Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

Hlaðvarp

Autor

Thorarinn Hjartarson

Categoria

Society

Site do podcast

www.spreaker.com

Último episódio

10 de jul de 2026

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,8 iOS em breve

Episódios

#257 Er Flokkur fólksins flokkur góða fólksins? (með Eyjólfi Ármannssyni) 04.10.2023

Þórarinn ræðir við Eyjólf Ármannsson um stemninguna á þinginu, stjórnmálin, málefni öryrkja, húsnæðis- og flóttamannamál.

#256 Er Ásgeir seðlabankastjóri á villigötum? (með Ólafi Margeirssyni) 28.09.2023

Er seðlbankastjóri á villigötum? Er verðtryggingin svikamylla? Hvað getur ríkisstjórnin gert? Geta lífeyrissjóðirnir bjargað málunum og ættu þeir að gera það? Um hvað fjallar bók Ólafs Margeirssonar? Öllum þessum spurningum er svarað í þessum þætti og mörgum fleirum. Áskrift: www.pardus.is/einpaeling Bók Ólafs: https://www.amazon.com/-/es/%C3%93lafur-Margeirsson-ebook/dp/B0CCNZQQMM

#255 Hvað gerist ef Samfylkingin tekur við? (með Jóhanni Páli Jóhannssyni) 26.09.2023

Hvað ætlar Samfylkingin að gera ef hún kemst í ríkisstjórn? Er Samfylkingin tilbúin að vinna með Sjálfstæðisflokknum? Mun Samfylkingin fjarlægjast Twitter-herinn? Öllum þessum spurningum og mörgum öðrum er svarað í þessu hlaðvarpi. Hlaðvarpið má sjá í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

#254 Getur Úkraína unnið stríðið? (Með Hilmari Þór Hilmarssyni) 23.09.2023

Þórarinn Hjartarson talar við Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri um málefni Úkraínu, Kína og breytinga valdhafa í alþjóðamálum.

#253 Kynfræðsla, hinseginfræðsla og börn (með Ivu Adrichem) 20.09.2023

www.pardus.is/einpaeling Í þessum þætti er fjallað um BDSM-hneigð, málefni kynseginfræðslu og kynfræðslu, transmál, hinseginbörn, stjórnmálin, Þorstein V. Einarsson, réttindabaráttur undanfarinna ára og margt fleira.

#252 Beitir sér fyrir útrýmingu Sjálfstæðisflokksins þjóni flokkurinn ekki þjóðinni (með Arnari Þóri Jónssyni) 17.09.2023

Arnar Þór Jónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, fer hörðum orðum um sinn eigin flokk og segist vera tilbúinn að beita sér fyrir útrýmingu flokksins kjósi flokkurinn ekki að breyta um stefnu í málefnum lagaumgjörðar Evrópusambandsins og bókun 35 sem veldur forgangi laga Evrópusambandsins gagnvart lögum sem Alþingi setur. Í þessum þætti er rætt um þau fjölmörgu mál sem að þessu snúa, heimspek...

#251 Pólitísk ráðgjöf til allra flokka (með Stefáni Óla Jónssyni) 15.09.2023

Getur Sjálfstæðisflokkurinn náð fyrri styrk? Hvað er Sósíalistaflokkurinn? Þurfa Píratar að fara aftur í ræturnar? Afhverju er ekki eftirspurn eftir Viðreisn? Getur Samfylkingin náð fylgi skoðanakannanna í kosningum? Er Framsókn stefnulaus flokkur? Hvað þarf Flokkur fólksins að gera? Hafði Miðflokkurinn rétt fyrir sér? Hvað gerir VG? Öllum þessum spurningum er svarað í þessum þætti.

#250 Þarf lögreglan rafbyssur og forvirkar rannsóknarheimildir? (með Fjölni Sæmundssyni) 10.09.2023

Þórarinn ræðir við Fjölnir Sæmundsson um störf lögreglunnar. Fjallað er um aukna hörku í undirheimunum, forvirkar rannsóknarheimildir, hryðjuverkamálið, hvort að lögreglan eigi að bera rafbyssur, menninguna og fleira. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

#249 Kerfið stendur vörð um kerfið (með Jóni Ívari Einarssyni) 05.09.2023

Jón Ívar Einarsson er læknir og kennari við Harvard háskóla. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Jón Ívar um heilbrigðiskerfið á Íslandi og þær áskoranir sem að það mun koma itl með að þurfa að þreyta á næstu árum og áratugum. Til þess að áskotnast áskrift má finna allt efni í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

#248 Vinstri græn skortir heilindi (með Jóni Gunnarssyni) 30.08.2023

Þórarinn ræðir við Jón Gunnarsson, fyrrum dómsmálaráðherra og þingmann Sjálfstæðisflokksins, um ríkisstjórnina, útlendingamál og hvalveiðibannið. Facebook síða: https://www.facebook.com/groups/708593984436728 Áskrift: www.pardus.is/einpaeling

#247 Hvað getur Ísland tekið á móti mörgum flóttamönnum á ári? (með Arndísi Önnu Kristínar- Gunnarsdóttur)) 29.08.2023

Þórarinn ræðir við Arndísi Önnu Kristínar- Gunnarsdóttur um málefni hælisleitenda á Íslandi og margt fleira. Facebook síða: https://www.facebook.com/groups/708593984436728 Áskrift: www.pardus.is/einpaeling

#246 Gerði Katrín mistök með myndun þessarar ríkisstjórnar? (með Ólafi Þ. Harðarsyni og Bjarna Halldóri Janussyni) 27.08.2023

Þórarinn, Ólafur Þ. Harðarson og Bjarni Halldór Janusson fara yfir stjórnmálin nú þegar stutt er í upphaf þingvetursins.

#245 Orkumál og flóttamenn (með Sigríði Á. Andersen) 24.08.2023

Hlaðvarpið í heild: www.pardus.is/einpaeling Sigríður Á. Andersen er fyrrverandi dómsmálaráðherra og þingmaður sem að er óhrædd við að láta í ljós sínar skoðanir. Hún hefur undanfarið gagnrýnt stjórnvöld í málefnum orku- og loftslagsmála ásamt því að telja málefni flóttafólks og hælisleitenda vera í ólestri. Í þessum þætti er rætt um þau mál.

#244 Ef sjálfstæðis- og framsóknarmenn hafa einhver prinsip þá slíta þeir stjórnarsambandinu (með Vilhjálmi Birgissyni) 21.08.2023

Þórarinn ræðir við Vilhjálm Birgisson um ýmis mál. Má þar nefna hvalveiðibannið, kjaramálin, stjórnmál og hvort meta eigi menntun til launa.

#243 Hvernig getur Sjálfstæðisflokkurinn starfað með flokki sem hefur rofið traust? (með Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur) 17.08.2023

www.pardus.is/einpaeling Heiðrún Lind Marteinsdóttir er er lögmaður og núverandi framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Í þessum þætti er rætt um hvalveiðibannið svokallaða, stöðu sjávarútvegsins, spillingu, stjórnmálin og margt fleira.

#242 Uppgangur öfgaafla verður í boði þeirra sem þagga niður umræðu (með Diljá Mist Einarsdóttur) 13.08.2023

www.pardus.is/einpaeling Diljá Mist Einarsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Diljá um stöðu ríkisstjórnarinnar, hvalveiðibann Svandísar Svavarsdóttur og útlendingamál.

#241 Þó svo að ríkisstjórnarsambandið sé dautt er ekki víst að það muni hætta (með Ólafi Arnarsyni) 11.08.2023

www.pardus.is/einpaeling Ólafur Arnarson er hagfræðingur og viðskiptablaðamaður hjá Eyjunni. Í þessu hlaðvarpi er rætt um alþjóðamálin og hvernig stöðu Íslands í kviku umhverfi í breyttum heimi. Einnig er rætt um stjórnmálin á Íslandi og stöðu ríkisstjórnarinnar og annarra flokka á þingi.

#240 Hvað gerist þegar vextir föstu lánanna losna? (með Birni Berg Gunnarssyni) 31.07.2023

www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir við Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafa um afleiðingar þess þegar vextir þeirra lána sem tekin voru á föstum kjörum á faraldurstímum. Þau lán voru tekin á töluvert betri kjörum en hægt er að fá í dag og afleiðingar þess á heimili sem tóku stór lán sem munu, að öllum líkindum, bera töluvert hærri greiðslubyrði en áður.

#239 Lýðheilsa og ójöfnuður (með Sigurrós Elddísi) 28.07.2023

Sigurrós Elddís er meistaranemi sem hefur verið að rannsaka lýðheilsu á Íslandi og tengingu hennar við ýmis samfélagsmál. Í þessum þætti er rætt um tengsl lýðheilsu og ójöfnuðar.

#238 Er hægt að treysta íslenska bankakerfinu? (með Herði Ægissyni) 21.07.2023

Þórarinn ræðir við Hörð Ægisson, ritstjóra Innherja, um Íslandsbankasöluna, fjármálakerfið, stjórnmálin og fleira.

#237 "Alþingi er óskilvirkasti vinnustaður sem ég hef unnið á" (Með Þorsteini Víglundssyni) 17.07.2023

www.pardus.is/einpaeling Þorsteinn Víglundsson er fyrrum ráðherra og Alþingismaður en í dag er hann forstjóri eignarhaldsfélagsins Hornsteinn. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Þorstein um reynslu hans sem ráðherra og áhrif stjórnmálanna á skilvirkni markaðarins. www.pardus.is/einpaeling

#236 Er faraldurinn búinn? (með Þórólfi Guðnasyni) 13.07.2023

www.pardus.is/einpaeling Þórarinn talar við Þórólf Guðnason þar sem litið er í baksýnisspegilinn og tveggja ára tímabil faraldursins skoðað.

#235 Getur ríkisstjórnin haldið áfram? (með Brynjari Níelssyni) 07.07.2023

www.pardus.is/einpaeling

#234 Samskipti á tímum tæknibreytinga (með Ernu Mist) 02.07.2023

Rætt er um sannleikann, áhrif tækninnar á samskipti, samfélagsbreytingar og margt fleira.

#233 Misheppnað valdarán í Rússlandi (með Alberti Jónssyni) 26.06.2023

www.pardus.is/einpaeling Albert Jónsson er sérfræðingur í utanríkismálum og með mikla reynslu við störf á þeim vettvangi. Í þessum þætti er rætt um misheppnaða valdaránstilraun Yevgeny Prigozhin, stríðið í Úkraínu, Kína, Taiwan og aðrar vendingar í alþjóðastjórnmálum

Ouça o podcast Ein Pæling no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos