Inga og Sunneva

Asthmakastið

Comedy IS ↓ 32 episódios

Næstum því systurnar, Sunneva og Inga brúa bilið á milli Reykjavíkur og Barcelona og ræða mikilvæg málefni á borð við sambönd, kynlíf, geðkvilla, vandræðalegar sögur og dagsins amstur á misgáfulegan hátt ásamt því að koma með hot takes sem gætu orðið til þess að þeim verði cancellað fyrirvaralaust

Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: podcasters.spotify.com

Autor

Inga og Sunneva

Categoria

Comedy

Site do podcast

podcasters.spotify.com

Último episódio

29 de jan de 2025

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,8 iOS em breve

Episódios

#7 Vandræðalegar sögur: Að taka óvart reverse cowgirl á ókunnugan mann. 31.07.2024

Í þættinum deila systurnar vandræðalegum sögum af sér. Má þar nefna þegar Sunneva flassaði fram- og afturrassi fyrir framan alla nágranna sína eða þegar Inga smánaði sjálfa sig því hún stóð í þeirri trú að hún kynni táknmál (þrátt fyrir að hafa aldrei lært stakt orð í því). HVAÐ ÆTLI SÉ EIGINLEGA AÐ?

#6 Jesú var bara geðsjúklingur með OCD 24.07.2024

Systurnar fara yfir heimskulegar, vitlausar, óvinsælar og controversial skoðanir sem þær eru með. Var jesú ekki í raun bara geðsjúklingur með OCD? Er súpa yfir höfuð matur? Þarftu VIRKILEGA AÐ TALA UM KÆRASTANN ÞINN EÐA MANNINN ÞINN SEM "KALLINN" ÞEGAR ÞÚ TALAR UM HANN? EF SVO ER, STEINÞEGIÐU OG HÆTTU ÞVÍ OG HÆTTU SVO AÐ HLUSTA OG UNSUBSCRIBE-AÐU OG ÉTTU SKÍT.

#5 Dauðinn er fáránlegt concept og hann er CANCELLED 16.07.2024

Systurnar fara yfir hluti sem þær skilja ekki. Listinn er því miður ótæmandi þar sem þær virðast deila einni heilasellu á milli sín en þar á meðal eru hlutir eins og: neðansjávargöng (án djóks wtf?), dauðinn (ekki í lagi, hættum að deyja), rafmagn (svartigaldur), símar og útvarp (hvert fer hljóðbylgjan og af hverju blandast hún ekki saman við aðrar?!), WiFi (AF HVERJU ER SAMBANDSLEYSI STUNDUM?), f...

#4 Barnsfeður eru það versta við barneignir 09.07.2024

Í þættinum er Sunneva ógeðslega þunn og fara systurnar yfir fóbíur, líkamlega kvilla og margt annað sem er að þeim. Þær ræða hversu hrikalegt það er að vera ljóti tvíburinn, hvernig barnsfeður eru það versta við barneignir og að Inga myndi bókstaflega gera hvað sem er til að vera ógeðslega sæt. Inga tekur upp á því að lýsa tánum á sér allt of ítarlega fyrir hlustendum

#3 Vil ég sofa hjá pabba mínum? Hjálp! 02.07.2024

Systurnar ræða föðurvandamál (daddy issues) Ingu og eilífa leit hennar að föðurímynd í líf sitt. Vill hún sofa há Colin Firth eða vill hún að hann ættleiði hana? Sunneva giftist manninum sem passaði hana sem barn og Inga fer lauslega yfir stuttlíft hot girl summer sem hún átti í Barcelona.

#2 Karlar sem hata konur (sem eru ekki hreinar meyjar) 25.06.2024

Systurnar snerta á fyrirbrygðinu "retroactive jealousy" eða afturvirkri afbrýðisemi eins og Sunneva þýddi svo listilega vel. Inga cancellar sjálfri sér með því að opinbera fordóma sína í garð mismunandi evrópuþjóða. Hver leyfði körlum að tala frönsku eða ítölsku?

#1 Kitlufetish og líkamsárásir á vinnustað 19.06.2024

Í fyrsta þætti Asthmakastsins er farið um víðan völl. Hlustendur fá til að mynda að kynnast systrunum þegar þær rifja upp hvernig Sunneva kitlaði ókunnugan mann í magann í Rúmfatalagernum og Inga barði viðskiptavin á veitingastað sem hún vann á.

Ouça o podcast Asthmakastið no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos