paelingdagsins

Pæling dagsins

Society EN ↓ 100 episodes

Hugleiðingar Þórarins Hjartarsonar um málefni samtímans.

Author

paelingdagsins

Category

Society

Podcast website

paelingdagsins.podbean.com

Latest episode

Mar 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#83 Árás á akademískt frelsi varpar ljósi á innrætingu og þrot menntavísindasviðs 11.08.2025

Þórarinn ræðir árás Ingólfs Gíslasonar á akademskt frelsi á Íslandi. Þann 6. ágúst 2025 stóð hann að mótmælum gegn því að ísraelskur fræðimaður fengi að halda erindi hér á landi um gervigreind. Þáttastjórnandi fór því á stúfana og komst að því að hugðarefni Ingólfs kunni að vera rót þess hvernig komið er fyrir grunn- og framhaldsskólabörnum en PISA kannanir sýna að þeim gengur verr og verr að taka...

#82 Afhverju tala ég um útlendingamál? 10.08.2025

Þórarinn ræðir um ríkisstjórnina, útlendingamál, deilur Sólveigar Önnu og Höllu Gunnarsdóttur, leigubílamálin, umræðuna, pólitíska leikjafræði og fleira.   Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling  eða  Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270  Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur...

Pæling #81 Niall Ferguson, gervigreind og háskólanám 26.07.2025

Þórarinn ræðir akademíuna í samhengi við gervigreind og fyrirlestur Niall Ferguson, einn stjórnanda nýs háskóla sem heitir University of Austin og hefur verið starfandi í rúmt ár. Fjallað er um hvaða áhrif gervigreind kann að hafa á nám framtíðarinnar og hvernig það kann að skerða getu nemenda til þess að takast á við verkefni framtíðarinnar.  Fyrirlestur Niall Ferguson: https://www.youtube.com/wa...

#80 Vestræn menning gerir okkur kleift að viðhalda delluhugmyndum 22.07.2025

Þórarinn ræðir um húsnæðismarkaðinn, ákvörðun Mette Frederiksen að krefja konur um herskyldu, hælisleitendur, félagslega innviði, Vestræna menningu og margt fleira. -  Afhverju hækkar fasteignaverð? - Eiga Vesturlönd að taka á móti þeim sem hata gildin þeirra? - Afhverju eru sumar deildir íslenskrar akademíu ómarktækar? - Er óskynsamlegt að selja sig á Only Fans? Þessum spurningum er svarað hér.  ...

#79 Veiðigjöld og leikjafræði ríkisstjórnarinnar 01.07.2025

Þórarinn ræðir afhverju ríkisstjórnin leggur fram svo óraunhæft veiðigjaldafrumvarp.

#78 Að horfast í augu við vandann - 5. júní 2025 08.06.2025

Þórarinn ræðir hugmyndir George Orwell um að horfast í augu við það sem er augljóst. Orðatiltæki hans "the power of facing" kom út frá gagnrýni hans á Sovétríkin sem kröfðust þess að fólk lýsti veruleikann á annan veg en það taldi rétt. Þetta hafi verið eitt af mikilvægari vopnum við að ná alræði á huga almennings. Þórarinn setur þetta í samhengi við rétttrúnaðinn og hvernig honum hefur tekist að...

#77 Framtíð, velsæld og árekstrarstefna 01.06.2025

Þórarinn ræðir Hönnu Arendt og bók hennar The Origins of Totalitarianism. Sérstök áhersla er lögð á heimspekileg atriði sem snúa að því hvaða aðstæður skapast þegar stjórnvöld reka stefnu stefnuleysis, þar sem ekki er brugðist við rót vandans, heldur aðeins við afleiddum afleiðingum. Vandamál eru þá sífellt plástruð með skammtímalausnum. Hannah Arendt kallar þetta árekstrarstefnu, viðbragðsstefnu...

#76 Á sandi byggði heimskur maður hús 09.05.2025

Til að styðja við þetta framtak má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Ljárdalur.is Alvörubón

#75 Akademísk fórnarlambsvæðing 04.05.2025

Þórarinn ræðir um stjórnmálin á Íslandi, fórnarlambsvæðingu og akademíuna. - Viðheldur akademían fórnarlambsvæðingu? - Ætti að kenna kynjafræði á öllum skólastigum? - Græðir fólk á því að vorkenna sér? Þessum spurningum er svarað hér.

#75 Skammsýni barna- og menntamálaráðherra kostar minnihlutahópa framtíðina 16.04.2025

Þórarinn ræðir áform barna- og menntamálaráðherra um að breyta fyrirkomulagi umsókna í framhaldsskóla. Þetta eru áform sem dæmd hafa verið ólögleg í Bandaríkjunum. Þetta er bæði ósanngjarnt þeim sem missa af tækifærum vegna áformanna sem og þeirra hópa sem njóta forréttinda til skamms tíma.   Til að styrkja þetta framtak má fara inn á : www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að...

#74 - Útför woke-sins í boði Sólveigar Önnu 13.04.2025

Þórarinn fjallar um atburði vikunnar í samhengi við endalok wokesins og þrumuræðu Sólveigar Önnu í Synir Egils á Samstöðinni. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á : www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270

Pæling #73 Fjölmenning í Evrópu og óskráðar reglur 05.04.2025

Þórarinn ræðir um breytt landslag í flóttamannamálum og fund sem fjallaði um þau efni þar sem Snorri Másson, Vilhjálmur Árnason og Arndís Anna Gunnarsdóttur tókust á um þessi mál. - Hvað gerir Ísland að Íslandi? - Eru Sharia lög áhyggjuefni í Evrópu? - Afhverju gengur svona illa að aðlaga? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leg...

Pæling #72 Opinber fjármál og Milton Friedman 01.04.2025

Þórarinn ræðir um opinber fjármál hins opinbera og stöðuleikareglu fjármálaráðherra sem hann kynnti í dag. Hugleiðingarnar snúa að Milton Friedman, verðbólgu, kulnun og fleiri atriðum.   Www.pardus.is/einpaeling

#70 Örorka, Samfylkingin framtíðarinnar og ungir Sósíalistar 19.03.2025

Þórarinn ræðir um áhugaverða þróun í breskum stjórnmálum er varðar nýja stefnu stjórnvalda þar í landi í velferðarmálum. Sú þróun er borin saman við þróun á Íslandi og sett í samhengi við lýðþróun og fjölgunartíðni. - Hver eru tengsl örorku, kulnunar og fjölgunartíðni? - Er velferðarkerfi framtíðarinnar úr sögunni? - Geta ungir sósíalistar stjórnað Íslandi og leyst deiluna á Gaza? Þessum spurningu...

#69 Breiðholtið og inngildingarstefna Reykjavíkurborgar 15.03.2025

Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270

#68 Heiða Björg Hilmisdóttir er besti stjórnmálamaður Íslands 12.03.2025

Þeim sem fylgjast með stjórnmálum á Íslandi er nú ljóst að Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkurbúa, er besti stjórnmálamaður á landinu. Í þessum þætti er fjallað um feril Heiðu Bjargar í breiðum strokum frá árinu 2018 og það sett í samhengi við atburði síðasta mánuðinn eða allt frá því að hún tók við embættinu. Fjallað er um stöðu hennar innan Samfylkingarinnar, neyðarsjóð Ragnars Þó...

#67 Ofneysla ADHD lyfja og hliðverðir umræðunnar 26.02.2025

Þórarinn ræðir aftur um stórkostlega einkennilegt viðmót fólks um ofneyslu ADHD lyfja.

#66 ADHD er tískufyrirbæri 25.02.2025

Þórarinn fjallar um lífskjör á Íslandi í samhengi við verkfall kennara, ADHD greiningar, kulnun og fleira. - Afhverju er ADHD tískufyrirbæri? - Afhverju styð ég kjarabaráttu kennara? - Hvernig rýrir kulnun lífskjör framtíðarkynslóða? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling

#65 Verður Flokkur fólksins bakdyr stjórnarandstöðunnar? 11.02.2025

Þórarinn ræðir stefnuræðu forsætisráðherra, Flokk fólksins og krísu borgarstjórnarmeirihlutans.

#64 Trump, Ísland og afhverju enginn vill fara í ESB 24.01.2025

Þórarinn ræðir hin ýmsu mál. Í fyrstu er rætt um þær afleiðingar sem forsetisseta Trump kann að hafa á íslenskt samfélag og það sett í samhengi við þær menningarbreytingar sem eiga sér stað í dag. Þá er rætt um stöðu Evrópu og fjallað um það afhverju bæði Viðreisn og Samfylkingin vilji ekki fara í ESB. Að lokum er rætt um rétttrúnaðinn, heiðurstengda glæpi og margt fleira. - Afhverju vill Viðreisn...

#63 ESB, Hvammsvirkjun og járnbúr Weber 18.01.2025

Þórarinn ræðir um þá afleitu hugmynd að ný ríkisstjórn telji fýsilegt að ræða um aðild Íslands að ESB. Í því samhengi er rætt um úrskurð héraðsdóms sem komst að þeirri niðurstöðu að fella ætti leyfi virkjunarinnar úr gildi sökum þess að hún stangast á við löggjöf Evrópusambandsins. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling

#62 Hver er Pierre Poilievre? 11.01.2025

Þórarinn ræðir stjórnmálamanninn Pierre Poilievre en það þykir nokkuð ljóst að hann mun koma til með að taka við forsætisráðherraembætti Kanada eftir næstu kosningar þar í landi. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling

#61 Hvert fór plan Valkyrjustjórnarinnar? 02.01.2025

Þórarinn ræðir um stöðu stjórnmálanna og hvaða áhrif Inga Sæland kunni að hafa á ríkisstjórnina. Þá er fjallað um Sjálfstæðisflokkinn, kulnun opinberra starfsmanna, þróun í Evrópu og fleira. - Er skynsamlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fresta landsfundi? - Verður Inga Sæland álitin aukaleikari líkt og Dagur B.? - Þurfa Valkyrjurnar að segja stéttarfélögunum stríð á hendur?

#60 RÚV, kulnunarfrí og hugarfar 17.12.2024

Þórarinn ræðir fjölmörg mál, þar á meðal einkarekna leikskóla, stjórnmálin og skipulagsmál hjá Reykjavíkurborg, en sérstök áhersla er lögð á gagnrýni Þórarins á RÚV og hugarfar er varðar kulnun sem, þrátt fyrir litla athygli, hafa gríðarleg áhrif á vinnumarkaðinn.

#59 Valkyrjustjórnin, fágætismálmar og listamannalaun 04.12.2024

Í þessum þætti fjallar Þórarinn um þær áskoranir sem valkyrjustjórn Kristrúnar, Þorgerðar og Ingu stendur frammi fyrir. Hann skoðar málin í samhengi við nýlegar vendingar í fágætismálmum, útlendingamálum og fólksfækkun, bæði á Íslandi og erlendis. Að lokum er sjónum beint að listamannalaunum og þeim álitaefnum sem hafa komið upp í tengslum við úthlutun þeirra á þessu ári.

Listen to the Pæling dagsins podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.