mordskurinn

Morðskúrinn

Þú finnur okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn.

Author

mordskurinn

Category

True Crime

Podcast website

mordskurinn.podbean.com

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Manndráp: Alexis Murphy 22.09.2021

Alexis Murphy var 17 ára gömul þegar hún hvarf þann 3. ágúst árið 2013, en þann dag hafði hún ætlað sér að fara að versla hárlengingar fyrir komandi skólamyndatöku. Hún sást síðast á bensínstöð í bænum Lovingston í Virginia. Eftirlitsmyndavélar komu fljótlega auga á dularfullan mann sem hafði verið í samskiptum við hana þar, og allt var sett á fullt í að finna hann.  www.pardus.is/mordskurinn   ww...

Manndráp: Gemma Hayter 15.09.2021

Gemma Hayter lenti á milli í kerfinu frá því hún var ung stelpa og fór svo að í gegnum líf sitt fékk hún aldrei viðeigandi úrræði  Í kjölfarið fór hún að hanga með hópi ungmenna sem í fyrstu áttu eftir að reynast henni vel en fljótlega fóru þau að sýna sínu réttu hliðar  Gemma vildi allt fyrir þennan nýja vinhóp sinn gera, hvað svo sem það kostaði og úr varð að hún glataði lífi sínu í kjölfarið  w...

Raðmorðingi: Charles Starkweather & Caril Ann Fugate 15.09.2021

Charles Starkweather og Caril Ann Fugate höfðu planað að gifta sig og Charles var að blómstra í fyrsta skipti í lífi sínu. Foreldrar hennar voru þó ekki alveg parsátt við þetta samband, enda var Charles 18 ára og Caril ekki nema 13 ára. Eineltið sem hann varð fyrir í æsku gerði hann að mjög reiðum manni og siðferðiskenndin var engin. Á einungis 10 dögum voru allt að 11 manns látnir og situr spurni...

Manndráp: Teri Zenner 08.09.2021

Teri Zenner var 27 ára gömul og starfaði sem félagsráðgjafi. Hún sinnti skjólstæðingum sem voru yfirleitt með mjög flókna geðsjúkdóma og áttu erfitt uppdráttar í lífinu  Hún var þekkt fyrir að gefa sig alla fram í öllu sem hún gerði og þar var enginn munur á þegar við kom starfi hennar Dag einn ákvað hún að stoppa við hjá ungum skjólstæðingi sínum til að tryggja það að hann tæki lyfin sín - það át...

Manndráp: Becky Watts 08.09.2021

Í maí árið 2014 hafði hin 16 ára Becky Watts verið að fá óhugnandi skilaboð, en það var aðili sem hótaði henni því að koma upp um kynferðisleg skilaboð sem voru þeirra á milli og var hún hrædd um að faðir hennar myndi henda henni út. Í nóvember árið 2015 hvarf hún sporlaust. Það tók lögreglu nokkra daga að rannsaka málið og óljóst hvort hún hafi stungið af sjálfviljug eða hvort einhver hafi rænt h...

Óupplýst: Lindsay Buziak 01.09.2021

Lindsay var að feta sín fyrstu fótspor í fasteignabransanum þegar hún fær símtal frá mögulegum kaupanda sem býður allt að 1.000.000$ fyrir hús í Victoria. Allt í kringum parið sem hringdi var dularfullt og því var hún bæði hrædd og stressuð, enda stórt verkefni í vændum. Hún náði þó aldrei að landa samningnum.  www.pardus.is/mordskurinn   www.instagram.com/mordskurinn   www.facebook.com/mordskurin...

Óupplýst: Marilyn Sheppard 01.09.2021

Undir morgun þann 4 júlí árið 1954 vaknaði Sam Sheppard upp við öskur og vein í eiginkonu sinni, Marilyn sem hafði farið að sofa á efri hæð húss þeirra hjóna Sam hljóp upp eins hratt og hann mögulega gat og tók þar á móti honum sem hann lýsir sem "form af manneskju" - Sam hlaut höfuðhögg og rotaðist og þegar hann rankaði við sér sá hann að kona hans var látin Sam Sheppard var dæmdur af samfélagi s...

Raðmorðingi: Honolulu Strangler 25.08.2021

Á níunda áratugnum gekk um Honolulu einstaklingur sem batt, nauðgaði og kyrtki ungar konur.  Fórnalömbin áttu það öll sameiginlegt að vera smágerðar, lágvaxnar og hurfu allar af mjög opnum svæðum  Lögreglan átti erfitt með að komast að því hver væri á verki en þegar fimmta fórnalamb Honolulu Strangler hvarf kom maður fram með upplýsingar Sá maður varð fljótt efstur á list lögreglu yfir grunaða ein...

Mannshvarf: Kristin Smart 25.08.2021

Kristin Smart var 19 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust frá heimavistinni þar sem hún bjó eftir að hafa verið úti að skemmta sér, árið 1995. Lítið var fyrir lögreglu að vinna með, en einnig tókst henni aldeilis að klúðra málinu m.a. með því að týna sönnuargögnum og lýta fram hjá leitarheimildinni sem þeim var úthlutað. Þrátt fyrir það, komu nýjar vendingar í málinu árið 2021 sem við förum yfir. ...

Manndráp: Anita Cobby 18.08.2021

Anita Cobby var hamingjusöm hjúkrunarfræðingur, margverðlaunuð fegurðardrottning, gift eiginmanni sínum John og naut lífsins  Hún hafði nýverið komin úr heimsreisu með eiginmanni sínum þegar þau ákváðu að taka örlitla pásu í sambandi sínu Anita eyddi því tímanum sínum mikið með vinum að skemmta sér og hafði lokið einum slíkum hitting þegar hún hvarf sporlaust.  Hún fannst tvem dögum síðar, látin o...

Dularfullur dauði: Mitrice Richardson 17.08.2021

Mitrice Richardson var 24 ára þegar hún var handtekin þann 17. september árið 2009 eftir að neita að borga reikninginn sinn á veitingarstað í Malibu. Á lögreglustöðinni var móður hennar tjáð að henni yrði ekki sleppt fyrr en hún væri búin að sofa þetta af sér. Henni var hinsvegar sleppt fyrr en áætlað var. Eftir að hún gekk út af lögreglustöðinni, þá hvarf hún sporlaust og í kjölfarið vöknuðu marg...

Manndráp: Peter Porco 04.08.2021

Þessi þáttur er í boði Covid og er hann því álíka mikill kúkur.  Þann 15. nóvember árið 2004 fannst Peter Porco látinn á neðri hæðinni heima hjá sér, og konan hans Joan var að berjast fyrir lífi sínu í rúminu þeirra á efri hæðinni. Óprúttinn aðili hafði gengið inn til þeirra og hoggið þau ítrekað með exi í andlitið. Exin var í eigu fjölskyldunnar og engu var stolið frá heimilinu. Báðir synir þeirr...

Óupplýst: Monika Rizzo 04.08.2021

Monika Rizzo var 44 ára gömul þegar hún gekk útaf vinnustað sínum og sást þar aldrei framar. Nokkrum dögum síðar var hún horfin fyrir fullt og allt og eiginmaður hennar allt annað en áhyggjufullur. Synir hennar og foreldar þó voru logandi hrædd um afdrif Moniku og lögðu allt í leit sína að henni.  Það átti eftir að koma í ljós að líkamsleifar væru að finna í bakgarði Rizzo fjölskyldunnar en lögreg...

Dularfullur dauði: Yuba County 5 28.07.2021

Árið 1978 fóru fimm vinir saman á körfuboltaleik, þeir Ted 32 ára, Bill 29 ára, Jack 24 ára, Jackie, 30 ára og Gary Mathias 25 ára. Þeir áttu það allir sameiginlegt að vera með fötlun og bjuggu í foreldrahúsi, og því vakti það óhug þegar þeir mættu ekki heim til foreldra sinna eins og vaninn var á hverju kvöldi. Lögreglan var mjög skeptísk til að byrja með, enda taldi hún bara að nú væri sko tímin...

Mannshvarf: Leah Croucher 27.07.2021

Leah Croucher var 19 ára þegar hún hvarf sporlaust á leið til vinnu í heimabæ sínum í Bretlandi. Hún vaknaði um morguninn, græjaði sig fyrir vinnu og hélt af stað gangandi en í vinnuna skilaði hún sér aldrei Leah hafði aldrei valdið foreldrum sínum áhyggjum eða gefið neinum einhverja ástæðu til að óttast um hana fram að þessu.  Hvað kom raunverulega fyrir Leuh er með öllu óútskýranlegt en maður se...

Manndráp: Pela Atroshi 24.07.2021

Jæja seint koma sumir en koma þó!  Hér er þátturinn sem vantaði síðasta miðvikudag En í þessum þætti fjöllum við um Pelu Atroshi. Pela var fædd í norður Írak og var ein af 10 börnum foreldra sinna. Vegna báglegra aðstæðna í Dohouk heimabæ Pelu fluttist fjölskyldan alla leið til Svíþjóðar. Þar braggaðist Pela verulega vel og aðlagaðist sínu nýja sænska lífi fljótt. Föður hennar til mikillar ama bre...

Óupplýst: Beatriz Mota 21.07.2021

Við förum alla leiðina til Brasilíu í þetta sinn, en árið 2015 týndist 7 ára Beatriz í útskriftarveislu systur sinnar og á innan við klukkutíma fannst hún látin í kompu í skólanum þar sem athöfnin var haldin. Myndbandsupptökur frá fyrirtækjum í nágrenninu sýna meðal annars mann fyrir utan skólann kvöldið sem hún lést, að taka upp hníf frá yfirborðinu og stinga honum í sokkana sína. Hann labbar síð...

Manndráp: Mickey Hughes 15.07.2021

Francine Hughes kynntist eiginmanni sínum þegar hún var bara rétt rúmlega 15 ára - hún var ekki nema 16 ára gömul þegar hún gekk í hjónaband sem hún taldi sig ekki komast hjá að ganga í.  Mickey, eiginmaður Francine var alla tíð mjög vondur við hana en andlegt og líkamlegt ofbeldi var ríkjandi inn á heimili þeirra. Mickey stóð á sama að börnin hans horfðu upp á ástandið og versnaði og versnaði með...

Mannshvarf: Cindy Anderson 15.07.2021

Cynthia Jane Anderson var tvítug þegar hún hvarf sporlaust úr vinnunni sinni 10 dögum áður en hún ætlaði að fara á vit ævintýranna og hefja nám með kærastanum sínum í Biblíuskóla. Henni hafði verið búið að dreyma sl. árið, um að einn daginn yrði henni rænt, og einnig voru áreitandi símtöl í hennar garð sem flykktust inn á hennar borð, bæði heim til hennar og í vinnuna. Það var hádegi, í verslunarm...

Óupplýst: Candace Hiltz 07.07.2021

Þegar Candace Hiltz finnst myrt inn á heimili sínu gengur lögreglan út frá því að bróðir hennar sé sá seki.  Fjölskyldan hennar er þó mjög ósammála því enda umræddir lögregluþjónar menn sem Candice hefði átt í útistöðum við nokkrum dögum áður og meðal annars staðið í hótunum við þá - að koma upp um ekki mjög heiðarleg vinnubrögð að þeirra hálfu Morðið hefur aldrei verið upplýst en ég er nokkuð vis...

Manndráp: Wells Gray Park morðin 07.07.2021

Í ágúst árið 1982 fara Bentley hjónin ásamt dóttur sinni Jackie, og hennar fjölskyldu í útilegu í Wells Gray héraðsgarðinn í Kanada. Eftir tvær vikur skila þau sér ekki heim, og strax hefst leit af þeim. Hvernig gat 6 manna fjölskylda horfið sporlaust og skilið engin ummerki eftir sig? Eftir víðamikla leit sem skilaði engum árangri fær lögreglan vísbendingu frá heimamanni, sem fann eitthvað óvenju...

Mannshvarf: Fandel börnin 01.07.2021

Margaret Fandel hafði treyst börnunum sínu fyrir að vera ein heima á meðan hún ætlaði að skreppa út á lífið ásamt systur sinni  Það átti eftir að umturna hennar veröld en það kvöld hurfu börnin sporlaust Engar áberandi ástæður hvarfsins liggja fyrir og allir sem lágu undir grun voru hreinsaðir jafn hratt af öllum grun En kenningarnar í kringum hvarf barnanna eru margvíslegar - sumar alveg út í höt...

Manndráp: Jayna Murray 30.06.2021

Jayna Murray var myrrt á hrottalegann hátt á vinnustaðnum sínum, en hún var að vinna í Lululemon búð sem selur íþróttafatnað. Samstarfskona hennar lifði árásina af og gat sagt lögreglu greinargóða lýsingu á gerandanum. Fólk var vitni af árásinni úr búðinni við hliðiná og lét ekki lögreglu vita af því sem ætti sér stað, enda voru þau alltof upptekin að græja fyrir forsölu á Ipod 2 sem var að koma ú...

Manndráp: Sarah Stern 09.06.2021

Jæææja síðasti fyrir sumarfrí  Faðir Sarah Stern vaknaði við ljótan raunveruleika aðfaranótt 3 desember árið 2016, dóttir hans var horfin að virtist algjörlega sporlaust. Fljótt fóru að vakna upp spurningar um geðheilsu Söruh, hvort að hún hafi mögulega getað hafa fyrirfarið sér en hún hafði átt erfitt í kjölfar andlát móður sinnar nokkrum árum áður. Sannleikurinn var ljótur og gerendur stóðu Söru...

Dularfullur dauði: Phoebe Handsjuk 08.06.2021

Phoebe Handsjuk var 24 ára gömul þegar hún fannst látin í ruslageymslu í blokkinni þar sem hún bjó með kærastanum sínum. Hún hafði framið sjálfsmorð emð því að troða sér í gegnum og láta sig falla frá 12 hæð í gegnum ruslarennuna, án þess að skilja eftir sig fingraför á víðavangi. 8 árum síðar finnst önnur kærasta sama manns látin sem framdi einnig sjálfsmorð með því að kyrkja sjálfa sig með snúru...

Listen to the Morðskúrinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.