Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson
Út að hlaupa
Létt spjall um hlaup og hlaupasenuna á Íslandi og víðar sem tilvalið er að hlusta á í rólegum hlaupatúr!
Author
Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 7, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#54 Bakgarðs upphitun úr Bose stúdíóinu! 18.09.2024 1:51:35
Við erum mættir í Bose stúdíóið! Slóum á þráðinn til Andra Guðmunds og ræddum Bakgarðinn í þaula, fórum yfir brautarvörsluna í Eldslóðinni, skýrsla um kostnað hlaupa ásamt allskonar góðgæti!
#53 Nýtt stúdíó! 09.09.2024 1:34:04
Í þættinum í dag voru alvöru hugleiðingar, meiðslaskýrsla frá Marteini, glænýr dagskrárliður með Sigga Ragnars sem kallast græjuhornið, massíft hlaupauppgjör og margt, margt fleira. Allt þetta var að sjálfsögðu rætt í nýja stúdíóinu okkar!
#52 Er alltaf stuttbuxnaveður? 02.09.2024 2:19:59
Svekkelsið við það að þurfa að fresta Öræfahlaupinu, hugleiðingar veðurfræðings og skýrsla frá Halldóru Huld Ingvarsdóttur úr CCC. Guðfinna Kristín Björnsdóttir mætti sem gestastjórnandi í fjarveru Marteins. Við stikluðum á stóru í gegnum hlaupaferilinn, ræddum komandi áskoranir og fórum vel yfir UTMB sem kláraðist nýliðna helgi.
#51 Reykjavíkurmaraþons uppgjörið mikla! 26.08.2024 1:36:38
Reykjavíkurmaraþonið gert upp, óbrjótanlegt heimsmet sem féll, statusinn tekinn á Nick Gísla fyrir CCC og á Fríðu Rún eftir World Masters Athletics Championships!
#50 Upphitun fyrir Reykjavíkurmaraþonið! 20.08.2024 1:49:40
Í þættinum í dag er heldur betur farið yfir Reykjavíkurmaraþonið, brautin rædd, góð ráð fyrir hlaup og svo mætti lengi telja. Við fengum skýrslu frá Andreu Kolbeins og viðtal við Hlyn Andrésson sem við mælum mikið með að hlusta á!
#49 Fjallahlauparar eiga ekki breik! 13.08.2024 1:48:54
Hugleiðingar fyrir Reykjavíkurmaraþonið, Ólympíuleikarnir, Fimmvörðuhálsinn og Súlurnar gerðar upp. Við fáum úrvals sögu frá últrahlauparanum geðþekka Sigfinni Björns ásamt alvöru niðurhlaupi!
#48 Villtur í Kerlingarfjöllum 31.07.2024 1:10:10
Hugleiðingar varðandi 100km hlaup, skýrsla úr Kerlingarfjöllum, uppgjör á allskonar hlaupum og margt fleira á boðstólum í þættinum í dag!
#47 Laugavegsuppgjörið mikla! 17.07.2024 1:16:40
Laugavegurinn á risastóran sess í hlaupasumri flestra utanvegahlaupara. Það verður að vera sér þáttur til að gera upp þetta stóra og mikla hlaup!
#46 Laugavegsvikan með Marteini 10.07.2024 1:15:44
Laugavegurinn var þema þáttarins. Við fengum skýrslu frá Rögnu, viðtal við sjálfan Laugavegskónginn, Höskuld og svo var hlaupauppgjörið að sjálfsögðu á sínum stað. Þess má geta að næringarplönum okkar var lekið í beinni útsendingu svo nú getið þið öll étið þennan Laugaveg eins og úthvíld tröll!
#45 Næringarpælingar með Latsa! 08.07.2024 1:35:48
Viðtalsþáttur við sjúkraþjálfarann geðuga Einar Sigurjónsson. Í þættinum förum við yfir allt milli himins og jarðar hvað varðar næringu íþróttafólks. Einar, eða Latsi eins og hann er gjarnan kallaður er frábær í að útskýra flókin fyrirbæri á mannamáli og því vonum við að hlustendur geti lært af þessu spjalli og hafi gaman af!
#44 Með Steina í vasanum! 03.07.2024 1:26:20
Í þættinum í dag gerðum við upp Ármannshlaupið, tókum upp símann og heyrðum í Hafdísi, Siggunum tveimur og fengum skýrlu frá Olgeiri varðandi Dyrfjallahlaupið. Upplagt að hlusta á þáttinn á leiðinni austur!
