Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson

Út að hlaupa

Sports IS ↓ 132 episodes

Létt spjall um hlaup og hlaupasenuna á Íslandi og víðar sem tilvalið er að hlusta á í rólegum hlaupatúr!

Author

Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson

Category

Sports

Podcast website

sites.libsyn.com

Latest episode

Jul 7, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#104 Það geta allir gert þetta! 11.12.2025

Herra Bose (Sigurður Ólafsson) kíkti í Bose stúdíóið til okkar og spjallaði við okkur um hlaupaferilinn, lífsmótandi breytingar og ástríðuna fyrir hreyfingu. Við fórum einnig yfir Valencia maraþonið og slóum á létta strengi. Allt í þrjáðbeinni frá Bose stúdíóinu!  

#103 Ratar þessi þáttur austur? 04.12.2025

Við Út að hlaupa bræður fórum yfir æfingar síðustu daga, svöruðum spurningum úr sal varðandi maraþon, Laugarveginn og margt fleira. Hugleiðingarnar og hlaupauppgjörið var á sínum stað ásamt allskonar yappi um hlaup! 

#102 Ertu ekki slæmur í hnjánum? 18.11.2025

Glóðvolgur þáttur úr Bose stúdíóinu að þessu sinni. Hlaupauppgjörið á sínum stað, djúsí hugleiðingar, skóhornið, gjafaleikir og svo mætti lengi telja! 

#101 Soðin í svefn! 06.11.2025

Það var kátt á hjalla í Bose stúdíóinu í kvöld. Við fórum yfir NY maraþonið, heyrðum frá hlauparaunum Gurru Magg, ræstum út hvern gjafaleikinn á fætur öðrum og fórum yfir mikilvæg atriði varðandi Laugaveginn!  

#100 Tímamótaþáttur! 31.10.2025

Í þessum tímamótaþætti sem er lengri en hálfmaraþonið hans Almgren um daginn ræddum við hlaup í nánustu fortíð, fengum Víetnamskýrslu frá Marteini og opnuðum fyrir símann! 

#99 Hef hlaupið nóg af hlaupum þar sem mér hefur liðið vel! 17.10.2025

Ævar Hrafn Ingólfsson mætti í Bose stúdíóið og fór yfir hlaupaferilinn. Allt frá því að geta ekki hlaupið verkjalaus yfir í að háleit markmið í maraþonum. Ævar talar um það hvernig er að vera maki hlaupara, áhuga sinn á hlaupaskóm, fer yfir Chicago maraþonið og ræðir hvað hlaup eru farin að skipta hann miklu máli í daglegri rútínu. 

#98 HM uppgjör! 06.10.2025

Guðfinna okkar allra besta mætti í Bose stúdíóið og gerði upp HM í fjarveru Marteins sem er að taka út hlaupaleiðir í Víetnam!  

#97 Upphitun fyrir HM! 20.09.2025

Þessa dagana er allt morandi í Heimsmeistaramótum. Við tökum upphitun fyrir HM í fjallahlaupum, farið yfir keppendur, brautirnar og möguleika Íslands. Einnig fórum við yfir HM í frjálsum íþróttum og fengum góðan gest í Bose stúdíóið alla leið frá Svíþjóð! Hlaupauppgjörið var að sjálfsögðu á sínum stað ásamt strava liðnum! 

#96 Það er ekkert grín að vera fit! 10.09.2025

Sigurður Örn Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Tri mætti í Bose stúdíóið í dag og ræddi við okkur um mælingar hjá Greenfit. Við Út að hlaupa bræður fórum báðir í álagspróf á dögunum og fengum Sigga til þess að fara með okkur yfir skýrslurnar í þráðbeinni ásamt því að fara vel út fyrir efnið. 

#95 Mánuðurinn til að toppa! 08.09.2025

Hot takes varðandi Ironman, hlaupauppgjör síðustu keppna, Örstutt yfirferð á UTMB og svo margt fleira fyrir eyrun ykkar á dag! 

#94 Stærsta skemmtiskokk í heimi! 27.08.2025

Reykjavíkurmaraþonið fékk stóran sess í þessum þætti, enda margt að ræða eftir helgina. Við fengum skýrslu frá paradís utanvegahlaupanna, Chamonix frá Guðfinnu, Evu og Tobba ásamt því að við gerðum upp síðustu helgi. Ekki láta þennan fram hjá þér fara! 

#93 Gat ekki sofið vegna verkja! 22.08.2025

Marteinn er mættur aftur í Bose stúdíóið. 500 km hlaup, Reykjavíkurmaraþon, hitamálin varðandi ITRA stig, 6 maraþon á 6 dögum. Hvað meira er hægt að biðja um á þessum fína föstudegi? 

