Snorri Björns

The Snorri Björns Podcast Show

Society IS ↓ 157 episodes

Snorri Björns og áhugavert fólk.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: snorribjorns.libsyn.com

Author

Snorri Björns

Category

Society

Podcast website

snorribjorns.libsyn.com

Latest episode

Dec 1, 2023

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hringt og svarað 02 - Gauti Grétars og eldræðan, hringt í fyrrverandi yfirmann og 10 daga silent retreat 03.04.2020

Gestir: Gauti Grétarsson, Baldur Kristjánsson, Bergþór Másson 00:00 - Inngangur og hringt í vin.   07:14 - Gauti Grétarsson er sjúkraþjálfari til 35 ára og veit manna best að sjúkraþjálfunaræfingar eru ekki sexý. Hann hefur þó gert þetta nógu lengi til að vita að grindarbotnsæfingar, djúpvöðvaæfingar og samhæfingaæfingar virka og sporna við öldrun líkamans. Ekki nóg með að kyrrsetan skerti hreyfig...

#54 - Helgi í Góu 01.04.2020

Maðurinn sem byggði upp viðskiptaveldi á karamellum og djúpsteiktum kjúkling - allt eftir kl. 17:00.

Hringt og svarað 01 - 90% færri borðapantanir, innlyksa bóndi með mörg læk, Filippseyjar, Suðurnes og lýðheilsa í samkomubanni 25.03.2020

Gestir: Jón Jónsson, Sara Sigmunds, Indriði Aðalsteinsson, Halla Margrét Bjarkadóttir, Sindri Jensson, Stebbi Hilmars.   0:00 Inngangur - Fyrirkomulag og hringt í vin. 04:04 Sara Sigmundsdóttir - Cortisol og cravings í samkomubanninu. 16:08 Sindri Jensson - 13% fita en 5kg þyngri!?! Afföll í borðapöntunum og aðþrengingar í rekstri, þó engin skortur á lífsgleði. 29:25 Halla Margrét, fréttamaður þát...

#53 - Dr. Erla Björnsdóttir, svefn- og sálfræðingur 10.02.2020

Erla Björnsdóttir er sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum og svefnsérfræðingur. Í doktorsnámi sínu rannsakaði Erla svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn. Í þessu spjalli tengjum við svefninn saman við líkamlega og andlega heilsu og förum yfir það hvernig þetta veltur allt saman á hvort öðru og býr til gott jafnvægi eða það sem verra er, algjöran vítahring.

#52 Tryggvi Hjaltason - 200 ára: föstur, stress, skilvirkni, hugarfar, herinn og trú 03.02.2020

Tryggvi Hjaltason ætlar sér að verða 200 ára. Til þess rígheldur hann í trúnna, fastar í allt að 10 daga og lágmarkar allt stress í lífi sínu. Tryggvi starfar sem Senior Strategist hjá CCP þar sem hann hefur aðgang að verðmætur og gríðarstórum gagnabanka um hegðun notenda EVE Online - enda mannleg hegðun eitt af hans helstu áhugamálum. Áður en Tryggvi settist að í Vestmannaeyjum hélt hann út til B...

#51 - Sara Sigmundsdóttir 27.01.2020

Sara er á sigurgöngu og valtar yfir hverja CrossFit keppnina á fætur annarri. Hún sigraði meðal annars The Open í þriðja skipti og Dubaii Fitness Championship nokkrum vikum síðar. Þó svo vel gangi í dag hefur Sara þurft að takast á við ansi harðan mótvind og mótlæti síðasta árið, mótlæti sem kallaði á margar breytingar sem allar miða að því að verða best í heimi.

#50 - Andri Snær Magnason 20.12.2019

Andri Snær hóf ferilinn tvístígandi með útgáfu á ljóðabók sem seldist svo vel að hún dugði fyrir fyrstu útborgun á íbúð og sló sömuleiðis á efasemdir um val á framtíðarstarfi. Hjá minni kynslóð er Andri líklega best þekktur fyrir Söguna af bláa hnettinum, barnabók sem mamma mín las fyrir mig fyrir svefninn á sínum tíma. Nú, 20 árum síðar, gaf Andri út nýja bók, Um tímann og vatnið, sem ég treysti...

#49 - Aron Einar Gunnarsson 17.12.2019

Fyrirliða íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og leikmanni Al-Arabi var flogið beinustu leið inn í podcaststúdíóið frá Katar fyrir sérstakan hátíðarþátt hlaðvarpsins. Aron hefur glímt við meiðsli undanfarnar vikur en í stað þess að leggjast í volæði heldur hann sér uppteknum með stífri sjúkraþjálfun, endurhæfingu og framleiðslu á nýju snyrtivörumerki sem hann þróaði með Kristbjörgu, konunni s...

#48 - Karen Axels 13.11.2019

Karen Axelsdóttir ákvað á einu djamminu að snúa blaðinu við og byrja að hreyfa sig með því að lofa sér í ólympíska þríþraut. Margar slíkar staðhæfingar hafa komið af vörum fólks eftir nokkra drykki á slíkum kvöldum en í staðinn fyrir að vakna með samviskubit yfir orðum sínum fór hún og keypti byrjendapakka þríþrautamannsins. Ólympísk þríþraut samanstendur af 1,5km sundi, 40km hjóli og 10km hlaupi....

#47 - Björgvin Páll Gústavsson 30.10.2019

Í langan tíma hef ég reynt að láta einkenni um andlegt og líkamlegt hrun sem vind um eyru þjóta. Fyrir utan erfiðleikana sem fylgja því að eiga við öll þessi einkenni er orðið allt of erfitt að reyna að halda haus og láta eins og ekkert sé innan um liðsfélagana. Nú þegar mesti gráturinn er yfirstaðinn átta ég mig á því að ég er kominn með algjört ógeð á sjálfum mér, eða öllu heldur þessum brjálaða...

#46 - Pétur Jóhann Sigfússon 24.10.2019

Fyndnasti maður Íslands 1999 og til dagsins í dag.

#45 - Bergur Ebbi 04.10.2019

Maður hlustaði á hann í Sprengjuhöllinni, fór á Mið-Ísland uppistand með honum, followaði á Snapchat, las pistlana hans í blaðinu, hlustaði á hann fíla lög í hlaðvarpsformi og nú les maður bækur um gervigreind og samfélagsrýni eftir hann. Ég ætla ekki að bregða frá þeirri staðreynd að það er þokkalega yfirþyrmandi tilfinning að fá til sín gest sem er bráðgreindur, lögfræðimenntaður og hefur hæfile...

#44 - Jón Jónsson 18.09.2019

Tónlistarmaður, hagfræðingur, sjónvarpsþáttastjórnandi, heimilisfaðir, eiginmaður, stóri bróðir Frikka Dórs, motivational speaker, motivational musician og nú síðast maraþonhlaupari. Ekki nóg með að klára maraþon þá stimplaði hann sig inn sem einn besti maraþonhlaupari okkar Íslendinga í leiðinni. Það verður að sjálfsögðu snert á maraþon reynslusögunni í þessum þætti - en það er ekki hægt að fá Jó...

#43 - Anton McKee - London 2012, Rio 2016 & Tokyo 2020 12.09.2019

Anton Sveinn McKee er fyrsti íslendingurinn til að ná inn á ólympíuleikana í Tokyo 2020. Þetta verða þó ekki hans fyrstu ólympíuleikar heldur þeir þriðju en Anton tók þátt í London 2012 og RIO 2016.   Sögurnar af frammistöðunni og upplifuninni af ólympíuleikunum 2012 og 2016 eru frábrugðnar hvor annarri og þegar leikunum í RIO 2016 var lokið, eftir að hafa eytt lífi sínu í sundlaug síðan hann var...

#42 - Björgvin Karl 2 21.08.2019

Eini sanni. Væn yfirferð yfir heimsleikana 2018 og 2019. Leynimakk Bjögga og Matt Fraser, stríðsástand eftir maraþonróðurinn og hvíldartímabil í Mexíkó.

#41 - Halla Tómasdóttir 14.08.2019

45 dögum fyrir forsetakosningarnar 2016, sama dag og hún mældist með 1% fylgi, varð Halla Tómasdóttir forseti í eigin lífi. Sama morgun og fyrstu kappræður forsetaframbjóðenda áttu sér stað mælist Halla með 2,5% fylgi en skilyrði fyrir þáttöku í kappræðunum var nákvæmlega 2,5% fylgi. Þetta þykir ansi áhugavert í ljósi þess að lokaniðurstöður kosninganna skiluðu Höllu 2. sæti í forsetaframboði með...

Herbert Guðmundsson 31.07.2019

Herbert er skemmtilegasti maður sem hægt er að hitta á förnum vegi. Það er ekkert minna en magnað hvað hann fer jákvæður í gegnum lífið þrátt fyrir ýmsa lágpunkta í sínu lífi, þar með talið eiturlyfja- og áfengisneyslu, fangelsisvist og gjaldþrot. Það er ekkert til að kvarta yfir enda dregur þetta það besta fram úr manninum og niðurstaðan er sú að vandamálin eru eldiviður framfaranna.

