RÚV

Segðu mér

Society IS ↓ 837 episodes

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Oct 1, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Benedikt Erlingsson leikstjóri 20.04.2021

?Það er svo gaman við Dani að þeim finnst við ekkert exótísk og finnst Íslendingar ekkert töff. Þeir vita varla af því að þeir hafi átt þetta. Það er svo skemmtilegt og hollt fyrir okkur stundum,? segir Benedikt Erlingsson leikstjóri sem vinnur að sjónvarpsþáttum um danska konu sem flytur til Íslands og er staðráðin í að ala Íslendinga upp að dönskum sið. Benedikt Erlingsson leikstjóri hefur sanna...

Guðrún Jónsdóttir 15.04.2021

Guðrún starfaði lengi í Stígamótum og segir frá því hvernig það var að hætta eftir öll þessi ár og hvernig lífið er í dag.

Axel Jónsson matreiðslumeistari og eigandi Skólamatar 14.04.2021

Axel segir frá lífi sínu hann er alin upp í Sandgerði hjá afa sínum og ömmu. Afi hans var kaupmaður og er alin upp á eðalheimili , það var allt til alls og Axel segir að amma hans hafi stjórnað öllu á góðan hátt. Hann segir frá því þegar amma hans lést í bílslysi og hvenrig lífið varð við þann missi.

Berglind Magnúsdóttir og Elfar Ingimarsson 13.04.2021

Elfar veiddi Berglindi á humarpasta og þau brosa þegar þau rifja það upp. Þau létu draum sinn rætast búa í Umbriu og reka þar hótel í gömlu munkaklaustri.

Anna Þórunn Hauksdóttir vöruhönnuður 12.04.2021

Anna Þórunn segir frá hugmyndum sínum í tengslum við hönnun og hvað það er sem rekur hana áfram í sinni sköpun

Kristín Ragna Gunnarsdóttir rithöfundur og teiknari 08.04.2021

Í þættinum var haldið upp á dag barnabókarinnar og í tilefni þess mætti Kristín og las fyrir börn út um allt land.

Katrín Ósk Jóhannsdóttir barnabókahöfundur 07.04.2021

Katrín rifjar upp þegar hún samdi sögur á gamla ritvél en snemma vildi hún verða rithöfundur.

Stefán Ingi Stefánsson Íslandi 06.04.2021

Stefán Ingi rifjar upp þegar hann hitti afa sinn Stefán Íslandi á Droplaugarstöðum. Í þættinum ræðir hann sönginn, kennsluna og Elvis Presley.

Eyþór Gunnarsson og Ragnheiður Gyða Jónsdóttir 31.03.2021

Í tilefni þess að í dag eru 100 ár síðan Jón Múli Árnason fæddist mættu þau Eyþór og Ragnheiður Gyða í vel pússuðum skóm og rætt var um tónlist, box, lux sápu og vináttu. Þau eru sammála því að Jón M'uli hafi verið sentimental töffari.

Árni Snævarr upplýsingafulltrúi sameinuðu þjóðanna 30.03.2021

Árni er upplýsingafulltrúi sameinuðu þjóðanna og býr í Brussel

Rakel Þórhallsdóttir 29.03.2021

Rakel er kennari og segir frá því þegar hún starfði í Laos og kenndi þar í einkaskóla. Rakel var að gefa út barnabók , og segir brosandi að þetta sé hryllingsbók sem gerið í Hafnarfirði. Foreldrar hennar báðir eru prestar og afi hennar einnig en hún hafði ekki áhuga á því starfi.

Anna Melsteð 24.03.2021

Anna Melsteð hefur búið í Stykkishólmi í mörg ár,hún flutti frá Reykjavík með fjölskyldu sína og þykir sérleg agott að búa í Hólminum. Hún segir frá matargöngu í Stykkishólmi þar sem hún gegnur leynistiga og segir frá menningu sögu og auðvitað matnum. Inn í umræðuna var rætt um gómsætan humar, ígulker og grjótkrabba sem hafið gefur.

Jens Pétur Jensen framkvæmdastjóri ISNIC á Íslandi 23.03.2021
Marteinn Þórsson 22.03.2021

Marteinn Þórsson leikstjóri náði botninum í þunglyndi þegar hann vann sem næturvörður á hóteli. Þar fór hann fram á brúnina og ætlaði að svipta sig lífi. Marteinn Þórsson talar opinskátt um eigið þunglyndi í samtali við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1, þar sem hann lýsir alvarlegri geðlægð sem hann lenti í meðan hann vann á næturvöktum á hóteli á Hellu. ?Maður þarf að pikka upp...

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR 18.03.2021

Við lentum í aðstæðum sem við hefðum aldrei getað ímyndað okkur að lenda í: að missa náinn fjölskyldumeðlim í höndunum á okkur,? segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR. Árleg veiðiferð félaganna árið 2007 breyttist í hrylling þegar afar kær vinur hans varð bráðkvaddur í ferðinni. Það er atburður sem á eftir að sitja ævilangt í honum og átti stóran þátt í að kveikja hjá honum brennandi áhuga á rét...

Soffía Karlsdóttir forstöðumaðru menningarmála í Kópavogi 17.03.2021

Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála í Kópavogi fékk styrk fyrir frábæru alþjóðlegu verkefni sem heitir Vatnsdropinn og varð til fyrir íslenskt frumkvæði. Soffía segir frá þessari hugmynd og einnig ræðir hún menninguna í Kópavogi og ræðir það mál þegar hún var kærð fyrir einelti , en varð seinna hreinsuð af öllum þeim ásökunum. Hún ólst upp á Grundarfirði og segir brosandi ekki hafa veri...

Silla Knudsen 16.03.2021

Silla Knudsen ræðir grænkerafæði og segir kát frá Sono matseljunum sem hafa komið sér fyrir í Norræna húsinu

Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir 15.03.2021

Jóhanna Friðrika leikkona og handritshöfundur

Magnús Norðdahl og Elín Jónasdóttir 11.03.2021

Hjónin Magnús og Elín segja frá því að þann 12. mars næstkomandi heldur Alþjóðleg frímúrararegla karla og kvenna, LE DROIT HUMAIN, á Íslandi upp á 100 ára starfsafmæli sitt hér á landi. Þann dag árið 1921 var stúkan Ýmir nr. 724 stofnuð í Reykjavík. Nú eru starfandi 10 stúkur á þremur stöðum á Íslandi, í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum. Reglan á Íslandi er hluti af hinni Alþjóðlegu frímúrar...

Ásthildur Huber ljósmóðir 10.03.2021

Ásthildur er ljósmóðir og býr á Spáni ásamt eiginmanni sínum sem er orustuflugmaður, í gegnum þá vinnu hefur hún búið á ýmsum stöðum, en er núna á Spáni , líkar mjög vel en starfar sem ljósmóðir í Þýskalandi.

Anna María Tómasdóttir 09.03.2021

Anna María er að leikstýra verkinu The Last Kvöldmáltíð. Þetta er fyrsta verkefnið sem að Anna María leikstýrir sjálf en hún hefur á síðustu árum unnið að fjölbreyttum verkefnum innan sviðslista og kvikmynda. Hún útskrifaðist af sviðshöfundabraut LHÍ árið 2012 og lauk MFA gráðu frá í leikstjórn frá The Actors Studio Drama School í New York árið 2017 þar sem hún lærði einnig leiklist. Hún var aðsto...

Elín Hirst 08.03.2021

Spænska veikin lifir í minningu heimsins. Hún geisaði þegar fólk hafði þegar háð sitt stríð í þeim hildarleik sem fyrri heimsstyrjöldin reyndist heimsbyggðinni á ýmsan hátt. Á síðustu tímum hafa vísindamenn leitað veirunnar í frosnum líkum fórnarlamba. Elín fór til Svalbarða til að fylgjast með uppgreftri þar, og hún segir frá þeirri upplifun allri.

Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari 04.03.2021

Ekkert af mínum ævintýrum, hvorki í tónlistinni né lífinu, væri mögulegt án Höllu,? segir Víkingur Heiðar Ólafsson um eiginkonu sína Höllu Oddnýju Magnúsdóttur, viðburða- og skipulagsstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem á stóran þátt í sköpunarferli hans og ákvörðunum. Saman eiga þau tveggja ára dreng og það er annar á leiðinni í vor. Víkingur hefur atvinnu af því að ferðast um heiminn og spil...

Kjartan Darri Kristjánsson leikari 03.03.2021

Kjartan Darri segir frá nýju íslensku barnaleikriti sem snertir bæði hjartað og hláturtaugarnar Argentína er fjörug tíu ára stelpa sem ferðast með pabba sínum um höfin í kafbát í ókominni framtíð eftir að öll lönd eru sokkin í sæ.

Aron Guðmundsson 02.03.2021

Foreldrar Arons Guðmundssonar stjórnmálafræðings létust með nokkuð skömmu millibili, móðir hans eftir glímu við taugahrörnunarsjúkdóminn MND en faðir hans af slysförum nokkrum árum síðar. Aron hefði aldrei trúað því að annað áfall gæti dunið á eftir að hann missti móður sína. Hann segir mikilvægt að leyfa sér að finna fyrir sorg og að gráta stundum. Aron Guðmundsson stjórnmálafræðingur og varaform...

Listen to the Segðu mér podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.