RÚV
Segðu mér
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Valgerður Húnbogadóttir 29.12.2021 40:00
Valgerður er lögfræðingur og talar um þá kvíðatilfinningu sem grípur hana stundum. Hún leitar mikið út í náttúruna og í dag skipuleggur hún göngur og starfar sem leiðsögumaður á fjöllum.
Ragnhildur Gísladóttir og Tómas R Einarsson 22.12.2021 40:00
Ragnhildur og Tómas segja frá ávarpi undan sænginni, en nýlega kom út geisladiskur þar sem Ragnhildur syngur lög Tómasar.
Albert Eiríksson og Jóhanna V Þórhallsdóttir 21.12.2021 40:00
Albert og Jóhanna ræða mat og jólahefðir og bragðað var á góðgæti á meðan.
Hallgrímur Helgason og Rán Flygenring 20.12.2021 40:00
Þau Hallgrímur og Rán segja með gleði frá samstarfi sínu í tengslum við bókina Koma jól? Hér er á ferð jólaljóðabók þar sem listamennirnir kveðast á við fræga bók Jóhannesar úr Kötlum, Jólin koma. Hallgrímur les nokkur ljóð og inn í spjallið blandaðist rabb um jólahefðir.
Vilborg Oddsdóttir 16.12.2021 40:00
Vilborg er félagsráðgjafi hjá Hjálparstofnun kirkjunnar sagði frá starfi sínu og rifjaði upp þegar hún vann á Kópavogshæli.
Þorgerður Agla Magnúsdóttir útgefandi 15.12.2021 40:00
Þorgerður Agla útgfenadi er annar stofnandi útgáfunnar Angústúrur.
Ólöf Helga Jakobsdóttir og Jakob H Magnússon 14.12.2021 40:00
Feðginin kátu töluðu um veitingastaðinn Hornið sem allir þekkja. Þau vinna saman og segja frá bókinni sem kom út í tilefni af afmæli þessa rómaða og vinsæla veitingastað. Talað var um tómatsósur,pizzur og jasstónlist
Dúi Landmark 13.12.2021 40:00
Dúi segir frá bókinni Gengið til rjúpna. Bókin fjallar um rjúpnaveiði og við stöldruðum við sögu rjúpnaveiða á Íslandi og matarhefðir auðvitað komu við sögu.
Þórunn Arna Kristjánsdóttir leikkona og leikstjóri 07.12.2021 40:00
Þórunn Arna segir frá ævintýraheimi Astrid Lindgren og talar einnig um fjöllin og myrkrið fyrir vestan, ástina og auðvitað dauðann líka. Svo var ekki hægt að sleppa því að tala um hugrekkið, bæði í bókum Lindgren og lífinu yfirleitt.
Kristján Þ Davíðsson stjórnarformaður 06.12.2021 40:00
Kristján er stjórnarformaður SOS Barnaþorpanna á Íslandi.
Þórunn Rakel Gylfadóttir sjúkraþjálfari og rithöfundur 02.12.2021 40:00
Þórunn Rakel kennir skapandi skrif í grunnskóla og segir að það sé mikilvægt að kenna börnum tjáningu í ræðu og riti. Þórunn Rakel var að gefa út ungmennabókina Akam ég og Annika, Þórunn segir ánægð frá því að bókin er tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna 2021
Birgitta Birgisdóttir leikkona 01.12.2021 40:00
Birgitta var lengi með flugfreyjudrauma, vildi fljúga innanlands, og gerði tilraun til að hætt að leika og sækja um vinnu í fluginu. En tilboð um að leika gerði það að verkum að hún vissi að draumurinn var alltaf sá að standa á sviði og leika. Birgitta segir frá leikritinu Ástu og þá glímu að leika þessa ótrúlegu manneskju sem Ásta Sigurðardóttur var, en leikritið byggir á ögrandi og litríku lífi...
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir dansari 10.11.2021 40:00
Lovísa er dansari og danshöfundur sem hefur dansað frá því hún man eftir sér og dansað fyrir Íslenska dansflokkinn. rétt fyrir fertugt slasaist hún og fékk brjósklos og gat ekki dansað í langna tíma. Íbataferðinu fór hún út að ganga og dansaði sólo dagsins. Lovísa segir frá hugmynd sem vaknaði á þessum tíma og einnig þegar hún fór í gegnum tímabil þar sem hún hélt að hún væri byrjuð á breytingaske...
Magnea Björk Valdimarsdóttir kvikmyndagerðakona 09.11.2021 38:39
Magnea segir frá nýju heimildarmyndinni sinni Hvunndagshetjur sem fjalla um fjórar konur sem eiga það sameiginlegt að hafa búið á Íslandi í tuttugu ár. Fæddar í Bosníu, Jamaíku, Póllandi og Tyrklandi ? allar hafa þær sína sögu af því hvað leiddi þær hingað.
Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri 04.11.2021 40:00
Steinunn Birna segir frá óperunni La Traviata og það sem framundan er í Íslensku óperunni.
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri 03.11.2021 40:00
Jóhanna Vigdís er framkvæmdastjóri Almannaróms og segir frá því verkefni sem og lífi sínu og ferðalögum.
Valur Freyr Einarsson leikari 02.11.2021 38:54
Valur Freyr leikari og leikstjóri segir frá öllu því sem er frábært.
Kristín Berta Guðnadóttir félagsráðgjafi og myndlistarkona 27.10.2021 39:18
Kristín Berta er félagsráðgjafi og myndlistarkona, hún talar um listsköpun með ásetningi og það að viðhalda sköpunarkraftinum. Kristín segir einnig frá missi, en tvær systur hennar dóu báðar úr krabbameini.
Hannes Þór Halldórsson markvörður og leikstjóri 26.10.2021 40:00
Hannes Þór talar um innsæið, þrjóskuna, örlítið um Messi auðvitað og kvikmyndina Leynilögguna sem sýnd er í bíóhúsum við góðan orðstýr.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir 25.10.2021 40:00
Ólína segir frá nýju bókinn sinni Ilmreyr,sem er kveðja frá dóttur til móður en um leið óður til formæðra og-feðra sem háðu sitt lífsstríð við úthafsölduna vestur á fjörðum.
Jóhanna Ásgeirsdóttir listamaður 20.10.2021 38:19
Jóhanna segir frá List án landamæra en hún er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Hún segir einnig frá sinni list og því ferðalagi öllu.
Helga Arnardóttir og Bragi Þór Hinriksson 19.10.2021 40:00
Helga og Bragi Þór segja frá sköpunarkraftinum, og samstarfið en þau vinna saman alla daga og tala um nýju kvikmyndina Birtu sem frumsýnd verður á næstunni.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.