Rauðu djöflarnir

Djöflavarpið

Sports IS ↓ 123 episódios

Rauðu djöflarnir fjalla um Manchester United frá hinum ýmsu hliðum. Þið finnið okkur á Facebook, Twitter og raududjoflarnir.is

Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.raududjoflarnir.is

Autor

Rauðu djöflarnir

Categoria

Sports

Site do podcast

www.raududjoflarnir.is

Último episódio

28 de out de 2024

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,8 iOS em breve

Episódios

96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar? 01.03.2021

Maggi, Daníel og Þorsteinn settust niður og fóru vel yfir fréttir og leiki síðustu daga. Manchester United mætir AC Milan í 16 liða úrslitum Evrópudeildarinnar Eru markmannsbreytingar framundan? Henderson eða De Gea? Hvaða stöður í liðinu þarf helst að styrkja og hvaða leikmenn eiga að koma? 3:1 sigur á Newcastle Markalaust í seinni leiknum gegn Real Sociedad Markalaust jafntefli gegn Chelsea þar...

95. þáttur – Frábær sigur gegn Sociedad og Roy Keane er kominn á Instagram 18.02.2021

Maggi og Þorsteinn settust niður og fóru vel yfir fréttir og leiki vikunnar. Mason Greenwood skrifar undir nýjan samning Roy Keane er mættur á Instagram Kvennaliðið tapaði í grannaslagnum U-23 og U-18 liðin unnu sína leiki Dayot Upamecano er búinn að semja við FC Bayern 1:1 jafntefli gegn West Brom 0:4 sigur á Real Sociedad í fyrri viðureign liðanna á útivelli

94. þáttur – Fær Donny van de Beek tækifærið í fjarveru Paul Pogba? 11.02.2021

Maggi, Bjössi og Þorsteinn settust niður og fóru vel yfir fréttir og leiki vikunnar. Kvennaliðið tapaði gegn Reading og er í hörku baráttu um Meistaradeildarsæti Paul Pogba er meiddur á læri og verður frá í nokkrar vikur United mætir Leicester í næstu umferð ensku bikarkeppnarinnar United hefur ekki enn framlengt við Edinson Cavani og Juan Mata U-23 liðið er stórskemmtilegt United gerði 3:3 jafnte...

93. þáttur – Markalaust og svo markasúpa 03.02.2021

Maggi og Þorsteinn settust niður og fóru vel yfir fréttir og leiki vikunnar. Kvennaliðið vann aftur Búið að viðurkenna VAR mistök í leiknum gegn Sheffield United Farið yfir leikmennina sem yfirgáfu United undir lok gluggans. Leikina gegn Arsenal og Southampton

92. þáttur – Sigur og tap á Old Trafford – Lingard kvaddur (í bili) 28.01.2021

Maggi og Daníel settust niður og fóru vel yfir leikina gegn Liverpool og Sheffield United. Einnig var talað um rasísk skilaboð til Axel Tuanzebe og Anthony Martial, áhrif Darren Fletcher á frammistöðu Paul Pogba ásamt því að kveðja þá Jesse Lingard og Odion Ighalo og margt fleira.

91. þáttur – United áfram í bullandi toppbaráttu 21.01.2021

Maggi, Þorsteinn, Bjössi og Halldór settust niður og fóru vel yfir leikina gegn Liverpool og Fulham. Einnig var talað um Wayne Rooney í kjölfar þess að hann lagði skóna á hilluna, af hverju línuverðir séu nánast hættir að flagga rangstöðu, frammistaða Paul Pogba, hitað upp fyrir bikarleikinn gegn Liverpool og ýmislegt fleira.

90. þáttur – Við erum á toppnum! 15.01.2021

Maggi, Þorsteinn, Daníel og Halldór settust niður og fóru vel yfir leikina gegn Watford og Burnley. Annað umræðuefni var meðal annars kaupin á Amad Diallo, salan á Fosu-Mensah. Einnig var rækileg upphitun fyrir þennan litla leik á sunnudaginn.

89. þáttur – Á United að kaupa Jack Grealish? 07.01.2021

Maggi, Björn og Þorsteinn settust niður og fóru vel yfir leikina gegn Aston Villa og Manchester City. Einnig ræddum við fráfall fyrrverandi stjórans litríka Tommy Docherty, ráðningu Darren Fletcher, kaupin á Amad Diallo og veltum því fyrir okkur hvort United eigi að festa kaup á Jack Grealish.

88. þáttur – Er United að fara í titilbaráttu? 30.12.2020

Maggi, Halldór og Þorsteinn settust niður og fóru vel yfir leikina gegn Everton, Leicester og Wolves. Einnig ræddum við mögulega titilbaráttu United og Covid-19.

87. þáttur – Látlaust og leiftrandi gegn Leeds 21.12.2020

Maggi, Daníel og Þorsteinn settust niður og ræddu leikina gegn Manchester City, Sheffield United og Leeds. Góð staða kvennaliðs United var einnig til umræðu ásamt Amad Diallo sem gengur til liðs við United í janúar sem og mótherjar United í Evrópudeildinni, Real Sociedad.

86. þáttur – Lélegt leikskipulag í Leipzig 09.12.2020

Maggi, Daníel og Þorsteinn settust niður og fóru mjög ítarlega yfir leikina gegn West Ham og RB Leipzig. Paul Pogba og ummæli Mino Raiola voru tekin fyrir, veltum því fyrir okkur hvort við hefðum lært eitthvað af þessum leik sem við vissum ekki áður. Einnig ræddum við Ole Gunnar Solskjær og þjálfarateymið og hvort breytingar þar væri ekki þörf.

85. þáttur – Getum við fengið að spila bara á útivöllum? 03.12.2020

Maggi, Daníel og Þorsteinn settust niður og fóru mjög ítarlega yfir leikina gegn Southampton og PSG. Einnig var rætt um mögulegt bann á Cavani og lista frá Mirror yfir leikmenn sem United gæti reynt að kaupa í janúar.

84. þáttur – Maradona, enginn betri 26.11.2020

Maggi, Björn, Daníel og Þorsteinn settust niður og fóru yfir leikina gegn WBA og Başakşehir. Fórum svo yfir fréttir um þrepaskiptinguna sem ræður því hvort lið fái að hleypa inn áhorfendum eða ekki. Einnig minntumst við Diego Maradona sem lést í vikunni og fórum að lokum yfir slúður vikunnar.

Dimitar Berbatov 17.11.2020

Hann Halldór okkar settist niður með Dimitar Berbatov á dögunum. Rædd var nýútgefin bók hans sem og ástandið á Manchester United.

83. þáttur – Sigur gegn Everton. Er Pogba kominn á endastöð? 17.11.2020

Maggi, Daníel og Þorsteinn settust niður og fóru ítarlega yfir sigurinn gegn Everton. Einnig var farið yfir kvennaliðið, frammistöðu leikmanna og þetta bölvaða VAR.

82. þáttur – Þetta Demba Ba mark 06.11.2020

Maggi, Daníel, Lúkas og Halldór settust niður og fóru ítarlega yfir tapleikina gegn Arsenal og Istanbul Başakşehir. Meðal annars efnis var óstöðugleiki liðsins, frammistöður Paul Pogba og einnig var farið yfir fréttir og slúður sem tengist liðinu.

81. þáttur – Fyrsti heimasigur tímabilsins í hús 29.10.2020

Maggi, Bjössi Daníel, Lúkas og Þorsteinn settust niður og fóru yfir byrjunina í Meistardeild Evrópu og ræddu einnig nýjustu fréttir.

80. þáttur – Viðtal við Dimitar Berbatov 13.10.2020

Maggi, Bjössi og Halldór settust niður og fóru yfir byrjuna tímabilsins og nýjustu kaupin. Einnig settist Halldór niður með Dimitar Berbatov og ræddi meðal annars bókina hans og að sjálfsögðu Manchester United. Bókin hans er fáanleg hér.

79. þáttur – Hitað upp fyrir 20/21 tímabilið 17.09.2020

Maggi, Friðrik, Bjössi og Halldór settust niður og spáðu í komandi tímabil. Einnig voru félagaskipti United og liðanna í kring rædd. Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt að senda okkur skilaboð á Facebook síðu Rauðu djöflanna.

78. þáttur – Tímabilið gert upp 17.08.2020

Maggi,Friðrik, Bjössi og Halldór settust niður og gerðu tímabilið hjá United. Meðal þess sem var rætt voru mestu vonbrigði, bestu og efnilegustu leikmennirnir, stjóranum gefin einkunn ásamt smá slúður umræðu. Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt að senda okkur skilaboð á Facebook síðu Rauðu djöflanna.

77. þáttur – Enski boltinn snýr aftur! 05.06.2020

Maggi, Friðrik og Bjössi settust niður og ræddu fyrirhugaða endurkomu ensku úrvalsdeildarinnar. Farið yfir hópinn, nýjasta slúðrið og ástandið á þessum fordæmalausu tímum. Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin. Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt að senda okkur skilaboð á Facebook síðu Rauðu djöflanna.

76. þáttur – Er eitthvað plan í gangi? 21.01.2020

Maggi, Friðrik og Bjössi settust niður og ræddu leikinn gegn Liverpool, bakmeiðsli Marcus Rashford, mögulegu kaupin á Bruno Fernandes, og hituðum létt upp fyrir leikinn gegn Burnley. Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin. Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt að senda okkur skilaboð á Facebook síðu Rauðu djöflanna.

75. þáttur – Glugginn er opinn en kemur einhver? 05.01.2020

Maggi, Friðrik og Bjössi settust niður og tóku ítarlega umræða um Manchester United. Farið var yfir leikmannahópinn og frammistöðu lykilmanna. Einnig var rætt um hvaða stöðu þarf að styrkja strax í janúar. Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin. Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt að senda okkur skilaboð á Facebook síðu Rauðu djö...

74. þáttur – Hvar liggur eiginlega sökin? 23.09.2019

Maggi,Friðrik, Bjössi og Halldór settust niður og ræddu tapið gegn West Ham, yfirlýsinguna frá United og leikmenn sem vantar í United. Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin. Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt að senda okkur skilaboð á Facebook síðu Rauðu djöflanna.

73. þáttur – Pogback eða Pogburt? 12.09.2019

Maggi,Friðrik og Halldór settust niður og ræddu David de Gea, Paul Pogba og samningamál ásamt nýjasta slúðrinu. Leiðrétting: Slúðrið segir að United vilji fá James Maddison næsta sumar. Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin. Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt að senda okkur skilaboð á Facebook síðu Rauðu djöflanna.

Ouça o podcast Djöflavarpið no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos