Valtýr Björn

Mín skoðun

Sports EN ↓ 999 episodes

Podcast með Valtý Birni

Author

Valtýr Björn

Category

Sports

Podcast website

valtyrbjorn.podbean.com

Latest episode

Jul 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

964.þáttur. Mín skoðun.12112024 12.11.2024

Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Kára Kristjáni Kristjánssyni handboltasnillingi og við ræðum ítarlega um landsliðið okkar og sitthvað fleira. Þá hringi ég í Benedikt Guðmundsson landsliðsþjálfara kvenna í körfuknattleik og þjálfara karlaliðs Tindastóls og við tölum um kvennalandsliðið okkar og aðeins um Bónusdeildina. Þá heyri ég i henni Svanhvíti og við tölu ítarlega um Bónusdeildina og e...

963.þáttur. Mín skoðun.08112024 08.11.2024

Í þætti dagsins eru fjórir viðmælendur og mikið fjör. Haraldur Hróðmarsson þjálfari Grindavíkur í fótboltanum spjalllar við mig um Víking í evrópukeppninni, Grindavík og næsta sumar, evrópuboltann, enska, spænska og ítalska boltann. Ásgeir Örn Hallgrímsson þjálfari Hauka í handbolta ræðir við mig um landsliðið okkar, Olísdeildina og ferðalag Hauka til Azerbaijan. Pétur Ingvarsson þjálfari Keflavík...

962.þáttur. Mín skoðun.05112024 05.11.2024

Í þætti dagsins er komið víða við. Arnar Daði handboltasérfræðingur er á línunni og við ræðum um landsleikinn á morgun á milli Íslands og Bosníu og einnig stöðuna í boltanum hér heima. Ég heyri í Þórhalli Dan og við tölum um meistaradeildina í fótbolta, Víking í Sambandsdeildinni, KSÍ og ráðningar þjálfara og svo tvær Krummasögur. Þá heyri ég í Svanhvíti og við förum ítarlega yfir gang mála í meis...

961.þáttur. Mín skoðun.01112024 01.11.2024

Í þætti dagsins er komið víða við. Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ er á línunni. ÉG hringi í Benedikt Guðmundsson þjálfara Tindastóls í körfuboltanum. Einar Jónsson þjálfari Fram í handbolta karla er svo í viðtali og að lokum heyri ég í Kristni Kærnested sérfræðingi þáttarins. Nóg um að vera, njótið og takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur besti kjúlli landsins. 

960.þáttur. Mín skoðun. 29102024 29.10.2024

Í þætti dagsins er uppgjör Bestu deildar karla með Kristni Kærnested, Svanhvíti og Þórhalli Dan. Það er nóg um að tala. Einnig er farið í körfuboltann hér heima sem og handboltann og þá einkum í leiki FH og Vals í Evrópudeildinni. Við tölum um hugsanlegan nýjan þjálfara Man. Utd. útnefningu bestu leikmanna heims og svo læðist ein Krummasaga þarna á milli. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins....

959.þáttur. Mín skoðun. 25102024 25.10.2024

Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera. Viðmælendur eru Kristinn Kærnested, Svanhvít, Guðmundur Torfason formaður Fram og Haraldur Haraldsson framkvæmdastjóri Víkings. Það er margt sem er rætt í dag, Besta deildin, Víkingur-Breiðablik, botnbaráttan, Valur eða Stjarnan í 3.sæti. Bónusdeildin í körfubolta, Olísdeildin í handbolta, enski boltinn, El Clasico og svo margt fleira og einni fréttir og slúðu...

958.þáttur. Mín skoðun. 22102024 22.10.2024

Heil og sæl. Í þætti dagsins eru Kristinn Kærnested, Svanhvít og Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals í handbolta í spjalli hjá mér. Besta deildin og öll stóru atriðin um helgina eru tekin fyrir. Meistaradeildin, Evrópudeildin, Víkingur í Sambandsdeildinni, fréttir og slúður og svo Evrópudeildin í handbolta. Ein lítil Krummasaga læðist þarna innan um líka. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins....

957.þáttur. Mín skoðun. 18102024 18.10.2024

Í þætti dagsins er mikið fjör. Svanhvít er á línunni sem og Viðar Örn Hafsteinsson þjálfari Hattar í körfubolta. Þá spjalla ég við Þórhall Dan. Besta deildin fer aftur af stað sem og enski boltinn. Verður Ten Hag rekinn um helgina? Viðar tjáir sig um atvikið í gær í hálfleik í leiknum gegn Grindavík og fleira til. Laugardalsvöllur er til umræðu, Börkur í Val, Olísdeildin í handbolta og margt, marg...

956.þáttur(Aukaþáttur). Mín skoðun. 16102024 16.10.2024

Heil og sæl og velkomin í þennan aukaþátt þar sem viðtal er við Edvard Börk Edvardsson eða bara Börk í Val. Hann hefur nú ákveðið að láta gott heita sem formaður og er frá og með 21.október hættur eftir 21 ár. Margir titlar, mikil vinna, breyttir tímar, brottrekstrar þjálfara, laun leikmanna, umhverfið í dag og margt fleira er það sem við tölum um. Njótið og takk Börkur. Og takk BK-kjúklingur fyri...

955.þáttur. Mín skoðun. 15102024 15.10.2024

Í þætti dagsins er nóg um að vera. Guðjón Þórðarson er á línunni og við förum yfir leiki íslenska karlalandsliðsins gegn Wales og Tyrklandi. Svanhvít er svo í spjalli um landsleikinn gegn Tyrklandi, Bónusdeildirnar í körfubolta, Sir Alex Ferguson og Man. Utd. og Kylian Mbappe ásamt Thomas Tuchel. Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH er svo í spjalli þar sem við förum yfir leikina í Evr...

954.þáttur. Mín skoðun. 11102024 11.10.2024

Í þætti dagsins er nóg um að vera. Landsliðsmál í fótbolta eru rædd(A-liðið og U-21), handboltinn hér heima, dómgæsla og fleira og svo körfuboltaumræða. Einnig förum við í aðra landsleiki í Þjóðadeildinni ásamt fleiru. Svanhvít, Kristinn Kærnested og Ásgeir Örn Hallgrímsson þjálfari karlaliðs Hauka í handbolta eru viðmælendur dagsins. Njótið og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur. 

953.þáttur. Mín skoðun. 08102024 08.10.2024

Í þætti dagsins er komið víða við með þeim Kristni Kærnested og Svanhvíti. Besta deildin, enski boltinn, Bónus deildirnar í körfubolta, handboltinn hér heima, fréttir af Ten Hag, Krummasaga og margt, margt fleira. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur. 

952.þáttur. Mín skoðun. 04102024 04.10.2024

Í þætti dagsins eru fimm viðmælendur. Guðjón Þórðarson um Bestu-deild karla, Víking í evrópukeppninni og landsliðið. Einar Jónsson þjálfari karlaliðs Fram í handbolta um leiki gærdagsins og í kvöld ásamt fleiru t.d umfjöllun fjölmiðla, dómara og sitthvað fleira. Agla María Albertsdóttir(Breiðabliki) og Anna Rakel Pétursdóttir(Val) eru svo á línunni um úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn í fó...

951.þáttur. Mín skoðun. 01102024 01.10.2024

Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Kristni Kærnested og Svanhvíti. Við förum um víðan völl skal ég segja ykkur. Bestadeildin, Afturelding, enski boltinn, meistaradeildin, Krummasaga er varðar KR, Bónusdeildirnar í körfubolta, Olísdeildirnar í handbolta og sitthbað fleira. Njótið vel og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur. 

950.þáttur. Mín skoðun. 27092024 27.09.2024

Í þætti dagsins er komið víða við. Haraldur Hróðmarsson þjálfari Grindavíkur ræðir við mig um úrslitaleikinn í Lengjudeildinni sem og úrslitaleikinn í fótbolta.net bikarnum og Bestu deildina.  Við spáum í fleiri hluti eins og hvar verður heimavöllur Grindavíkur á næstu leiktíð? Svanhvít er á línunni og við tölum um enska boltann, Bestu deildina, og spáin fyrir körfuboltann svo eitthvað sé nefnt. Þ...

949.þáttur. Mín skoðun. 24092024 24.09.2024

Heil og sæl. Í dag heyri í Hallgrími Jónassyni þjálfara bikarmeistara KA og ég skal bara segja ykkur að það hann er virkilega skemmtilegur viðmælandi. Þórhallur Dan er á línunni og við tölum um íslenska boltann, Dag Dan í Orlando, evrópuboltann og sitthvað fleira. Tóti Dan er svo skemmtilegur. Svanhvít er í spjalli og við förum yfir íslenska boltann, Olísdeildina í handbolta, Lengjudeildina, evróp...

948.þáttur. Mín skoðun. 20092024 20.09.2024

Heil og sæl. Í dag heyri ég í Kristni Kærnested og við spjöllum um boltann hér heima, bikarúrslitaleikinn á morgun, Bestu deildina, enska boltann og margt fleira.  Sigursteinn Arndal þjálfari FH í handbolta er svo á línunni og við ræðum um FH og handboltann hér heima ásamt því að hita aðeins upp fyrir evrópuleikina hjá þeim en Gummarsbach kemur hingað heim 15.október. Þá heyri ég í Svanhvíti og vi...

947.þáttur. Mín skoðun. 16092024 16.09.2024

Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag heyri ég í Björgvini Þór Rúnarssyni handboltasérfræðingi og við förum yfir málin í boltanum hér heima og ræðum einnig aðeins um útsendingar í sjónvarpi. Hermann Hreiðarsson þjálfari ÍBV í knattspyrnu karla er ánægður eftir að ÍBV tryggði sér um helgina réttinn til að leika í Bestu deildinni. Verður Hemmi áfram þjálfari liðsins? Við ræðum einnig um umspilið...

946.þáttur. Mín skoðun. 13092024 13.09.2024

Heil og sæl. Í dag spjalla ég við Þórhall Dan, Halldór Jóhann Sigfússon þjálfara HK í handbolta og Svanhvíti. Við tölum um Bestu deildir karla og kvenna, Olísdeild karla, Lengjudeildina, enska boltann, aganefnd KSÍ, fréttir og slúður og svo margt margt fleira. Njótið og eigið þið góða helgi. Takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur. 

945.þáttur. Mín skoðun. 10092024 10.09.2024

Heil og sæl. Í dag eru þrír viðmælendur. Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari karlaliðs Vals í handbolta fer yfir leiki liðsins í evrópukeppninni en Valur var í skrautlegum leik í Króatíu sem tryggði þeim rétt til að leika í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Guðjón Þórðarson fyrrum landsliðsþjálfari í fótbolta er á línunni um landsleikina gegn Svartfjallandi og Tyrklandi og þar er ekki töluð vitleysan sk...

944.þáttur. Mín skoðun. 06092024 06.09.2024

Heil og sæl. Í þætti dagsins er nóg um að tala með viðmælendum mínum, þeim Gunnari Magnússyni þjálfara Aftureldingar í handbolta, Svanhvíti og Kristni Kærnested. Olísdeildin, dómgæsla, hvernig koma liðin til leiks í handboltanum og fleira til. Lengjudeildin í fótbolta karla og kvenna. U21 árs landsliðið okkar og svo A-landsliðið. Við spáum í leikina. Hvað hafa íslensku karlaliðin sem eru í evrópuk...

943.þáttur. Mín skoðun. 03092024 03.09.2024

Heil og sæl. Nú eru græjurnar loksins komnar í lag og í þætti dagsins er ég með spjall við Kristin Kærnested, Þorvald Örlygsson og Svanhvíti. Það er nóg um að tala. Íslenski boltinn, enski boltinn, nýr Laguardalsvöllur, vinningshafar í BK-tippleiknum okkar, fréttir og slúður og margt fleira. Endilega að breiða út boðskapinn og takk fyrir að hlusta. Takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur. 

942.þáttur. Mín skoðun. 30082024 30.08.2024

Heil og sæl. Loksins loksins er kominn nýr þáttur. Vegna bilunar í tækjabúnaði varð smá hlé hjá okkur en nú er þetta, eða á að vera komið í lag. Böddi Bergs og Svanhvít spá í spilin með mér í dag. Besta deild karla og Besta deild kvenna. Lengjudeildin, enski boltinn, íslenska karla landsliðið í fótbolta eru til umræðu. Fréttir og slúður úr boltanum, Orri Steinn og svo margt margt fleira. Njótið og...

941.þáttur. Mín skoðun. 22082024 22.08.2024

Velkomin til leiks. Þáttur dagsins er óvenjulegur að mörgu leiti. Hann er tekinn upp í gær miðvikudag og í dag. Í gær talaði ég við Andra Stein Birgisson og Svanhvíti. Lengjudeildin, Besta deildin, Víkingur í evrópukeppninni og enski boltinn. Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar KR er svo á línunni í dag vegna kæru KR útaf framkvæmd leiksins HK-KR en dómstóll KSÍ kvað upp úrskurð sinn í m...

940.þáttur. Mín skoðun. 15082024 15.08.2024

Heil og sæl. Í þætti dagsins spá fimm spekingar í ensku úrvalsdeildina sem hefst á morgun og setjá liðin í sæti. Kristinn Kærnested, Þorvaldur Örlygsson, Svanhvít Valtýs, Þórhallur Dan og Haraldur Hannesson(Halli í BK) eru spekingarnir miklu.  Auk þess er spjallað um íslenska boltann, Bestu deildina og úrslitlaeik kvenna í bikarnum og Víking í Sambandsdeildinni. Þá eru tvær Krummasögur í þætti dag...

Listen to the Mín skoðun podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.