RÚV
Segðu mér
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Gagga Jónsdóttir leikstjóri 27.05.2021 40:00
Gagga segir að það hafi ekkert annað komið til greina en að vinna við kvikmyndir, Hún segir frá kvikmynd sinni Saumaklúbburinn sem frumsýnd er um þessar mundir. Þetta er gamanmynd um fimm konur á besta aldri skella sér saman í bústað til að hafa það reglulega gott og slaka á - frjálsar frá sifelldu amstri hversdagsins. Undir huggulegu yfirborðinu leynast þó gamlar syndir sem leysast úr læðingi þeg...
Snorri Ásmundsson listamaður 26.05.2021 40:00
Þörf fyrir því að stuða fólk hefur fylgt Snorra Ásmundssyni listamanni alla tíð. ?Ég hef þessa þörf fyrir að trufla fólk. Það er bara mitt hlutverk,? segir hann. Snorri er skírður í höfuðið á látnum bróður sínum og telur að sorgin sem umlukti hann sem barn hafi haft áhrif á ævibrautina. Snorri Ásmundsson myndlistarmaður er sannfærður um að ekkert sé heilagt eða utan marka þegar kemur að listinni....
Pálmi Sigurhjartarson tónlistarmaður 20.05.2021 40:00
Pálmi segir frá plötu sinni Undir fossins djúpa nið sem nýlega er komin út. Platan er mjög persónuleg og í þættinum er rætt um sköpunarkraftinn, hvernig hann sameinast píanóinu í hverst sinn sem hann sest við það og auðvitað var talað um hið ódauðlega Sníglaband.
Inga Björk Ingadóttir tónskáld og lýruleikari 19.05.2021 40:00
Inga Björk lifir og hrærist í tónlist og hún segir frá Hljómu sem er eins og hún orðar það, "hús í Hafnarfirði sem er fullt af tónlist" Inga Björk segir frá nýrri plötu , en tónlistin á plötunni er eftir hana og er fyrir barnshjörtu á öllum aldri. Heimur tónlistarinnar og hljóðfæranna á plötunni er kynntur á lifandi hátt . Einnig ræddi Inga Björk músíkmeðferð sem hún lærði í Berlín
Hanna Dís Whitehead hönnuður 18.05.2021 40:00
Hanna Dís tekur þátt í hönnunarmars en hún segir í þættinum frá lífi sínu á Hornafirði og sköpunurkraftinum og skýrir út hvenri ghún breytir skúltúr í vöru
Reynir Tómas Geirsson fyrrverandi prófessor og yfirlæknir 17.05.2021 40:00
Reynir segir frá eiginkonu sinni Steinunni Jónu Sveinsdóttur sem hann missti 2018 eftir baráttu við krabbamein, þau voru heppin með hvort annað og voru mjög samrýmd. Hann var í erilsömu starfi sem yfirmaður á Landspítalanum og háskólaprófessor. Steinunn þýddi skáldssöguna Dvergurinn frá Normandí eftir Lars-Henrik-Olsen en hún fjallar um hvernig hinn frægi Bayeux refill var saumaður í léreft að öll...
Einar Hermannsson formaður SÁÁ 12.05.2021 40:00
Einar Hermannsson segir frá álfasölunni og talar um þá ánægulegu ákvörðun að hætta að reka spilakassa. Hann talar um þetta fyrsta ár sem formaður SÁÁ.
Kjartan Bragi Kristjánsson sjóntæknifræðingur 11.05.2021 40:00
Kjartan rifjar upp árin þegar hann var diskótekari í Tónabæ og segist brosandi hafa hitt konuna sína eþgar hann var fimtán og hún fjórtán ára. Hann rifjar upp þegar hann missti augað í augnslysi átta ára gamall. Hann rekur Optikal studíó og hefur mikin áhuga á tísku, en það sem á hug hans allan er þó að taka ljósmyndir. Kjartan er langhlaupari og segir frá því þegar hann hljóp í Boston árið sem sp...
Herdís Anna Jónasdóttir sönkona 04.05.2021 40:00
í vetur mun Íslenska óperan setja aftur upp óperuna ástsælu La Traviata eftir Verdi sem sýnd var fyrir fullu húsi árið 2019. Herdís Anna syngur Violettu og hlakka mikið til. Hún segir frá lífi sínu og segir brosandi finnast það alltaf erfitt þegar hún þarf að pakka niður nótunum sínum, og datt það helst í hug í miðri Covid að hún tæki ekki aftur upp nóturnar og horfði bara á alla þessa kassa sem v...
Guðbjörg Sigurjónsdóttir píanóleikari 03.05.2021 40:00
Guðbjörg er stofnandi Söngskóla Sigurðar Dementz og segir frá því ævintýri öllu.
