RÚV
Segðu mér
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þórhallur Heimsson prestur í Svíþjóð 31.01.2023 40:00
Þórhallur segir frá ferðalögum sínum um heiminn og segir einnig frá bók sinni Allt sem þú vilt vita um Biblíuna .
Óskar Þór Axelsson og Marteinn Þórisson 30.01.2023 40:00
Óskar Þór kvikmyndagerðarmaður og handritshöfundurinn Marteinn ræða nýju kvikmyndina Napóleonsskjölin sem nýlega var frumsýnd.
Sölvi Sveinsson 26.01.2023 40:00
Sölvi segir frá ævintýraferðum til framandi landa
Auður Axelsdóttir 25.01.2023 40:00
Auður er framkvæmdastjóri Hugarafls ræðir frumkvöðlastarf og mennskuna sem skiptir hana miklu máli.
Gísli Einarsson sjónvarpsmaður 24.01.2023 40:00
Sjónvarpsmaðurinn Gísli Einarsson er einna þekktastur fyrir sjónvarpsþættina Landann sem ferðast um landið og hittir fyrir alls kyns fólk með fróðlega sögu. Gísli rataði út í skemmtanabransann fyrir tilviljun en undanfarið hefur hann verið að fást við sjaldgæfan taugasjúkdóm.
Gísli Galdur Þorgeirsson tónskáld 21.12.2022 38:26
Gísli Galdur rifjar brosandi upp þann tíma þegar hann spilaði með Trabant og Quarashi og ekki má gleyma þegar hann vann sem plötusnúður á Prikinu. Hann útskrifaðist úr hljóðtækninámi frá Rytmiska Musikkonservatorium í Kaupmannahöfun. Síðan þá hefur hann samið tónlist fyrir leikhús, kvikmyndir og sjónvarpsþætti.
Diljá Ámundadóttir Zoega 15.12.2022 40:00
Diljá skrifaði færslu á facebook sem vakti mikla athygli, en þar skrifaði hún um þá reynslu að vera atvinnulaus. Við ræddum um þessa reynslu, sem og sálgæslu og vorum sammála því hvað það getur verið gott að gráta.
Anna Bergljót Thorarensen og Jakob Hákonarson 14.12.2022 40:00
Anna Bergljót handritshöfundur og Jakob leikstjóri segja frá kvikmyndinni Jólamóðir sem er fjölskyldu og ævintýramynd um Grýlu og jólasveinana. Myndin var tekin upp í raunverulegum hellum á Suðurlandi.
Arnrún María Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Lausnarhringsins 13.12.2022 40:00
Arnrún María Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri, segir frá Lausnahringnum sem varð til í lýðræðislegu samstarfi kennara og barna í leikskólanum Brákarborg. Aðferðirnar byggjast meðal annars á að leitað sé að lausnum sem börn og fullorðnir geta notað saman til að leysa vandamál. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Hildur Hermóðsdóttir 12.12.2022 40:00
Hildur Hermóðsdóttir rifjar upp þegar í ágúst 1970 Þingeyingar tóku til sinna ráða eftir áralanga baráttu gegn fyrirhuguðri stórvirkjun í Laxá og sprengdu upp stíflu sem virkjunaraðilar höfðu reist í Miðkvísl og notuðu til þess dýnamít í eigu virkjunnarinnar. Hildur skrifar bók um föður sinn Hermóð í Árnesi og hans baráttu fyrir verndun Laxár og Mývatns. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir 08.12.2022 40:00
Vinkonurnar og samstarfskonurnar Júlíana Sara og Vala Kristín áttuðu sig á því þegar þær byrjuðu að hlaupa saman að þær væru bestu vinkonur. Síðan hafa þær unnið saman um árabil og sjónvarpsþættir þeirra, Venjulegt fólk , hafa slegið í gegn.
Lilja Eggertsdóttir tónlistarkona 07.12.2022 40:00
Lilja missti drenginn sinn þegar hann var einungis tíu daga gamall. Hún stofnaði ásamt fjölskyldu sinni Hlynssjóð. Sjóðnum er ætlað að styðja við foreldra sem missa barn sitt í eða skömmu eftir fæðingu.
Gunnar Helgason og Felix Bergsson 01.12.2022 40:00
Gunnar og Felix ræða vináttuna, barnamenningu og sköpunarkraftinn sem þeir geta ekki og vilja ekki losna við.
Guðrún Árný tónlistarkona 29.11.2022 40:00
Guðrún Árný talar um hið geysivinsæla lagi Andvaka og segir brosandi að hún skemmti sér konunglega þegar fólk öskursyngur þetta dásamlega lag.
Sigrún Hjálmtýsdóttir óperusöngkona 28.11.2022 40:00
Diddú rifjar upp þegar hún gerði jólaplötuna Jólastjarna fyerir 25 árum.
Ólafur Ragnar Grímsson 21.11.2022 40:00
Ólafur segir frá gömlu bláu töskunni sem hefur fylgt fjölskyldu Ólafs Ragnars allt frá æskuárum hans á Ísafirði. Í töskunni voru geymd bréf móður hans Svanhildar Hjartars sem hún skrifaði eiginmanni sínum Grími, árum saman á berklahælum. Ólafur segir frá þeirri tilfinningu að lesa bre?fin í fyrsta sinn.
Álfrún Helga Örnólfsdóttir 17.11.2022 40:00
Álfrún Helga segir frá heimildamynd sinni Band sem segir sögu þriggja kvenna í hljómsveitinni The Post Performance Blues Band. Í sameiningu ákveða þær að gefa sér eitt ár til að verða poppsjtörnur eða hætta að spila að eilífu.
Jón Atli Jónasson rithöfundur 16.11.2022 40:00
Jón Atli handritshöfundur og leikskáld segir frá nýjustu bók sinni Brotin sem er glæpasaga úr Reykjavík samtímans. Jón Atli hefur skrifað lengi og verk hans hafa veriðs ett upp víða um Evrópu.
Andri Björn Róbertsson söngvari 15.11.2022 40:00
Andr Björn bass- barítón segir frá lífi sínu í Englandi, hann býr við lítinn strandbæ með fjölskyldu sinni, og ferðast svo á milli óperuhúsa og tekur þátt í fjölmörgum óperuuppfærslum. Andri ætlar að syngja í Salnum í vikunni með píanóleikaranum Ástríði Öldu Sigurðarsdóttur
Ástbjörg Rut Jónsdóttir sviðslistakona og táknmálstúlkur 14.11.2022 40:00
Ástbjörg segir frá ON sviðslitahópnum sem samanstendur af heyrnarlausu og heyrandi listafólki. Ástbjörg Rut hefur sérhæft sig í að táknmálstúlka leiksýningar og tónlsitarviðburði og tengja táknmál og leiklist með ýmsum öðrum hætti. Ástbjörg segir frá nýju verki Eyja sem hún samdi ásamt Sóleyju Ómarsdóttur, en þetta er fyrsta leiksýning sinnar tengundar sem sýnd er í ÞJóðleikhúsinu.
Kristján Jóhannsson óperusöngvari 31.10.2022 40:00
Kristján á að baki glæstan alþjóðlegan feril sem óperusöngvari og hefur komið fram í flestum virtustu óperuhúsum heims. Hann hefur t.d. sungið hlutverk Cavaradossi 400 sinnum og söng það hjá Íslensku óperunni árið 2017.
Elín Gunnlaugsdóttir tónskáld 19.10.2022 40:00
Elín er tónskáld og kennir í LHÍ, hún rekur einnig með eiginmanni sínum Bókakaffið á Selfossi og rifjar upp líf sitt í Laugarási þegar hún fór á mjólkurbílnum í þverflaututíma.
Elmar Gilbertsson og Oddur Arnþór Jónsson 18.10.2022 40:00
Óperusöngvararnir Elmar og Oddur tala um ferðatöskur, fallega tóna , íslensku óperuna og Brothers eftir Daníel Bjarnrason sem flutt verður í Hörpu um helgina.
Ólafur Egilsson leikstjóri og leikari 17.10.2022 40:00
?Ég sagði bara: Þú sérð hvernig ég lít út, þetta er ekkert að fara að ganga,? rifjar Ólafur Egill Egilsson leikstjóri og leikari upp um samtal sem hann átti við skólastjóra Leiklistarskólans. Frá því hann sótti um og þar til hann fékk inngöngu hafði hann misst allt hár og þótti víst að hann ætti ekki erindi í skólann vegna þess. Ólafur Egill Egilsson leikstjóri og leikari smitaðist snemma og nokku...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.