Tal

Þungavigtin

Sports IS ↓ 251 episodes

Þungavigtin er fyrst og fremst þáttur um knattspyrnu og öllu henni tengdri. Hvort sem er innanlands eða utan. Liðsmenn þáttarins þarf vart að kynna fyrir þjóðinni. Skútunni stýrir Rikki G íþróttafréttamaður ásamt Mikael Nikulássyni og Kristjáni Óla Sigurðsyni betur þekktir undir nöfnunum Mike og Höfðinginn. Þættirnir koma út á föstudögum inn á allar helstu veitur þar sem góðir gestir líta við. Fyrir þá allra hörðustu kemur Þungavigtin saman á hverjum mánudegi á tal.is/vigtin og verða þeir þættir aðeins aðgengilegir áskrifendum. Þar koma Mike, Höfðinginn og Rikki G saman og ræða fótbolta á mann...

Author

Tal

Category

Sports

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Rambo með Any Given Sunday ræðu um Man Utd og Mike hraunar yfir saklausan spyril. 18.03.2022

Richard, Rambo og Mækarinn laufléttir á föstudegi.

5 veikustu áfram valdir og Pochettino vill ekki að stýra liðum með einstaklingum innanborðs. 11.03.2022

Richard, Höfðinginn og Tommi Steindórs fóru yfir helgina framundan.

Hjammi mundi ekki hvaða liði hann spilaði með og FA bikarinn að eyðileggja deildina. 03.03.2022

Richard, Mike og Hjamminn ferskir korter í helgi.

Umræðan orðin ljót og ósanngjörn að framboði Sævars og Liverpool vinnur dollu um helgina. 25.02.2022

Richard, Höfðinginn og Rambo fóru yfir þessa risa helgi sem er framundan.

Sævar og Vanda telja bæði stöðu sína sterka en hver er með rangt excel skjal? 18.02.2022

Richard, Mike og Bondarinn laufléttir á föstudegi.

Veikustu stuðningsmenn United og Liverpool á Íslandi valdir og KRR þarf bretti af klósettpappír til sín. 11.02.2022

Siggi Sörens var gestur þáttarins og rankaði 5 veikustu stuðningsmenn United og Liverpool á Íslandi, afhverju er KSÍ að fara í þjálfara á Íslandi sem eru samningsbundnir og Newcastle verður farið að berjast um málma eftir 2 ár.

Vanda hendir út fyrsta spilinu en hvar eru hinir? Hver scoutaði eiginlega Juan Perez? 04.02.2022

Richard, Mike og Höfðinginn ferskir á föstudegi.

Sævar Pétursson býður sig fram til formanns KSÍ? Gummi Tóta sérstakur gestur. 28.01.2022

Richard, Höfðinginn og Gudi Tóta ferskir á föstudegi.

Leiknir leitar til Danmerkur, Mike sprakk á limminu og Andri Adolfs á heimleið? 21.01.2022

Richard, Höfðinginn og Mike í miklum gír á bóndadeginum.

Mike niðurlægður, Gilsatravel í fullu fjöri og Minamino gerður að blóraböggli. 14.01.2022

Richard, Mike og Höfðinginn hituðu upp fyrir helgina í boltanum.

Höfðinginn ætlaði að brjóta spegilinn á flugvellinum í gær og Ronaldo eyðinleggur United. 07.01.2022

Mike, Höfðinginn og Rikki G voru ferskir á föstudegi.

Ísland all star lið ársins, ummæli ársins, skandall ársins og meira ársins. 31.12.2021

Mike, Richard, Höfðinginn og Rambo gerðu upp árið í Þungavigtinni.

All star Liverpool og United frá stofnun PL og Heimir Hallgríms tekur skref niður á við. 24.12.2021

Mike og Rambo ferskir á aðfangadegi

Viðar Örn velur Arsenal all time favorite og Heimir mun ekki taka Eið Smára inn. 17.12.2021

Mike telur að Heimir Guðjóns taki ekki Eið Smára í þjálfarateymið, gervigras vs gras umræða, verður PL frestað framyfir áramót og Viðar valdi topp 5 mestu Selfoss legend.

