mordskurinn
Morðskúrinn
Þú finnur okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn.
Author
mordskurinn
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Manndráp: Kaylee Sawyer 14.02.2024 48:32
Kaylee Sawyer var 23 ára gömul árið 2016, í sambandi með ástinni í lífi sínum, með drauma um að verða tannlæknir og hefði átt að eiga allt lífið framundan. Það var því miður ekki svo, en eftir stórskemmtilegt kvöld á djamminu með vinkonum sínum kom kærastinn hennar að sækja hana. Kaylee endaði á að rífast við kærasta sinn þetta kvöld, og labba í burtu með þeim tilgangi að kæla sig aðeins niður. Þ...
Dularfullur dauði: Lauren Agee 07.02.2024 45:07
Lauren fór með vinum sínum í helgarferð á wakeboard festival en helgin fór ekki eins og áætlað var því þegar vinir hennar vöknuðu um morguninn þá var hún hvergi sjáanleg. Þau gerðu ráð fyrir því að hún hefði bara farið að hitta einhvern vin en komust fljótt að því hvað hafði komið fyrir hana. Áskrift kostar 990kr.- á mánuði: - 4-5 þættir á mánuði - Aðgangur að öllum áskriftarþáttum frá upphaf...
Manndráp: Miya Marcano 31.01.2024 43:19
Miya Marcano hafði ákveðið að búa á aðeins fínni háskólagörðum, í fínna og að hún taldi öruggara umhverfi á meðan námi hennar stóð. Hún ætlaði sér að verða sjúkraliði enda með íþróttadellu og mikla ástríðu fyrir að hjálpa fólki. Miya fékk þó aldrei tækifæri til að klára námið sitt, og hún var ekki eins örugg eins og hún hélt, ekki einu sinni inn á sínu eigin heimili. En það var einmitt þaðan sem...
Manndráp: Daniel Mark Driver 23.01.2024 34:24
Ellie Nesler var ein sú besta móðir sem fyrirfinnst í Jamestown og þegar hún komst að því sem sonur hennar hefði gengið í gegnum þá tók hún málin í sínar hendur. Þátturinn er í boði PLAY! en það er 20% afsláttur út 26. janúar í tilefni af bóndadeginum. www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Raðmorðingi: Kimberly Saenz 17.01.2024 42:42
Kim var móðir, eiginkona, starfandi hjúkrunarfræðingur og vel liðin kona í sínu samfélagi. Það var alveg þar til að kom í ljós að hún var ofbeldisfull móðir og eiginkona og orðsporið hvarf hratt. Fólk hefur trúlegast haldið að hún kæmist ekki mikið lægra í lífinu þar til að skyndilega var hún handtekin fyrir að eitra fyrir sjúklingum, ekki bara einum heldur mörgum. Þátturinn er í boði Play Bókið...
Óupplýst: Tracey Ann Patient 10.01.2024 37:48
Tracey var 13 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust eftir að hafa gengið heim frá vinkonu sinni eitt kvöld. Það liðu ekki margir dagar þar til lík hennar fannst í um 15km fjarlægðar frá heimilinu hennar, og ljóst að einhver hafi rænt henni og drepið hana. Lögreglan var engu nær og biðluðu til almennings um upplýsingar. Það var svo maður sem hringdi inn tveimur árum síðar með upplýsingar um málið, en...
Manndráp: Shakeylia Anderson 03.01.2024 46:01
Shakeylia Anderson var 17 ára gömul harðdugleg stelpa, með drauma um að verða starfandi hjúkurnarfræðingur í Bandaríska hernum. Hún var með munnin fyrir neðan nefið, hrein og bein og hefði án efa komist langt í lífinu hefði Bo nokkur ekki komið í veg fyrir það. Þátturinn er í boði: Fly Play Skellið ykkur erlendis í sólina, púðrið í Ölpunum eða verslunarferð í Bandaríkjunum! www.flyplay.is ...
Manndráp: Anne Karubin 27.12.2023 43:32
Anne Karubin hafði ekki átt það auðvelt, en hún var einstæð þriggja barna móðir sem hafði nýverið misst vinnuna enda snérist líf hennar að mestu um að reyna að takast á við daglegt þunglyndi með drykkju. Dætur hennar voru fengnar til þess að sjá um yngsta bróður sinn og lífið var bara mjög erfitt heimafyrir. Þær systur fóru eitt kvöld út að borða með vinum sínum og þegar þær komu heim þá fundu þær...
Manndráp: Tanya Byrd 20.12.2023 37:48
Tanya var þriggja barna móðir, mesti stuðpinninn og dugnaðarforkur. Hún var 45 ára gömul þegar tilkynning barst til lögreglu um að hún hafi gengið út heiman frá sér og ekki sést síðan. Sama dag hafði maður í göngu með hundinn sinn, gengið fram á íþróttatösku og gert þar skelfilega uppgötvun. Fljótlega kom í ljós tenging á milli hvarfsins og töskunnar, en aldrei hefði nokkrum getað grunað hver ten...
Dularfullur dauði: Henry McCabe 13.12.2023 42:12
Henry McCabe hafði verið úti að skemmta sér með vinum sínum þar til að kvöldinu lauk og einn þeirra ætlaði að skutla honum heim. Í bílnum var Henry að rífast við einhvern í símann og að lokum bað hann vin sinn um að skutla sér að bensínstöð þar sem hann ætlaði að labba heim. Þegar þangað var komið hringdi hann skrítið símtal og hvarf svo sporlaust. www.pardus.is/mordskurinn
Manndráp: Tracy Gilpin 06.12.2023 49:02
Tracy Gilpin var 15 ára gömul, sjálfstæð og uppátækjasöm ung kona sem hlakkaði til að verða fullorðin og eignast stóra fjölskyldu. Hún fékk því miður aldrei tækifæri til að láta draum sinn rætast. Tracy hafði átt það til að skila sér ekki heim á kvöldin og ekki vöknuðu upp neinar stórkostlegar áhyggjur þegar hún skilaði sér ekki eitt kvöldið 1986 en það skipti átti þó eftir að vera öðruvísi en öll...
Óupplýst: Kenzie Houk 29.11.2023 55:44
Kenzie Houk átti von á sínu þriðja barni með manni sínum, Chris Brown. Hún var langt komin og gátu þau ekki beðið eftir að verða sex manna fjölskylda en Kenzie hafði komið sér út úr ofbeldissambandi og var í fyrsta sinn hamingjusöm. Hún fékk hinsvegar aldrei að hitta ófædda son sinn því dag einn mættu garðyrkjumenn heim til hennar og fundu fjögurra ára dóttur hennar standandi fyrir utan. Þeir urðu...
Manndráp: Samantha Josephson 22.11.2023 54:02
Elsku Samantha átti allt lífið framundan, laganámið sem hún hafði verið svo hörð á að hefja og klára og nýta til góðs í framtíðinni, lífið með dásamlega kærasta sínum og alls sem hún hafði hlakkað svo til að upplifa. Samantha fór út eitt kvöld í mars, ákvað að taka sér smá pásu frá bókunum til að skemmta sér aðeins með vinkonunum. Kvöldið átti að vera í styttra lagi enda átti Samantha að mæta til...
Sakamál: Natasha Ryan 14.11.2023 32:25
Natasha Ryan var 14 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust frá heimili sínu árið 1998. Ótal leitir voru gerðar og ætlaði fjölskylda hennar ekki að gefast upp, enda þráðu þau ekkert heitar en að fá dóttur sína aftur heim. Það var svo nokkrum árum síðar sem raðmorðingi játaði morðið á sig og á meðan hann beið réttarhalda fékk lögreglan ábendingu, ábendingu sem átti eftir að gera fleiri spurningar heldu...
Manndráp: Arlis Perry 08.11.2023 48:41
Arlis Perry var 19 ára gömul, nýlega flutt til Kaliforníu og var að koma sér þar vel fyrir með sínum manni þegar hún var myrt á hrottalegan máta. Hún hafði rétt ætlað að skreppa inn í kirkju til að biðja eftir að hafa verði í einum af mörgum göngutúrm sínum. Málið átti eftir að reynast erfitt að leysa og var það ekki fyrr en áratugum síðar sem að pússlin fóru að passa ÁSKRIFT www.pardus.is/mord...
Sakamál: Erika Murray 01.11.2023 46:53
Erika var ung þegar hún varð ólétt eftir kærastann sinn Ramon og í kjölfarið flutti hann inn á heimili foreldra hennar til þess að ala upp barnið með henni. Þegar Erika varð ólétt á ný ákváðu þau að nú væri kominn tími til þess að sjá um sig sjálf, svo þau fluttu út og hlutir breyttust verulega í kjölfarið. Eitt skilyrði sem Ramon setti var að honum langaði ekki í fleiri börn, en hvað gerðist þá þ...
Manndráp: Nicole ”Nikki” VanderHeyden 25.10.2023 51:18
Nikki VanderHeyden var ung kona í blóma lífsins, þriggja barna móðir, vel liðin allsstaðar sem hún fór en í erfiðum aðstæðum Yngsti sonur hennar var 6 mánaða gamall þegar hún var myrt á hrottalegan máta eftir kvöldstund út á lífinu. Samband hennar við sambýlismann sinn og föður yngsta sonarins hafði verið stormasamt, en var hann líklegur til að verða henni að bana? ÁSKRIFT www.pardus.is/mordsku...
Manndráp: Melissa Norby 18.10.2023 38:32
Aðfaranótt 22. júlí 2016 fékk slökkviliðið í Bemidji útkall þar sem eldur hafði kviknað á heimili. Þegar þangað var komið var eldurinn að mestu farinn, en inni í húsinu fannst lík hinnar 35 ára Melissu. Í ljós kom að hún hafði verið að passa 5 ára dóttur vinkonu sinnar og því hófst leit að henni, en án árangurs. Hvað kom eiginlega fyrir 5 ára Brittany? www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/m...
Manndráp: Doug Benefield 11.10.2023 43:20
Doug Benefield var ekkill og einstæður faðir þegar hann kynntist hinni glæsilegu 24 ára gömlu Ashely. Það sem var ekki glæsilegt hinsvegar voru komandi tímar. En innan tveggja vikna voru þau gift, farin að huga að því að stofan fyrirtæki og stutt var í vandræðin. ÁSKRIFT: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Raðmorðingi: Hollywood Ripper 03.10.2023 55:22
Árið 2001 fannst Ashley Ellerin myrt á heimili sínu en hún hafði gert plön um að hitta deitið sitt, Ashton Kutcher það kvöld. Við tók rannsókn lögreglu en engar vísbendingar voru til staðar til að finna út hver hefði drepið hana. Það var svo loksins sem rannsóknarteymið fékk símtal um annað morð sem hafði átt sér stað árið 1993 sem boltinn byrjaði að rúlla, en ekkert var gert í málinu og áttu aðra...
Fjöldamorð: Luby’s Massacre 27.09.2023 46:23
Í hádeginu þann 16 október árið 1991 sátu um 80 manns inn á Luby's þegar pallbíll kom keyrandi inn um glugga. Það kom fljótt í ljós að um væri ekki að ræða neitt óhapp né slys þegar maður steig út úr bílnum vopnaður tvem byssum. 23 áttu eftir að deyja þennan dag, á örfáum mínútum - mannskæðasta skotárás Bandaríkjanna árið 1991 og hélt þeim titli í nokkur ár. ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn ...
Mannshvarf: Claudia Lawrence 20.09.2023 42:02
Árið 2009 mætti Claudia heim eftir vinnu, hringdi í foreldra sína og fór að sofa. Daginn eftir átti hún svo að mæta á ný til vinnu en lét aldrei sjá sig og eftir tvo daga fóru áhyggjur að myndast meðal vina og fjölskyldu hennar. www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn
Manndráp: Pravin Varughese 13.09.2023 1:01:06
Pravin var 19 ára gamall nemandi við Southern Illinois háskólann þar sem hann ætlaði sér að klára gráðu til að geta starfað síðar sem lögreglumaður. Eitt febrúar kvöld var hann viðstaddur partý þaðan sem hann fékk síðar meir far heim - hann átti ekki eftir að sjást aftur á lífi eftir það. Fjölskylda Pravins þurfti að berjast fyrir réttlætinu og því miður hefur það ekki fengist í gegn ennþá daginn...
Mannshvarf: Jason Landry 07.09.2023 54:40
Þann 13. desember árið 2020 spjallaði Jason við vin sinn á facetime rétt áður en hann gekk út úr húsinu sínu til þess að fara í þriggja tíma ferðalag heim til foreldra sinna. Hann komst þó ekki á áfangastað, þar sem á miðri leið fannst bíllinn hans allur klesstur en engin merki um Jason sjálfan. Hlutir sem fundust á vettvangi voru verulega skrítnir og margir hafa sett spurningarmerki við það hvað...
Manndráp: Eurydice Dixon 30.08.2023 43:20
Eurydice Dixon var ein hæfileikarík kona og átti sérlega auðvelt með að fá fólk til að hlæja, svo mikið svo að hún starfaði við það. Fyrir utan það, þá var hún mögnuð kona, átti góðan kærasta, góða fjölskyldu og vini og framtíðina fyrir sér í uppistandsheiminum. Hún fékk því miður ekki að lifa til að sjá þá framtíð. Þátturinn er í boði Scrub Daddy Ísland Kóðinn "morðskúrinn" veitir 20% afslátt a...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.