Sigurjón Ernir - Hlaup, styrkur, föstur & plöntur 24.07.2019

Sigurjón Ernir er búinn að leita að öllum mögulegum leiðum í átt að árangri og situr uppi með hafsjó af fróðleik sem hann deilir með okkur í þessum þætti. Til að mynda er hann mikill talsmaður þess að fasta og fastar lotubundið á hverjum degi, hann er með ísbað úti á svölum hjá sér sem hann hoppar í á kvöldin, hann borðar ekki kjöt, hann stúderar næringarþörf sína og prógrammar æfingar fyrir sjálf...

Magnús Scheving 2/2 17.07.2019

25% ASLÁTTUR Í SAFFRAN APPINU MEÐ KÓÐANUM "SNORRI" Alinn upp á Hvammstanga og smiður að mennt. Fljótt á litið virðist þetta ekki uppskriftin af einum farsælasta frumkvöðli Íslandssögunnar og ekki batnar það þegar norðurlandameistaratitlinum í þolfimi er hent í mixið. Magnús hefur komið víða við og segir frá því hvernig hann endaði í brjáluðu formi og á forsetalaunum sem 13 ára unglingur, Englandsf...

Magnús Scheving 1/2 10.07.2019

25% ASLÁTTUR Í SAFFRAN APPINU MEÐ KÓÐANUM "SNORRI" Alinn upp á Hvammstanga og smiður að mennt. Fljótt á litið virðist þetta ekki uppskriftin af einum farsælasta frumkvöðli Íslandssögunnar og ekki batnar það þegar norðurlandameistaratitlinum í þolfimi er hent í mixið. Magnús hefur komið víða við og segir frá því hvernig hann endaði í brjáluðu formi og á forsetalaunum sem 13 ára unglingur, Englandsf...

#36 - Chris Burkard 03.07.2019

25% AFSLÁTTUR Í SAFFRAN APPINU MEÐ KÓÐANUM "SNORRI"   Instagram styrnið, ljósmyndarinn, ævintýramaðurinn og nú síðast sigurvegari og methafi í WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni: Chris Burkard, er gestur þáttarins að þessu sinni. Chris heldur úti risastórum Instagram aðgangi þar sem hann sýnir frá ævintýrum sínum um allan heim. Mörg af þeim eiga sér stað á Íslandi en hann hefur komið hingað 34 sinnu...

#35 - Joey Christ 22.04.2019

Jóhann Kristófer / Joey Christ. Leikarinn, leikstjórinn, Útvarpsmaðurinn, sviðslistamaðurinn og tónlistarmaðurinn er að gefa út sína þriðju sólóplötu rakti söguna frá fyrstu kynnum sínum við Loga Pedro á Grænuborg yfir í Sturla Atlas ævintýrið 2015 og dagsins í dag. Það er margt búið að ske í íslensku tónlistarlífi síðustu árin og eins óþægilegt og Jóhanni fannst að rappa eða syngja í míkrafóninn...

#34 Bjarki Brynjarsson - Lieutenant í norska hernum 03.04.2019

Bjarki Brynjarsson, eins og svo margir aðrir, var ekki viss um hvað hann vildi taka sér fyrir hendur við útskrift úr Verzlunarskóla Íslands. Fyrir algjöra tilviljun, ævintýraþrá og hvatvísi skráir hann sig í norska herinn. 7 árum síðar er Bjarki 28 ára gamall lieutenant innan fallbyssu herdeildar hersins með 30 undirmenn. Leiðin þangað var ekki áfallalaus, inntökuprófið í herinn (hell-week) var ba...

#33 Kristján Gíslason - Hringurinn í kringum jörðina á mótorhjóli, einn síns liðs 27.03.2019

Eftir að selja fyrirtækið sem hann byggði upp, koma sér vel fyrir með eiginkonunni, börnum og barnabörnum áttaði Kristján sig á því að hann væri kominn á miðjan aldur. Tækifærið til að upplifa ævintýrin sem lífið hafði upp á að bjóða var núna og árið 2014 lagði hann af stað hringinn í kringum hnöttinn á mótorhjóli, einn síns liðs. Árið 2018 gerði hann ferðina upp bæði við sjálfan sig og í formi he...

#32 - Herra Hnetusmjör & Huginn 21.03.2019

Herra Hnetusmjör og Huginn gáfu út sitthvora sólóplötuna á síðasta ári, Huginn með plötuna Eini Strákur og Herra með plötuna Hetjan úr Hverfinu, en gefa núna út sameiginlega plötu sem ber titilinn KBE kynnir: Dögun.

Listen to the The Snorri Björns Podcast Show podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.