Karfan
Karfan
Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sjötti maðurinn X Georgi Tsonev: Playoffs byrjað, óvænt úrslit og hver tekur þann stóra? 08.04.2025 42:08
Sjötti maðurinn var ekki fullmannaður og þá kemur maður i manns stað. Í þetta skiptið kom Georgi Tsonev, mikill vinur þáttarins. Farið var vel yfir úrslitakeppnina bæði í efstu deild og í þeirri fyrstu. Þrír góðir liðir og bara stuð og stemmari! Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson. Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lyki...
The Uncoachables: Playoffs, Here We Come! 31.03.2025 1:11:29
Helgi, David and Jeanne meet up just when the regular seasons are done and the playoffs are approaching! We begin by going over the national teams that the Iceland men's NT will be in a group with in Eurobasket next August. Everyone get tickets! We then discuss the newly finished Icelandic Basketball Federation biannual basketball summit and the rule changes. Regular season awards are review...
Sjötti maðurinn: Verðlaunaafhending, playoffs að byrja og landsbyggðarhetjur að kveðja leikinn 29.03.2025 1:03:48
Sjötti maðurinn tók upp uppgjörsþátt Bónus deildar karla og fékk til sín góðan gest hann Árna Gunnar fyrirliða Stjörnunar b. Allskonar verðlaun og skemmtilegt ívaf í mörgum flokkum, einnig úrvalslið íslendinga og erlendra leikmanna. Þá var spáð í spilin varðandi úrslitakeppnina í efstu deildum karla- og kvenna sem og í fyrstu deild karla. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ö...
Aukasendingin: Mummi og Máté ræða lokaumferðina í Bónus, VÍS bikarvikuna og hverjir græða mest á hertum reglum 25.03.2025 1:12:13
Aukasendingin fékk góðkunningja þáttarins Máté Dalmay og Mumma Jones í heimsókn til að fara yfir sviðið. Ræddar eru fréttir vikunnar, lokaumferðin í Bónus deild karla, VÍS bikarvikan, hræðilegt ástand Keflavíkur og Þorlákshafnar, brotthvarf Evans úr Njarðvík, styrk Vals og margt fleira. Þá fer Mummi yfir hvaða fimm íslensku leikmenn eiga eftir að græða mest á hertum reglum um erlenda leikmenn í d...
Sjötti maðurinn X Maté Dalmay X FrikkiBeast: Dramatík í fyrstu, VÍS bikarvikan og körfuknattleiksþingið 18.03.2025 1:13:32
Sjötti maðurinn var á sínum stað þessa vikuna en í þetta skiptið með tvo rándýra gesti innanborðs í Máté Dalmay og Frikka Beast. Að vanda var farið yfir Bónus Karla en einnig snert mikið á allskonar málefnum úr liðinni viku. Þingið rætt, bikarinn ræddur og dramatíkin í 1. deildinni rædd. Maté með lið og að sjálfsögðu þekktir liðir á sínum stað. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnas...
Aukasendingin: Egill fer yfir þing helgarinnar, reglur um erlenda leikmenn, fjölgun leikja og margt fleira 12.03.2025 49:40
Aukasendingin fékk formann KR Egil Ástráðsson í heimsókn til þess að kryfja flest þeirra mála sem kosið verður um á körfuknattleiksþingi helgarinnar. Stærst mála eru kannski breytingar á reglum um erlenda leikmenn og fjölgun leikja í efstu deild, en einnig er um fjölda annarra mála að ræða svosem hvaða búningum heimalið geta verið í, hversu margir leikmenn geti farið á venslasamning og hvort taka...
Sjötti maðurinn x Snorri Vignis: Stórsigrar toppliða, ÍA í Bónus og Reykjavíkurslagur af bestu gerð 11.03.2025 1:06:29
Sjötti maðurinn var ekki fullskipaður að þessu sinni en fékk til sín góðan gest en það var enginn annar en Snorri Vignisson. Rætt var um Bónus deild karla, 1. deild karla og fréttir vikunnar. Allskonar liðir fengu að láta ljós sitt skína og það var meðal annars snert á tillögum sem eru á borði KKÍ varðandi reglubreytingar í einum liðnum. Snorri ræddi 3x3 á Íslandi og margt, margt fleira. Stjórne...
Aukasendingin: Hannes um samninginn við Pólland, EuroBasket og tillögur komandi þings KKÍ 05.03.2025 29:39
Aukasendingin spjallaði í dag við Hannes Jónsson framkvæmdastjóra KKÍ. Til umræðu voru mörg ólík málefni, aðallega þó sá samningur sem sambandið gerði við pólska sambandið um að Ísland myndi leika í Katowice á EuroBasket í haust. Þá er í seinni hluta spjallsins farið yfir stórar tillögur sem fara fyrir þing KKÍ sem er á dagskrá 15. mars og þær breytingar sem verða á stjórn og hjá formanni sambands...
Sjötti maðurinn: Fallbaráttan búin, hikstandi topplið og hverjir komast í playoffs? 02.03.2025 52:14
Sjötti maðurinn mættur með þátt vikunnar, en hann er með hefðbundnu sniði. Bónus deild karla er í aðalhlutverki ásamt föstum liðum inná milli. Kraftröðun, byrja/ bekkja, senda á Leifstöðina og fyrstu deildar hornið heldur áfram göngu sinni eftir góðar móttökur. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson. Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar,...
Sjötti maðurinn: Viðbrögð við leik Íslands í Ungverjalandi 20.02.2025 29:09
Sjötti maðurinn kom saman beint eftir leik Íslands gegn Ungverjalandi í undankeppni EuroBasket 2025 og ræddi leikinn. Ísland mátti þola níu stiga tap í leiknum og þurfa því að treysta á að geta annaðhvort sigrað Tyrkland komandi sunnudag í Laugardalshöll eða að Unhverjalandi mistakist að vinna Ítalíu á sama tíma til að tryggja sig áfram á lokamótið. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Á...
Aukasendingin: Baldur Þór um kröfuhörð samfélög, tímann í Þýskalandi og íslenska landsliðið 20.02.2025 29:55
Aukasendingin spjallaði við aðstoðarþjálfara íslenska landsliðsins og þjálfara Stjörnunnar í Bónus deildinni Baldur Þór Ragnarsson á leikdegi íslenska liðsins fyrir leik gegn Ungverjalandi í Szombathely í undankeppni EuroBasket 2025. Baldur Þór hefur verið aðstoðarþjálfari íslenska liðsins á síðustu árum ásamt því að hafa verið með yngri landsliðum Íslands, en á báðum vígstöðum hefur hann gert ans...
Aukasendingin: Haukur Helgi um landsliðið, lokamótin og hvern hann tæki með sér í The Purge 18.02.2025 24:31
Aukasendingin hitti fyrir leikmann íslenska landsliðsins Hauk Helga Briem Pálsson á hóteli liðsins í Berlín í gærkvöldi, en þar æfir liðið þessa dagana fyrir lokaleiki undankeppni EuroBasket 2025. Fyrri leikurinn er í Ungverjalandi gegn heimamönnum komandi fimmtudag og svo lýkur undankeppninni með leik heima í Laugardalshöll komandi sunnudag. Haukur Helgi var aðeins 19 ára gamall árið 2011 þegar h...
Aukasendingin: Ægir Þór um menningu íslenska landsliðsins ,,Maður fer inn í landslið á öðrum forsendum" 17.02.2025 20:17
Aukasendingin hitti fyrir fyrirliða íslenska landsliðsins Ægir Þór Steinarsson á hóteli liðsins í Berlín í dag, en þar æfir liðið þessa dagana fyrir lokaleiki undankeppni EuroBasket 2025. Fyrri leikurinn er í Ungverjalandi gegn heimamönnum komandi fimmtudag og svo lýkur undankeppninni með leik heima í Laugardalshöll komandi sunnudag. Ægir Þór hefur marga fjöruna sopið með íslenska liðinu. Var í bá...
The Uncoachables: It's All Greek to Me 17.02.2025 1:04:39
Helgi, David and Jeanne have been away for a while, but it was because of a storm. We go over the tables and where teams might finish at the end of the season. The women's league is about to split into the A- and B-division and we discuss if Tindastóll will keep the fifth position, if Grindavík will survive after this season as well as some other storylines. We talk about the best and worst...
Sjötti maðurinn: Landsliðið, ný regla fyrir erlenda leikmenn og hverjir komast í playoffs? 16.02.2025 1:08:57
Sjötti maðurinn mættur aftur eftir viku pásu. Að vanda rennt yfir Bónus deild karla og í þetta skiptið var valið amk. eitt lið sem hvert einasta lið vildi ekki mæta í úrslitakeppnisseríu. Fórum yfir 1. deildina og liðna umferð þar, fréttir vikunnar, fastir liðir og allskonar stuð. Þá er sérstök umræða um landslið Íslands sem leikur í vikunni lokaleiki sína í undankeppni EuroBasket 2025. Stjórnend...
Aukasendingin: Endalok Keflavíkur, Stólarnir sterkastir og frábær leikur Íslands í Izmit 07.02.2025 1:02:57
Aukasendingin fékk góðkunningja þáttarins Sigurð Orra “Véfrétt” Kristjánsson í heimsókn til að fara yfir sviðið. Ræddar eru fréttir vikunnar, síðasta umferð Bónus deildar karla, leikir kvennalandsliðs Íslands gegn Tyrklandi í gær og Slóvakíu komandi sunnudag, sigurvegarar og taparar vikunnar, topp fimm listi og margt, margt, margt fleira. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunn...
Sjötti maðurinn: Titilvonir í Skagafirðinum, útlendingamál rædd og félagsskiptagluggi aldarinnar? 03.02.2025 1:21:37
Sjötti maðurinn var að vanda að taka upp á sunnudagskvöldi. Farið var yfir leiki sunnudagsins en sömuleiðis var farið yfir leikina á fimmtudags og föstudags. Margir fastir liðir, margar pælingar og útlendingamál rædd í lok þáttarins. Fyrsta deildin fékk áframhaldandi sviðsljós, topp 5 listi og margt, margt fleira. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson....
Sjötti maðurinn: Breytingar hjá Grindavík, óstöðvandi ÍR-ingar og 1. deildin fær sviðsljósið 27.01.2025 59:37
Sjötti maðurinn var fullskipaður í þetta skiptið. Farið var vel yfir Bónus deild karla og sömuleiðis fréttir vikunnar. Í fyrsta skipti í sögu þáttarins fékk 1. deild karla sviðsljósið og var það gert vegna fjölda áskorana. Power ranking og margt, margt fleira. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson. Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, K...
Sjötti maðurinn: Óvænt úrslit, ótrúleg óheppni Álftnesinga og skotsýning í Njarðvík 19.01.2025 54:06
Sjötti maðurinn er mættur þessa vikuna og fullmannaður í þetta skiptið. Farið var yfir liðna umferð í Bónus deild karla, fréttir vikunnar og fasta liði. Þá er í þættinum opinber afsökunarbeiðni frá dyggum hlustanda sem gæti komið einhverjum á óvart og margt, margt fleira. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson. Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Le...
Sjötti maðurinn: Ólseigir Njarðvíkingar, fallfnykur fyrir austan og stöðug topplið 13.01.2025 1:01:57
Sjötti maðurinn er mættur aftur eftir gott jólafrí. Í þetta skiptið var Ögmundur erlendis en Eyþór og Mikael stóðu vaktina í þetta. Farið var yfir Bónus deild karla í bland við skemmtilega hefðbundna liði. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson. Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus,...
Aukasendingin: Lagskipting Bónus deildar og hvaða þjálfarar verða að fara að fá vinnu? 12.01.2025 1:07:15
Aukasendingin kom saman með góðkunningjum þáttarins þeim Sigurði Orra “Véfrétt” Kristjánssyni og Guðmundi Inga Skúlasyni. Farið var yfir allar viðureignir síðustu umferðar Bónus deildar karla, spáð í lagskiptingu deildarinnar og þá eru einnig ræddar Bónus deild kvenna og fyrstu deildir karla og kvenna. Þá er einnig farið yfir hvaða fimm þjálfarar sem ekki eru í Bónus deild karla ættu að fá lið á n...
Fyrstu fimm: Brenton Birmingham 29.12.2024 1:13:29
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn Brenton Birmingham yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum. Brenton er 52 ára gamall í dag, en skóna lagði hann á hilluna sem leikmaður b liðs Njarðvíkur árið 2016, þá 43 ára gamall. Eiginlegum feril hans með aðalliði í meistaraflokki var þó lokið nokkrum árum áður, árið 2011, en þá var hann leikmaður Njarðvíkur....
Sjötti maðurinn X Gunni Birgis X Frikki Beast: Uppgjör fyrri umferðar Bónus deildar karla og margt fleira 21.12.2024 1:30:06
Sjötti maðurinn tók upp stóra jólaþáttinn beint eftir leik Vals og Tindastóls, en gestir þáttarins eru Gunnar Birgisson sérfræðingur hjá RÚV íþróttum og Frikki Beast leikmaður Sindra í fyrstu deild karla. Þátturinn var í þeim stíl að farið var yfir öll liðin og hvað þau þurfa að gera betur eða hrósað þeim fyrir að gera vel. Sömuleiðis allskonar fastir liðir og spurt og svarað með Gunna. Stjórnend...
The Uncoachables: Thighs Like Tree Trunks 19.12.2024 1:06:20
Helgi, David and Jeanne start off joking about the holidays and go straight to congratulating the Icelandic Basketball Federation's (KKÍ) basketball man and woman of the year. The biannual KKÍ meeting is coming up next spring and we guess that the big topic will probably be the amount of foreign players allowed on teams (surprise, surpise...). We go a little heavy on the men's side this...
Sjötti maðurinn: Ævintýri ÍR-inga, toppslagur í Garðabænum og skotvissir Króksarar 16.12.2024 56:02
Sjötti maðurinn tók upp þátt þar sem farið var yfir allt það helsta úr liðinni viku. Áhugaverð kraftröðun, Q&A og nýr liður sem heitir Brakið leit dagsins ljós. Þetta og margt, margt fleira. Í næsta þætti hjá sjötta manninum fá þeir góða gesti og ætla að halda jólauppgjörsþátt, getur ekki klikkað. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson. Sjötti maðuri...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.