#92 Maður á að fagna vel! 19.08.2025

Fannar Guðmundsson mætti í Bose stúdíóið í dag í fjarveru Marteins og ræddi um Reykjavíkurmaraþonið, erfiðleika sem mótuðu hann fyrir lífstíð, ryfjaði upp margar góðar hlaupasögur ásamt því að gera upp síðustu hlaup og fara yfir allskonar heit málefni í hlaupasamfélaginu. Fannar er einn fyndnasti maður hlaupasamfélagsins og þótt víðar væri leitað þannig að góða skemmtun! 

#91 Þú verður að gera þetta að sigursögu! 06.08.2025

Guðfinna okkar allra besta mætti til okkar Út að hlaupa bræðra og fór yfir síðustu hlaup, ræddi meiðslin sín og uppbygginguna fyrir HM ásamt svo ótrúlega margt annað! 

#90 Hlaupamömmur með ofurhugarfar! 22.07.2025

Ofurhlaupamömmurnar Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir og Gréta Rut Bjarnadóttir kíktu í spjall til okkar Út að hlaupa bræðra og ræddu við okkur um barneignir og hlaup. Við ræddum um að vera "kúplaðar út" úr hlaupunum, að koma sér aftur af stað eftir fæðingu, grindarbotninn, þvagleka, ótrúlegt hugarfar og hvernig miklar áskoranir hafa mótað þeirra líf. Við mælum mikið með því að hlusta á þessar frábær...

#89 Laugavegsuppgjörið mikla! 15.07.2025

Við fórum yfir upplifanir okkar af Laugavegshlaupinu í ár ásamt því að taka helstu umræðupunkta hlaupsins fyrir og ræða þá fram og til baka. Einnig fórum við yfir eitthvað af því  sem framundan er í utanvegahlaupunum og fengum góða gesti í settið til þess að segja okkur frá góðgerðarverkefni fyrir Reykjarvíkurmaraþonið! 

#88 Andrew Douglas, skotinn á Íslandi! 10.07.2025

Andrew Douglas talkes about his career as a runner, how he changed his path and fell in love with trailrunning. He talkes about how much he loves to travel through running, how much he hates long runs and why he chose to come to the third time (kind of the fourth) to do the Laugavegur Ultra! 

#87 Blueprint af Laugaveginum! 08.07.2025

Grétar Örn Guðmundsson mætti í Bose stúdíóið og ofhugsaði hlutina með okkur fyrir Laugaveginn. Við svöruðum kallinu frá ykkur hlustendum og fórum yfir allt sem okkur datt í hug hvað varðar laugarveginn! 

#86 Celeb Olson! 02.07.2025

Andrea Kolbeinsdóttir mætti í Bose stúdíóið með okkur Út að hlaupa bræðrum og sat fyrir svörum. Við gerðum upp síðustu hlaup, fórum yfir það hvað er framundan og ræddum allt milli himins og jarðar hvað varðar hlaupaferil Andreu. 

#85 Seinn í startið! 24.06.2025

Hugleiðingarnar voru á sínum stað, spurningum var svarað úr sal, uppgjör á síðustu hlaupum þar sem íslandsmet og aldursflokkamet féllu og margt fleira. Öllu varpað út úr Bose stúdíóinu að sjálfsögðu, þið heyrir það á hljóðinu!

#84 Unga fólkið að taka yfir! 19.06.2025

Uppgjörið var ekki af verri endanum í þessum þætti, gerðum upp Hengil, Esjuna, Hvítasunnuhlaupið og Hafnarfjarðarhlaupið. Fórum yfir heimsmetið í 48 tíma hlaupi, snertum á verðlaunafé í hlaupum og hvernig valið er í Utanvegalandsliðið ásamt mörgu öðru! 

#83 The Icelandic Method! 03.06.2025

Stútfullur þáttur af hlaupaumræðu. Alvöru skýrsla úr Mýrdalshlaupinu frá Andreu Kolbeins, spurningum svarað frá hlustendum, farið vel yfir ITRA og allskonar fídusa í Strava!  

#82 Baráttan um heiðmörk! 30.05.2025

Ofurstjarnan Yngvild Kaspersen er mætt á svæðið, hún kom að sjálfsögðu í spjall til okkar og ræddi komandi keppni í Mýrdalnum. Hugleiðingarnar voru á sínum stað, Örvar Steingríms rætti baráttuna um Heiðmörk og síðustu keppnir voru gerðar upp ásamt svo mörgu öðru! 

#81 Gamla geggjaða geitin! 23.05.2025

Skýrsla úr Akrafjallinu, spurningar úr sal, hugleiðingar og hlaupauppgjör. Hvað meira getur maður beðið um svona undir lok vikunnar? 

#80 Það eru engir veggir í Köben! 13.05.2025

Alvöru skýrsla frá Danmörku, uppgjör úr bakgarðinum og hlaupunum hér heima, farið vel yfir Strava segment sem hafa hríð fallið síðustu daga og svo margt, margt fleira! 

Listen to the Út að hlaupa podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.