Karfan
Karfan
Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
(Endurútgefið - Mars 2020) BLE: Verðlaunaafhending fyrir tímabilið 2019-20 í Dominos deild karla og NBA 25.04.2020 1:41:20
Í mars komu þær fréttir að Dominos og fyrstu deildum á Íslandi hafi verið aflýst. Þá hafði leik verið frestað í NBA deildinni í Bandaríkjunum og verður það að teljast ólíklegt að hún haldi áfram næstu mánuðina. Boltinn Lýgur Ekki fór vel yfir stöðu beggja deildar í þessari upptöku. Þá gera þeir einnig ráð fyrir að öllum tímabilum sé lokið og fara því í alsherjar verðlaunaafhendingar fyrir bæði Do...
(Endurútgefið - Júní 2019) Finnur Freyr yfirþjálfari yngri landsliða: Markmiðið að skapa A landsliðs leikmenn 25.04.2020 36:40
Karfan var stödd í Kisakallio í Finnlandi síðasta sumar þar sem að Norðurlandamót yngri 16 og 18 ára landsliða fór fram. Mikið af þjálfurum fylgdi liðunum fjórum, en ásamt þeim þremur sem fylgja hverju liði var þar einnig yfirþjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson. Við hann ræddi podcast Körfunnar á meðan hann fylgdist með æfingu undir 18 ára drengja í Susi 1 æfingasalnum á svæðinu. Finnur fer yfir v...
Helena Sverrisdóttir í ítarlegu spjalli um ferilinn og framtíðina “Mér finnst körfubolti ennþá ógeðslega skemmtilegur” 23.04.2020 1:41:22
Helena Sverrisdóttir leikmaður Vals og íslenska landsliðsins var gestur í síðustu upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Í þættinum fór hún yfir ferilinn til þessa, stöðuna í dag, framtíðina og margt fleira. Helena hóf unga að leika bæði með meistaraflokki og landsliði. Var aðeins 12 ára þegar hún hefur feril sinn með Haukum og tveimur árum seinna, er hún 14 ára þegar hún er komin í A landslið Íslands. Sí...
(Endurútgefið - Febrúar 2018) Jón Arnór Stefánsson fer yfir upphafið og farsælan feril 19.04.2020 1:29:40
Í febrúar 2018 ræddi Karfan við Jón Arnór Stefánsson um upphafið og glæstan feril. Farið er yfir víðan völl, þar sem byrjað er á æskuárunum í KR, síðan miðskólann í Bandaríkjunum, NBA árið, ferilinn í Evrópu og margt, margt fleira. Þá er einnig tekin staða á landsliðinu og Dominos deildinni. Undir lokin er svo farið yfir hvar hann sér sjálfan sig á næstu árum. Gestur: Jón Arnór Stefánsson Umsjón...
Podquiz Körfunnar: Þrjátíu spurningar um Michael Jordan 18.04.2020 18:40
Til þess að skemmta hlustendum Körfunnar höfum við hent í spurningakeppni í samkomubanninu sem er tilvalin fyrir vini, vinahópa og pör. Podquiz er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram. 30 s...
Podquiz Körfunnar: Þriðji þáttur – 30 spurningar um körfuboltamenn utan vallar 17.04.2020 24:48
Til þess að skemmta hlustendum Körfunnar höfum við hent í spurningakeppni í samkomubanninu sem er tilvalin fyrir vini, vinahópa og pör. Podquiz er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram. 30 s...
Boltinn Lýgur Ekki: Haukur Helgi í ítarlegu spjalli um ferilinn og framtíðina “Þú tekur þínar eigin ákvarðanir” 16.04.2020 2:15:38
Haukur Helgi Pálson Briem, leikmaður íslenska landsliðsins og Unics Kazan, var gestur í síðustu upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Í þættinum fór hann yfir ferilinn til þessa, stöðuna í dag, framtíðina og margt fleira. Haukur var spurður út í þau kynslóðaskipti sem hafa verið að eiga sér stað í landsliðinu og hvernig honum lítist á framtíð liðsins. Þrátt fyrir að vera aðeins 27 ára gamall í dag, þá he...
Aukasendingin - Símaútgáfa: Trausti, Baldur Þór og Jóhann Árni um stöðuna í samkomubanni 14.04.2020 44:00
Ný þáttur af aukasendingunni er mættur, en það er sérstök útgáfa í þetta sinn. Við tókum upp símtólið og hringdum í nokkra aðila tengda körfuboltanum. Sjáum hvernig staðan er á liðunum í samkomubanni. Á næstu vikum ætlum við okkur að hringja um hvippinn og hvappinn, ræða við allskonar fólk tengt körfuboltanum, leikmenn, þjálfara, stjórnarmenn, stuðningsmenn eða bara hvað sem er. Fyrstu gestirnir...
(Endurútgefið - Ágúst 2018) 1 á 1: Kristófer Acox í einlægu spjalli 11.04.2020 1:28:35
Í þessum fyrsta þætti af 1 á 1 hjá Körfunni frá ágúst 2018 er gesturinn Kristófer Acox. Kristófer var þá nýjasti atvinnumaður Íslendinga í körfubolta. Í þættinum er rætt um agann í Bandaríkjunum, titlana hjá KR, landsliðið, ævintýrin í Filipseyjum og B5 svo einhver dæmi séu tekin. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson Efnisyfirlit: 1:45 - Uppeldið í Vesturbænum - Upprennandi framherji í fótbolta 8:30 - Miðsk...
(Endurútgefið - Maí 2018) Raggi Nat í spjalli - Stóri bekkjartrúðurinn frá Hveragerði 11.04.2020 1:44:46
Ragnar Nathanaelsson var gestur vikunnar í Podcasti Körfunnar í Maí 2018, þar sem hann gerði upp ferilinn, en hann hefur komið víða við. Það eru margar stórskemmtilegar sögur sem Raggi segir frá í þessum þætti auk þess sem 2017-18 tímabilið er gert upp. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur 11:45 - Nýjustu fréttir - Danero í Tindastól 16:50 - Ágúst dregur Ragga á æfingar í Hveragerði 13:30 - V...
Boltinn Lýgur Ekki: Martin Hermannsson “Maður er í þessu til þess að sjá hvað maður getur náð langt" 09.04.2020 1:47:36
Körfuknattleiksmaður ársins, leikmaður íslenska landsliðsins og Alba Berlin í Þýskalandi, Martin Hermannsson gerði sér ferð vestur í bæ og sat fyrir svörum í síðustu upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Fór Martin yfir ferilinn til þessa, rýndi í framtíðina og svaraði spurningum hlustenda. Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað e...
(Endurútgefið - Janúar 2020) Boltinn Lýgur Ekki: Kobe Bryant 1978-2020 04.04.2020 1:10:28
Þær sorgarfréttir bárust í janúar að körfuboltagoðsögnin Kobe Bryant sem lék sinn feril með Los Angeles Lakers hefði látist í þyrsluslysi. Í þessari upptöku af Boltinn Lýgur Ekki er farið yfir feril leikmannsins og hvaða áhrif hann hafði á íþróttina, bæði sem leikmaður, sem og eftir að hann hætti að spila. Gestur þáttarins er Hrafn Kristjánsson, þjálfari Álftnesinga í fyrstu deildinni og aðdáandi...
(Endurútgefið - Júlí 2019) Off-season: Siggi Hjörleifs "Við eigum ekki að vera brjóta reglur" 04.04.2020 1:17:23
Nú fyrst að körfuboltatímabilið er í pásu ætlum við hjá Körfunni að taka fyrir nokkra stólpa innan körfuboltahreyfingarinnar. Þessir aðilar munu koma úr öllum áttum; þetta verða leikmenn, þjálfarar, stuðningsmenn, sjálfboðaliðar og fleiri sem munu ræða hvernig þeir koma að og þrífast í þessari móður allra íþrótta. Viðmælandi dagsins er Sigurðu Hjörleifsson, yfirleitt kallaður Siggi Hjörleifs. Sigg...
Podquiz Körfunnar: Annar þáttur – 30 spurningar um íslenskan körfubolta 24.03.2020 24:26
Véfréttin, eins og aðrir í samkomubanni saknar Dominos deildarinnar mikið. Til þess að skemmta hlustendum Körfunnar hefur hún því hent í spurningakeppni sem er tilvalin fyrir vini, vinahópa og pör. Podquiz er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina s...
Boltinn Lýgur Ekki: Mate og Hraunar í heimsókn, ákvarðanir, útlendingamál og framtíðin 23.03.2020 1:24:37
Véfréttin fékk reiðustu menn körfuboltafjölskyldunnar í heimsókn í Boltinn Lýgur Ekki. Þá Mate Dalmay og Hraunar Guðmundsson. Þeir fóru yfir nýjustu vendingar varðandi ákvörðun KKÍ, hvernig fyrsta deildin spilaðist í vetur, hvernig útlendingamál muni þróast á næsta ári og margt fleira. Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað...
The Uncoachables: Game Over, Man. Game Over 22.03.2020 55:33
The season has ended prematurely in the Icelandic leagues in light of the global pandemic of the Corona virus, Covid-19. The Icelandic Basketball Federation announced last Wednesday (18th of March) that all basketball in Iceland is over until next season. Although we are sad about this unprecedented turn of events we understand that a difficult decision had to be made. This is our wrap-up episode...
Podquiz Körfunnar: Fyrsti þáttur - NBA Deildin 22.03.2020 31:53
Véfréttin, eins og aðrir í samkomubanni saknar NBA deildarinnar mikið. Til þess að skemmta hlustendum Körfunnar hefur hún því hent í NBA spurningakeppni sem er tilvalin fyrir vini, vinahópa og pör. Podquiz Körfunnar er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er...
Boltinn Lýgur Ekki: Í skugga Rónunnar - Verðlaunaafhendingar fyrir Dominos deild karla og NBA deildina 18.03.2020 1:41:20
Fyrr í dag komu þær fréttir að Dominos og fyrstu deildum á Íslandi hafi verið frestað. Þá hafði leik verið frestað í NBA deildinni í Bandaríkjunum fyrir síðustu helgi og verður það að teljast ólíklegt að hún haldi áfram næstu mánuðina. Heilt yfir mjög erfiðar, en á sama tíma skiljanlegar fréttir fyrir körfuknattleiksheiminn. Boltinn Lýgur Ekki fara vel yfir stöðu beggja deildar í þessari síðustu u...
Einn á einn: Formaður KKÍ um ákvörðun að slútta tímabilinu 18.03.2020 33:24
Íslandsmótinu í körfubolta 2019-2020 er lokið í öllum flokkum og deildum. Óværan Covid-19 og samkomubannið hefur gert það að verkum að engin úrslitakeppni fer fram i ár. Ákvörðun um þetta lág fyrir fyrr í dag og voru margir sem vildu frekari útskýringar og rökstuðning. Karfan fór því að sjálfsögðu af stað og fékk Hannes S. Jónsson í viðtal. Þar fengum við hann til að rökstyðja ákvörðunina og hvað...
Aukasendingin: Tímabilið gert upp fyrir öll liðin í Dominos - Einkunnagjöf frá A+ til F 12.03.2020 1:50:05
Aukasendingin kom saman og fór yfir síðustu umferðir Dominos deilda karla og kvenna. Gestur þáttarins að þessu sinni ekki af verri endanum, fyrrum leikmaður Keflavíkur og Breiðabliks í Dominos deildinni, núverandi leikmaður b liðs Grindavíkur, Lovísa Falsdóttir. Farið er yfir hvernig tímabilið hefur gengið til þessa hjá öllum liðum deildanna og þeim gefin einkun fyrir tímabilið í heild. Boltinn lý...
Boltinn Lýgur Ekki: Barkley er Simon, Draymond er Garfunkel - Lítil breidd í Boston - Jrue Holiday blæti 11.03.2020 2:09:06
Véfréttin skellti sér upp í efri byggðir til þess að hitta á Baldur Beck og fara vítt yfir sviðið. Talað var um hitann milli Draymond og Barkley, hvort Brett Brown sé kominn á endastöð, hvar breiddin væri hjá Boston, upp og niður í Utah og hver myndi bjarga okkur frá geimverum. og margt, margt fleira. Litríkur leikmaður þáttarins er Zach Randolph, en honum fylgir tónlist frá heimaslóðum hans í Ind...
Boltinn Lýgur Ekki After Dark: 4+1 All Stars, Þór fallnir, Keflavík er besta liðið og af hverju hata lýsendur NBA deildarinnar deildina sína? 07.03.2020 1:31:38
Véfréttin skellti sér í miðbæinn til þar sem Sá Raunverulegi er til húsa og tóku þeir félagarnir stöðuna. Litríkur leikmaður vikunnar er Shawn Kemp og venju samkvæmt fylgja tónar frá heimaslóðum hans í Indiana fylki Bandaríkjanna. Strákarnir tóku fyrir hin ýmsu málefni. Hvaða leikmenn voru flottir í 4+1 kerfinu en minna flottir í dag? Ofmetnir Njarðvíkingar, pabbastrákar á Sauðárkróki, 1. deild...
Boltinn Lýgur Ekki - Fíflagangur í Síkinu, lélegur balans í Þorlákshöfn og Spike Lee er hættur að mæta í MSG 05.03.2020 1:24:25
Véfréttin er mætt aftur eftir full langt hlé og fékk til sín á Vesturbæinn góðan gest, Guðmund Auðun Gunnarsson. Litríkur leikmaður þáttarins er Metta World Peace. Fórum yfir bikarleikina, landsleikina og síðustu umferð Dominos deildar karla. Heimshornið var á sínum stað sem og stutt umfjöllun um NBA deildina. Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðan...
The Uncoachables: Cup Week 19.02.2020 58:01
After The Geysir Cup Week wrapped up last weekend we go over the Men's and Women's Leagues, the Cup Week and all it's games and discuss close games and stories going on in the leagues. Þór Akureyri men's team may not be out of danger of relegation as Valur seem to finally have found themselves and the big deciding game between the two teams will be shortly after the national te...
Sibbaspjall: Benedikt "Þetta er alltaf mikil hátíð" 12.02.2020 11:07
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson settist niður með Benedikt Guðmundssyni og ræddi við hann um undanúrslit Geysisbikarsins, en þar munu hans konur í KR mæta Val í undanúrslitum. Upptakan er í röð þar sem sest er niður með þjálfurum og leikmönnum og spáð í spilin fyrir bikarvikuna. Þátturinn er hluti af Sibbaspjalli, en það er bæði aðgengilegt sem podcast inni á iTunes og öðrum veitum, sem og á myndband...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.