RÚV
Í ljósi sögunnar
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Angela Merkel 01.09.2017 39:18
Í þættinum er fjallað um einn áhrifamesta stjórnmálamann samtímans, Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Sagt er frá uppvexti hennar sem prestsdóttir í Austur-Þýskalandi, ferli í eðlisfræðirannsóknum, kynni af leyniþjónustunni Stasi og undraverðs uppgangs hennar í pólitík eftir fall Berlínarmúrsins.
Bandarískir nasistar 25.08.2017 41:02
Í þættinum er fjallað um Þýsk-bandaríska bandalagið, nasistasamtök sem starfrækt voru af Bandaríkjamönnum af þýskum ættum á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld, með þýska nasistaflokkinn sem fyrirmynd.
Farúk Egyptalandskonungur 18.08.2017 43:28
Sumarið 1952 rændu herforingjar, með Gamal Abdúl Nasser í broddi fylkingar, völdum í Egyptalandi. Þeir steyptu þá af stóli konungi landsins, Farúk. Farúk er í dag helst minnst fyrir yfirgengilega eyðslusemi, fjárhættuspil, kvennafar og ofát. Hann lifði hátt bæði sem konungur, og í útlegð í Evrópu á síðustu árum ævinnar, og át sig á endanum í hel.
Taiping-uppreisnin 23.06.2017 45:00
Í þættinum er fjallað um Taiping-uppreisnina í Kína um miðja nítjándu öld, þegar maður sem taldi sig son Guðs leiddi milljón manna her gegn Kínakeisara, með þeim afleiðingum að minnsta kosti tuttugu milljón manns týndu lífi.
Hundar í kapphlaupi við dauðann 16.06.2017 40:01
Veturinn 1924-1925 ógnaði barnaveikifaraldur afskekktri byggð í Norður-Alaska. Byrgðir bæjarlæknisins af mótefni við barnaveiki voru fljótt á þrotum, og aðeins ein leið fær til að flytja meira mótefni til bæjarins: með hundasleða. Á nokkrum janúardögum unnu hugdjarfir menn og hundar því ótrúlegt afrek og fluttu viðkvæmt mótefnið þúsund kílómetra leið í nístingskulda og kafaldsbyl.
Sex daga stríðið 09.06.2017 40:09
Í þættinum er fjallað um sex daga stríð Ísraels og Egyptalands og annarra Arabaríkja í júní 1967, fyrir hálfri öld.
Konungsmorðin í Nepal 02.06.2017 36:53
Í þættinum er fjallað um konungsmorðin í Nepal, þegar, árið 2001, að krónprins Nepals skaut til bana alla sína nánustu fjölskyldu, þar á meðal konung og drottningu landsins. Þátturinn var áður á dagskrá í júní 2016.
John F. Kennedy II 26.05.2017 39:26
Í þættinum er fjallað áfram um ævi Johns F. Kennedy Bandaríkjaforseta, en þann 29. maí verða hundrað ár liðin frá fæðingu hans. Í þessum þætti er fjallað um upphafið að stjórnmálaferli Kennedys, tíma hans á þingi og kosningabaráttuna 1960.
John F. Kennedy I 19.05.2017 38:25
Í þættinum er fjallað um John F. Kennedy Bandaríkjaforseta, en senn verða hundrað ár liðin frá fæðingu hans, 29. maí 1917. Í þessum þætti er fjallað um rætur hinnar nafntoguðu Kennedy-ættar og æsku forsetans sáluga.
Nauðungarflutningarnir á Krímtatörum 12.05.2017 37:51
Í þættinum er fjallað um sögulegan bakgrunn sigurlags Úkraínu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í fyrra, nauðungarflutningana á Krímtatörum árið 1944. Þá sakaði Jósef Stalín Tatara á Krímskaga um landráð og svik og lét því flytja alla þjóðina, nærri tvö hundruð þúsund manns, til Úsbekistan um borð í gripalestum. Þar beið þeirra vist í fangabúðum, og talið að allt að fjörutíu prósent krímtat...
Sarajevó-handritið 05.05.2017 40:18
Í þættinum er sögð ótrúleg saga forns Gyðingahandrits sem skrifað var á Spáni á fimmtándu öld, rataði síðar til Sarajevó í Bosníu þar sem menn lögðu sig oftar en einu sinni í lífshættu við að bjarga því frá eyðileggingu.
Haymarket 28.04.2017 40:15
Í þættinum er fjallað um ástæðu þess að alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins er haldinn hátíðlegur einmitt 1. maí, blóðbaðið á Haymarket-torgi í Chicago árið 1886.
Téténía II 21.04.2017 40:08
Í þættinum er fjallað áfram um sögu Téténíu í Kákasusfjöllum, sér í lagi seinni innrás Rússlands í Téténíu 1999, aðdraganda hennar og afleiðingar.
Téténía 07.04.2017 41:27
Í þættinum er fjallað um sögu Téténíu í Kákasusfjöllum og téténsku þjóðarinnar og aldalangrar baráttu hennar við risavaxna granna sinn til vesturs, Rússland.
Robert Mugabe 31.03.2017 41:10
Í þættinum er fjallað um ævi Roberts Mugabe, forseta Simbabve.
Nikolai Vavilov 24.03.2017 42:48
Í þættinum er fjallað um rússneska grasafræðinginn Nikolai Vavilov, sem vann brautryðjendarannsóknir á korni og öðrum nytjajurtum á fyrstu áratugum tuttugustu aldar og byggði upp stærsta fræbanka heims, en lenti síðar á ferlinum í hatrammri glímu við andvísindaleg öfl í hinum nýstofnuðu Sovétríkjum.
Jemen II 17.03.2017 39:29
Síðari þáttur um sögu Jemens. Fjallað um nútímasögu landsins, breska nýlendutímann, skiptingu Jemens í tvö ríki, spillta konunga og langvinna borgarastyrjöld sem Sádi-Arabía og Egyptaland drógust inn í.
Jemen I 10.03.2017 40:31
Í þættinum er fjallað um sögu Jemens. Jemen er í dag stríðshrjáð og sárafátækt, en fyrr á öldum var það eitt mesta menningarsvæði Arabíuskagans, og miðstöð verslunar og viðskipta, sem ótal stórveldi gerðu tilraun til þess að leggja undir sig öldum saman, en yfirleitt með litlum árangri.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.