RÚV
Segðu mér
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Yrsa Roca Fannberg leikstjóri 23.10.2025 40:14
Yrsa segir frá heimildarmyns sinni Jörðin undir fótum okkar
Steinunn Jóhannesdóttir og Þórunn Lárusdóttir 21.10.2025 40:39
Það eru 50 ár liðin frá því íslenskar konur breyttu sögunni með því að taka sér frí frá störfum 25.október 1975. Í tilefni þess verður platan Áfram stelpur! flutt í heild sinni í ÞJóðleikhúskjallaranum og sagan rifjuð upp.
Brynja Huld Óskarsdóttir öryggis og varnarmála sérfræðingur 20.10.2025 40:03
Brynja Huld segir frá því hvernig ung stúlka frá Ísafirði endaði á að vinna í varnarmálum. Hún talar um konur í alþjóða öryggismálum, Afganistan og ástina.
Salka Valsdóttir tónskáld 16.10.2025 40:00
Salka sér um hljómheimin í Hamlet sem sett er upp í Borgarleikhúsinu.
Sævar Jóhannsson tónskáld og flytjandi 15.10.2025 40:00
Sævar talar um sitt tónlistaruppeldi, lagasmiðju fyrir fólk i endurhæfðingu og La Boheme eftir Puccini.
Sváfnir Sigurðarson tónlistarmaður 13.10.2025 44:10
Sváfnir talar um sköpunarkraftinn, áhrif þess að alast upp í Leikfélagi Kópavogs, þörfina að setjast niður og skrifa bók um brandarbíl, og þá góðu ákvörðun að hætta að drekka.
Katla Þórudóttir Njálsdóttir leikkona 09.10.2025 40:00
Katla er að stíga sín fyrstu skref í Þjóðleikhúsinu með einleiknum "Þetta er gjöf" eftir Kolbrúnu Björt Sigfúsdóttur.
Margrét Eir Hönnudóttir söng og leikkona 08.10.2025 40:08
Margrét segir frá sínu fyrstu skrefum í tónlist.
Hrund Gunnsteinsdóttir rithöfundur 07.10.2025 40:11
Hrund talar m.a. um vel þjálfað innsæi.
Pálína Björnsdóttir og Orri Hilmarsson 06.10.2025 40:33
Pálína og Orri segja frá alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum, Hlutverkasetrninu og hvernig á að fagna geðinu.
Thelma Björk Jónsdóttir hönnuður 02.10.2025 40:29
Thelma sem greindist með ólæknandi krabbamein talar um seiglu, hugrekki og hvernig það var að hafa tíu daga til að undirbúa brúðkaupið sitt.
Garpur Ingason Elísabetarson 01.10.2025 39:57
Garpur gengur upp á Hraundranga einu sinni á ári og verður alltaf jafn hissa á fegurðinni þegar hnann stendur á toppnum.
Jón Hjartarson rithöfundur og leikari 30.09.2025 39:46
Jón segir frá Sálminum um blómið eftir Þórberg og viðurkennir með bros á vör að hafa haft Þórberg á bakinu í mörg ár. Hann ætlar að standa á Söguloftina og túlka Sálminn í söguformi,, en Jón lék Þórberg í rómaðri uppsetningu Kjartans Ragnarssonar á Ofvitanum hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1980 , en sú sýning var í þrjú ár.
Hera Hilmarsdóttir og Ólafur Darri Ólafsson leikarar 29.09.2025 43:14
Hera og Ólafur Darri settust niður og sögðu frá lífi sínu, verkefnum framundan og nýju þáttaröðinni Reykjavík Fusion þar sem þau leika aðalhlutverkin.
Hrefna Þórarinsdóttir tómstunda og félagsmálafræðingur 25.09.2025 40:40
Hrefna segir frá hinsegin ungmennum og tíu ára sögu hinsegin félagsmiðstöðvarinnar sem byrjaði sem 6 vikna tilraunaverkefni og síðan eru líðin tíu ár.
Þórey Birgisdóttir leikkona 24.09.2025 39:08
Þórey segir frá verðlaunaverkinu Ífigeníu í Ásbrú en hún hlaut tilnefningu til Grímununnar sem leikkona ársins í aðalhlutverki.
Jón Gústafsson kvikmyndagerðamaður 23.09.2025 42:34
Jón var vinsæll þáttastjórnandi á níunda áratugnum, en fór og lærði kvikmyndagerð. Kvkmyndin hans Anorgasmía er sýnd á Riff hátíðinni.
Catherine Ulrich tónlistrkennari frá Frakklandi 22.09.2025 38:13
Catherine hefur komið 79 sinnum til Íslands, lærði íslensku og hefur bæði ferðast með fjölskyldu sinni og einnig með hópa frá Frakklandi.
Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðamaður 18.09.2025 41:15
Gagga hefur engan áhuga á laxveiði, en hikaði ekki við að gera heimildarmyndina Strengur þar sem við fylgjumst með fjórum ungum stúlkum stíga sín fyrstu skref sem leðisögumenn veiðimanna við Laxá í Aðaladal.
Kristinn Óli Haraldsson leikari og tónlistarmaður 17.09.2025 39:37
Kristinn Óli eð Króli er tilbúin í þessar 100 sýningar sem framundan eru á leikritinu Línu Langsokk í Þjóðleikhúsinu, en þar fer hann með hlutverk lögreglumanns sem Lína leikur grátt. Fyrir utan að standa á sviði, þá á hann von á barni í desember.
Stefán Pétur Sólveigarson vöruhönnuður 16.09.2025 40:46
Stefán Pétur býr á Húsavík og segir frá Hraði-miðstöð nýsköpunar, hönnunarþing þar sem lögð verður áhersla á mat, nýsköpun og hönnun.
Rögnvaldur Þorgrímsson og Helga Kristín Tryggvadóttir 15.09.2025 39:00
Kærustuparið Rögnvaldur og Helga Kristín fóru í hjónabandsráðgjöf áður en þau byrjuðu suman. Þau búa á Vopnafirði og segja það bestu ákvörðun sem þau hafa tekið.
Birna Rún Eiríksdóttir leikkona og uppistandari 09.09.2025 41:38
Birna Rún er leikkona og skemmtikraftur, hún segir frá lífi sínu.
Kolbrún Björgólfsdóttir keramiklistakona 08.09.2025 41:42
Keramiklistakonan Kogga giftist eiginmanni sínum Magnúsi Kjartanssyni, á dánarbeði hans fyrir nítján árum. Magnús lést rétt eftir að hafa játast henni og áður en hannnáði að setja hringinn á fingur konu sinni. Því ber hún hringana um hálsinn.
Matthías Tryggvi Haraldsson 04.09.2025 40:36
Matthías er listrænn ráðunautur Þjóleikhússins og dramatúrg.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.