#43 Með krampa í kjálkanum! 01.07.2024 1:33:35
Í þættinum í dag er heldur betur farið yfir farinn veg í nýafstöðnum hlaupum, bæði hér heima og erlendis. Við fáum góða tjónaskýrslu frá Hlyni Guðmunds eftir krampafestival á Ítalíu og nýtt hlaup verður kynnt ásamt fullt af aulabröndurum. Þess má geta að það er enginn best fyrir dagsetning á þessum þætti!
#42 Er nostalgía besta tilfinningin? 20.06.2024 56:32
Hugleiðingar, skýrsla, uppgjör og margt margt fleira í þætti dagsins!
#41 Últrahlaup og eftirhermur! 09.06.2024 1:09:54
Það var af nægu að taka í hlaupauppgjörinu að þessu sinni enda langt síðan við félagarnir höfum sest niður og rætt málin. EM í Annecy, Mýrdalshlaupið og Hengillinn voru gerð upp af mikilli alúð.
#40 Grudge í hlaupaheiminum! 23.05.2024 1:19:17
Hlaupauppgjör síðustu hlaupa, stiklað á stóru fyrir næstu hlaup og hugleiðingar hlauparans fá að njóta sýn í þættinum í dag. Við fórum einnig yfir stóra Reykjavíkurmaraþons málið og náðum líklega að leysa það!
#39 Þetta er allt sagan manns! 14.05.2024 1:20:42
Fjölgun í Út að hlaupa fjölskyldunni, uppgjör síðustu hlaupa, skýrsla frá Halldóru Huld ásamt allskonar hugleiðingum. Mælum með því að hlusta!
#38 Sjálfstraust er val! 07.05.2024 1:46:37
Þá er komið að úthringiþættinum mikla. Við fáum skýrslu frá Snorra Björns og Ósk Gunnars, hlaupasögu og brautarlýsingu frá Sigurjóni Erni og alvöru ævintýrafrásögn frá Stebba Páls alla leið úr Frönsku ölpunum. Síðustu hlaup voru að sjálfsögðu gerð upp og hlauparar vikunnar valdir!
#37 Við keyrðum Kára af stað! 01.05.2024 1:30:56
Í þættinum í dag voru hlaup síðustu daga gerð upp. Við fengum skýrsla frá Kára Steini úr Vormaraþoninu, fórum yfir komandi hlaup og ræddum um daginn og veginn, aðallega hlaupaveginn!
#36 Styttist í sumarhlaupin! 23.04.2024 1:38:27
Í þættinum í dag verður farið yfir víðan völl, við ræðum við Arnar Pétursson um hvað framundan sé hjá þeim mikla kappa, slóum á þráðinn til Kalmars Kristins sem virðist vera búinn að finna réttu formúluna fyrir Bakgarðinn ásamt því að gera upp allskonar hlaup og hita upp fyrir önnur!
#35 Það er einhver hundur í okkur 16.04.2024 1:19:08
Það er margt og mikið sem dregið var upp úr pokahorninu í dag. Hundar sem hlaupafélagar, Gummi Kri að detta úr formi, pælingahornið, hlaupauppgjör og svo mætti lengi telja!
#34 Við erum ekki hættir! 06.04.2024 1:11:05
Allskonar eyrnakonfekt á boðstólum í dag. Aprílgabb, hugleiðingar varðandi andlegu hliðina í hlaupum, Barkley marathons, símtal til austur Evrópu og margt fleira!
#33 Hvað á þessi þáttur að heita? 21.03.2024 1:16:21
Vorjafndægur, verknám og vandað hlaupaspjall var á boðstólum í dag. Hlaupauppgjör síðustu keppna, tónlist á hlaupum, símtal frá dyggum hlust-Ara þáttarins og margt fleira!
#32 Þrjátíu leiðir á toppinn! 08.03.2024 1:04:09
Farið var yfir allt frá veðri og vindum til úrslita síðustu hlaupa ásamt frábærum fróðleik um leiðarval fyrir æfingar vorsins!
#31 Fyrir alla hlustendur! 24.02.2024 59:03
Við fórum um víðan völl í dag, umræðan var allt frá kvíðakasti yfir í lyfjanotkun. Gerðum upp Bose hlaupið og hituðum upp fyrir vorið sem er í vændum!
#30 Kolbeinn Höður Gunnarsson 21.02.2024 1:48:44
MÍ krifjað, fjálsíþróttasenan og spretthlaup er á boðstólum hjá okkur langhlaupurunum í dag. Stórskemmtilegt viðtal við hraðasta mann landsins Kolbein Höð Gunnarsson!
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.