Valtýr Björn
Mín skoðun
Podcast með Valtý Birni
Author
Valtýr Björn
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 3, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
440.þáttur. Mín skoðun. 08112021 08.11.2021 51:22
Í dag förum ég og Þórhallur Dan yfir sportið um helgina. Man. Utd.-Man. City, West Ham-Liverpool og Milan-Inter. Það gekk mikið á í þessum leikjum. Er Solskjaer á förum frá United? Tveir stjórar voru reknir um helgina í ensku úrvalsdeildinni. Enn tapar Mourinho. Fréttir og slúður og margt fleira. Njótið og lifið heil.
439.þáttur. Mín skoðun. 05112021 05.11.2021 1:10:51
439.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Það er nóg um að vera í þætti dagsins. Valur var í gær að fá tvo flotta leikmenn til sín fyrir átökin næsta sumar. Aron Jóhannsson er komin heim úr atvinnumennsku og garðbæingurinn Heiðar Ægisson ákvað að skipta yfir í Val. Ég ræði ítarlega við þá kappa. Þar á eftir hringi ég í Þórhall Dan og við förum um víðan völl. Evrópudeildin, enski b...
438.þáttur. Mín skoðun. 04112021 04.11.2021 38:52
438.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Landsliðshópur karla í fótbolta, sem mætir Rúmeníu og N-Makedóníu í undankeppni HM, var valinn í dag. Við Þórhallur Dan förum yfir valið og Tóti Dan segir sína skoðun á valinu ásamt fleiru. Við ræðum um meistaradeildina en Tóti var óvenju getspakur í gær og við tölum einnig um evrópudeildina en fjölmargir leikir eru þar. Valsmenn koma við sögu og svo fréttir og...
437.þáttur. Mín skoðun. 03112021 03.11.2021 43:25
437.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Þátturinn í dag er fjörugur að vanda. Þórhallur Dan er í stuði og er ekki sáttur með leik sinna manna í Man. Utd. Við förum yfir meistaradeildina í gær og það sem er framundan í dag. Krummasögur eru á sínum stað og þar tölum við aðeins um Val. Njótið og lifið heil.
436.þáttur. Mín skoðun. 02112021 02.11.2021 47:04
436.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir málin í sportinu. Emil Pálsson knattspyrnukappi fær okkar bestu kveðju, bikarinn í körfubolta, þjálfararnir Conte og Emery koma við sögu, við förum í leikina í meistaradeildinni og Krummasaga dagsins kemur úr handboltanum. Njótið og lifið heil.
435.þáttur. Mín skoðun. 01112021 01.11.2021 53:02
435.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Það er nóg um að vera í dag. Ég og Þórhallur Dan förum yfir sviðið um helgina. Enski boltinn, Tottenham, Man. Utd, Liverpool, West Ham, Man. City og fleira. Er Conte að taka við Tottenham? Ítalski boltinn, Milan vann og Zlatan er einstakur. Messi og Barcelona koma við sögu, Krummasögur eru svo á sínum stað og góðir bitar þar á ferð. Þetta og margt fleira. Njóti...
434.þáttur. Mín skoðun. 29102021 29.10.2021 1:05:00
434.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég fyrst í Þórhall Dan og við ræðum um tvær skeytasendingar sem mér barst á messenger á Mín skoðun á Facebook. Krummasaga dagsins kemur úr röðum stjórnar KSÍ. Við förum yfir körfuboltann og handboltann. Ræðum um leiki helgarinnar og margt fleira. Tippari vikunnar er enginn annar en Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Símans og leikari með meiru. Mi...
433.þáttur. Mín skoðun. 28102021 28.10.2021 50:51
433.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í gær var ótrúlegur dagur í sportinu og þá einkum í fótboltanum. Koeman rekinn frá Barca, Juve tapaði enn og aftur, Man. City var slegið út úr deildarbikarnum eftir að hafa unnið þá keppni s.l. fjögur ár, stærsti ósigur Bayern frá 1978 leit dagsins ljós í gær og margt fleira þarna. Krummasögur eru í dag og þær snúa að stjórn KSÍ og formannskjöri ásamt sögu Tót...
432.þáttur. Mín skoðun. 27102021 27.10.2021 52:00
432.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan ræðum um margt í dag. Við byrjum á landsleiknum í gær þar sem stelpurnar okkar völtuðu yfir Kýpur. Síðan förum við í stjórn og nefndir KSÍ og öll þau mál. Tölum um ítalska boltann og einnig þann enska. Nýtt í máli Arons Einars og Eggerts Gunnþórs og förum svo í fréttir og slúður. Njótið og lifið heil.
431.þáttur. Mín skoðun. 26102021 26.10.2021 47:16
431.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag ræðum ég og Þórhallur Dan um landsleik Íslands og Kýpur í undankeppni HM kvenna í fótbolta og spáum í úrslitin. Þá tölum við nokkuð mikið um stöðuna hjá Manchester United. Er Conte að fara að taka við eða verður Solskjær áfram? Við tölum einnig um deildarbikarinn í kvöld, förum aðeins í ítalska boltann og svo fréttir og slúður. Er Salah að leika si...
430.þáttur. Mín skoðun. 25102021 25.10.2021 50:55
430.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan spjöllum saman í þætti dagsins. Við tölum um stórleikinn um helgina á milli Man. United og Liverpool. Hvað er til ráða hjá United? Við spjöllum einnig um um önnur lið í deildinni, svosem West Ham, Chelsea, Tottenham og fleiri. Þá förum við yfir gang mála á Spáni, Ítalíu, Frakklandi, Þýskalandi, Danmörku og víða. Kvenna...
429.þáttur. Mín skoðun. 22102021 22.10.2021 1:07:25
429.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í fyrra viðtali dagsins ræðum ég og Þórhallur Dan um sportið vítt og breytt. Körfuboltinn hér heima, stjórn KSÍ og kosning varaformanns, ÍTF (íslenskur toppfótbolti), kvennalandslið sem mætir tékkum í kvöld í undankeppni HM, Mourinho og hans menn voru teknir í kennslustund af Bodo/Glimt í gær, enski boltinn, þýski handboltinn, fréttir og slúður og margt...
428.þáttur. Mín skoðun. 21102021 21.10.2021 43:05
428.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan ræðum um ýmislegt í dag. Meistaradeildina í gær og Man. United. Tóti er ekki ánægður með sína menn skal ég segja ykkur. FIFA listi karla og kvenna er tekinn fyrir en íslenska karlalandsliðið er í frjálsu falli á listanum. Hver verður næsti stjóri Newcastle. Fréttir og slúður og margt fleira. Njótið.
427.þáttur. Mín skoðun. 20102021 20.10.2021 46:31
427.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan um víðan völl í boltanum. Meistaradeildin í gær og í dag er tekin fyrir og Tóti er ánægður með settið hjá Viaplay í keppninni þar sem Sigurður Hrannar Björnsson, Rúrik Gíslason og Freyr Alexandersson voru í gær. Brottrekstur Steve Bruce frá Newcastle og hverjir eru nefndir sem arftakar og þar eru nokkur athyglisverð nöfn. Við ræ...
426.þáttur. Mín skoðun. 19102021 19.10.2021 44:16
426.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson. Við komum víða við. Tölum um AGF og Jón Dag Þorsteinsson, Heimi Hallgrímsson, Þrótt Vogum sem var að fá nýjan þjálfara og förum aðeins í Lengjudeildina. Meistaradeildin í dag er tekin fyrir, fótboltinn hér heima og Krummasögur. KSÍ og staða yfirmanns knattspyrnumála og margt og mikið meira er tekið fyrir í dag. Njótið.
425.þáttur. Mín skoðun. 18102021 18.10.2021 55:31
425.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan förum yfir sviðið í sportinu. Víkingur varð um helgina bikarmeistari, við tölum um Bundesliguna í fótbolta og handbolta, enska boltann, ítalska boltann, íslensku liðin í evrópukeppninni í handbolta og svo margt margt fleira. Því næst hringi ég svo til Þýskalands og heyri í handboltasnillingnum Ómari Inga Magnússyni leikmanni Magdeburg...
424.þáttur. Mín skoðun. 15102021 15.10.2021 1:02:42
424.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan hefjum leik í þætti dagsins. Við tölum um haukastelpur í evrópukeppninni í körfubolta, handbolta, enska boltann, bikarúrslitaleikinn á morgun á milli ÍA og Víkings, ráðningu nýs þjálfara hjá Stjörnunni og fréttir og slúður og margt fleira. Tippari vikunnar er enginn annar en Logi Bergmann, sá bráðskemmtilegi maður. Hann er Man. United aðdáan...
423.þáttur.Mín skoðun. 14102021 14.10.2021 37:43
423.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan förum yfir sportið í dag. Við ræðum um blikastelpur sem kepptu í gær í meistaradeild Evrópu gegn Real Madrid. Við tölum einnig um haukastelpur sem í kvöld brjóta blað í íslenskri körfuboltasögu þegar þær mæta franska liðinu Villeneuve d’Ascq í Euro Cup en leikið verður á Ásvöllum. Við tölum einnig um fangelsisdóm Lucas Hernandez leikmanns Fr...
422.þáttur. Mín skoðun. 13102021 13.10.2021 42:31
422.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan Jóhannsson förum í dag yfir víðan völl í spjalli okkar. Við byrjum á að fara í U-21 árs landsleik Íslands og Portúgals sem fór fram í gær. Því næst förum við í KSÍ mál og nýtt bréf sem stjórn sambandsins barst 27.september varðandi meint ofbeldi landsliðsmanna. Þar á eftir tölum við um leik Real Madrid og Breiðabliks í meistaradeild kvenna e...
421.þáttur. Mín skoðun. 12102021 12.10.2021 44:01
421.þáttur. Mín skoðun. Góðan daginn. Ég og Þórhallur Dan förum í dag yfir landsleikinn í gær. Tóti segir sitt mat á leik liðsins og dregur ekkert undan að vanda. Við ræðum einnig um 21.árs liðið sem mætir Portúgal í dag á Víkingsvellinum og við erum bara nokkuð bjartsýnir fyrir hönd okkar pilta. Við spjöllum einnig um handboltann í gær og svo förum við í fréttir og slúður og Tóti er ekki alveg sá...
420.þáttur. Mín skoðun. 11102021 11.10.2021 51:48
420.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan víða. Við ræðum um íslenska karlalandsliðið í fótbolta. Förum yfir leikinn gegn Armeníu, tökum fyrir leikinn í kvöld og einnig hvað er að gerast með liðið okkar. Við ræðum einnig um innviði KSÍ, Ómar Ingi handboltakappi kemur við sögu og svo margt margt fleira. Tóti talar út úr skegginu í dag. Njótið.
419.þáttur. Mín skoðun. 08102021 08.10.2021 45:58
419.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag ræði ég við Þórhall Dan Jóhannsson og við förum um víðan völl. Tölum um stjórn KSÍ, formann KSÍ, Breiðablik-PSG í meistaradeild kvenna og spyrjum afhverju var leikurinn ekki sýndur í sjónvarpi á Íslandi. Við förum aðeins í þjálfaramál og tökum fyrir eigendaskipti Newcastle og svo að sjálfsögðu landsleik Íslands og Armeníu. Tóti still...
418.þáttur. Mín skoðun. 07102021 07.10.2021 1:02:31
418.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag byrja ég á að heyra í Hannesi S. Jónssyni formanni KKÍ. Við ræðum um nýjan styrktaraðila sambandsins, tölum um fjárhagsstöðuna og svo um stöðuna á heimaleikjum karla-og kvennalandsliðanna okkar. Verður t.d. leikurinn gegn Rússlandi í HM karla sem á að fara fram í nóvember hér heima, leikinn á erlendis? Því næst heyri ég í Benedikt Guðmundssyni þjál...
417.þáttur. Mín skoðun. 06102021 06.10.2021 56:33
417.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég í Ásthildi Helgadóttur og við ræðum um leik Breiðabliks og PSG í meistaradeild kvenna í fótbolta en leikur liðanna fer fram á Kópavogsvelli. Ásthildur útskýrir í viðtalinu hvert ljósmagnið af flóðljósunum á vellinum þarf að vera til að UEFA samþykki en Breiðablik fékk undanþágu frá UEFA. Þá hringi ég í Þórhall Dan og við förum um víðan völl að v...
416.þáttur. Mín skoðun. 05102021 05.10.2021 34:51
416.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan spjöllum saman í dag. Við förum í KSÍ mál, landsliðið, landsliðsval, Krummasögur, enska boltann og Sir Alex og tölum einnig um nýjan formann KSÍ og svo margt margt fleira. Njótið.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.