Valtýr Björn
Mín skoðun
Podcast með Valtý Birni
Author
Valtýr Björn
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 3, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
653.þáttur. Mín skoðun 15092022 15.09.2022 38:17
653.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um meistaradeildina í fótbolta og einnig um evrópudeildina og sambandsdeildina sem eru í kvöld. Við tölum um Heimi Hallgríms, handboltann hér heima, fréttir og slúður og margt fleira. Njótið.
652.þáttur. Mín skoðun 14092022 14.09.2022 34:54
652.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan yfir gang mála í meistaradeildinni í fótbolta, bæði í gær og í dag. Aganefd úrskurðaði leikmenn í bann í gær fyrir lokaumferðina um næstu helgi. Það verða þjálfaraskipti hjá Vestra, fréttir og slúður eru á sínum stað og margt fleira. Njótið.
651.þáttur. Mín skoðun. 13092022 13.09.2022 33:32
651.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag fjöllum við Þórhallur Dan um ýmislegt. Heimir Hallgrímsson kemur við sögu, Ronaldo, Keflavík-Víkingur og meistaradeildin í kvöld þar sem við spáum í leiki kvöldsins. Fréttir og slúður og fleira til. Njótið.
650.þáttur. Mín skoðun 12092022 12.09.2022 41:56
650.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum við Þórhallur Dan yfir næst síðustu umferð deildarkeppni Bestu deildarinnar. Það gekk svo sannarlega mikið á í gær. Við fjöllum einnig um Lengjudeildina þar sem Fylkir er sigurvegari og svo ótrúlegan leik Juventus og Salernitana í ítalska boltanum í gær. Þetta og margt fleira. Njótið.
649.þáttur. Mín skoðun 09092022 09.09.2022 51:16
649.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan um víðan völl. Besta deildin og leikir sunnudagsins, Graham Potter er nýr stjóri Chelsea og svo er það enski boltinn. Við spjöllum um heitar umræður sem eiga sér stað í Hafnarfirði um nýtt knatthús Hauka þar sem formaður FH er ekki sáttur með verðmiðann á húsinu. Þetta og margt fleira. Njótið helgarinnar.
648.þáttur. Mín skoðun. Aukaþáttur um Olísdeildina 08092022 08.09.2022 41:53
648.þáttur. Mín skoðun. Aukaþáttur um Olísdeildina. Heil og sæl. Í dag hefst keppni í Olísdeild karla í handbolta. Ég hringdi í tvo sérfærðinga, þá Björgvin Þór Rúnarsson og Hreiðar Leví Guðmundsson, og bað þá að spá fyrir um deildina í vetur. Þeir raða niður liðunum og spá í spilin með mér. Njótið.
647.þáttur. Mín skoðun. 08092022 08.09.2022 30:22
647.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins tölum við Þórhallur Dan um Bestu deild karla og stórsigur Víkings á Leikni í gær. Liverpool steinlá í meistaradeildinni í gær og tölum um meistaradeildina sem og leiki dagsins í evrópudeildinni og sambandsdeildinni. Fréttir og slúður eru á sínum stað þar sem Chelsea er að fá nýjan þjálfara. Njótið.
646.Þáttur. Mín skoðun 07092022 07.09.2022 32:50
646.Þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir það helsta í sportinu. Kvennalandsliðið okkar tapaði í gær fyrir Hollandi í undakeppni HM og umspil bíður okkar liðs. Meistaradeildin fór á fullt í gær og Chelsea tapaði óvænt í Zagreb og nú í morgun var Thomas Tuchel stjóri Chelsea rekinn. Besta deildin, Nökkvi Þeyr og fleira til í þætti dagsins. Njótið.
645.þáttur. Mín skoðun. 06092022 06.09.2022 35:14
645.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um leik Breiaðbliks og Vals í gær. Kvennalandsliðið mætir Hollandi í dag í úrslitaleik í undankeppni HM. Meistaradeildin fer af stað í dag. Hver verður yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ? Þetta og margt fleira. Áfram Ísland.
644.þáttur. Mín skoðun. 05092022 05.09.2022 35:53
644.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan yfir leikina í Bestu deildinni um helgina þar sem var mikið fjör. Kvennalandsliðið vann Hvíta-Rússland og fer í úrslitaleik á morgun gegn Hollandi. Enski boltinn og VAR er ekki gott samband. Það var hreinlega allt vitlaust um helgina. Milan vann Inter og Valur er meistari meistaranna í handboltanum. Njótið.
643.þáttur. Mín skoðun. 02092022 02.09.2022 35:51
643.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir kvennalandsleikinn í dag á milli Íslands og Hvíta-Rússlands í undankeppni HM. Við tölum um Mjólkurbikarinn þar sem FH er komið í úrslit gegn Víkingi og við tölum um leiki helgarinnar í Bestu deildinni. Enski boltinn, leikmannaglugginn og leikir helgarinnar. Milan-Inter og margt fleira. Njótið helgarinnar.
642.þáttur. Mín skoðun. 01092022 01.09.2022 27:59
642.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan yfir undanúrslitin í Mjólkurbikarnum en Víkingur vann Breiðablik í gær og FH og KA mætast í dag. Erling Haaland er að slá í gegn í enska boltanum og valskonur fá tékknesku meistarana í næstu umferð meistaradeildarinnar. Geir Þorsteinson vandar KSÍ ekki kveðjurnar í pistli um 2.deild kvenna. Þetta og margt fleira. Njótið.
641.þáttur. Mín skoðun. 31082022 31.08.2022 34:05
641.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir mörg mál. Enski boltinn er á sínum stað og við tölum aðeins um Erling Haaland. Breiðablik og Víkingur mætast í kvöld í undanrúslitum Mjólkurbikarsins. Hvar stendur KSÍ ári eftir að formaður sambandsins sagði af sér? Afhverju er UEFA Pro gráða nausðynleg til að geta sótt um stöðu yfirmanns fótboltamála hjá KSÍ? Þett...
640.þáttur. Mín skoðun. 30082022 30.08.2022 38:05
640.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag tölum við Þórhallur Dan um nýja varabúninginn hjá landsliðunum í fótbolta? Besta deild karla er til umfjöllunar, enski boltinn þar fyrsti þjálfarinn var rekinn í dag og margt fleira. Njótið.
639.þáttur. Mín skoðun. 29082022 29.08.2022 47:35
639.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag er nóg um að tala hjá mér og Þórhalli Dan. Besta deild karla, Lengjudeildin, Valur bikarmeistari og Ísland vann Úkraínu í undankeppni HM í körfubolta. Er VAR ekkert á leiðinni til Íslands í fótboltanum? Rory McIlroy vann Fedex golfmótið og um leið 18 milljónir dollara. Enski boltinn er á sínum stað og margt margt fleira. Njótið.
638.þáttur. Mín skoðun. 26082022 26.08.2022 42:26
638.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag komum við Þórhallur Dan víða við. Mál Arons Einars og Eggerts Gunnþórs er til umfjöllunar. Körfuboltalandsliðið, meistaradeildin, Besta deildin og Lengjudeildin eru tekin fyrir sem og úrslitaleikur Breiðabliks og Vals í Mjólkurbikar kvenna. Þetta og margt fleira. Njótið helgarinnar.
637.þáttur. Mín skoðun. 25082022 25.08.2022 31:17
637.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag fjöllum við Þórhallur Dan um mál stúlku í Skautafélagi Akureyrar sem varð fyrir áreitni þjálfara síns og hvernig ÍSÍ tók á málinu eða réttara sagt tók ekki á málinu. Við tölum um körfuboltalandslið karla, evrópuboltinn er á sínum stað, slúður og margt fleira. Njótið.
636.þáttur. Mín skoðun. 24082022 24.08.2022 37:32
636.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um starf yfirmanns knattspyrnumála hjá KSÍ sem er laust til umsóknar. Besta deild kvenna er til umfjöllunar sem og Lengjudeild karla en Fylkir er nánast öruggt í Bestu deildina á næstu leiktíð. Við svörum vangaveltum sem komu í gegn Facebook síðu þáttarins(Mín skoðun á Facebook) og margt fleira. Njótið.
635.þáttur. Mín skoðun. 23082022 23.08.2022 36:58
635.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag fjöllum við Þórhallur Dan um leikina í Bestu deild karla í gær en nú eru fjórar umferðir eftir af deildinni áður en til skiptingar í deildinni kemur til þar sem fimm leikjum er bætt við á hvert lið. Við tölum einnig um Man. Utd.-Liverpool og förum síðan í leiki Lengjudeildarinnar sem eru í kvöld. Njótið.
634.þáttur. Mín skoðun. 22082022 22.08.2022 43:53
634.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag komum við Þórhallur Dan víða við. Valur í meistaradeild kvenna, enski boltinn um helgina og svo stórleikur Man. Utd. og Liverpool í kvöld. Besta deildin er tekin fyrir um helgina og svo leikir kvöldsins. Við spáum í spilin og tölum svo að lokum um uppákomuna sem átti sér stað í leik HK og Breiðabliks síðasta föstudag. Njótið.
633.þáttur. Mín skoðun. 19082022 19.08.2022 43:31
633.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins tökum við Þórhallur Dan ýmislegt fyrir. Það er loksins komin endanleg niðurstaða í lengd samnings landsliðsþjálfara A-liðs karla í fótbolta. Við tökum fyrir áfrýjun KA vegna leikbanns Arnars Grétarssonar. Víkingur er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins og Breiðablik mætir HK í kvöld. Enski boltinn, Besta deild karla, Lengjudeildin, meistaradeil...
632.þáttur. Mín skoðun. 18082022 18.08.2022 35:51
632.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag komum við Þórhallur Dan víða við. Boltakrakkar á leikjum eru til umræðu, meistaradeild kvenna, Lengjudeildin, bestu leikmenn og þjálfarar Evrópu, Víkingur-KR í Mjólkurbikarnum og við svörum fyrirspurn sem kom á Mín skoðun á Facebook. Þetta og margt fleira. Njótið.
631.þáttur. Mín skoðun. 17082022 17.08.2022 39:24
631.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum við Þórhallur Dan um víðan völl. Besta deild kvenna, evrópuboltinn, FCK og Bodö/Glimt, aganefnd KSÍ og við spyrjum afhverju íslenska A-landslið karla er að fara að leika æfingaleik við Sádí Arabíu. Við förum svo aðeins í slúðrið og fleira til. Njótið.
630.þáttur. Mín skoðun. 16082022 16.08.2022 46:21
630.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag fjöllum við Þórhallur Dan um Bestu deild karla. 17 umferðum er nú lokið og það var stórmeistara jafntefli í Kópavogi í gær. Við tölum einnig um aganefnd KSÍ, Bestu deild kvenna, 2.deild karla, enska boltann og förum aðeins í slúðrið. Njótið.
629.þáttur. Mín skoðun. 15082022 15.08.2022 46:19
629.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir gang mála í enska boltanum og ræðum um dapurt gengi Man. Utd. Besta deildin er til umfjöllunar. Enn tapa FH og ÍA og svo er stórleikur í kvöld þegar Breiðablik og Víkingur mætast. Lengjudeildin er einnig til umræðu og margt fleira. Njótið.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.