Liverpool liðið í dag betra en meistaraliðið 2020 og mun Gerrard fagna ef Villa skorar? 10.12.2021

Atli Viðar Björnsson var gestastjórnandi Þungavigtarinnar í dag ásamt Höfðingjanum. 

Hrap knattspyrnustjarnanna á Englandi og Víkingar frumsýna heimildarþætti. 03.12.2021

Mike og Höfðinginn upp á sitt besta ásamt sérstökum gestum. 

Er Guðni Bergs að fara að bjóða sig fram aftur til formanns KSÍ? 26.11.2021

Mækarinn og Siggi Bond fóru um víðan völl á Black Friday. Liggur Guðni Bergs undir feldi? Hvað er Rangnick að fara að gera fyrir United,  Jurgen Klopp er skemmtilega hrokafullur og Víkingur er með hópinn ready fyrir desember.

Fyrrverandi formaður FH hótaði Höfðingjanum meiðyrðarmáli fyrir nokkrum árum og Húni á Hlíðarenda. 18.11.2021

Höfðinginn reif upp gömul sár varðandi fyrrum formann FH, Rambo var heiðursgestur Þungavigtarinnar og valdi sitt besta Liverpool lið allra tíma, Eysteinn Húni á leið í Val og spurningakeppnin réðist á loka spurningu.

Besti leikur undir stjórn AÞV, Stjarnan leitar í Beverly Hills og endalausir úrslitaleikir um sæti á HM. 11.11.2021

Mækarinn og Höfðinginn upp á sitt allra besta í Þungavigtinni. 

Allt um Manchester og Mílanó slaginn og Mike les yfir ráðamönnum þjóðarinnar 05.11.2021

Richard, Mike og Hjammi mættu í Þungavigtina í dag og ræddu landsliðshópinn, enska boltann, Derby Della Madonnina verður á Ítalíu um helgina, byrjar Heimir Guðjóns á gulu spjaldi næsta sumar og Mike er brjálaður yfir aðstöðuleysi íþróttafólks á Íslandi. Góða helgi.

Máni velur besta Leeds lið allra tíma og Höfðinginn sagði það lið falla 29.10.2021

Máni og Höfðinginn töluðu eingöngu hreina íslensku í þætti dagsins. Ítarleg umræða um landsliðið, Máni segir að Stjarnan verði í brekku næsta sumar og Höfðinginn segir að Vanda og Klara muni aldrei tala við Jóhann Berg.

Haraldur Guðmundsson nýr aðstoðarþjálfari Keflavíkur og risaleikur á Old Trafford 22.10.2021

Hitað rækilega upp fyrir United - Liverpool, Höfðinginn niðurlægði Mike nokkrum sinnum í þættinum því miður, kaldar kveðjur á Eystein Húna hjá Keflavík og Mourinho yngsta risaeðla veraldar.

Lyfjarisi á bakvið Víkinga og veskið komið á loft 15.10.2021

Mike og Höfðinginn mættu án hanska í dag og létu höggin dynja á hvor öðrum með orðum hvað varðar HM í fótbolta á 2 eða 4 ára fresti. Höfðinginn með heimavinnu upp á 10 og segir að peningar séu komnir í Víkina. Hlustið og njótið

Þjálfari ÍA í fríi á Tenerife korter fyrir bikarúrslitaleik 07.10.2021

Þjálfari ÍA í fríi á Tenerife korter fyrir bikarúrslitaleik og FH styrkir stoðir enn frekar. Höfðinginn kom svo loksins tilbaka í spurningakeppninni.

Risa óveðurský yfir Laugardal 01.10.2021

Fyrsti þáttur Þungavigtarinnar. Þungavigtin er fyrst og fremst þáttur um knattspyrnu og öllu henni tengdri. Hvort sem er innanlands eða utan. Liðsmenn þáttarins þarf vart að kynna fyrir þjóðinni. Skútunni stýrir Rikki G íþróttafréttamaður ásamt Mikael Nikulássyni og Kristjáni Óla Sigurðsyni betur þekktir undir nöfnunum Mike og Höfðinginn. Þættirnir koma út á föstudögum inn á allar helstu veitur þa...

Listen to the Þungavigtin podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.