Snorri Björns
The Snorri Björns Podcast Show
Snorri Björns og áhugavert fólk.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: snorribjorns.libsyn.com
Author
Snorri Björns
Category
Podcast website
Latest episode
Dec 1, 2023
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#127 Þórður Pálsson - Forstöðumaður fjárfestinga 23.03.2022 1:53:09
"Covid niðursveiflan var miklu harðari en ég bjóst við og ég held að niðursveiflan núna sé miklu alvarlegri en nokkurn tímann Covid." Þórður Pálsson er forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og fyrrverandi yfirmaður greiningardeildar Kaupþings. Í þættinum er farið yfir breitt svið efnahagsástandsins í dag: Áhrif Covid á hlutabréfaverð Lækkun stýrivaxta og áhrif á markaði Verðbólguspá Þórðar Almennin...
#126 - Aníta Briem 16.03.2022 1:59:15
Aníta var einungis 24 ára gömul þegar hún landaði aðalhlutverki í Hollywood stórmyndinni Journey to the Center of the Earth. Í dag er hún flutt heim og hefur aðra sýn á glansmynd Hollywood-framleiðslunnar. Aníta ræðir agann sem henni tókst að beina í átt leiklistarinnar til að láta drauma sína rætast en á yngri árum kom þessi sami agi henni í lífshættu þegar hún var vistuð á BUGL vegna anorexíu, m...
#125 - Erpur Eyvindarson 09.03.2022 3:05:39
Þriggja tíma uppistand frá listamanninum Erpi Eyvindarsyni. Kennarasonurinn alinn upp á finnska mátann deilir skoðunum á Könum vs. Finnum, siðareglum mismunandi þjóða (djúpsteikt sushi, Víetnamskar stríðsgildrur og heiðnir siðir), upplestur úr Mein Kampf á afmælishátíð Laxenss (13 ára gamall), einn af þremur Íslendingum dæmdum fyrir að smána erlenda þjóð (Mólotov kokteill + áfengi + bandaríska sen...
#124 - Brynjar Karl 02.03.2022 2:56:06
"You can't make a pig a race horse, but you can make a pretty fast pig" - Þetta hefur alltaf fests með mér, mér finnst svo gaman að þjálfa svín. Mér finnst svo gaman þegar svínin pakka veðhlaupahestunum saman. Brynjar Karl, stofnandi og eigandi Sideline Sports (hugbúnaður notaður af færustu þjálfarateymum heims: NBA, NFL, Bandaríski herinn ofl.), eigandi KeyHabits, meistari í kvíðanum og þjálfar...
#123 Sölvi Blöndal - forsprakki Quarashi og hagfræðingur ársins 23.02.2022 2:01:28
"Ég hafði ekki áhuga á að vera í þessu lífi eina sekúndu í viðbót. Ég ætlaði aldrei að snerta kjuðana aftur og það var svo góð tilfinning. Það er besta tilfinning sem ég hef fengið að hætta í Quarashi." Sölvi Blöndal einsetti sér að verða besti trommari í heimi og nýstofnuð hljómsveit hans, Quarashi, var fínasti vettvangur til þess. Quarashi sló í gegn á heimsvísu, komu Jinx á Billborad listann,...
#122 Rafn Franklín - ábyrgð á eigin heilsu 17.02.2022 1:58:44
Rafn Franklín lifir á jaðri heilsueflingarinnar, prófar hluti á eigin skinni og safnar saman í góðan upplýsingabanka sem við flettum gegnum í þessu viðtali. Umhverfið stýrir lífsstíl okkar í vitlausa átt og það er krefjandi áskorun að vinna gegn því. Við tölum um ákvarðanir okkar og afleiðingar fyrir börnin okkar (epigenetics), kaloríur en skort á næringu, grænmetisolíur, bjagaðar rannsóknir, togs...
#121 - Gerður Arinbjarnardóttir 09.02.2022 1:53:00
Gerður er eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, sem er bæði framúrskarandi fyrirtæki og skuldlaust. Hún er ekki hámenntuð í viðskiptum og markaðsfræði, raunar hefur hún hvorki lokið háskóla- né menntaskólagöngu, en hlaut nýverið titilinn Markaðsmanneskja ársins. Aðferðir Gerðar eru einfaldar og 'ghetto'. Hún hefur þurft að hafa fyrir hlutunum, farið í gjaldþrot, verið hrædd við peninga og fund...
#120 - Björn Hlynur Haraldsson 02.02.2022 1:46:07
"Ég mætti í viðtal og hraunaði yfir allt, nýútskrifaður pjakkur, sagði að allt væri ömurlegt og að fólk þyrfti að rífa sig í gang. Eldri stórleikarar sögðu við mig: Þú ert bara game over kallinn minn." Björn Hlynur hefur ekki farið framhjá þér síðustu misseri með stórleik í Verbúðinni, Ófærð, Leynilöggu, The Witcher, Eurovision Song contest og fleiri kvikmyndum. Björn lætur ekki leiklistina nægj...
