Délítan
Kjaftæði
Kjaftæði! með Délítunni er spjall- og leikjaþáttur þar sem Délítan (Dagur, Viktor Ingi, og Palli) fær fólk til að ljúga upp í opið geðið á sér. Í hverjum þætti mætir gestur og segir áhugaverðar og skemmtilegar sögur úr sínu lífi en laumar einni lygasögu með. Drengirnir í Délítunni setjast í yfirheyrslusætin og spyrja gestina spjörunum úr til að komast að því hvað er sannleikur og hvað er kjaftæði.
Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.facebook.com
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
Kjaftæði #042 - Þú ferð ekki að rukka kónginn? [Sigurður Jóhann Andrésson] 12.12.2023 58:08
Góðvinur pörupiltanna, hann Jóhann nokkur, kom til þeirra á dögunum með fræknar sögur af myntuslegnum sundklefa, geitungum í Japan og háskalegu eftirpartíi. Strákarnir reyna sitt besta við að komast að sannleikanum í fertugastaogöðrum þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #041 - Sjaldan höfum við pissinu neitað [Anya Shaddock] 28.11.2023 57:27
Hún Anya (ekki með joði) kom til okkar á dögunum og stærði sig af óþekktarbarninu sem hún var, sprautuháska á kaffihúsi og standandi þvagmenningu. Komist að sannleikanum með strákunum í fertugastaogfyrsta þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #040 - Fagurfræði haturs er áhugamál mitt [Árni Reynir Hassell Guðmundsson] 16.11.2023 51:42
Hann Árni kom til okkar á dögunum og sagði okkur sögur af samfélagsmiðlabönnum, skyldleikum og dramatískum afmælisdegi. Strákarnir taka á honum stóra sínum og reyna eftir bestsu getu að komast að sannleikanum í fertugasta þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #039 - Já, þú ert búinn að stinga mig? [Þórhallur Þórhallsson] 31.10.2023 50:06
Uppistandarinn Þórhallur Þórhallsson kom til okkar á dögunum og sagði okkur hinar ótrúlegustu sögur af partístungum, vírusum í Kína og Rokklingunum. Komist að sannleikunum með pörupiltunum í þrítugastaogníunda þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #038 - Wake me up before you GóGó [GóGó Bergmann] 19.10.2023 48:05
GóGó Bergmann kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá sífellt banvænni sögum um Netflix, útskriftir og Hafnfirsk költ. Pörupiltarnir okkar reyna eftir fremsta megni að greina úr hvað er satt og hvað er lygi í þrítugastaogáttunda þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #037 - High on life, beint úr buxunum! [Ylfa Marín] 03.10.2023 43:58
Ylfa Marín kom til okkar á dögunum og sagði okkur furðusögur af manna(kvenna)villtum, búðarflassi og rothöggum! Grallararnir grúska sem mest þeir geta og reyna að komast að sannleikanum í þrítugastaogsjöunda þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #036 - Ómerkilegar Sögur [Délítan] 19.09.2023 38:34
Palli, Dagur og Viktor ljúga hvor annan fullan í þetta sinn. Sögur af köngulóamanninum, dracco köllum og háskalegum glæfraakstri. Komist að Sannleikanum í þrítugastaogsjötta þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #035 - Baradaskú, rússneska kirkjugarðsnornin [Magnús Gauti] 05.09.2023 59:42
Þriðji og síðasti þátturinn í bræðraþríleiknum svokallaða, þar sem pörupiltarnir í Kjaftæði fá bræður sína til sín til að ljúga þá kjaftfulla. Komist að sannleikanum í þrítugastaogfimmta þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #034 - Gastu ekki bara asnast til að pissa fyrr!? [Felix Viðar] 22.08.2023 44:53
Annar þátturinn í bræðraþríleiknum svokallaða, þar sem pörupiltarnir í Kjaftæði fá bræður sína til sín til að ljúga þá kjaftfulla. Komist að sannleikanum í þrítugastaogfjórða þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #033 - Sjaldan látið lim kjurrt liggja [Róbert Þórir] 08.08.2023 46:46
Fyrsti þátturinn í bræðraþríleiknum svokallaða, þar sem pörupiltarnir í Kjaftæði fá bræður sína til sín til að ljúga þá kjaftfulla. Komist að sannleikanum í þrítugastaogþriðja þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #032 - Gigg, nudd og sóló [Veigar Margeirsson] 25.07.2023 53:24
Tónskáldið Veigar Margeirsson kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá þremur "misskilningum" sem hann hafði lent í, hvor öðrum lygilegri. Strákarnir köfuðu í þá og leituðu að sannleikanaum í þrítugasta-og-öðrum þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #031 - Din-Jandy, the mother of all waterfalls [Ragnhildur Veigarsdóttir] 27.06.2023 48:39
Ragnhildur "Rocky" Veigarsdóttir kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá krýningum, hipphoppdönsum og N'Sync tónleikum. Lygin liggur þarna einhversstaðar og strákarnir reyna að komast að sannleikanum í þrítugastaogfyrsta þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #030 - Sigga Ósk er: The Thunder Tiger [Sigga Ósk] 13.06.2023 42:40
Hún Sigga Ósk kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá háskaferðum í landi strúta, köldum sturtum og forsetaóhöppum. Komist að sannleikanum í þrítugasta! þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #029 - Húðflett án deyfingar [Guðrún Rósa Róbertsdóttir] 30.05.2023 40:15
Guðrún kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá mennskum dýragörðum, daufri deyfingu og dragkeppni. Hlustir á pörupiltana í Délítunni spyrja Guðrún spjörunum úr og komist að sannleikanum í tuttugastaogníunda þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #028 - Gode venner på Roskilde [Villi Neto] 16.05.2023 53:03
Eftir ílangt páskafrí snúa fræknu lygabanarnir aftur! Sestur í stólinn er enginn annar en Villi Netó og sagði hann okkur sögur af tölfræðilegum ólíkindum á Hróarskeldu, þreyttum fótboltaköppum á Spáni og róðrarafrekum sínum. Komist að sannleikanum í tuttugastaogáttunda þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #027 - Sexkantur með sænsku mafíunni [Délítan] 05.04.2022 39:51
Viktor tekur sér tíma við að smíða ikea húsgögn, Dagur gengur inn á kúkandi menn og Palli er með afar mikilvæga tilkynningu. Komist að sannleikanum í tuttugastaogsjöunda þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #XXX - Alveg Dagsatt [Palli og félagar] - FYRSTI APRÍLÞÁTTURINN 01.04.2022 33:32
Í þessum sérstaka þætti af Kjaftæði segir Viktor frá hundakeppni sem hann tók þátt í, Dagur segir frá lyklatöku mikilvægs manns og Palli segir kunnuglega sögu, í nýjum búning. Komist að sannleikanum í þessum sérstaka þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #026 - Hvar hef ég EKKI pissað?! [Askur Nielsen] 29.03.2022 1:02:34
Palli er týndur! Þannig að Askur kom til okkar og sagði okkur fræknar sögur af líkamsvessum af öllum toga; pissi, svita og pöddum. Pöddum?? Pöddum. Okkur til halds og traust stökk Brimrún inn í staðinn fyrir Palla og hjálpaði okkur að komast að sannleikanum í tuttugastaogsjötta þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #025 - Barnapíubófinn [Viktor, Dagur og Palli] 22.03.2022 37:01
Öðlingarnir í Délítunni setjast að borðum og segja fræknar sögur af göldrum, sænskum ránum og örum (ekki örvum). Komist að sannleikanum í tuttugastaogfimmta þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #024 - Varúð! Táneglur [Ólafur Jóhann Steinsson] 15.03.2022 49:09
Uppkastari, Tik Tokkari, Olif! Óli kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá Svíþjóð, Spáni og tánöglum. allt lönd í Evrópu. Eitt þessara landa er uppspuni frá rótum. Komist að sannleikanum í tuttugastaogfjórða þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #023 - Katla rassar forsetann [Katla Njálsdóttir] 08.03.2022 41:27
Leikkona, söngkona og verðandi háskólanemi! Katla kom til okkar og sagði okkur frá sænsku ofurstjörnunni Jake Gyllenhal, kúkaferð á Esju og forsetarössun. Komist að lyginni í tuttugastaogþriðja þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #022 - Leikskólaglæpir [Ólöf Tara] 01.03.2022 40:37
Einkaþjálfari, femínisti og grjótharður Öfgi. Ólöf Tara kom til okkar og sagði okkur frá því þegar hún reyndi að brenna niður hús móður sinnar, láta sig hverfa á Spáni og verða fjögurra ára mafíósi. Ein þessara sagna er lygi, en hver? Komist að sannleikanum í tuttugastaogöðrum þætti af Kjaftæði!
Kjaftæði #021 - Næstum því í Nylon [Margrét Erla Maack] 22.02.2022 46:14
Fjöllistadís, Fjölmiðlakona, Danskennari, Karókíáhugamanneskja, Plötusnúður, Pistlahöfundur, Verkefnastjóri, Sirkuslistakona, Kabarett, Skemmtikraftur, Heimskona, Mataráhugamanneskja, Móðir, Kærasta, Íbúðareigandi, Miðbæjarrotta, Fegurðardís, Dóttir, Systir, Barnabarn, Letidýr ofl. Margrét Erla Maack kom og sagði frá ofurhetjuuppruna sínum, slæmum ömmum og öfum og Nylonkeppninni frægu. En hún, sem...
Kjaftæði #020 - Trúðurinn á Titanic [Jón Haukdal] 15.02.2022 57:46
Söngvari, bangsi, trúður. Jón Haukdal kom til okkar á dögunum og sagði okkur frá byssuævintýri á Spáni, örlögum Títanikks og bestu afmælisveislunni. Ein þessara sagna er lygi, en hver? Komist að sannleikanum í tuttugasta(!) þættinum af Kjaftæði!
Kjaftæði #019 - Hvernig ég kynntist mömmu þinni [Sigurboði Grétarsson] 08.02.2022 52:39
Tónlistarmaður, tattúartisti, víkingur. Sigurboði bað okkur um að setjast niður á meðan hann sagði okkur fræknar sögur af ruslfæði, dýrum bónorðum og öskuillum prinsessum. Einhver sagna hans var að sjálfsögðu hrein og tær lygi, en hver þeirra? Komist að því í nítjánda þættinum af Kjaftæði!
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos