Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva Bjarnadóttir
Rauður Raunveruleiki
Ungir sósíalistar ræða það sem skiptir þau máli.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: raudur-raunveruleiki.simplecast.com
Autor
Karl Héðinn Kristjánsson, Oliver Axfjörð Sveinsson, Aníta Da Silva Bjarnadóttir
Categoria
Site do podcast
Último episódio
20 de mai de 2025
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
Lagabreytingartillögur Sósíalista á Akureyri um svæðisfélög 20.05.2025 23:34
Við ræðum við félagsmenn Sósíalistaflokksins í NA kjördæmi sem hafa lagt fram lagabreytingartillögu um svæðisfélög fyrir komandi aðalfund flokksins 24. maí. Karl Héðinn Kristjánsson ræðir við þá Ara Orrason, Guðberg Egill Eyjólfsson og Jón Þór Sigurðsson um lagabreytingartillögu þeirra og sósíalista á Akureyri.
Rauður raunveruleiki - Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð 19.05.2025 14:23
Lagabreytingartillaga ROÐA um Samvisku / Trúnaðarráð er kynnt í þættinum af Karli Héðni Kristjánssyni, Sigurrós Eggertsdóttur og Sigurði Erlends Guðbjargarsyni. Það er skýrt ákall um breytingar á Samvisku og við teljum að tillaga okkar sé skref í rétta átt. Næsta fimmtudag munum við kynna lagabreytingartillögu okkar. Opin umræða og gagnrýnar spurningar eru velkomnar. Verið hjartanlega velkomin á k...
Dystópískir tímar, stéttabaráttan og framtíðin 22.04.2025 1:05:54
Davíð Aron Routley, Halldór Ólafsson og Sigurrós Eggertsdóttir tala við Anitu Da Silvu Bjarnadóttur og Karl Héðinn Kristjánsson um nútímann, um sósíalisma og stórtíðindi undanfarinna vikna. Er fólk hræddara við félagshyggju en áframhaldandi kapítalisma? Munu tollar Trump reisa við Bandaríkin? Er enginn valkostur nema áframhaldandi kapítalismi?
Vistkerfiskrísa kapítalisma: Sósíalískir Umhverfissinnar 07.04.2025 48:44
Á degi jarðarinnar, 22. apríl, fer fram formlegur stofnfundur baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar. Hópurinn mun beita sér fyrir lífvænlegu og sjálfbæru umhverfi og félagslegu réttlæti! Arnar Páll Gunnlaugsson, Sigurrós Eggertsdóttir og Stefán Örn Ingvarsson Olsen ræða við Karl Héðinn Kristjánsson um stofnun baráttuhópsins Sósíalískir Umhverfissinnar.
Rauður raunveruleiki - Alþjóðlegur baráttufundur gegn heimsvaldastefnu og arðráni 25.03.2025 43:37
Félagsmenn Ungra Sósíalista þáðu boð á alþjóðlegan baráttufund gegn heimsvaldastefnunni og arðráni síðastliðna helgi. Fundurinn var kallaður til af sósíalíska Verkamannaflokknum í Frakklandi (Workers' Party (PT)) vegna stigmagnandi átaka og heimsvaldastefnu í heiminum. Kapítalismi og heimsvaldastefnan haldast í hendur og stigmögnun átaka í heiminum má rekja til óseðjandi hagnaðar- og valdakröfu ka...
Átök í Sósíalistaflokknum 17.03.2025 44:01
Mikið hefur gengið á í umræðunni undanfarna daga. Karl Héðinn skýrir mál sitt og talar við félaga sína í ungliðadeild Sósíalistaflokksins um átökin og framtíð flokksins.
Rauður raunveruleiki - Stríðsæsingar, vestræn sjálfsmynd og óvinir frelsisins 10.03.2025 57:56
Jovana Pavlovic, Jökull Sólberg Auðunsson & Halldór Armand koma til Karl Héðins að ræða um stöðu heimsmálanna, stríðsæsingar, vestræna sjálfsmynd, um stöðu Evrópu og Íslands á áhugaverðum tímum. Klukkan 17:30 í beinni á Samstöðinni
Rauður raunveruleiki - Byggjum betur! 08.03.2025 54:09
Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur, Egill Sæbjörnsson myndlistarmaður & Magnús Skúlason arkitekt koma og ræða við Karl Héðinn Kristjánsson og Trausta Breiðfjörð Magnússon um arkitektúr, umhverfissálfræði og átakið "Byggjum betur!". Undirskriftarlisti hér: https://island.is/undirskriftalistar/810d7272-e312-46f4-9d80-0aa32ffe3570
Virðing fyrir fólki og lífi / Askur og Kristbjörg 27.01.2025 54:48
Virðing fyrir fólki og lífi. Fjallað um tímana og fólk á flótta með Aski Hrafni Hannessyni og Kristbjörgu Örnu Elínudóttur Þorvaldsdóttur. Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar og Anitu Da Silvu Bjarnadóttur.
Sjáum samfélagið / Viðar Halldórsson 18.01.2025 54:50
Viðar Halldórsson í frábæru samtali um samfélagið og nýju bókina hans „Sjáum samfélagið“. Rætt var um mikilvægi félagslegra tengsla, um varhugaverða þróun samfélagsins að undanförnu. Mögulegar orsakir aukins kvíða, einmanaleika, kulnunar og jafnvel siðrofs. Rannsóknir hafa sýnt fram á það að það sem veitir fólki mestu lífshamingjuna eru ekki veraldlegir hlutir eða velsnægtir heldur frekar þau féla...
Rauður raunveruleiki - Stéttabarátta, nýfasismi og Twitter 11.01.2025 1:29:21
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins fjöllum við um aðgerðir Eflingar gegn gervistéttarfélaginu Virðingu, um fasista og nýnasista á Twitter, um Elon Musk, stéttabaráttu, falsfréttir, áróður og um eðli fasismans. Trausti Breiðfjörð Magnússon og Ægir Máni Bjarnason tala við Karl Héðinn Kristjánsson í Rauðum raunveruleika kl. 20:00.
„Woke“ Al-Kaída, áróður, heimsvaldastefna, þjóðarmorð. 15.12.2024 51:56
Karl Héðinn og Anita Da Silva ræða við Tjörva Schiöth um atburðina í Sýrlandi, hvítþvott Vesturlanda á þjóðarmorði, hryðjuverkum og heimsvaldastefnu. Hvað er að gerast í Sýrlandi og hvað gætu þessir atburðir þýtt fyrir framtíð Palestínu og Íran? Mun Ísrael taka stóran hluta Sýrlands og komast upp með það? Af hverju er CNN og aðrir stórir bandarískir fjölmiðlar að hvítþvo fyrrverandi foringja ISIS...
Kosningar gerðar upp, framhald baráttunnar. 06.12.2024 44:57
Rætt um niðurstöður kosninganna, stöðu Sósíalistaflokksins og framtíð baráttunnar fyrir réttlæti og mannúð á Íslandi og í heiminum. Anita Da Silva Bjarnadóttir, Karl Héðinn Kristjánsson, Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem Sesar A og Trausti Breiðfjörð Magnússon munu taka stöðuna.
Rauður raunveruleiki - Fangelsin, öryrkjar og velferð. Sósíalistar ræða málin. 23.11.2024 49:38
Karl Héðinn og Anita Da Silva tala við tvo félaga sína í Sósíalistaflokknum, þær Guðrúnu Ósk Þórudóttur og Maríu Pétursdóttur. Við ræddum um stöðu fangelsanna, öryrkja og almennrar velferðar og um alvarlega stöðu og þróun í þessum málaflokkum. Kíkið á stefnu Sósíalistaflokksins í velferðarmálum og ríkisfjármálum á Sosialistaflokkurinn.is
Rauður raunveruleiki - Ragnar Sverrirsson / Heimsganga fyrir friði og tilveru án ofbeldis 01.10.2024 1:03:42
Ragnar Sverrirson hefur lengi verið viðloðin alþjóðlegu Húmanistahreyfingunni og er nýkominn frá Keníu. Á miðvikudaginn verður viðburður í Klambratúni þar sem verður gert mannlegt friðarmerki. Sanna Magdalena verður fundastjóri og ræðufólk frá fjölmörgum samtökum taka til máls. Magga Stína mun synga. Mæting klukkan 20! Hvetjum alla til að mæta og standa fyrir friði. En eins og sagt var er Ragnar n...
Alfred de Zayas / Alþjóðalög, mannréttindi og áróður 29.09.2024 1:22:12
Alfred de Zayas er prófessor í alþjóðalögum við Háskólann í Genf og hefur áratugareynslu af starfi innan Sameinuðu Þjóðanna. Hann hefur starfað sem óháður sérfræðingur mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna í alþjóðamálum og skrifað fjölmargar bækur um alþjóðakerfið. Alfred hefur margt til málanna að leggja og er harður gagnrýnandi á tvískinnung Vesturlanda þegar kemur að mannréttindum og alþjóðal...
ASÍ, mótmæli á morgun, stéttabarátta og pólitík. 09.09.2024 1:08:03
Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) hafa boðað til mótmæla á morgun (10. september) á Austurvelli kl. 16:00. Í tilkynningu á vef ASÍ segir: „Vinnandi stéttir munu þar mótmæla skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart hárri verðbólgu og vöxtum. Nú er nóg komið!“ Samstöðutjald Vorstjörnunnar mun rísa upp á vellinum og hvetjum við alla til þess að mæta á Austurvöll á morgun ti...
Rauður raunveruleiki - Lögregluofbeldi mótmælt / Pétur Eggerz Pétursson 07.09.2024 1:17:20
Pétur Eggerz Pétursson hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum í tengslum við baráttuna fyrir frjálsri Palestínu, um ofbeldi lögreglunnar gagnvart mótmælendum í Skuggasundi og víðar. Anita Da Silva og Karl Héðinn tala við Pétur um mótmælin, stjórnmálin og nauðsyn þess að sporna við lögregluofbeldi og spillingu í Rauðum raunveruleika í kvöld klukkan 19:00
Rauður raunveruleiki - Ingólfur Gíslason & Sæþór Benjamín Randalsson 26.08.2024 1:13:16
Antia Da Silva og Karl Héðinn fá til sín góða gesti í spjall um heimsmálin og efnahagsmál. Ingólfur Gíslason er kennari sem hefur verið mjög virkur í hreyfingunni fyrir frjálsri Palestínu. Sæþór Benjamín Randallsson situr í stjórn Eflingar og er ötull baráttumaður fyrir félagslegu réttlæti.
Þórarinn Eyfjörð - Menntun, samfélag, lýðræði og stéttabarátta 22.08.2024 50:31
Þórarinn Eyfjörð er formaður Sameykis, stéttarfélags opinberra starfsmanna í almannaþjónustu. Við ræðum við Þórarinn um orlofsgreiðslur, um muninn á Jóni og Séra Jóni, um menntun, félagsstarf, lýðræði, velferð og þá vegferð sem Ísland er á. Hvað kynni að vera fram undan í stéttabaráttu almennings og af hverju er Ísland ekki enn þá komið með nýja stjórnarskrá? Þetta og fleira í Rauðum raunveruleika...
Venesúela - Ráðist að fullveldi og sjálfstæði þjóðar 10.08.2024 45:38
Í dag ætlum við að ræða um Venesúela. Bólivarísku byltinguna frá 1999, þjóðnýtingu Venesúlega á olíuauðlindum sínum, sem eru þær stærstu í heimi. Við ræðum við Gunnvöru Rósu Eyvindardóttir, en hún vann meistararitgerð um áhrif bólivarísku byltingarinnar fyrir almenning í Venesúela. Tjörvi Schiöth, doktorsnemi í sagnfræði verður einnig með og Eyjólfur B. Eyvindarson, Sesar A. Sjáið heimildarskrá á...
Sósíalistar allra landa: Eleobore Mbra Kofi 22.07.2024 1:06:54
Kristinn Hannesson sótti nýlega mjög fjölmenna ungmennaráðstefnu í Rússlandi þar sem ungt fólk úr hinum svokallaða þriðja eða öðrum heimi var og þar á meðal mikið af sósíalistum. Kristinn myndaði tengingar við sósíalista víðsvegar að úr Afríku, Asíu og Mið- og Suður Ameríku og við höfum ákveðið að taka viðtöl við þetta unga fólk og heyra um baráttu þess, viðhorf og stöðu í heiminum. Fyrsti gesturi...
Heimsvaldastefnan, Trump og Suður Ameríka / Eyjólfur B. Eyvindarson 15.07.2024 52:34
Eyjólfur B. Eyvindarson, einnig þekktur sem Sesar A er gestur okkar í kvöld. Við ræddum um heimsmálin, skotárásina á Trump, heimsvaldastefnuna, Suður Ameríku og nýlega valdaránstilraun í Bólivíu. Einnig ræðum við um aðdraganda Úkraínustríðsins og um 75 ára afmæli NATÓ hernaðarbandalagsins. Pakkaður þáttur um heimsmálin á Samstöðinni klukkan 11!
Barnasáttmálinn, siðrof og barátta 12.07.2024 1:01:36
Í þættinum í kvöld koma til okkar þau Askur Hrafn Hannesson og Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir. Kristbjörg er meðlimur baráttusamtakana No Borders og hefur verið í fremstu víglínu við að reyna að stöðva brottvísun Yazan, Palestínska barnsins með hættulegan hrörnunarsjúkdóm. Askur er sömuleiðis virkur í baráttunni fyrir mannúð og réttlæti í málefnum fólks á flótta, Palestínu og mannréttindum. Í s...
Radio Radicale / Róttæk fjölmiðlun á Ítalíu 02.07.2024 58:37
Radio Radicale er róttækur ítalskur fjölmiðill sem hefur starfað óslitið frá 1976. Við vorum svo lánsöm að ná tali af Stefano Chiarelli en hann hefur unnið hjá Radio Radicale í marga áratugi! Stefano mun tala ítölsku í viðtalinu en unnusta hans, Estrid Þorvaldsdóttir, mun þýða fyrir okkur. Við fjöllum um fjölmiðilinn, uppgang Meloni og hægrisins í Frakklandi, um samfélagsmál á Ítalíu og nauðsyn þe...
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos