur reynslu sinni á notkun sveppa, DMT, meskalín, MDMA í þeim tilgangi að víkka hugan og opna sýn okkar í hin dýpstu lög vitundar sem við annars höfum engan aðgang að.  Sara kemur fram af miklu hugrekki og sannfæringu hvað varðar notkun þessara efna og ræðir opinskátt um þessi mál öll í þ...

Þvottahúsið #34 Egill Sæbjörnsson is tonk of the lawn. 07.06.2021

Þvottahúsið #34 Egill Sæbjörnsson is tonk of the lawn. Elskulegur Egill S kom til okkar í Þvotthúsið með alla sína auðmýkt og innsæisdýpt. Fór inn í heiðarleikan, sýndi okkur meirleika sinn og talaði um unglingsástina. Hann lýsti eyðurmerkurgöngu sinni með allri sinni feimni, eyðurmerkurganga sem undarfari uppljómunar í Túlúss í Frakklandi þar sem hann sór þess eið að ríða, éta kjöt, rúnka og spil...

Þvottahúsið #35 Bræðramelting, kremkynning og kynóði kókain bankaráðgjafinn 06.06.2021

Bræðurnir taka lauflétta kremkynningu í boði gottcbd.is og svo melta síðustu fjóra viðmælendur.  TRIGGERWARNING- EKKI FYRIR VIÐKVÆMNA Viðtalið tekur óvæntan snúning í lokin með mjög svo óviðeigandi sögu um danskan bankaráðgjafa. www.gottcbd.is

Þvottahúsið #33 Stjörnu Sævar Helgi Bragason. Geimferðir, nifteindir, svarthol, geimverur og fjárhagsleg sjálfbærni. 06.06.2021

Elskulegur stjörnu Sævar kom til okkar í Þvottahúsið og útskýrði fyrir okkur alheiminn á tæpum tveim tímum. Hann fór yfir geimferðir, liðnar og framtíðar. Stöðu Íslands í geimmálum, stjörnuskoðun, nifteindir og svarthol, endalok alheims, plokk og fjárhagslega sjálfbærni, en stjörnu Sævar segir að það séu engin geimvisindi að spara monní.  Big chrunch og big freeze kenningarnar útskýrðar af miklum...

Ouça o podcast Þvottahúsið no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos