Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: solviaskrift1210105.libsyn.com
Autor
Sölvi Tryggvason
Categoria
Site do podcast
Último episódio
27 de set de 2026
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
#290 Stefán Einar með Sölva Tryggva 08.07.2024 1:28:47
Stefán Einar Stefánsson er siðfræðingur og blaðamaður sem hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir aðgangshörð viðtöl. Í þættinum ræða Stefán og Sölvi um fjölmiðla, samfélagsmál, skautun, rétttrúnað og margt fleira.
#289 Guðrún Bergmann með Sölva Tryggva 02.07.2024 1:33:43
Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og skrifa fjölda bóka. Í þættinum ræða Sölvi og Guðrún um heilsu, andlega vakningu, breytingar í heiminum, samsæriskenningar, fjölmiðla, og margt fleira.
#288 Helgi Jean með Sölva Tryggva 30.06.2024 2:01:09
Helgi Jean Claessen er hlaðvarpsstjórnandi og frumkvöðull. Í þættinum ræða Sölvi og Helgi um sjálfsábyrgð, leiðir til að breytast, stóra bróður, heimsmyndir fólks og margt margt fleira.
#287 Gunnar Wiium með Sölva Tryggva 25.06.2024 1:34:04
Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður sem hefur víða komið við og hikstar ekki við að tjá skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, rétttrúnað, samsæriskenningar, hugvíkkandi efni, sátt, kærleika og margt margt fleira.
#285 Brynjar Níelsson með Sölva Tryggva 18.06.2024 1:44:49
Brynjar Níelsson hefur lengi verið þekktur fyrir að þora að viðra skoðanir sem fæstir þora að tjá og hefur oft bakað sér óvinsældir fyrir vikið. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um hugrekki, þor, hve mikil umsvif ríkisins eigi að vera, mikilvægi þess að kjósendur viti hvar þeir hafi þá sem þeir kjósa til valda og margt margt fleira.
#284 Brynjar Karl með Sölva Tryggva 16.06.2024 1:44:28
Brynjar Karl Sigurðsson er án vafa umdeildasti þjálfari Íslands. Hann hefur undanfarin ár þjálfað ungar stúlkur í körfubolta, sem spila nú með íþróttafélaginu Aþenu. Í þættinum ræða Sölvi og Brynjar um skapgerð, hugrekki, samfélagið, þjálfun og margt margt fleira.
#283 Frosti Loga snýr aftur 11.06.2024 1:45:49
Frosti Logason er þrautreyndur fjölmiðlamaður sem nýverið stofnaði fjölmiðilinn Brotkast. Frosti er þekktur fyrir að segja það sem hann hugsar og fjalla um mál sem margir leggja ekki í. Í þættinum ræða Frosti og Sölvi um stöðu fjölmiðla í heiminum, ritskoðun, matrix-ið og samsæriskenningar, stöðuna í íslensku samfélagi og margt fleira.
#282 Egill Ólafsson með Sölva Tryggva 09.06.2024 1:02:09
Egill Ólafsson er löngu orðin goðsögn í íslensku menningarlífi. Hann á að baki magnaðan feril sem spannar áratugi í bæði tónlist og leiklist. Egill greindist nýverið með Parkinson sjúkdóminn og ákvað strax að tala um þá baráttu opinberlega. Í þættinum fara Sölvi og Egill yfir feril Egils, baráttuna við Parkinson, íslenskt samfélag, leiðir til að finna þakklæti og hamingju og margt margt fleira.
#281 Logi Pedro með Sölva Tryggva 05.06.2024 1:24:45
Logi Pedro Stefánsson er tónlistarmaður sem skaust hratt upp á stjörnuhimininn og hefur verið í sviðsljósinu síðan hann var mjög ungur. Í þættinum ræða Sölvi og Logi um uppreisnareðli, listir og sköpun, sjálfsábyrgð, pólariseringu í samfélaginu og margt margt fleira.
#280 Kristján Þór með Sölva Tryggva 03.06.2024 1:27:09
Kristján Þór Gunnarsson er læknir sem er óhræddur við að ræða um mikilvæg mál. Í þættinum ræða Sölvi og Kristján um heilsu, lækningar, samfélagssjúkdóma, faraldur heilsuleysis í tengslum við breytingar á lífsstíl og margt fleira.
#279 Baltasar Kormákur með Sölva Tryggva 29.05.2024 1:28:46
Baltasar Kormákur er farsælasti leikstjóri Íslandssögunnar. Hann braut sér leið inn í Hollywood, þar sem hann hefur leikstýrt fjölmörgum myndum og samhliða opnað tækifæri fyrir marga Íslendinga í kvikmyndabransanum. Í þættinum ræða Sölvi og Baltasar um magnaða sögu þessa merkilega manns, viðskipti, hugrekki, sýn á framtíðina, sjálfsvinnu og margt margt fleira.
#278 Júlía Óttarsdóttir með Sölva Tryggva 26.05.2024 1:42:36
Júlía Óttarsdóttir er mögnuð ung kona sem hefur verið óhrædd við að fara sínar eigin leiðir í lífinu. 19 ára gömul sneri hún baki við djamminu, flutti úr landi og skipti gjörsamlega um takt í lífinu. Í þættinum ræða Sölvi og Júlía um andlega vakningu, heilsu, sjálfsábyrgð, náttúruna og landið okkar og margt fleira.
