RÚV

Í ljósi sögunnar

Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.

Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categoria

Society

Site do podcast

www.ruv.is

Último episódio

26 de jun de 2026

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,8 iOS em breve

Episódios

Jonas Salk og mænuveikin 21.01.2022

Í þættinum er fjallað um bandaríska lækninn Jonas Salk, sem vann að þróun bóluefnis við mænuveiki í Bandaríkjunum um miðbik tuttugustu aldar, og var hampað sem þjóðhetju fyrir störf sín. Lesarar með umsjónarmanni: Guðni Tómasson og Úlfhildur Eysteinsdóttir. Umsjón: Vera Illugadóttir.

Breski íshafsleiðangurinn II 14.01.2022

Í þættinum er fjallað um leiðangur ungra Breta á Grænlandsjökul til veðurathugana veturinn 1930-1931. Einn þeirra festist á jöklinum og voru Íslendingar, meðal annarra, ræstir út að bjarga honum úr háska. Síðari þáttur.

Breski íshafsleiðangurinn I 07.01.2022

Í þættinum er fjallað um leiðangur ungra Breta á Grænlandsjökul til veðurathugana veturinn 1930-1931. Bretarnir höfðu viðkomu á Íslandi og síðar voru Íslendingar ræstir út að bjarga þeim úr háska. Fyrri þáttur af tveimur.

Norska svartmálmssenan 17.12.2021

Í þættinum er fjallað um upphafsár norsku svartmálms- eða black metal-senunnar, unga rokktónlistarmenn sem brenndu aldagamlar kirkjur til grunna og myrtu hver aðra.

Hrakningar Donner-flokksins II 10.12.2021

Síðari þáttur um hrakfarir hins svonefnda Donner-flokks, bandarískra landnema sem reyndu að komast landleiðina vestur til Kaliforníu sumarið 1846. Í þessum þætti segir frá vetursetu fólksins í Sierra Nevada-fjöllum og örvæntingarfullum tilraunum til að komast af. Athugið að lýsingar í þættinum gætu valdið óhug.

Hrakningar Donner-flokksins I 03.12.2021

Í þættinum er fjallað um svokallaðan Donner-flokk, hóp bandarískra landnema sem freistuðu þess að ferðast þvert yfir Norður-Ameríku til Kaliforníu árið 1846, en lentu í miklum hrakningum á leiðinni. Fyrsti þáttur.

Magnus Hirschfeld 26.11.2021

Í þættinum er fjallað um þýska lækninn Magnus Hirschfeld, sem var frumkvöðull í kynfræði á fyrstu árum 20. aldar og baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks.

Aum Shinrikyo II 12.11.2021

Síðari þáttur af tveimur um japanska dómsdagssöfnuðinn Aum Shinrikyo og voðaverk þeirra.

Aum Shinrikyo I 05.11.2021

Fyrri þáttur af tveimur um japanska sértrúarsöfnuðinn Aum Shinrikyo.

El Faro 29.10.2021

Í þættinum er fjallað um eitt mannskæðasta sjóslys Bandaríkjanna á síðari árum. Í október 2015 hvarf bandarískt flutningaskip við Bahama-eyjar í miðjum fellibyl.

Fjölskyldan Dupont de Ligonnès 22.10.2021

Í þættinum er fjallað um eitt alræmdasta sakamál Frakklands á síðari árum: hvarf sex manna fjölskyldu, í frönsku borginni Nantes, í apríl 2011.

Soldáninn í Brúnei 15.10.2021

Í þættinum er fjallað um soldánsveldið Brúnei í Suðaustur-Asíu og sér í lagi núverandi soldán þess og bróður hans, en báðir eru þekktir fyrir eyðslusemi og gjálífi.

Leitin að Eichmann II 08.10.2021

Í þættinum er haldið áfram að fjalla um leitina að þýska nasistaforingjanum Adolf Eichmann eftir síðari heimsstyrjöld. Síðari þáttur.

Leitin að Eichmann I 01.10.2021

Í þættinum er fjallað um leitina að þýska nasistaforingjanum Adolf Eichmann eftir síðari heimsstyrjöld.

Afganska baráttukonan Meena 24.09.2021

Í þættinum er fjallað um afgönsku baráttukonuna Meenu. Hún stofnaði Byltingarsamtök afganskra kvenna (RAWA) í Afganistan á áttunda áratug síðustu aldar til að berjast fyrir réttindum og hag kynsystra sinna. Baráttan varð lífshættuleg. Umsjón: Vera Illugadóttir.

Kasakstan Nasarbajevs 17.09.2021

Í þættinum er fjallað um sögu Mið-Asíuríkisins Kasakstan á síðari árum, og sér í lagi valdatíð forsetans Núrsultans Nasarbajev sem lét af embætti í ársbyrjun 2019 eftir nærri þrjá áratugi við völd.

Belgica-leiðangurinn 10.09.2021

Í þættinum er fjallað um leiðangur undir stjórn Belgans Adrien de Gerlache til Suðurskautslandsins í lok nítjándu aldar. Skip leiðangursmanna festist mánuðum saman í hafís og í myrkri heimskautavetursins misstu margir bæði heilsuna og vitið. Leiðangurinn er einnig þekktur sem frumraun eins fræknasta heimskautafara sögunnar.

Eþíópía VI 16.04.2021

Þetta er sjöttu þáttur um sögu Eþíópíu. Í þættinum er fjallað um sögu landsins á tuttugustu öld, ævi og valdatíð Haile Selassie keisara og seinna stríð Eþíópíumanna og Ítala.

Eþíópía V: Haile Selassie 09.04.2021

Þetta er fimmti þáttur um sögu Eþíópíu. Í þættinum er fjallað um sögu landsins á tuttugustu öld, ævi og valdatíð Haile Selassie keisara og seinna stríð Eþíópíumanna og Ítala.

Eþíópía IV: Stríðið við Ítali 19.03.2021

Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um sögu Afríkuríkisins Eþíópíu. Í þessum þætti er fjallað um valdatíð keisarans Jóhannesar 4. og eftirmanns hans, Menelik 2., og stríð Eþíópíumanna við Ítali í nýlendukapphlaupi Evrópuþjóða.

Pocahontas 12.03.2021

Í þættinum er fjallað um raunverulega ævi Pocahontas, ungrar frumbyggjastúlku sem varð á vegi enskra landnema í Norður-Ameríku í byrjun 17. aldar. Lesari: Leifur Hauksson.

Finnska borgarastyrjöldin 05.03.2021

Í þættinum er fjallað um finnsku borgarastyrjöldina í ársbyrjun 1918.

Ferdinand og Imelda Marcos 26.02.2021

Í þættinum er fjallað um Ferdinand Marcos, forseta og einráð á Filippseyjum, konu hans Imeldu, og mótmælin sem urðu til þess að þau hrökkluðust í útlegð í febrúar 1986.

Osama bin Laden III 19.02.2021

Þriðji og síðasti þáttur um ævi hryðjuverkamannsins Osama bin Laden.

Osama bin Laden II 05.02.2021

Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um ævi hryðjuverkamannsins Osama bin Laden.

Ouça o podcast Í ljósi sögunnar no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos