RÚV

Mannlegi þátturinn

Society IS ↓ 578 episodes

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Heilaheilsa, Hvernig varð ég til, veðurspjallið 27.02.2024

Heilaheilsa og þjálfun hugans er nafn á námskeiði sem Ólína G. Viðarsdóttir, sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum við HÍ stýrir á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. Á námskeiðinu er fjallað um heilann og hugarstarf og markmiðið er að þáttakendur öðlist þekkingu á hugrænum þáttum og hvaða hlutverki þeir gegna í okkar daglega lífi. Einnig að þeir öðlist betri innsýn í eigin hugræna styr...

Ímynd tengdamæðra, vinkill og Nanna Hlín lesandinn 26.02.2024

Í dag verður flutt dálítið óvenjulegt erindi í Fræðakaffi á Borgarbókasafninu í Spönginni en yfirskrift þess er Ímynd tengdamæðra og það er þjóðfræðingurinn og skagfirðingurinn Eiríkur Valdimarsson sem mun flytja það. Í fréttatilkynningu segir: Af einhverjum ástæðum eru til ógrynni af bröndurum og skopmyndum þar sem tengdamæður eru gjarnan hafðar að háði og spotti. Þetta skemmtiefni byggir á ímynd...

Óttar Guðmundsson föstudagsgestur og matarspjall um vonina 23.02.2024

Óttar Guðmundsson geðlæknir og rithöfundur var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hann hefur skrifað fjölmargar bækur, blaðagreinar og hefur verið fastur penni hér og þar í fjölmiðlaheiminum. Hann hefur auðvitað lengi látið sig geðheilbrigðismál varða, vímuefnamálin og transmálin, en hann hlaut hlaut heiðursmerki Samtakanna 78 árið 2012. Óttar hefur stundum verið umdeildur en alltaf óhræddur við að v...

Skátahreyfingin, stytting menntaskólanámsins og móðurmálin 22.02.2024

Þankadagurinn eða World Thinking Day er í dag og er dagur alþjóðlegrar vináttu þar sem skátar út um allan heim hugsa hlýtt til annarra skáta og senda þakklæti út í heiminn. Haldið hefur verið upp á þankadaginn á hverju ári síðan 1926. Harpa Ósk Valgeirsdóttir Skátahöfðingi Íslands og Kolbrún Ósk Pétursdóttir móttstjóri Landsmóts skáta komu í þáttinn í dag og sögðu okkur frá skátahreyfingunni, þank...

Solihull aðferðin, íslensk strandmenning og eldsumbrotin 21.02.2024

Solihull er aðferð sem snýst um snemmtæka íhlutun, aðgerðir og vinnulag til að auka geð- og tilfinningaheilbrigði ungra barna og foreldra. Við fræddumst í dag um þessa aðferð þegar Gunnlaug Thorlacius, yfirfélagsráðgjafi Landspítalans og formaður Geðverndarfélags Íslands, kom í þáttinn ásamt Kjartani Valgarðssyni framkvæmdastjóra félagsins einmitt til þess að fræða okkur um Solihull aðferðina. Fra...

Barnaheill, búddismi og tónlist, gerendur stafræns ofbeldis 20.02.2024

Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem hafa í 35 ár unnið að mannréttindum barna víðs vegar um heiminn. Tótla I. Sæmundsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Barnaheilla kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá helstu verkefnum samtakanna um þessar mundir, til dæmis á vettvangi í Gaza og Tyrklandi, eftir að stóri jarðskjálftinn reið þar yfir. Hún er nýkomin af fundi framkvæmdast...

Knapi ársins, vinkill um matarhefðir og Gústav Adolf lesandinn 19.02.2024

Við hófum Mannlega þáttinn að þessu sinni á að slá á þráðinn til hestamanns á Hvolsvelli og forvitnast um hvaða verkefni eru efst á baugi í hesthúsinu um þessar mundir. Er búið að taka inn, hvað eru margir hestar á húsi, hvenær þarf að moka út og gefa og hvaða stóru viðburðir eru framundan hjá hestafólki? Á línunni til svara var nýkrýndur knapi ársins og tamningamaðurinn Elvar Þormarsson. Við feng...

Sigríður Thorlacius föstudagsgestur og matarspjall um meðlæti 16.02.2024

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan Sigríður Thorlacius. Flest tókum við líklega fyrst eftir henni í hljómsveitinni Hjaltalín, en ferill hennar er gríðarlega fjölbreyttur. Hún hefur meðal annars sungið í tríóinu GÓSS, með Tómasi R. Einarssyni, Bógómil Font, Heiðurspiltum og Uppáhellingunum bara til að nefna nokkur verkefni. Hún hefur fengið Íslensku tónlistarverðlaunin, b...

Ásta og yoga, Bergþóra Árnadóttir, Ásmundur um kvíðaröskun 15.02.2024

Ásta Þórarinsdóttir var aðeins 11 ára þegar hún fór í sinn fyrsta yogatíma. Hún er hagfræðingur með master í fjármálafræði og var að vinna í Fjármálaeftirlitinu þegar hún ákvað að sameina áhuga sinn á rekstri og Yoga og í dag er hún Yogakennari og rekur eigin yogastöð. Við töluðum við Ástu í þættinum í dag. Bergþóra Árnadóttir, tónlistarkona, söngvaskáld og ein af frumkvöðlum vísnatónlistar á Ísla...

Innflytjendaumræða með Jasminu Vajzovic og póstkort 14.02.2024

Jasmina Vajzovic vakti mikla athygli í umræðuþættinum Torgið sem var í beinni útsendingu fyrir rúmri viku hér í Sjónvarpinu. Þar var rætt um hvernig okkur hefur gengið í inngildingu þegar kemur að innflytjendum, auk þess sem rædd voru málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks. Jasmina er stjórnmálafræðingur og hefur áralanga reynslu af því að vinna í þessum málefnum innflytjenda, hælis...

Ráðstefna Öldrunarráðs, Palli og Super 8 og veðurspjallið 13.02.2024

Þann 28.febrúar verður Öldrunarráð Íslands með ráðstefnu með yfirskriftina Þarft þú að skipta um lykilorð - að eldast á viðsjárverðum tímum. Þar verða flutt erindi um til dæmis netöryggi, viðbrögð við netbrotum, ofbeldi sem aldraðir eru sérstaklega útsettir fyrir og hvaða aðstoð og hjálp eru í boði. Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, forstöðumaður Droplaugarstaða Hjúkrunaheimilis og formaður Öldrun...

Björgvin Franz, vinkill og María Hjálmtýsd. lesandinn 12.02.2024

Okið undan sjálfum mér er hreinskilinn fyrirlestur þar sem leikarinn Björgvin Franz Gíslason lýsir því hvernig hann náði að breyta eigin vinnubrjálæði yfir í innri ró og raunverulega starfsánægju, eins og hann orðar það sjálfur. Hann veltir því upp hvernig maður nær þeim árangri að verða betri starfskraftur með því að eyða færri klukkustundum í vinnunni en meiri tíma með fjölskyldu og vinum. Aðfer...

Helga Braga föstudagsgestur og bolludags matarspjall 09.02.2024

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikkonan Helga Braga Jónsdóttir. Hana þarf auðvitað varla að kynna, hún hefur glatt fólkið í landinu með húmor sínum og gamanleik, bæði á sviði, í sjónvarpi og á kvikmyndatjaldinu, í Fóstbræðrum og fjölda Áramótaskaupa svo fátt eitt sé nefnt, auk þess að vera auðvitað líka frábær dramatísk leikkona. Við fórum með henni aftur í tíma, á æskuslóðir...

Bein útsending úr Múlabæ 08.02.2024

Mannlegi þátturinn var sendur í dag út frá Síðumúla, nánar tiltekið úr Múlabæ dagþjálfun fyrir aldraða og öryrkja. Hugmyndin að þessari fyrstu dagdvöl landsins varð reyndar til á ári aldraðra, 1982 en verkefnið þróaðist svo í samvinnu þriggja félagasamtaka og var Múlabær opnaður í janúar árið 1983, fyrsta dagdvöl landsins ætluð öldruðum. Múlabær á sér farsæla sögu og hafa sömu aðilar staðið að rek...

Minningarstund um fjögur sjóslys og Ragnar í Smára 07.02.2024

Á sunnudagin verður haldin minningarathöfn í Hafnarfjarðarkirkju um fjögur sjóslys sem áttu sér stað árið 1959 á tuttugu daga kafla frá 30.janúar til 18.febrúar. 153, frá fimm löndum, létust í slysunum, frá, Íslandi, Danmörku, Grænlandi, Færeyjum, Nýfundnalandi og Íslandi. Auk minningarathafnarinnar verður opnuð tvíþætt sýning, þar sem annars vegar verða sýnd fjölskyldutré hvers og eins hinna ísle...

Einelti á vinnustað, Giggó og Þalöt 06.02.2024

Einelti og áreitni á vinnustöðum er erfitt fyrirbæri sem eyðileggur starfsanda, dregur úr starfsánægju og spillir árangri verkefna. Einnig dregur þetta ástand úr sálrænu öryggi fólks á vinnustað og getur orðið til þess að hæft starfsfólk flæmist út af vinnumarkaði og andleg og líkamleg heilsa getur verið í hættu. Það getur reynst erfitt að greina vandann en það gerir einmitt Þórkatla Aðalsteinsdót...

Gunnlaugur og stjörnuspekin, vinkill og Adolf lesandinn 05.02.2024

Við veltum fyrir okkur stjörnuspeki og tímanum í dag með stjörnuspekingnum Gunnlaugi Guðmundssyni. Í hvaða hringrás eða tímabili erum við í dag og er því að fara að ljúka? Víst er að víða í heimi er erfitt ástand, stríð, óeining og togstreita. Hvað segir stjörnuspekin um ástandið á þessum tímum? Gunnlaugur fór yfir það með okkur í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þ...

Linda Blöndal föstudagsgestur og ísskápshreinsun 02.02.2024

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Linda Blöndal frétta- og fjölmiðlakona. Hún lærði stjórnmálafræði og hefur unnið í fjölmiðlum í á þriðja áratug, hún byrjaði á Bylgjunni en færði sig svo yfir á Rás 2 rétt fyrir aldamótin í Morgunútvarpið var einnig í Síðdegisútvarpinu og fleiri þáttum. Hún færði sig svo yfir í fréttirnar og hefur verið fréttakona hér á RÚV, á Stöð 2 og svo á Hri...

Alzheimer samtökin, ofbeldi nemenda 01.02.2024

Alzheimersamtökin hafa um árabil veitt ráðgjöf til fólks með heilabilun og aðstandenda þeirra en ekki haft heilt stöðugildi fyrr en nú til að sinna upplýsinga- og ráðgjafaþjónustu. Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi og verkefnastjóri upplýsinga- og ráðgjafaþjónustu Alzheimersamtakanna kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá starfsemi samtakanna og þessu nýja stöðugildi í upplýsinga- og ráð...

Áfallasaga kvenna, G vítamín og Grænhöfðaeyjar 31.01.2024

Ríflega 30 þúsund konur á aldrinum 18-69 ára tóku þátt í rannsókninni Áfallasaga kvenna, á árunum 2018-2019, sem gerir rannsóknina að einni þeirri stærstu sinnar tegundar á heimsvísu. Konurnar svöruðu ítarlegum spurningalista, meðal annars um áföll á mismunandi ævistigum, geðræn einkenni og heilsufar á fullorðinsárum. Áfallasaga kvenna er vísindarannsókn á vegum fræðikvenna við Háskóla Íslands og...

Kraftur, K2 námsbrautin og snjóþyngsli 30.01.2024

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, hefur hleypt af stokkunum árlegu átaki sínu, Lífið er núna. Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts kom til okkar í dag og sagði okkur frá átakinu og starfsemi Krafts, sem er 25 ára í ár og með henni kom Melrós Eiríksdóttir, en hún sagði okkur erfiða reynslusögu sína en hún greindist 33 ára með 4. stigs...

Erfðabreytileiki og fósturlát, Vinkill úr Flóanum og lesandinn 29.01.2024

Íslensk Erfðagreining tilkynnti rétt fyrir útsendingu Mannlega þáttarins að vísindamenn á þeirra vegum, hér á landi, í Danmörku og Bandaríkjunum hafi fundið erfðabreytileika sem hefur áhrif á endurröðun erfðaefnis og eykur líkur á fósturláti. Í erfðarannsókninni tóku þátt yfir 114 þúsund konur sem misst hafa fóstur. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar og Valgerður Steinþórsdóttir...

Jónsi föstudagsgestur og matarspjall á bóndadegi 26.01.2024

Föstudagsgesturinn okkar í dag var söngvarinn góðkunni Jón Jósep Snæbjörnsson eða Jónsi í Svörtum fötum. Hann er fæddur 1.júní 1977 og hefur svo sannarlega komið víða við á tónlistarbrautinni. Í dag starfar hann sem viðskiptatengslastjóri hjá Aurbjörgu auk þess að vera enn á kafi í tónlistarbransanum. Jónsi rifjaði upp æskuárin á Akureyri, upphaf tónlistarferilsins, trommuleik í kjallaranum, skóla...

Konur og hormónar, Geðhvörf fyrir byrjendur 25.01.2024

Við fjölluðum um bókina Geðhvörf fyrir byrjendur sem kom út í dag. Í henni er farið í gegnum greiningu geðhvarfa, líf með geðhvörfum, meðferð og bata. Guðmunda Sirrý Arnardóttir kennari er ein fjögurra höfunda bókarinnar kom til okkar í dag og sagði okkur betur frá bókinni sem hún segir að miðli nýjustu þekkingu í bæði læknisfræðilegri og batamiðaðri fræði. Læknadagar voru haldnir í síðustu viku o...

Smitsjúkdómar fortíðar og framtíðar og ACT meðferðarformið 24.01.2024

Við héldum áfram í dag að fjalla um nýafstaðna Læknadaga sem fóru fram í síðustu viku og þar voru mörg áhugaverð erindi flutt sem við reynum að gera einhver skil hér í Mannlega þættinum. Við höfum nú þegar fjallað um endurhæfingu aldraðra og á morgun eru það konur og hormónar en í dag beindum við sjónum okkar að smitsjúkdómum í fortíð, nútíð og framtíð. Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómu...

Listen to the Mannlegi þátturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.