Selfoss Hlaðvarpið
Selfoss Hlaðvarpið
Podcast by Selfoss Hlaðvarpið
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Selfoss hlaðvarpið #019 - Línumannafélagið heldur aga á ungu leikmönnunum 14.02.2020 1:21:44
Nýtt ár, nýtt upphaf. Selfoss hlaðvarpið er loks risið úr dvala eftir jól og EM. Arnar Helgi fékk þrjá fróða tappa með sér í Kaffi Krúsar-stúdíóið. Þar má fyrstan nefna Atli Ævar Ingólfsson, sem sumir segja besta línumann landsins. Með honum komu fastagestirnir Þórir Ólafsson, betur þekktur sem hornamaðurinn knái og Gísli Felix Bjarnason, grunnskólakennari, goðsögn og gangandi alfræðiorðabók um ha...
Selfoss hlaðvarpið #018 - Kom ég ekki í janúar?!? 18.12.2019 1:33:08
Nú þegar liða fer að Jólum fannst okkur tilvalið að fara yfir málin með góðum gestum, en það er nákvæmlega það sem Arnar Helgi gerði. Í Kaffi Krúsar-stúdíóið mættu þeir Nökkvi Dan Elliðason, Örn Þrastarson og Gísli Felix Bjarnason. Eðal drengir sem ekki þarf að draga orðin upp úr þegar kemur að því að tala um handbolta. Selfoss hlaðvarpið mælir eindregið með því að fólk njóti aðventunnar og skelli...
Selfoss hlaðvarpið #017 - Kjúklingarnir stíga upp 21.11.2019 1:16:59
Það er allt of langt um liðið frá síðasta alvöru handboltaþætti og því höfðu gestir Arnars Helga um margt að tala. Gestir hans í dag voru Magnús Öder Einarsson leikmaður meistaraflokks karla, Árni Geir Hilmarsson þjálfari U-liðsins og aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna og síðastur en ekki sístur Þórir Ólafsson fyrrverandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og núverandi spekingur Selfoss hla...
Selfoss hlaðvarpið #016 - Haukur Þrastar Special! 20.11.2019 14:42
Þau tíðindi bárust í gær að Haukur okkar Þrastarson hefur ákveðið að ganga til liðs við Pólska stórliðið Vive Kielce næstkomandi sumar. Arnar Helgi fékk Hauk í smá spjall í Kaffi Krúsarstúdíóinu af þessu tilefni. Upphafs- og lokastef: Sælan, Skítamórall
Selfoss hlaðvarpið #015 - Uppgjör tímamótatímabils 30.10.2019 1:04:54
Það er kannski liðinn mánuður síðan fótboltasumrinu lauk en það stoppaði Arnar Helga ekki í því að fá til sín tvo góða gesti að gera upp sumarið og horfa aðeins inn í framtíðina. Gestir þáttarins voru þeir Einar Ottó Antonsson, heimspekingur og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og Guðmundur Karl Sigurdórsson í meistaraflokksráði kvenna og lífskúnstner. Óhætt er að segja að Ottó og Gummi Kalli...
Selfoss hlaðvarpið #014 - Evrópa kallar, moli frá Malmö 04.10.2019 18:41
Handboltinn er kominn á fulla ferð og nú standa strákarnir í ströngu í Evrópu. En þeir eru nú staddir í Malmö þar sem þeir eiga leik fyrri leik í 2. umferð EHF Cup. Krakkarnir á SelfossTV eltu auðvitað liðið til Svíþjóðar og náði Arnar Helgi að góma nokkra úr liðinu í stutt spjall í lobbýinu á hótelinu. En það voru að stoðarþjálfarinn Örn Þrastarson, fyrirliðinn Hergeir Grímsson, lífsþjálfarinn Nö...
Selfoss hlaðvarpið #013 - Handboltinn er farinn að rúlla! 18.09.2019 1:11:26
Handboltinn er farinn í gang, loksins segja sumir og þar á meðal viðmælendur Arnars Helga í þessum þætti. Að þessu sinni mættu í hljóðverið þeir Einar Sverrisson, stórskytta á batavegi, Þórir Ólafsson, hornamaðurinn knái og fyrrverandi aðstoðarþjálfari mfl. karla og kvenna og Hólmar Höskuldsson, fjölmiðlamaður á Vísi og eitraður línumaður U-liðs Selfoss. Arnar kom beint af Kaffi Krús í Kaffi Krúsa...
Selfoss hlaðvarpið #012 - Tíu ár frá fyrsta úrvalsdeildarsætinu 04.09.2019 1:23:20
Það var vinaleg yfirtaka í Kaffi Krúsar stúdíóinu að þessu sinni, en þeir félagar Einar Matthías Kristjánsson og Már Ingólfur Másson sáu um þessa hátíðarútgáfu af Selfoss hlaðvarpinu í tilefni af því að 10 ár eru liðin frá því að Selfoss komst í deild þeirra bestu. Með þeim í hljóðverið mættu þeir Jón Steindór Sveinsson fyrirliði Selfoss sumarið 2009 og núverandi formaður knattspyrnudeildar Selfos...
Selfoss hlaðvarpið #011 - Skemmtilegasta vika ársins 14.08.2019 49:55
Hápunktur fótboltasumarsins á Selfossi verður um næstu helgi þegar meistaraflokkur kvenna leikur til úrslita í Bikarkeppni KSÍ gegn KR. Arnar Helgi fékk frábæra gesti í Kaffi Krúsarstúdíóið þetta ágústkvöld. En þau Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari og Hólmfríður Magnúsdóttir leikmaður og reynslubolti Selfossliðsins mættu í létt spjall yfir kaffibolla. Þemað í þessu spjalli var auðvitað bikarúrslit....
Selfoss hlaðvarpið #010 - Nýr þjálfari horfir inn á við 14.07.2019 1:10:45
Handboltinn er búinn að vera í sumarfríi frá maílokum, en þó er eitt og annað búið að vera í gangi. Þar ber auðvitað hæst ráðning á nýjum þjálfara meistaraflokk karla. Arnar Helgi fékk til sín þjálfarann nýráðna, Grím Hergeirsson og hans hægri hönd Örn Þrastarson. Alvöru byssur í Kaffi Krúsar stúdíóinu þessa kvöldstund. Farið var yfir þessar vikur sem liðið hafa frá Íslandsmeistaratitlinum. Farið...
Selfoss hlaðvarpið #009 - Þetta sumar er okkar 13.06.2019 1:24:04
Fótboltasumarið er komið á fulla ferð og eru bæði stelpurnar og strákarnir búin með fyrsta hluta sinna móta. Því þótti Arnari tilvalið að fá svoltið af fótboltafólki í spjall. Í Kaffi Krúsar stúdíóinu þetta fallega júníkvöld komu til okkar Már Ingólfur Másson, kennari, sagnfræðingur, vallarþulur og stuðningsmaður Selfoss til áratuga, Eva Lind Elíasdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna og Ingi Raf...
Selfoss hlaðvarpið #008 - Íslandsmeistarar Edition 24.05.2019 1:23:13
Á þessari stórkostlegu stund fékk Arnar helgi þrjá helvítis meistara í spjall. Fyrirliði vor Hergeir Grímson, nýliðinn sem virðist hafa verið hér frá fæðingu Nökkvi Dan Elliðason og Grímur Hergeirsson aðstoðarþjálfari liðsins komu í heimsókn. Í Kaffikrúsarstúdíóinu var óvenjuhátíðleg stemning, enda var Íslandsmeistarabikarinn með í för, bjartur og fagur. Þeir töluðu um tilfynningarnar og lífið. Fó...
Selfoss hlaðvarpið #007 - This is Where We Stand 09.05.2019 1:18:10
Í þessum þætti fékk Arnar Helgi til sín þrjá góða gesti. Þórir Ólafsson, annar af aðstoðarþjálfurum meistaraflokks karla og kvenna, Helgi Hlynsson, þjálfari Íslandsmeistara 4. flokks Selfoss og fyrrverandi markvörður meistaraflokks og Árni Geir Hilmarsson fyrrverandi leikmaður meistaraflokks. Það var létt yfir mannskapnum í Kaffi Krúsar stúdíóinu eftir ótrúleg tíðindi sem borist hafa, en Californi...
Selfoss hlaðvarpið #006 - Túlípani að vori 25.04.2019 1:29:40
Það bar vel í veiði hjá Arnari Helga þessa vikuna, en hann fékk tvo stórgóða gesti til sín að tala um handbolta. Það voru þeir Hannes, ég meina Hólmar Höskuldsson sem meðal annars hefur verið á línunni hjá Selfoss U í vetur og með honum mætti enginn annar en Einar Sverrisson, stórskytta í meistaraflokki karla. Strákunum var ekki gefinn kostur á að tjá sig um eftirlætisrétti sína á Kaffi Krús, en e...
Selfoss hlaðvarpið #005 - Steinn og eldur 22.04.2019 1:03:17
Upphitun fyrir fótboltasumarið heldur áfram þegar Arnar Helgi tekur á móti Þorsteini Daníel og Arnari Loga, leikmenn meistaraflokks karla. Kaffi Krúsar stúdíóið skartaði sínu fegursta og loksins fær brönsinn þá virðngu sem hann á skilið hjá gestum hlaðvarpsins. Nú er löngu undirbúningstímabil að ljúka á þessum tímum breytinga hjá strákunum. Þeir fara yfir lestaslysið sem síðasta tímabil var, þær m...
Selfoss hlaðvarpið #004 - Lip sync battle mun sigra 17.04.2019 44:12
Arnar Helgi skiptir um gír og hefur upphitun Selfoss hlaðvarpsins fyrir fótboltasumarið. Brynja Valgeirsdóttir og Erna Guðjónsdóttir leikmenn meistaraflokks kvenna fengu sér sæti í Kaffi Krúsar stúdíóinu þar sem þær skáluðu í vatni úr okkar fínustu Ittalaglösum. Samstarfsaðili Selfoss hlaðvarpsins er Kaffi Krús, stelpurnar völdu sína eftirlætis rétti, hið exotíska Krúsar salat og Ostapizzuna "Say...
Selfoss hlaðvarpið #003 - Bjartasta vonin 08.04.2019 1:22:57
Í þessum þriðja þætti Selfoss hlaðvarpsins fékk Arnar Helgi Magnússon til sín þrjá góða gesti í Kaffi Krúsar stúdíóið. Örn Þrastarson, þjálfara meistaraflokks kvenna, nokkura annara liða Selfoss og kennara í handboltaakademíunni, Gísla Felix Bjarnason, grunnskólakennara og goðsögn í lifandi lífi og Árna Þór Grétarsson, skrifstofurafvirkja og starfsman áróðursdeildar Selfoss handbolta. Selfoss hlað...
Selfoss hlaðvarpið #002 - Vonin verður að veruleika 22.03.2019 1:08:53
Arnar Helgi Magnússon fékk góða gesti til að fara yfir stöðu mála og hita upp fyrir stórleik Selfoss og Hauka. Gestir þáttarins voru rándýrir að þessu sinni, Sebastian "Basti knows" Alexandersson og Andri "Krummi" Hallsson. Svona dýrt prógram væri ekki möguleg án stuðnings en þessi þáttur er í boði Red Bull, en kunnugir segja að Red Bull veiti vængi Farið er yfir tíma Basta hjá Selfossi, stöðu mál...
Selfoss hlaðvarpið #001 - Selfoss 'Til I Die 02.03.2019 1:17:51
Fyrsti þáttur Selfoss Podcastsins undir stjórn Arnars Helga Magnússonar. Gestir þáttarins að þessu sinni voru handboltagoðsögnin Gísli Felix Bjarnason, línumaðurinn knái í U-liði Selfoss Hólmar "H2" Höskuldsson og tæknitröll SelfossTV Árni Þór Grétarsson. Í þessum fyrsta þætti er rætt um handboltaliðin okkar, það sem búið er af tímabilinu á öllum vígstöðvum og framhaldinu velt upp. Upphafsstef: Sæ...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.