skuggavaldid
Skuggavaldið
Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu. Framleitt af Tal.
Author
skuggavaldid
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 6, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#20 - Wind of change - seinni þáttur 21.07.2025 41:24
Voru listamenn gerðir að leynivopni í kalda stríðinu? Eiríkur og Hulda kryfja sögulegar staðreyndir um það hvernig vestrænar leyniþjónustur beittu bæði bókmenntum og tónlist sem vopni í kalda stríðinu. Þau rekja hvernig vestrænar leyniþjónustur stóðu að útgáfu bannaðra skáldsagna, fjármögunuði tímarit í leyni og sendu djassgoðsagnir austur fyrir járntjaldið - og spyrja svo: Gæti Wind of Change með...
#19 - Wind of change - fyrri Þáttur 07.07.2025 54:52
Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Hulda og Eiríkur rekja ótrúlega sögu samsæriskenningarinnar um að vestrænar leyniþjónustur hafi samið lagið Wind of Change með þýsku stálsveitinni Scorpions sem vopn í hugmyndabaráttu kalda stríðsins. Þau leiða hlustendur frá risatónleikum í Moskvu 1989 og töfrastund við Moskvuána, inn í heim njósna, rokkstjarna og hvísls manna á mi...
#18 - Efnaslóðar; að flugvélar drefi eiturefnum – seinni þáttur 23.06.2025 39:45
Í nýlegum þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið köfuðu prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann ofan í samsæriskenninguna um að stjórnvöld séu í leyni að úða eitruðum efnum yfir almenning úr flugvélum. Þó að þessi tiltekna kenning eigi sér enga vísindalega stoð, þá sprettur hún ekki alveg upp úr engu. Grunsemdirnar eiga sér nefnilega raunverulega og ansi uggvekjandi forsögu Ábendingar og ath...
#17 - Efnaslóðar; að flugvélar dreifi eiturefnum – fyrri þáttur 09.06.2025 38:58
Eru hvítu rákirnar sem fylgja þotum á himni í raun eiturefni, vísvitandi úðað yfir fólkið til að hafa áhrif á hegðun þess? Í þessum fyrri af tveimur þáttum Skuggavaldsins um svonefnda efnaslóða — eða chemtrails — kafa Hulda og Eiríkur ofan í uppruna samsæriskenningarinnar og skoða hvernig raunveruleg vísindaverkefni á borð við HAARP og tilraunir til veðurstýringar hafa lagt frjóan jarðveg fyrir va...
#16 - Andlát Marilyn Monroe 26.05.2025 53:24
Myrti mafían Marilyn Monroe? Eða stóðu Kennedy-bræður kannski að andláti hennar? Hulda og Eiríkur kafa ofan í flókið net samsæriskenninga um dularfullan dauða frægustu kvikmyndastjörnu heims. Mafían, CIA, Kennedy-bræður, ástir, losti, fíkn og svik fléttast saman í víðfeman sagnavef. Ábendingar og athugasemdir sendist í skuggavaldid@gmail.com
#15 - Illuminati goðsögnin – seinni þáttur 12.05.2025 46:51
Var franska byltingin í raun sprottin af þýskri leynireglu? Eiga Rockefellerar, Rothschildar og rapparinn Jay-Z það sameiginlegt að vilja koma á fót nýrri heimsskipan? Og hvernig varð tákn sem eitt sinn stóð fyrir visku og skynsemi að tákni alræðislegs skuggavalds í popptónlist og pólitík? Í síðari þætti af tveimur um goðsögnina um Illuminati rýna Eiríkur og Hulda í þrálátar samsæriskenningar teng...
#14 - Illuminati leynireglan – fyrri þáttur 28.04.2025 41:50
Stýrir Illuminati bræðrareglan frá Bæjaralandi heimsviðburðum – allt frá frönsku byltingunni til Kardashian-fjölskyldunnar? Í þessum fyrri af tveimur þáttum um Illuminati kafa Eiríkur og Hulda í sögulegan uppruna leynifélagsins sem síðar varð að alþjóðlegri goðsögn um ósýnilegt vald. Þau rekja hvernig smáhópur hugsuða í Bæjaralandi árið 1776 breyttist í myrka ímynd alheimsstjórnar og greina gagnrý...
#13 - Kennedy bölvunin - þriðji þáttur 14.04.2025 45:10
Létu valdaöfl í Repúblíkanaflokknum myrða Robert F. Kennedy Sr til að koma í veg fyrir að Kennedy-fjölskyldan snéri aftur á forsetastól? Í lokaþætti þríleiks Skuggavaldsins um Kennedy-bölvunina skoða Hulda og Eiríkur morðið á Robert F. Kennedy og flétta saman heillandi fjölskyldusögu, samsæriskenningar og bandaríska ofbeldissögu – allt fram til dagsins í dag þar sem sonur hans, RFK Jr., einn áhrif...
#12 - Kennedy bölvunin - annar þáttur 31.03.2025 50:48
Leyndu bandarísk stjórnvöld upplýsingum um raunverulegan morðingja John F. Kennedy? Í öðrum þætti þríleiks um Kennedy-bölvunina kafa Eiríkur og Hulda ofan í sígildar samsæriskenningar um að valdastofnanir Bandaríkjanna – þar á meðal leyniþjónustan – hafi annað hvort komið að morðinu á John F. Kennedy eða vitað meira en þær létu uppi. Fjallað er um eftirmála morðsins, skoðað hvaða mann Lee Harvey O...
#11 - Kennedy bölvunin - fyrsti þáttur 17.03.2025 44:13
Myrti mafían John F. Kennedy? Eða CIA ? Stóð Castro á Kúbu kannski á bak við morðið? Hverjir höfðu mest að græða á því að þagga niður í forsetanum sem ætlaði að umbylta bandarísku valdi? Í þessum fyrsta af þremur þáttum um Kennedy-fjölskylduna er rýnt í morðið á JFK og farið ofan í söguna sem gerði þau að „konungsfjölskyldu“ Bandaríkjanna – veldi sem virtist dæmt til glæsileika en líka óhjákvæmile...
#10 - Trump samsæriskenningar 2.0 03.03.2025 36:52
Snúinn aftur á forsetastól í BNA hefur Trump lyft samsæriskenningum upp í hæstu hæðir valdsins. Í þættinum fjalla Eiríkur og Hulda um hvernig Trump hefur breytt samsærisórum í opinbera stjórnarstefnu – með ráðherrum sem trúa á kosningasvindl, bóluefnasvindl og hina svokölluðu „Great Replacement“-kenningu, sem segir að innflytjendur séu markvisst notaðir til að veikja „hina raunverulegu Bandaríkjam...
#9 - Trump samsæriskenningar 1.0 17.02.2025 49:42
Gróf djúpríkið í Bandaríkjunum undan árangri Donalds Trumps á fyrri forsetatíð hans? Eitt helsta sérkenni Trumps sem stjórnmálamanns er hvernig hann hefur gert samsæriskenningar að lykilvopni í baráttu sinni – ekki bara til að grafa undan andstæðingum sínum, heldur einnig til að styrkja eigin stöðu. Í þessum þætti kryfja Eiríkur og Hulda samsærisstjórnmál Trumps og sýna hvernig samsæriskenningar u...
#8 - Dauði Kurt Cobain 09.12.2024 44:07
Stóð Courtney Love, eiginkona Kurt Cobain, forsöngvara hinnar íkonísku grunge hljómsveitar, Nirvana, að baki dauða hans árið 1994 vegna öfundar og erfðamála? Eða komu yfirvöld honum kannski fyrir kattarnef til að koma í veg fyrir slæm áhrif hans á æsku landsins? Í þættinum fjalla Eiríkur og Hulda um samsæriskenningarnar tengdar andláti Kurt Cobain en þær eru eins spegilmyndir í myrkri, þar sem har...
#7 - Ný heimsskipan part 2 25.11.2024 43:28
Stýrir leynileg valdaelíta alþjóðstofnunum á borð við ESB og SÞ á bak við tjöldin? Stóð hún kannski að baki bæði fyrri heimsstyrjöld og uppgangi nasismans til að skapa ringulreið og koma á alræði á heimsvísu? Í seinni þætti af tveimur um nýja heimsskipan ræða Hulda og Eiríkur þessa margbrotnu samsæriskenningu.
#6 - Ný heimsskipan part 1 11.11.2024 47:28
Stýrir leynileg valdaelíta heiminum? Mun hún hneppa veröldina í ánauð? Í þættinum leiða Hulda og Eiríkur hlustendur í gegnum sögu og einkenni hinnar frægu samsæriskenningar um Nýja heimsskipan (e. New World Order). Samkvæmt kenningunni hefur leynileg valdaelíta, oft nefnd „heimselítan,“ það að markmiði að koma á alræðisstjórn og hneppa heimsbyggðina undir alræði fárra útvalinna.
#5 - Qanon samsæriskenningin part 2 28.10.2024 52:48
Stal djúpríkið í Bandaríkjunum forsetakjörinu úr réttkjörnum höndum Donalds Trumps árið 2020? Lágu djöfladýrkandi barnaníðingar í elítu Demókrataflokksins þar undir steini? Í síðari þætti um QAnon rekja þau Eiríkur og Hulda atburðina þann 6. janúar 2021 þegar stuðningsfólk Donalds Trumps, mörg hver keyrð áfram af trú sinni á QAnon samsæriskenninguna, ruddust inní þinghúsið í vanburðugri valdaránst...
#4 - Qanon samsæriskenningin part 1 14.10.2024 45:48
Stjórna djöfladýrkandi barnaníðingar Bandaríkjunum undir niðri? Er Donald Trump eina vörnin gegn illvirkjunum? QAnon-samsæriskenningin sem heldur slíku fram hófst sem pískur í myrkustu kimum Internetsins en þróaðist á ótrúlega skömmum tíma í hreyfingu sem átti þátt í einum afdrifaríkasta atburði í sögu Bandaríkjanna – árásinni á þinghúsið þann 6. janúar 2021. Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggaval...
#3 - Dauði Díönu part 2 30.09.2024 34:30
Bar Díana prinsessa barn Dodi Al-Fayed undir belti þegar hún dó í bílslysinu í París? Skipulagði breska krúnan dauða Díönu til að koma í veg fyrir að fá múslima inn í konungsfjölskylduna? Í seinni þætti um dauða Díönu ræða Eiríkur og Hulda um örlagaríka atburði næturinnar þegar Díana dó í bílslysi. Þau ræða opinberar rannsóknir á slysinu og velta upp því sem enn þykir óljóst og hefur verið vant á...
#2 - Dauði Díönu part 1 16.09.2024 40:29
Stóð breska konungsfjölskyldan að baki andláti Díönu prinsessu? Eða kannski vopnaframleiðendur? Allt frá hörmulega bílslysinu í París hafa langsóttar samsæriskenningar lifað og fengið vængi, sem þau Eiríkur og Hulda ræða um í þættinum. Þau fjalla um baksöguna, endurgoldna ástina og ræða um prinsessuna sem fólkið elskaði en sem var sjálf svo ósköp óhamingjusöm.
#1 - Norrænar samsæriskenningar 02.09.2024 48:25
Stóð aðskilnaðarstjórnin í Suður-Afríku að baki morðinu á Olof Palme? Var farþegaferjunni MS Estoina grandað vegna vopnaflutninga frá Rússlandi? Fórnuðu Satanistar fyrr á öldum norrænum börnum til þess að greiða eldgamla skuld við Ottomannveldið? Þótt Norðurlöndin virðist á yfirborðinu kannski ekki vera gróðrastía samsæriskenninga kennir þar þó ýmissa grasa, svo sem greina má af framanverðum spurn...
Skuggavaldið - Trailer 16.08.2024 3:06
Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.