mordskurinn

Morðskúrinn

Þú finnur okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn.

Author

mordskurinn

Category

True Crime

Podcast website

mordskurinn.podbean.com

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Daniel Brophy 29.01.2025

Daniel Brophy var ofboðslega vel liðinn matreiðslumeistari, hafði kennt við matreiðsluskóla til margra ára og vel virtur innan sinnar starfsgreinar.  Hann hafði búið sér til rólegt líf, var í hjónabandi, sinnti garðyrkju og sinnti hænunum sínum sem og hundi.  Það var því mikið áfall fyrir allt hans fólk, fjölskyldu vini og nemendur þegar hann var myrtur inn í kennslustofunni sinni einn laugardagsm...

Ella Bennett 22.01.2025

Charity Bennett, móðir Paris og Ellu, var í vinnunni á meðan börnin voru í góðum höndum hjá barnapíunni, að hún hélt. Það sem hún vissi ekki var að Paris hefði sannfært barnapíuna um að fara fyrr heim, enda Ella sofnuð, og það næsta sem gerðist var að Charity fékk heimsókn lögreglu í vinnuna þar sem harmleikur hafði átt sér stað á heimilinu, harmleikur sem hana grunaði aldrei að gæti verið raunver...

Piang Ngaih Don 15.01.2025

Hin unga móðir, Piang frá Myanmar ákvað að taka málin í sínar eigin hendur þegar hún átti lítið á milli handanna og alls ekki nóg til að sjá fyrir ungum syni sínum.  Hún kom sér með aðstoð starfsmannaleigu til Singapore þar sem hún kom til með að fá starf sem heimilisstarfsmaður fjölskyldu. Hún var þó grunlaus um hvernig næstu mánuðir í lífi hennar yrðu og jafnfram þeir síðustu.   Kóðinn MORÐSKÚRI...

Claremont raðmorðinginn 08.01.2025

Árið 1996 hvarf hin 18 ára Sarah Spiers úr miðbæ Claremont en hún hafði verið á djamminu og ætlað að taka leigubíl heim. Ekkert bólaði á rannsókninni og um sex mánuðum síðar hvarf önnur stelpa frá sama svæði, og voru bæjarbúar að upplifa sama áfallið aftur. Rannsókn var á fullu þar sem þeir báðar áttu það sameiginlegt að hafa verið á djamminu og ætlað að taka leigubíl heim, og lögreglan fór að vel...

Mark Essex 01.01.2025

Mark Essex var frá Emporia í Kansas, hafði átt dásamlega góða æsku, lítið fundið fyrir kynþáttahatri og leit á lífið jákvæðum augum.  Þegar hann skráði sig í herinn þá breyttist sýn hans á lífinu, enda varð hann fyrir mikilli mismunun, miklum rasisma og var ekki tekið eins og þeim sem voru hvítir.  Þetta bjó til mikla reiði innra með Mark sem og sorg og tók hann afdrifaríkar ákvarðanir eftir röð a...

Ortega fjölskyldan 24.12.2024

Á aðfangadag árið 2008 var Ortega stórfjölskyldan að fagna saman jólunum þegar jólasveinn mætti börnunum til mikillar ánægju. Það átti þó ekki eftir að líða mínúta þar til jólasveinninn hóf að skjóta hvern fjölskyldumeðlim á fætur öðrum, og voru líf ansi marga breytt þessi jólin. Þátturinn er í boði Define The Line, en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.defineth...

Betsy Aardsma 18.12.2024

Betsy Aardsma var ný byrjuð nám sitt í Penn State háskólanum, skynsöm og klár stelpa með miklar væntingar til sjálfs síns.  Það var þess vegna sem hún ákvað að eyða þakkagjörðarhátíðinni inn á bókasafni í stað þess að fara heim til fjölskyldu sinnar yfir skólafríið.  Betsy kom til með að vera myrt inn á bókasafni skólans, þar sem margir sátu á meðan ráðist var á hana en enginn var var við neitt.  ...

Grace Holland og Sarah Sweeney 11.12.2024

Grace og Sarah áttu eitt sameiginlegt, þær féllu fyrir sama manninum, og létust báðar við dularfullar kringumstæður inni á heimilinu sínu.  www.pardus.is/mordskurinn   15% afsláttur af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com með kóðanum morðskúrinn

Rob Knox 04.12.2024

Rob Knox var 18 ára upprennandi leikari, hafði fengið sitt fyrsta stóra hlutverk og átti framtíðina ansi bjarta fyrir sér.  Eitt föstudagskvöld í maí mánuð fór hann ásamt vinum út á lífið og lenti þar í útistöðum við ungan mann. Maðurinn gaf í skyn að frekari vandræði yrðu framundan og viku síðar, stóð hann við loforðið.    Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15%...

Adam Strong 27.11.2024

Adam Strong hafði nýverið fengið nágranna sem voru kannski aðeins afskiptasamari en þeir fyrri sem hann hafði átt, því í kringum jólin 2017 tóku þau ákvörðun um að heyra í pípara eftir að hafa reynt að ræða við Adam án árangurs, en það hafði verið vesen með lagnirnar í húsinu frá því að þau fluttu inn. Það sem píparinn fann var eitthvað sem enginn hefði getað gert ráð fyrir, og í kjölfarið fengu t...

Carla Walker 20.11.2024

Það sem átti að vera rómantískur rúntur hjá Carla Walker og kærasta hennar eitt febrúar kvöld árið 1974, varð að einhverju allt, allt öðru.  Ráðist hafði verið á unga parið og Carla horfið í kjölfarið og eftir fjögurra daga leit fannst hún látin.  Við tók tugi ára þar sem engin svör var að fá, það var ekki fyrr en að nútímatækni var til staðar og röð ótrúlegar tilviljana sem að mál hennar loksins...

Linda Chen 13.11.2024

Linda taldi niður dagana í brúðkaupið sitt með Mats, en áður stóri dagurinn kom þá hvarf hún skyndilega. Hún hafði eytt deginum með unnusta sínum og farið svo út að skemmta sér um kvöldið en skilaði sér aldrei heim. Leit að henni skilaði engum árangri fyrr en að unnustinn hennar hvarf einnig, og þegar hann að lokum fannst þá fengu rannsakendur góða hugmynd um hvað hefði komið fyrir.  Þátturinn er...

Haines fjölskyldan 06.11.2024

Það var mikið áfall eina nótt í maí mánuð árið 2007, þegar Maggie Haines hljóp af heimili sínu til nágranna sinna og óskaði eftir aðstoð lögreglu.  Þegar lögreglu loksins bar að kom í ljós að þrír af fjórum meðlimum Haines fjölskyldunar höfðu verið myrt, stungin til bana inn á heimili þeirra.  Rannsókn málsins var vandasöm en ekki voru til staðar mikil sönnunargögn sem beindu lögreglu í átt að ger...

Arnold Archambeau og Ruby Bruguier 29.10.2024

Arnold og Ruby höfðu verið úti að skemmta sér og að kvöldi loknu ætluðu þau að sækja dóttur sína í pössun, en þar sem þau voru verulega ölvuð var ákveðið að það myndu sækja hana daginn eftir. Litla frænka Ruby ákvað að slást í för með þeim heim en þau komust aldrei á leiðarenda, því á leiðinni lentu þau í bílslysi. Litla frænkan rankar við sér í bílnum og sér að Ruby er að troða sér út úr bílnum,...

Hope Forest morðin 23.10.2024

Bartholomew fjölskyldan var stór, samanstóð af hjónunum Clifford og Heather og börnum þeirra sjö. Fjölskyldan var alla tíð talin hamingjusöm og hjónaband Cliffords og Heathers með þeim betri, þau voru miklir vinir og samheldin.  Það var því eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar Clifford tók skelfilega ákvörðun eina nótt í september mánuð árið 1971.    Þátturinn er í boði Define The Line Sport Með...

Brenda Powell 15.10.2024

Sydney Powell, dóttir Brendu og Steve, hafði lengi vel gengið vel í skólanum og enginn hafði áhyggjur af henni fyrr en Steve reyndi einn daginn að greiða skólagjöldin hennar en gat ekki skráð sig í skólagáttina. Hann spurði dóttur sína ítrekað út í það en fékk fá svör. Steve ákvað að heyra í skólanum, og komust þau hjónin að því að Sydney hafði í raun verið vikið úr skóla, það var samt sem áður ek...

The Kill Seven Murders 09.10.2024

Archie átti mjög langa og mjög grófa ofbeldissögu að baki en allt leit út fyrir að hann myndi snúa við blaðinu þegar hann eignaðist sitt fyrsta barn. Svo var reyndar ekki og ástandið átti bara eftir að versna þegar sonur hans lést í skelfilegu slysi kornungur.  Archie ætlaði sér að gera allt hvað hann gat til að fá son til baka.    Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" vei...

Manndráp: Ramsay Scrivo 01.10.2024

Donna Scrivo hafði nýverið misst eiginmann sinn, en eftir það ákvað hún að taka að sér umönnun á 29 ára syni sínum þar sem hún taldi hann ekki hæfan til að sjá um sig sjálfur. Það var svo árið 2014 sem Ramsay, sonur hennar, hvarf sporlaust og leitaði áhyggjufull Donna til lögreglunnar. Rannsókn átti eftir að leiða í ljós hræðilegan atburð sem reynt var að hylma yfir.  Þátturinn er í boði Define Th...

Óupplýst manndráp: Douglas Cleaves 25.09.2024

Douglas Cleaves eða Doug var 25 ára gamall þegar hann lenti í skelfulegu vinnuslysi sem hafði gríðarleg áhrif á hans líf. Með jákvæðnina að vopni ætlaði hann þó að aðlagast nýjum raunveruleika því hann átti lítinn son sem treysti á hann.  Doug fékk þó ekki tækifæri til þess.   Þátturinn er í boði Define The Line  Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á  www.definethelinesport.com

Manndráp: Mark, Sharie og Brooke Winek 17.09.2024

Þann 25. nóvember 2022 mætti lögreglumaður að heimili Winek fjölskyldunnar í þeim erindagjörðum að ná tali af barnabarni Mark og Sharie. Hún og móðir hennar Brooke voru ekki viðstaddar, en voru beðnar um að koma heim til að ræða við lögreglumanninn á meðan hann beið eftir þeim. Enginn vissi hvaða vandræði barnabarnið var búið að koma sér í svo Brooke dreif sig heim með dóttur sína. Stuttu síðar fé...

Manndráp: Alyssa Kittendorff 11.09.2024

Hin gullfallega Alyssa var 17 ára gömul þegar hún ásamt vinkonu sinni fóru til að hitta mann með þeim tilgangi að versla sér lyfið Percocet.  Maðurinn átti hinsvegar ekki eftir að selja þeim það lyf heldur töflur sem innihéldu Fentanýl. Þetta átti eftir að hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar.   Þátturinn er í boði Define The Line Sport  Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum...

Mannshvarf: Sarah og Jacob Hoggle 04.09.2024

Catherine Hoggle var gift þriggja barna móðir sem hafði lengi vel verið að stríða við andlega heilsu, en ástandið var orðið svo slæmt að hún gat ekki lengur verið ein í kringum börnin sín. Hún var því undir stöðugu eftirliti og hjálpuðust vinir og vandamenn að við að passa að hún væri aldrei ein með þeim. Að lokum þurfti svo að gefa henni traust enda var þetta ekki framtíðarplan, og þegar það kom...

Raðmorðingi: Harvey Glatman 28.08.2024

Harvey Glatman var mjög ungur þegar hann var farinn að bera merki um að hann yrði sjálfsagt ekki eins og flestir. Foreldrar hans höfðu leitað aðstoðar vegna vanda sem hann sýndi en læknirinn hafði sannfært um að hegðun sem hann sýndi af sér myndi vaxa af honum.  Svo var aldeilis ekki, Harvey var ungur farinn að áreita konur og komst svo miklu miklu lengra en hann hefði átt að geta.    Þátturinn er...

Mannrán: Annie Hearin 20.08.2024

Hin 73 ára Annie og 71 árs Robert höfðu verið gift lengi og áttu fallegt samband, fallega fjölskyldu og voru einnig mjög auðug, en Robert hafði stundað mikil viðskipti í gegnum tíðina og Annie var virk í samfélaginu. Robert hafði hins vegar lennt í því leiðinlega veseni að þurfa að höfða málsókn á hendur 12 aðila vegna vangreiddra skulda, en það fór í gegn og lífið hélt áfram. Robert mætti svo hei...

The West Mesa Murders 14.08.2024

Árið 2009 fór kona nokkur í gönguferð með hundinn sinn í eyðimörk í úthverfum Albuquerque. Það sem átti að vera góður göngutúr breyttist fljótt í uppgötvun á líkamsleifum.  Í kjölfarið kom í ljós að 11 lík voru grafin þar, allt ungar konur sem höfðu verið myrtar nokkrum árum áður.  Við tók erfitt verkefni að bera kennsl á líkamsleifarnar sem og finna hver ætti sök á máli.   Þátturinn er í boði Def...

Listen to the Morðskúrinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.