#277 Birgir Örn með Sölva Tryggva (Hluti 2) 23.05.2024 1:08:54
Birgir Örn Sveinsson á stórmerkilega sögu og var meðal annars fyrstur til að koma með Ayahuasca til Íslands eftir að hafa búið í Amazon frumskóginum. Í þættinum ræða hann og Sölvi um Miklahvell, sögu mannsins, hugvíkkandi efni, stöðuna í heiminum og margt fleira.
#276 Birgir Örn með Sölva Tryggva (Hluti 1) 21.05.2024 56:39
Birgir Örn Sveinsson á stórmerkilega sögu og var meðal annars fyrstur til að koma með Ayahuasca til Íslands eftir að hafa búið í Amazon frumskóginum. Í þættinum ræða hann og Sölvi um Miklahvell, sögu mannsins, hugvíkkandi efni, stöðuna í heiminum og margt fleira.
#275 Svali Kaldalóns með Sölva Tryggva 19.05.2024 1:31:34
Svali Kaldalóns er einn reyndasti útvarpsmaður Íslands. Hann hafði starfað í áratugi í fjölmiðlum þegar hann skipti um takt og flutti með allri fjölskyldunni til Tenerife til að elta óvissuna og drauminn um nýtt líf. Í þættinum ræða Sölvi og Svali um fjölmiðla, heilsu, samfélagsmál, Tenerife-ævintýrið, krísuna við að verða miðaldra og margt fleira.
#274 Arnar og Hrafnhildur með Sölva Tryggva 15.05.2024 1:30:57
Hjónin Arnar Þór Jónsson og Hrafnhildur Sigurðardóttir standa þétt saman í báráttunni í kosningunum um forseta Íslands. Í þættinum ræða þau mikilvægi þess að tengjast innsæinu og finna hugrekkið til að standa með eigin sannleika. Stöðuna í heiminum, andlega vakningu og margt margt fleira.
#273 Kári Stefánsson snýr aftur 13.05.2024 1:20:24
Kári Stefánsson snýr aftur í Podcastið. Í þættinum ræða Kári og Sölvi um átökin í heiminum, forsetakosningarnar, hugvíkkandi efni, tilvist guðs, Covid tímabilið og margt fleira.
#272 Laufey Karítas með Sölva Tryggva 08.05.2024 1:30:30
Laufey Karítas Einarsdóttir er yogakennari, margföld móðir og fyrrverandi yfirmaður á framabraut, sem skipti algjörlega um takt eftir að lífið tók í taumana. Hún fékk heilablóðfall eftir áraraðir af streitu og kapphlaupi við að þóknast öðrum en sjálfri sér. Á einu augabragði sá hún hvað var mikilvægt í lífinu og gjörbreytti öllu.
#271 Einar Ágúst með Sölva Tryggva 05.05.2024 1:15:20
Einar Ágúst Víðisson varð þjóðþekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Skítamórals, sem var á sínum tíma vinsælasta hljómsveit Íslands. Einar var á beinu brautinni sem tónlistarmaður þegar hann missti öll tök á tilverunni, endaði í mjög slæmum félagsskap og fór á kaf í neyslu. Einar hefur gengið í gegnum hluti sem fæstir geta gert sér í hugarlund. Hér ræða hann og Sölvi um stærstu sigrana, myrkustu...
#270 Höddi Magg með Sölva Tryggva 01.05.2024 1:32:09
Hörður Magnússon er einn reyndasti íþróttafréttamaður Íslands sem hefur verið á skjám landsmanna í áraraðir. Í þættinum ræða Sölvi og Hörður um feril Harðar, fjölmiðla, samfélagsmiðla hitann í íþróttum, hjarðhegðun, rétttrúnað og margt margt fleira.
#269 Linda Pé með Sölva Tryggva 29.04.2024 1:02:00
Linda Pétursdóttir er löngu orðin landsþekkt sem frumkvöðull og alheims fegurðardrottning. Hér ræða hún og Sölvi um stórmerkilegt lífshlaup þessarar mögnuðu konu, heilsu, sigra, sorgir og margt fleira.
#268 Guðni Gunnars Snýr aftur 24.04.2024 1:02:31
Guðni Gunnarsson er lífsstílsráðgjafi og einn af helstu frumkvöðlum Íslands á sviði heilsuræktar. Hann hefur svo áratugum skiptir unnið með fólki um allan heim þegar kemur að heilsu. Í þættinum ræða hann og Sölvi um andlega og líkamlega heilsu, helstu verkefni fólks í átt að betra lífi og margt fleira.
#267 Steinunn Ólína með Sölva Tryggva 21.04.2024 1:02:36
Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir á að baki magnaðan feril og lífshlaup. Í þættinum ræða Sölvi og Steinunn um sorgir, sigra, samfélagsmál, forsetaembættið og margt fleira.
#266 Ásdís Rán snýr aftur 17.04.2024 47:17
Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir hefur verið ein umtalaðasta manneskja Íslands um árabil. Henni skaut hratt upp á sjónarsviðið þegar hún var ung að aldri og síðan hefur hún meira og minna verið í sviðsljósinu. Í þættinum ræða Sölvi og Ásdís um forsetaframboðið árin í Búlgaríu, dularfulla sögur úr fyrirsætubransanum og margt fleira.
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos