Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Upptökur af kennslum í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu. Takk fyrir að hlusta og njóttu vel.
Author
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 7, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Svar Jesú við þrá mannsins 25:28
Útvarpspredíkun 10. október 1965. Koma Jesú breytti öllu. Jesús kom sem svar við sannleiksleit mannsins. Að finna Jesú. Samkoman var send frá útvarpssal.
Ræða við vígslu Fíladelfíukirkjunnar 45:45
Ræða við vígslu Fíladelfíukirkjunnar 19. október 1969. Vígsla musteris Salómons. Margir lögðu hönd á plóginn. Að búa Jesú herbergi. Sýnir Ásmundar um lóðina í Hátúni 2. Ófullkomin hljóðritun gerð af samkomugesti úti í sal.
Viðurstyggð eyðingarinnar 38:52
Kvöldsamkoma á Selfossi 20. mars 1971. Biblían er kompásinn. Endurkoma Jesú. Ísrael. Viðurstyggð eyðingarinnar á helgum stað. Hljóðritað af áheyranda í salnum. Hljóðritunin er ekki fullkomin og svolítið um truflanir, en ræðan er gott dæmi um hvernig Einar talaði á vakningarsamkomum.
Lífið er mér Kristur 20:23
Útvarpspredíkun 17. október 1971. Ofsækjandi kristinna Sál frá Tarsus mætti Jesú Kristi og varð Páll postuli.
Áreiðanleiki Heilagrar ritningar 26:00
Útvarpspredíkun 4. apríl 1976. Jesús þekkti ritningarnar. Lausnargjald fyrir syndugt mannkyn. Fyrirheit föðurins.
Endurreisnartímar allra hluta 25:30
Útvarpspredíkun 5. febrúar 1978. Endurkoma Jesú. Tákn tímanna. Ísrael er klukka Guðs. Kirkja Jesú Krists. Biblían varð almenningseign. Andlegt líf á að vera nægtalíf.
Hárbeitt orð 24:27
Útvarpspredíkun 25. febrúar 1979. Það vantar Biblíuvakningu og trú á orð Guðs á Íslandi. Guð ber ábyrgð á orði sínu. Guðs orð byggir upp.
Hús þitt skal vera bænahús 25:23
Útvarpspredíkun 18. maí 1980. Áfengisvandinn er mesti vandi þjóðarinnar. Englar Guðs. Bænaaltari í helgidóminum og á heimilum.
Guð hefur talað 26:16
Útvarpspredíkun 16. nóvember 1980. Guð hefur talað til okkar. Við erum sköpuð til að vera með Guði.
Fagnaðarerindi Guðs 31:31
Útvarpspredíkun 18. október 1981. Upphaf hvítasunnuhreyfingarinnar á Íslandi. Fagnaðarerindið er kraftur Guðs. Jesús er æðstipresturinn.
Lítillækkun Jesú og upphafning 22:31
Útvarpsræða 13. febrúar 1982. Vínplágan. Guð upphafði Jesú (Fil 2.9). Jesús var lítillækkaður. Við erum Guðs börn og erfingjar.
Hvað ertu að gera maður? 26:24
Útvarpspredíkun 20. júní 1982. Að stingast í hjörtun. Felix landstjóri og Páll postuli. Guð hatar hjónaskilnaði. Gjörið iðrun.
Dagur fagnaðar og tára 20:32
Útvarpspredíkun á pálmasunnudag, 15. apríl 1984. Jesús, konungur konunga. Er hann konungur þinn? Þekkir þú Jesú?
Taktu með þér orð 10:23
Brot úr ræðu á Kotmóti á 9. áratug 20. aldar, ártal óvíst. Fátæka ekkjan. Taktu með þér orð Guðs og notaðu það. Ísóp - pensillín. Hljóðritað af áheyranda, ekki mikil hljóðgæði og svolítið um truflanir og hnjask.
Lífið er Guðs gjöf 24:29
Útvarpspredíkun 6. október 1985. Fóstureyðingar. Lífið er hluti af Guði. Koma mannssonarins. Tákn tímanna. Kraftar himnanna.
Snáfið í land! 22:15
Útvarpspredíkun á 2. í hvítasunnu, 23. maí 1988. Átökin um Ísrael og Sovét-Rússland. Skuggar vanblessunar. Gildi áfengisbindindis.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.