Rauðu djöflarnir

Djöflavarpið

Sports IS ↓ 123 episódios

Rauðu djöflarnir fjalla um Manchester United frá hinum ýmsu hliðum. Þið finnið okkur á Facebook, Twitter og raududjoflarnir.is

Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.raududjoflarnir.is

Autor

Rauðu djöflarnir

Categoria

Sports

Site do podcast

www.raududjoflarnir.is

Último episódio

28 de out de 2024

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,8 iOS em breve

Episódios

Podkast Rauðu djöflanna – 22. þáttur 25.04.2016

Þeir Tryggvi Páll, Maggi og Björn mættu til leiks í 22. þættinum af podkasti Rauðu djöflanna. Rætt var um sigurleikinn gegn Everton um helgina sem tryggði United sæti í úrslitaleik FA-bikarsins í fyrsta skipti síðan 2007. Þá var einnig spáð í spilin fyrir síðustu fjóra leikina í deildinni.

Podkast Rauðu djöflanna – 21. þáttur 21.03.2016

Þeir Tryggvi Páll, Maggi og Sigurjón mættu til leiks í 21. þættinum. Rætt var um spilamennsku liðsins undanfarið, Marouane Fellaini, Louis van Gaal, José Mourinho og Marcus Rashford, svo fátt eitt sé nefnt.

Podkast Rauðu djöflanna – 20. þáttur 21.02.2016

Þáttur nr. 20 er kominn í loftið. Að þessu sinni ræddu Runólfur, Tryggvi Páll, Björn, Maggi og Sigurjón um alvarlega stöðu mála United undir stjórn Louis van Gaal, getuleysi stjórnarinnar og margt margt meira í þéttpökkuðum þætti þar sem málefni United voru rædd á hreinskiptinn hátt.

Podkast Rauðu djöflanna – 19. þáttur 18.01.2016

Þáttur nr. 19 er kominn í loftið. Að þessu sinni ræddu Runólfur, Tryggvi Páll, Björn, Maggi og Sigurjón um stöðu Louis van Gaal, sigurinn á Liverpool og átökin í stjórnarherberginu ásamt ýmsu öðru.

Podkast Rauðu djöflanna – 18. þáttur 13.12.2015

Þáttur nr. 18 er mættur! Að þessu sinni ræddu Sigurjón, Tryggvi Páll, Björn og Maggi og var umræðuefnið (næstum því) aðeins eitt, Louis van Gaal!

Podkast Rauðu djöflanna – 17. þáttur 29.11.2015

Þáttur nr. 17 er kominn í loftið. Að þessu sinni ræddu Runólfur, Tryggvi Páll, Björn og Maggi gengi liðsins undanfarnar vikur, markaleysið, varnarleikinn, Pep Guardiola og Louis van Gaal og ýmislegt fleira.

Podkast Rauðu djöflanna – 16. þáttur 27.10.2015

Þáttur nr. 16 er kominn í loftið. Að þessu sinni ræddu Sigurjón, Runólfur, Tryggvi Páll og Björn gengi liðsins undanfarnar vikur, leikinna gegn Arsenal og City, Schmiðjuna, Wayne Rooney og leikina framundan.

Podkast Rauðu djöflanna – 15. þáttur 29.09.2015

Þáttur nr. 15 er kominn í loftið. Að þessu sinni ræddu Sigurjón, Magnús, Runólfur og Tryggvi Páll gengi liðsins undanfarnar vikur, Anthony Martial og miðverðina okkar ásamt því að tekinn var léttur snúningur á dagskránni framundan.

Podkast Rauðu djöflanna – 14. þáttur 03.09.2015

Þáttur nr. 14 er kominn í loftið. Að þessu sinni mættu Sigurjón, Magnús, Björn Friðgeir og að þessu sinni var sérstakur gestur þáttarins Halldór Marteins. Við ræddum létt um fyrstu leiki tímabilsins og síðan hinn tíðindamikla glugga.

Podkast Rauðu djöflanna – 13. þáttur 04.08.2015

Við skelltum svo auðvitað í glænýjan podkast-þátt þar sem við ræddum örlítið um botnliðin og meira um þau lið sem við teljum að endi í 6. sæti og ofar. Við tókum einnig létta umræðu um stöðuna hjá Manchester United með áherslu á kaup og sölur. Tryggvi Páll, Björn Friðgeir, Magnús, Sigurjón og Elvar voru mættir til leiks að þessu sinni.

Podkast Rauðu djöflanna – 12. þáttur 16.07.2015

Þáttur nr. 12 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Tryggvi Páll, Magnús, og Björn Friðgeir á línunni. Við byrjuðum á að ræða blaðamannafund Louis van Gaal í gær þar sem hann varpaði fram nokkrum sprengjum, færðum okkur svo yfir í nýju leikmennina þrjá áður en að við enduðum þetta á því að fara yfir æfingaferðalagið til Bandaríkjanna.

Podkast Rauðu djöflanna – 11. þáttur 25.06.2015

Þáttur nr. 11 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Tryggvi Páll, Magnús, Björn Friðgeir og Sigurjón til tals. Mikið hefur verið rætt um Sergio Ramos í sambandi við möguleg kaup Real Madrid á David De Gea og við fórum rækilega yfir það mál ásamt því að við ræddum almennt um sumarið hingað til hjá United.

Podkast Rauðu djöflanna – 10. þáttur 25.05.2015

Þáttur nr. 10 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Tryggvi Páll, Magnús, Björn Friðgeir, Runólfur og Sigurjón til tals. Í tilefni þess að tímabilinu lauk í gær ræddum við stöðuna á leikmannahópnum frá A-Ö auk þess sem að við veittum verðlaun í lok þáttarins.

Podkast Rauðu djöflanna – 9. þáttur 05.05.2015

Þáttur nr. 9 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Tryggvi Páll, Magnús, Björn Friðgeir, Runólfur og Elli til tals ásamt því að Sigurjón mætti til leiks í hálfleik. Við spjölluðum um tapleikina þrjá gegn Chelsea, Everton og WBA, tókum snúning á samningamálum David de Gea og ræddum aðeins um væntanleg leikmannakaup:

Podkast Rauðu djöflanna – 8. þáttur 05.04.2015

Gleðilega páska! Þáttur nr. 8 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Tryggvi Páll, Magnús, Björn Friðgeir og Sigurjón til tals. Við spjölluðum um gott gengi liðsins undanfarið, sigurleikina gegn Tottenham, Liverpool og Villa, ræddum einstaka leikmenn og spáðum aðeins í leikmannakaupum og sölum sumarsins:

Podkast Rauðu djöflanna og Kop.is 18.03.2015

Í tilefni stórleiks Manchester United og Liverpool á Anfield nk. sunnudag tókum við á Rauðu djöflunum og félagar okkar á Kop.is höndum saman og hituðum við upp fyrir þennan stórleik í sérstökum podkast-þætti! Fyrir hönd Rauðu djöflanna mættu Tryggvi Páll og Sigurjón og fyrir hönd Kop.is mættu Einar Örn og Kristján Atli sem stýrði umræðum. Við ræddum um gengi og stöðu Manchester United og Liverpool...

Podkast Rauðu djöflanna – 7. þáttur 11.03.2015

Þáttur nr. 7 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Tryggvi Páll, Magnús, Runólfur og Sigurjón til tals. Við spjölluðum um gengi liðsins undanfarið, tapið gegn Arsenal, spáðum í spilin varðandi næstu leiki auk þess sem við ræddum um Juan Mata, Angel di Maria og Rafael. Þéttur þáttur að þessu sinni.

Podkast Rauðu djöflanna – 6. þáttur 08.02.2015

Þáttur nr. 6 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Björn Friðgeir, Tryggvi Páll, Magnús og Sigurjón til tals. Við spjölluðum um leikinn gegn West Ham, Louis van Gaal og framtíðina. Einnig pældum við aðeins í Wayne Rooney sem miðjumanni og hvað sé eiginlega málið með Adnan Januzaj?!

Podkast Rauðu djöflanna – 5. þáttur 04.01.2015

Þáttur nr. 5 er kominn í loftið! Að þessu sinni voru Björn Friðgeir, Tryggvi Páll, Magnús og Sigurjón til tals. Við spjölluðum um sigurinn gegn Liverpool, jólatörnina, Falcao, Ashley Young, leikina framundan og margt margt fleira.

Podkast Rauðu djöflanna – 4. þáttur 04.12.2014

Þáttur nr. 4 er kominn í loftið! Að þessu sinni mættu Björn Friðgeir, Tryggvi Páll, Magnús, Sigurjón og sérstakur gestur þáttarins Trausti Sig til leiks. Við spjölluðum um síðustu fjóra sigurleiki, Fellaini, Carrick, De Gea, David Beckham, meiðslin, leikina framundan og meira til.

Podkast Rauðu djöflanna – 3. þáttur 06.11.2014

Þáttur nr. 3 er kominn í loftið! Að þessu sinni mættu allir til leiks, Tryggvi Páll, Björn Friðgeir, Magnús, Runólfur, Elvar Örn og Sigurjón spjölluðu um leikina gegn Man City og Chelsea, leikkerfin, endalaus meiðsli varnarmanna, gríðarlegan kynþokka Falcao og margt annað skemmtilegt.

Podcast Rauðu djöflanna – 2. þáttur 05.10.2014

Það er landsleikjahlé á næsta leiti og því tilvalið tækifæri til að taka upp næsta þátt af podcastinu okkar. Þáttur nr. 2 er kominn í loftið og ætti að endast ykkur fram að næsta leik sem er ekki fyrr en 20. október þegar okkar menn heimsækja WBA.

Podcast Rauðu djöflanna – 1. þáttur 07.09.2014

Það er landsleikjahlé og það er ekkert að gerast. Ekki örvænta! Vegna vaxandi vinsælda síðunnar og eftirspurnar kynnum við til leiks Podcast Rauðu djöflanna! Við stefnum á að gera nokkra svona þætti reglulega yfir tímabilið og áfram ef viðtökur verða góðar. Njótið!

Ouça o podcast Djöflavarpið no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos