RÚV

Árið er

Music IS ↓ 72 episódios

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Não deixe de visitar o site do podcast e apoiar quem o produz: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categoria

Music

Site do podcast

www.ruv.is

Último episódio

21 de dez de 2024

Onde ouvir?

Podcasts no app Replaio Radio Em breve

Os podcasts estão chegando ao app. Instale agora e seja o primeiro a descobrir um jeito totalmente novo de curtir podcasts

Baixe no Google Play Instale grátis Android 5 mi+ downloads · nota 4,8 iOS em breve

Episódios

Árið er 2020 - þriðji hluti 21.12.2024

Hjaltalín snýr aftur, Moses Hightower flytur lyftutónlist, Hildur Guðna vinnur öll verðlaun sem hægt er að vinna, Ultraflex dúóið á plötu ársins í raftónlist og Sólstafir bestu rokkplötu ársins. Bæði Sycamore Tree og Krummi feta kántrýslóð, útrás Reykjavíkurdætra heppnast vel, Of Monsters & Men treður up í The Tonight Show frá Iðnó en Skoffín hentar íslenskum aðstæðum og Salóme Katrín er nýliði ár...

Árið er 2020 - annar hluti 14.12.2024

Önnur plata GDRN kemur út, Baggalútur skilar kveðju, Friðrik Ómar & Jógvan lifa sveitalífi og Luigi upplifir breytta tíma. Gugusar klárar grunnskólann með fyrstu plötunni, Laufey Lín sendir frá sér sitt fyrsta lag, Rakel Mjöll fer með Dream Wife í 18. sæti breska listans og Stuðmenn halda upp á hálfrar aldar afmæli. Mammút sendir frá sér sína fimmtu plötu, Birgir Steinn segir ósagðar sögur, Eivör...

Árið er 2020 - fyrsti hluti 07.12.2024

Bríet á vinsælasta íslenska lag ársins, Margrét Rán syngur með GusGus, Krassasig brýtur heilann, Jío Pé & Króli óska sér og þjóðin syngur heima með Helga. Ásgeir Trausti er sáttur við lífið og tilveruna, Daði Freyr vinnur Söngvakeppnina en fær ekki að fara í Eurovision, Auður sendir frá sér svítu, Jónsi syngur um sumarið sem aldrei kom og Hatari sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu. Umsjón: Ásgei...

Árið er 2019 - seinni hluti 30.11.2024

Auður er söngvari og flytjandi ársins, Floni upplifir falskar ástir, Júníus Meyvant fer yfir landamærin og Fannar í Hipsumhaps syngur um lífið sem hann langar í. Hildur sér ljósið í lagahöfundabúðum, Bríet stundar dagdrykkju bláedrú, Lára Rúnars finnur rótina, Gróa er í glimmerheimi og Une Misére er heitasta harðkjarnaband landsins. Daði syngur dúetta, Skoffín flytur í borgina, K.óla keyrir úr bor...

Árið er 2019 - fyrri hluti 23.11.2024

Hatari veldur usla í Eurovision, Huginn og Herra snúa bökum saman og Of Monsters & Men ná topp 10 í Bandaríkjunum í þriðja sinn. Vök er í myrkrinu með poppplötu ársins, Cell7 snýr aftur með hip-hop plötu ársins og Grísalappalísa kveður með rokkplötu ársins. Helgi Hrafn stendur á krossgötum, Birnir er allgáður og vakandi, Munstur gerir tilraunir, Joey Christ er 100P jákvæður en Hjálmar hætta að and...

Árið er 2018 - seinni hluti 16.11.2024

GDRN landar fernum tónlistarverðlaunum, Flóni ákallar guð og Bríet fagnar 19 ára afmæli með plötu. ClubDub skýst upp á stjörnuhimininn, Reykjavíkurdætur reppa heiminn og Kælan mikla hitar upp fyrir The Cure. Bagdad bræður mala í kassanum, Teitur Magnússon ornar sér, Dr. Spock klæðist leðri og Gróa er prakkari. Árstíðir fagna tíu ára starfsafmæli og Magnús Þór býður þeim í sjötugsafmælið sitt en Au...

Árið er 2018 - fyrri hluti 09.11.2024

Birnir fer út í geim, Jói Pé og Króli fara í átt að tunglinu, Huginn er eini strákurinn, Herra Hnetusmjör er hetjan úr hverfinu og Aron Can ætlar aldrei heim. Prins Póló notar þriðja kryddið, Berndsen flytur tregafullt fullorðinspopp og haustvindar blása um Svavar Knút. Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónssynir semja Þjóðhátíðarlagið, Gus Gus er orðinn dúett, Skálmöld segir sorgarsögu og Jónas Sigurð...

Árið er 2017 - þriðji hluti 19.10.2024

Sturla Atlas syngur um 101 Boys, Floni fer út að leika, Birnir mætir til leiks, Joey Christ fer sóló og Joey Cypher er lag ársins. Mammút sópar til sín verðlaunum, Hatari heillar og hneykslar, Legend finnur hljóminn sinn, Milkhouse fær sér hunang og Salka Sól grenjar með Baggalúti. HAM syngur um helvíti mannanna, Tappi tíkarrass rís upp frá dauðum, þungarokkshljómsveitin Sólstafir er berdreymin, F...

Árið er 2017 - annar hluti 19.10.2024

Páll Óskar bankar upp á hjá aðdáendum, Snorri Helgason vinnur með íslenskan tónlistararf, Dísa Jakobs syngur með Stuðmönnum á meðan Ragga Gísla semur þjóðhátíðarlag og Milkywhale syngur um paradísarfugla. Björk skrifar ástarbréf til bjartsýninnar, Birgir Steinn springur út á Spotify og Auður framleiðir tónlistarmyndband ársins með vinum sínum. Vök fer í Evróputúr, Hafdís Huld túrar Bretland og Ásg...

Árið er 2017 - fyrsti hluti 19.10.2024

Herra Hnetusmjör er KÓPBOI, Aron Can er með fulla vasa fjár, Bubbi Morthens skilar skömminni en Egill Ólafsson kemur af fjöllum. Guðrún Ýr Eyfjörð leggur fótboltaskóna á hilluna og tónlistarkonan GDRN tekur við, Axel Flóvent flytur til Hollands, Högni Egilsson fer sóló og það fjölgar í Kiriyama fjölskyldunni. Svala Björgvins sigrar Daða í Söngvakeppninni, FM Belfast býður upp á dansiball frá helví...

Árið er 2016 - seinni hluti 05.10.2024

Aron Can þekkir stráginn, GKR fær sér morgunmat, Blaz Roca fýrar upp, XXX Rottweiler hundar koma með neglu, Emmsjé Gauti á Djammæli og Quarashi fagnar 20 ára afmæli. Júníus Meyvant gefur út stóra plötu, Reykjavíkurdætur valda fjaðrafoki, Elíza Newman fer í kollhnís og Hildur fer í göngutúr. Fjallabræður hljóðrita í Abbey Road, Jónsi í Sigurrós syngur með Sin Fang, Snorri Helgason syngur á íslensku...

Árið er 2016 - fyrri hluti 05.10.2024

Kaleo er mest spilaða hljómsveit í heimi, Emilíana Torrini gefur út plötu með belgískri sveit, Hórmónar bera sigur úr býtum í Músíktilraunum, Sturla Atlas gefur út sína þriðju plötu, Retro Stefson heldur lokatónleika en Mánar snúa aftur. Morðingjarnir djamma, CeaseTone horfir á björtu hliðarnar, Friðrik Dór dansar eins og hálfviti og Skálmöld flytur vögguvísur. Amiina semur tónlist við þögla mynd,...

Árið er 2015 - seinni hluti 21.09.2024

Björk opnar inn í hjarta, Hljómsveitin Vök fer í hringi, Reykjavíkurdætur vekja athygli og umtal, Emmsjé Gauti og strákarnir eru á allra vörum, Sturla Atlas hamrar járnið, Gísli Pálmi dregur ekkert undan. Dikta gerir plötu í Þýskalandi, Vintage Caravan spilar endalaust, Vax framleiðir eitt lag á viku, úlfarnir hvísla að Barða í Bang Gang og Destrier með Agent Fresco er rokkplata ársins. Eivör send...

Árið er 2015 - fyrri hluti 21.09.2024

Of Monsters & Men nær þriðja sæti í Bandaríkjunum, góðir hlutir gerast hægt hjá Júníusi Meyvant, Axel Flóvent og Máni Orrason slá í gegn og Úlfur Úlfur brennir allt. Bubbi syngur um konur, John Grant fær gráa fiðringinn, Friðrik Dór skálar fyrir þér og Sóley syngur yfir slagverkslúppur. Lagahöfundateymið Stop Wait Go tekur Söngvakeppninnina með trompi, hárgreiðsluneminn Sara Pétursdóttir breytist...

Árið er 2014 - seinni hluti 07.09.2024

Amabadama fer á flug, GusGus fer til Mexíkó, Jón Jónsson gefur allt sem hann á og Samaris sendir frá sér Silkidranga. Oyama fer úr skóglápi yfir í sveimrokk, Vio tríó vinnur Músíktilraunir, Hjaltalín fer á Hraunið og Júníus Meyvant er bjartasta vonin. Pollapönkarar fara fordómalausir í Eurovision, Sigur Rós treður upp í Game Of Thrones og Mono Town er í auga stormsins. Grísalappalísa kemur með rök...

Árið er 2014 - fyrri hluti 07.09.2024

Prins Póló hamstrar sjarma á plötu ársins, Hafdís Huld semur beint frá býli, Kiasmos dúóið heldur áfram landvinningum og Ólafur Arnalds vinnur Bafta-verðlaun. Hermigervill semur út um allan heim, Low Roar breytist í tríó, Ylja vinnur með Shahzad Ismaily og FM Belfast heldur uppi stuðinu. Nýdönsk dansar diskó í Berlín, Kaleo semur við Atlantic Records, Ívar Páll Jónsson setur upp söngleik í New Yor...

Árið er 2013 - þriðji hluti 03.07.2024

John Grant tekur ástfóstri við land og þjóð, Raggi Bjarna kemur við í Þjóðarbókhlöðunni, Cell 7 snýr aftur eftir 16 ára hlé og ástralska stórstjarnan Kylie Minogue syngur með Múm. Snorri Helgason breytist í hljómsveit, Ljótu hálfvitarnir syndga og syngja um athyglisprest, Skálmöld stígur á svið í Eldborg með Sinfó og þremur kórum og Berndsen kemst í gamlar Kraftwerkgræjur. Ásgeir Trausti heldur á...

Árið er 2013 - annar hluti 03.07.2024

Hljómsveitin Kaleo slær í gegn, Sin Fang túlkar bergmál sumarsins, Lay Low talar um veðrið en Grísalappalísa spyr hver er ég? Vök vinnur Músíktilraunir, hljómsveitin 1860 rafmagnast, Samaris syngur um tunglið góða en Sigur Rós hangir á bláþræði á ísjaka og semur tónlist fyrir The Simpsons. Ólafur Arnalds vinnur Bafta-verðlaun og heldur yfir 100 tónleika á erlendri grundu, súpergrúppan Drangar gefu...

Árið er 2013 - fyrsti hluti 03.07.2024

Mammút fær andann yfir sig, mamma þarf að djamma með Baggalút, Leaves sér okkur í síðbjarmanum og Jón Jónsson skrifar undir samning hjá Epic Records. Emilíana Torrini flytur heim, Of Monsters & Men klárar tveggja ára tónleikaferð, Bubbi Morthens trúir á ljósið, Dr. Gunni tryllir þjóðina með glaðasta hundi í heimi og Eyþór Ingi á líf í Eurovision. Tilbury syngur um íslenska veturinn, Monterey lætur...

Árið er 2012 - þriðji hluti 01.06.2024

Moses Hightower tekur stutt skref og fer upp á háa C, Memfísmafían sötrar síðasta móhítóinn um blánótt á Kúbu og Formaður Dagsbrúnar ummyndast í Tilbury. Sigur Rós breytist úr kvartett í tríó, Múgsefjun fær ekki nóg, Magni er á heimaslóðum, Egill Ólafsson kynnir Finnsk íslenska vetrarbandalagið og Dimma fremur myrkraverk. Of Monsters & Men slær í gegn í útlöndum, Magnús og Jónas gæta hugsana sinna...

Árið er 2012 - annar hluti 01.06.2024

Retro Stefson er hampað sem líflegasta bandi landsins og Ekki vanmeta Pascal Pinon, Ylja flytur angurværa þjóðlagatónlist, Kiriyama Family heillar landann með grúvknúnu mjúkpoppi og Bubbi segir sögur úr þorpinu. Þórunn Antonía og Berndsen rugla saman reytum sínum, Friðrik Dór er vélrænn, The Vintage Caravan fer í ferðalag og Stúlknatríóið Charlies reynir við ameríska drauminn. Það er sumar hvern e...

Árið er 2012 - fyrsti hluti 01.06.2024

Ásgeir Trausti brýtur blað í íslenskri tónlistarsögu, Raggi Bjarna týnir tímanum með Lay Low, Lára Rúnars sendir frá sér sína fjórðu sólóplötu og Obja Rasta lofar gjafir jarðar. Steed Lord hefur nóg fyrir stafni vestanhafs, Gréta og Jónsi fara í Eurovision, Biggi Hilmars fær heimþrá, Retrobot ber sigur úr býtum í Músíktilraunum og Valdimar bíður eftir skömminni. Hjaltalín greiðir úr flækju, Jónas...

Árið er 2011 - þriðji hluti 01.06.2024

Pétur Ben og Eberg rugla saman reytum sínum, Kjarr bíður eftir sumrinu, Sóley Stefáns slær í gegn á Youtube og sólóverkefnið Sin Fang Bous breytist í hljómsveitina Sin Fang. Hljómsveitin Reykjavík spilar melódísk lög undir glitrandi gítarhaug, Bubbi semur og syngur sálartónlist hljómsveitin, HAM snýr aftur en Dikta skilur ekki eftir hverju við erum að bíða. Björgvin Halldórsson fagnar sextugsafmæl...

Árið er 2011 - annar hluti 01.06.2024

Það kemst enginn með tærnar þar sem Mugison hefur hælana, Sólstafir rokka í stinningskulda niðri í fjöru og Björk fer áfram ótroðnar slóðir í tónlistarsköpun. Lay Low syngur á íslensku á sinni þriðju plötu, Daníel Ágúst fer í bingó, Nýdönsk er í nánd og GusGus flokkurinn gefur út sína áttundu hljóðversplötu. Samstarfi Megasar og Senuþjófanna fylgir hugboð um vandræði, Magnús Þór og Páll Rósinkranz...

Árið er 2011 - fyrsti hluti 01.05.2024

Of Monsters & Men gerir það gott með sinni fyrstu plötu, Samaris ber sigur úr býtum Músíktilraunum og Jón Jónsson syngur sig inn í hug og hjarta íslensku þjóðarsálarinnar. Snorri Helgason heillast af vetrarsólinni, Hjálmar rafvæðast, Ragnheiður Gröndal nær áttum og Toggi flettir í dagbókinni þinni. Páll Óskar kveður Háskólabíó og heilsar Hörpu með Sinfóníuhljómsveit Íslands en dúettinn Eldar er dr...

Ouça o podcast Árið er no Replaio

Rádio e podcasts em um só app - grátis e sem cadastro. Instale hoje e não perca o lançamento

Baixe no Google Play

O Replaio não é o publicador dos podcasts; os nomes dos programas, as capas e o áudio pertencem aos seus autores e são distribuídos por feeds RSS públicos