Karl Ágúst Úlfsson rithöfundur og leikari 28.04.2021 40:00
Karl Ágúst Úlfsson leikari og rithöfundur minnist móður sinnar sem lést fyrir fáeinum dögum. Hann segir ómetanlegt að hún hafi fengið tækifæri til að handfjatla skáldsögu sonarins, Eldur í höfði, sem kom út á dögunum. Karl erfði getuna til að sjá glettnu hliðar lífsins frá foreldrum sínum sem hann tileinkar þessa fyrstu skáldsögu sína. Karl Ágúst Úlfsson rithöfundur og leikari hefur alltaf notið þ...
Kristján Jóhannsson óperusöngvari 27.04.2021 40:00
Kristján rifjar upp æsku sína á Akureyri, og hlýjan faðm móður sinnar sem ól upp allan krakkaskrana, hona svokölluðu Konnara!
Kristín Anna Jónsdóttir Sedney 26.04.2021 40:00
Kristín Anna bjó í Brussel í tíu ár með manni sínum sem er frá Bonaire í Karabíska hafinu. Þau tóku ákvörðun að flytja þangað og hún segir frá því ævintýri í þættinum.
Benedikt Erlingsson leikstjóri 20.04.2021 40:00
?Það er svo gaman við Dani að þeim finnst við ekkert exótísk og finnst Íslendingar ekkert töff. Þeir vita varla af því að þeir hafi átt þetta. Það er svo skemmtilegt og hollt fyrir okkur stundum,? segir Benedikt Erlingsson leikstjóri sem vinnur að sjónvarpsþáttum um danska konu sem flytur til Íslands og er staðráðin í að ala Íslendinga upp að dönskum sið. Benedikt Erlingsson leikstjóri hefur sanna...
Guðrún Jónsdóttir 15.04.2021 40:00
Guðrún starfaði lengi í Stígamótum og segir frá því hvernig það var að hætta eftir öll þessi ár og hvernig lífið er í dag.
Axel Jónsson matreiðslumeistari og eigandi Skólamatar 14.04.2021 40:00
Axel segir frá lífi sínu hann er alin upp í Sandgerði hjá afa sínum og ömmu. Afi hans var kaupmaður og er alin upp á eðalheimili , það var allt til alls og Axel segir að amma hans hafi stjórnað öllu á góðan hátt. Hann segir frá því þegar amma hans lést í bílslysi og hvenrig lífið varð við þann missi.
Berglind Magnúsdóttir og Elfar Ingimarsson 13.04.2021 40:00
Elfar veiddi Berglindi á humarpasta og þau brosa þegar þau rifja það upp. Þau létu draum sinn rætast búa í Umbriu og reka þar hótel í gömlu munkaklaustri.
Anna Þórunn Hauksdóttir vöruhönnuður 12.04.2021 40:00
Anna Þórunn segir frá hugmyndum sínum í tengslum við hönnun og hvað það er sem rekur hana áfram í sinni sköpun
Kristín Ragna Gunnarsdóttir rithöfundur og teiknari 08.04.2021 40:00
Í þættinum var haldið upp á dag barnabókarinnar og í tilefni þess mætti Kristín og las fyrir börn út um allt land.
Katrín Ósk Jóhannsdóttir barnabókahöfundur 07.04.2021 40:00
Katrín rifjar upp þegar hún samdi sögur á gamla ritvél en snemma vildi hún verða rithöfundur.
Stefán Ingi Stefánsson Íslandi 06.04.2021 40:00
Stefán Ingi rifjar upp þegar hann hitti afa sinn Stefán Íslandi á Droplaugarstöðum. Í þættinum ræðir hann sönginn, kennsluna og Elvis Presley.
Eyþór Gunnarsson og Ragnheiður Gyða Jónsdóttir 31.03.2021 40:00
Í tilefni þess að í dag eru 100 ár síðan Jón Múli Árnason fæddist mættu þau Eyþór og Ragnheiður Gyða í vel pússuðum skóm og rætt var um tónlist, box, lux sápu og vináttu. Þau eru sammála því að Jón M'uli hafi verið sentimental töffari.
Árni Snævarr upplýsingafulltrúi sameinuðu þjóðanna 30.03.2021 40:00
Árni er upplýsingafulltrúi sameinuðu þjóðanna og býr í Brussel
Rakel Þórhallsdóttir 29.03.2021 40:00
Rakel er kennari og segir frá því þegar hún starfði í Laos og kenndi þar í einkaskóla. Rakel var að gefa út barnabók , og segir brosandi að þetta sé hryllingsbók sem gerið í Hafnarfirði. Foreldrar hennar báðir eru prestar og afi hennar einnig en hún hafði ekki áhuga á því starfi.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.