#119 Björn Hjálmarsson - sérfræðilæknir á BUGL 26.01.2022 1:37:12
Björn Hjálmarsson, sérfræðilæknir á barna- og unglingageðdeild, ræðir um tengslakerfið sem öflugasta vopnið gegn hugrænum þjáningum, hvernig þessar þjáningar birtast okkur í samfélaginu, stirnunarkerfið, lítil hrædd börn í líkömum fullorðinna einstaklinga, sjúkdómsvæðing sorgarinnar og flóttann frá eigin tilfinningum. Björn hefur ekki bara menntun og starfsreynslu á þessu sviði heldur fór hann í...
#118 - Þorgrímur Þráins 19.01.2022 1:49:53
Fáir sem ekki flokkast undir starfsstétt kennara hafa eytt jafn miklum tíma inni í skólastofum landsins og Þorgrímur Þráinsson. Eftir 13 ár af fyrirlestrum innan veggja skóla landsins deilir Þorgrímur fast mótuðum skoðunum sínum á hegðun samfélagsins gagnvart börnum, greiningu á vandamálinu sem skapast og úrræða sem þarf að grípa til. Þar að auki ræðum við rithöfunda-, blaðamanna- og knattspyrnufe...
#117 - Guðni Gunnarsson 12.01.2022 1:51:44
"Hvað þekkir þú marga sem eru ekki fórnarlömb? Sem eru ekki að ásaka sig eða annan, ásaka ríkisstjórnina, sem eru ekki að réttlæta sína tilvist og afsaka sig? Af hverju? Því það er einhver ávinningur af því að vera fórnarlamb í eigin sögu. Þá geturu réttlætt vanmátt þinn og útskýrt af hverju þú ferð ekki á fætur, af hverju þú drekkur eða borðar svona mikið. Það er bara eitt lögmál: orsök og afleið...
#116 - Jóhannes Ásbjörnsson 05.01.2022 1:45:24
Fjölmiðlastjarnan sem var hafnað af LHÍ, fór að vinna í banka, hélt vinnunni í hruninu en sagði sjálfur upp til að opna veitingastað. Jói Ásbjörns hefur komið við á nánast öllum hefðbundnari miðlum og slegið í gegn í þáttum eins og Mono, 70 mínútur, Idol og Wipeout - þrátt fyrir að fjölmiðlarnir voru alltaf hans aukastarf.
#115 - Baldvin Z 22.12.2021 1:52:40
Baldvin Z leikstýrði Óróa, Vonarstræti, Lof mér að falla og nú síðast sjónavarpsþáttunum Svörtu Sandar. Hann fór ungur fram úr sjálfum sér með hljómsveitinni sinni, Toy Machine, þar sem þeir voru á brún þess að meika það í Bandaríkjunum en klúðruðu málunum í örlaga ríkri ferð sem kenndi Baldvini mikilvæga lexíu út ferilinn: Nobody gives a fuck. Gríðarlega skemmtilegt spjall um kvikmyndaframleiðsu,...
#114 - Dagur B. Eggertsson 15.12.2021 1:42:56
Mikið hefur gengið á í Reykjavíkurborg og hjá borgarstjóra hennar síðustu áratugi. Líklegast það súrealískasta kjör Jóns Gnarrs sem borgarstjóra en Dagur lýsir þeirri atburðarrás frá sínu sjónarhorni í þættinum ásamt því hvernig hann ákvað að hrista upp í sjálfum sér og aflæra pólitíska framkomu eftir stórsigur Jóns, hvernig lýðheilsa borgarbúa og borgarskipulag haldast í hendur, læknisfræðimenntu...
#113 - Alfreð Gíslason 08.12.2021 1:51:20
Núverandi þjálfari Þýska landsliðsins og einn farsælasti handboltaþjálfari sem við Íslendingar eigum. Alfreð Gíslason hefur ekki ennþá komist að því af hverju hann er eins og hann er, áhugi er léleg lýsing á dellunum sem hann fær en metnaðurinn og vinnusemin í bland leiðir hann að ótrúlegum árangri. Sem dæmi tapaði Kiel ekki stökum leik árið 2012 þegar liðið vann Evrópudeildina, urðu Þýskalandsmei...
#112 Kristján I. Mikaelsson - Er verðbólgan að éta upp bestu ár lífs þíns? 01.12.2021 2:42:17
Peningar, fasteignir, gull, Bitcoin og Charizard í glansi eru allt sjaldgæfir hlutir en það sjaldgæfasta, og verðmætasta, sem þú munt nokkurn tímann eiga er tíminn þinn. Er skynsamlegt að skipta tímanum þínum, sem þú munt aldrei eignast meira af, fyrir gjaldmiðil sem rýrnar í virði? Hvað ertu að borga fyrir það að kynna þér ekki þín eigin fjármál og hvers virði eru bestu ár lífs þíns? Kristján Ing...
#111 - Máni Pétursson 24.11.2021 1:41:34
Harmageddonbróðirinn sem veður í allt og alla en er á sama tíma markþjálfi sem les sjálfshjálparbækur. Máni rekur sögu Harmageddon og vinskap sinn við Frosta sem hófst eftir neyslutímabil og meðferð um tvítugsaldurinn. Einn daginn, reykjandi kannabis, fattaði hann að það mun enginn banka upp á og bjóða honum að meika það. Við ræðum aðskilnaðarkvíðann frá Frosta, hvernig reiðin eftir hrun var eldsn...
#110 Kristján Gíslason - Ekki vera fullkomin, sleppið af ykkur beislinu 17.11.2021 3:02:18
Með hvatningarorðum föðurs síns heitins: "aldrei hætta að þora" hefur Kristján Gíslason ýtt sér út af beinu brautinni og ferðast um allan heim, einn síns liðs á mótorhjóli. Eftir mikla farsæld í viðskiptalífinu, vinnustundir myrkranna á milli, litla samveru með börnunum sínum og ofgnótt af veraldlegum hlutum fann Kristján sig á efri árum í leit að einhverju þýðingarmeira en golfi og sportbílum. Hé...
#109 Matthew Walker - Svefn í skammdeginu, orkudrykkir, koffínneysla og andleg heilsa 10.11.2021 1:05:38
Dr. Matthew Walker er prófessor við Berkeley háskóla og sérfræðingur í svefni, sálfræði og taugalífeðlisfræði. Fókus þáttarins eru aðstæðurnar sem Íslendingar lifa við, áhrif þessara aðstæðna á svefninn okkar og hvað við getum gert til að jafna leikinn. Gefðu þér klukkutíma til að hlusta á þáttinn áður en þú grípur næsta kaffibolla í svartasta skammdeginu. Umræðuefni eru meðal annars: Mikilvægi sv...
#108 Gunnar Karl - Vinna, tapa og endurheimta Michelin stjörnuna 03.11.2021 1:42:40
Þrátt fyrir að hafa bæði opnað og nefnt B5 er Gunnar Karl líklega þekktastur sem eigandi Dill. Brösótt byrjun staðarins (þar sem eigendurnir lokuðu staðnum nokkur kvöldin og fóru sjálfir út að borða) benti ekki til að þetta yrði eini Michelin staður landsins í náinni framtíð. Gunnar hefur farið víða og bauðst að opna stað í New York. Hann flutti út með 4 barna fjölskyldu og var stuttu eftir opnun...
#107 Júlían J.K. - Hvernig skal styrkjast 27.10.2021 1:27:51
Júlían er einn af þremur kraftlyftingamönnum sem hafa hlotið titilinn Íþróttamaður ársins og er þar með settur í flokk ásamt Skúla Óskarssyni og Jóni Páli Sigmarssyni. Hann á heimsmet í réttstöðulyftu, vegur 160 kíló og hefur tvöfaldað samanlagðan árangur sinn í kraftlyftingum á síðasta áratugi. Hér finnuru góðan fróðleik um lyftingar, styrkingar, aga, markmiðasetningu og sovésk æfingakerfi.
#106 Einar Vilhjálmsson - Efling hins megnuga sjálfs 20.10.2021 2:02:13
Einar Vilhjálmsson er einn mesti íþróttamaður sem Íslendingar hafa átt. Hann var íþróttamaður ársins árið '83 '85 og '88 og árið 1985 var hann stigahæsti frjálsíþróttamaður heims þvert á allar frjálsíþróttagreinar. Keppnisferill Einars spannar um 220 mót í 22 löndum og hafnaði hann á verðlaunapalli á 200 þeirra. Við fáum góðar sögur af ferlinum og einnig heimspekilega sýn Einars á lífið um eflingu...
#105 - Hilmir Snær 13.10.2021 1:31:38
Leikarinn sem er búsettur í 101 og elskar latte en vill helst verða bóndi. Hilmir Snær er einn af okkar ástsælustu og ræðir hér Fóstbræður og grínið, hestamennskuna, sjómennskuna, flogaveikina og að verða of meðvitaður um sjálfan sig á sviði.
#104 Arnar Gunnlaugs - Frá Akranesi í Meistaradeildina, gegnum góðæri og gjaldþrot og ástríðan fyrir þjálfun 06.10.2021 1:26:53
Skagatvíburarnir Arnar og Bjarki héldust í hendur gegnum fyrri hluta ævinnar: Íslandsmeistarar í badmintoni, Íslandsmeistarar í fótbolta, yngri landsliðin, A landsliðið og atvinnumennskan. Þegar meiðsli enduðu ferilinn var Arnar kominn með nóg af fótbolta og hafði engan áhuga á þjálfun. Viðskiptalífið varð þeirra næsti vígvöllur: skemmtistaður, veitingastaður, fatabúð og fasteignabrask sem gekk ve...
#103 Snorri Magnússon - Örvun hreyfiþroska barna 29.09.2021 1:29:41
Það var rækilega skellt á andlitið á honum þegar Snorri Magnússon, sundkennari og þroskaþjálfi, hóf að kenna ungbarnasund hér á landi fyrir 30 árum. Hann ákvað því að kenna sínum eigin börnum en forvitnir foreldrar af fæðingadeildinni fengu að fljóta með. Í dag hefur Snorri kennt rúmlega 7.000 börnum og eftirspurnin svo mikil að nýbakaðir foreldrar þurfa að mæta inntökuskilyrðum og sýna bæði metna...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.