Sölvi Tryggvason
Sölvi Áskriftarþættir
Podcast með Sölva Tryggva - áskriftarþættir
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: solviaskrift1210105.libsyn.com
Autor
Sölvi Tryggvason
Categoria
Site do podcast
Último episódio
27 de set de 2026
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
#11 Gummi Ben með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:34:44
Guðmundur Benediktsson er almennt talinn einn efnilegasti knattspyrnumaður Íslandssögunnar, en lenti ungur margoft í slæmum meiðslum. Hann er nú orðinn heimsþekktur fyrir lýsingar sínar á knattspyrnuleikjum. Hér ræða hann og Sölvi um fjölmiðla, feril Gumma Ben og einstaklingana sem gera íþróttir að hreinni listgrein.
#10 Linda Pétursdóttir með Sölva Tryggva 15.12.2021 58:04
Linda Pétursdóttir er löngu orðin landsþekkt sem frumkvöðull og alheims fegurðardrottning. Hér ræða hún og Sölvi um stórmerkilegt lífshlaup þessarar ótrúlegu konu.
#9 Emmsjé Gauti með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:56:57
Emmsjé Gauti er einn þekktasti rappari Íslandssögunnar. Hér ræða hann og Sölvi um ferilinn, áfengi, skoðanafrelsi, kvíða og löngunina til ad verða betri í dag en í gær.
#8 Björn Steinbekk með Sölva Tryggva 15.12.2021 2:05:46
Björn Steinbekk var umdeildasti maður Íslands eftir EM 2016. Hèr ræða hann og Sölvi um tónleikahaldið, stóra miðamálið, drykkjuna og margt margt fleira.
#7 Jóhannes Kr. með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:32:43
Jóhannes Kr. Kristjánsson er maðurinn sem felldi forsætisráðherra með Panama skjölunum og kom upp um Guðmund í Byrginu. Hér ræða hann og Sölvi um blaðamennsku, dótturmissinn og snerta á hótunum og fleiru.
#6 Aron Mola með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:52:13
Aron Már Ólafsson er einn allra efnilegasti leikari þjóðarinnar. Hér ræða hann og Sölvi um systurmissinn, fíknir, leiklistina og fleira.
#5 Anníe Mist með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:39:16
Anníe Mist Þórisdóttir var fyrsta konan til þess að vinna heimsleikana í Crossfit tvö ár í röð. Hér ræða hún og Sölvi um fórnirnar, keppnisskapið, hæðirnar og lægðirnar.
#4 Ólafur Darri með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:23:02
Ólafur Darri Ólafsson er líklega þekktasti leikari Íslands. Hér ræða hann og Sölvi um listina, geðlyfjanotkun, dýpstu dalina og hæstu hæðirnar.
#3 Logi Bergmann með Sölva Tryggva 15.12.2021 1:04:41
Logi Bergmann er líklega þekktasti sjónvarpsmaður Íslands eftir áratugi á skjám landsmanna. Hér fáum við að heyra í honum hinum megin við borðið.
#2 Katrín Jakobsdóttir með Sölva Tryggva 15.12.2021 37:39
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands fer yfir starfið, samstarfið við Bjarna Ben, einkalífið og ástina á Liverpool.
#1 Kári Stefánsson með Sölva Tryggva 10.12.2021 1:35:51
Kári Stefánsson er löngu orðinn þjóðargersemi. Hér spjalla hann og Sölvi um Last Dance, hráan persónuleika Kára, óbeit hans á aumingjaskap og margt margt fleira.
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos