Ragga Nagli
Heilsuvarpid
Podcast by Ragga Nagli
Onde ouvir?
Podcasts no app Replaio Radio Em breveOs podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts
Episódios
#8-Gummi Kírópraktór- stoðkerfið, Crossfit, rassinn og hreyfiteygjur 18.02.2019 59:36
Gummi Kíró eða Guðmundur Birkir Pálmason er maður með marga titla á ferilskránni. Harðkjarnaður Hornfirðingur, fyrrum vaxtarræktarkappi og vann sem einkaþjálfari í rúman áratug áður en hann menntaði sig í kírópraktík í Svíþjóð. Gummi stundar Crossfit af kappi og því eldri en tvævetur í sölum ræktar og með mikla þekkingu á líkamanum, hreyfingu og meiðslum. Hann stofnaði kírópraktorstofu í Stokkhólm...
# 7 - Árni Þórddur sálfræðingur- Kvíði 05.02.2019 1:10:48
Árni Þóroddur Guðmundsson er löggiltur sálfræðingur í Kaupmannahöfn og Hann er með sína eigin stofu ásamt Röggu Nagla á Frederiksberg þar sem hann tekur á móti skjólstæðingum og er hokinn af reynslu af vinnu með kvíða, depurð, þunglyndi og streitu. Eins sinnir hann fjölskylduráðgjöf Í þessum þætti tölum við kollegarnir og gömlu vinirnir aðallega um kvíða og hvernig hann birtist okkur bæði líkamleg...
# 6 - Vaxtarrækt og fitness með Kidda Sam 24.01.2019 1:16:20
Kristján Samúelsson eða Kiddi Sam er að öðrum ólöstuðum einn fremsti fitness og vaxtarræktarkappi sinnar kynslóðar. Hann keppti á yfir 10 mótum en hefur nú lagt Speedo skýluna á hilluna. Kiddi byrjaði að lyfta lóðum 16 ára gamall og keppti fyrst árið 1997. Hann hefur verið búsettur í Malmö síðasta áratuginn og starfað lengi sem einkaþjálfari og fjarþjálfari og er hafsjór að fróðleik þegar kemur að...
Þáttur 5 - Heilsuvarpið: CrossFit með Anítu Dögg Watkins 14.01.2019 1:02:36
Aníta Dögg Watkins er eigandi og þjálfari í Kraftværk, vinsælli CrossFit stöð í Kaupmannahöfn sem hún á og rekur ásamt eiginmanni sínum. Hún er lærð hárgreiðslukona en sinnir nú einungis þjálfunarstörfum og er hafsjór af fróðleik og hokin af reynslu í öllu sem viðkemur CrossFit, BootCamp, OCR og mobility. Við fórum um víðan völl varðandi þjálfun og mataræði í þessu lauflétta spjalli. Njótið! - Rag...
Þáttur 4 - Heilsuvarpid: Streita með Gústa lækni 02.01.2019 1:13:17
Gústi læknir, Ágúst Óskar Gústafsson, er heimilislæknir í Kaupmannahöfn. Hann hefur sérhæft sig í meðhöndlun á streitu og heldur úti Facebook síðu "Ekki halda stressi til streitu." Hér talar hann um áhrif streitu á líkamlega heilsu og við ræðum hvaða bjargráð við getum notað til að höndla sreituvalda og minnka áhrif hennar. Gústi lumar á ýmsum ráðum úr sínu klíníska starfi og reynslu af meðhöndlun...
Þáttur 3 - Heilsuvarpid: Svefn með Helga Ómars 19.12.2018 48:22
"Ég gleymdi að ýta á rec!!!" Í upphafi heyrið þið örvæntingarástand sem skapaðist í miðri upptöku þar sem ég hélt að ég hefði gleymt að ýta á upptökutakkann. Okkur fannst við hæfi að hafa það með til að sýna að við erum öll mannleg og gerum mistök. Í þessum þætti er fjallað um undirstöðuna fyrir alla heilsuhegðun - svefninn. Af hverju þurfum við að sofa? Hvernig getum við bætt svefninn? Hvaða skre...
Þáttur 2 - Heilsuvarpið: Æfingar með Bigga þjálfara 11.12.2018 1:03:50
Gestur þáttarins er Arnaldur Birgir Konráðsson, þjálfari til 20 ára og einn stofnanda Boot Camp á Íslandi. Við ræðum um allt sem viðkemur hreyfingu, æfingum, hvatningu og hver eru algengustu mistökin sem hann sér í ræktinni. Hann kemur með mörg góð ráð fyrir byrjendur og lengra komna.
Þáttur 1 - Heilsuvarpid: Fimm máttarstólpar heilsu 29.11.2018 18:38
Í þessum þætti er fjallað um fimm máttarstólpa góðrar heilsu og nauðsynlegar heilsuvenjur undir hverjum og einum sem stuðla að betri líðan og lífsgæðum. Svefn. Mataræði. Hreyfing. Streitustjórnun. Félagslíf.
Podcasts parecidos
O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos