Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Upptökur af kennslum í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu. Takk fyrir að hlusta og njóttu vel.
Author
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 7, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Smiðssonurinn - Endurlausnari 07.04.2019
Meiri kærleik á enginn en þann að hann leggi niður líf sitt fyrir vini sína(þér eruð vinir mínir ef...) En Jesús dó líka fyrir óvini sína. Mannsonurinn kom ekki til að láta þjónar sér, heldur til að þjóna og láta líf sitt til lausnargjalds fyrir marga. Þessi predikun undirbýr aðeins páskana, er frelsisboðskapur, fjallar um fyrirgefningu synda og náð. Kallar á fólk til að gera upp sín mál við Guð o...
Smiðssonurinn - Skírn Jesú 24.03.2019
Skírn Jesú er spámannleg, þ.e.a.s. í upphafi þjónustu sinnar skírist hann, en endalok þjónustu hans munu endurskilgreina merkingu skírnarinnar. Jesús skírist, því hann mun gera kröfu um að fylgjendur sínir geri það, tali um merkingu skírnarinnar og mikilvægi hennar. Skírnin er tákn um nýtt upphaf, skuldbindingu og líf á nýjum forsendum, mynd upp á náð, endurlausn og líf í upprisukrafti. Þessi pred...
Smiðssonurinn - Freistingin 17.03.2019
Jesú var freistað undir lok föstunnar, þegar hann var þreyttastur, búinn að standa sig og stóð veikast. Hann stóðst, og það var forsenda þess að hann gæti komið út úr eyðimörkinni "í krafti andans." Þessi predikun er til þess að hvetja fólk að setja eigin viðmið hærra, trúa því að til sé sigur yfir sind. Vita að við eigum óvin og að eigin synd er oftast hindrunin fyrir því að kraftur Guðs birtist...
Rödd í eyðimörkinni - Arfleiðin lifir 03.03.2019
Jóhannes breytti ekki boðskap sínum þó hann væri óþægilegur. Hann vissi að það gæti haft afleiðingar að áminna konunginn, hann var fangelsaður og drepinn. En vegna þess að hann var trúr, kannski af því að hann dó frekar en slá af, þá lifir arfleið hans. Meira að segja hann upplifði efa í fangelsinu(sbr sendir lærisveina til að spyrja Jesú hvort hann væri messías), en af því hann var trúr allt til...
Kom þú Drottinn Jesús! 28.02.2019 26:48
Hefur guðlaust líferni áhrif á náttúruna og umhverfið?
Rödd í eyðimörkinni - Róttæk iðrun 24.02.2019
Jóhannes predikaði alverlegan iðrunarboðskap. Hann í raun sagði, þið gyðingar eruð svo langt frá guðsríkinu að þið eruð eins og heiðingjar. Aðeins heiðingjar voru skírðir þegar þeir vildu gerast gyðingar, en hann skírði gyðinga til iðrunar. Þessi predikun er á móti trúrækni, réttindar hugarfari og andlegri leti. Við megum ekki sofna, ertu með, tilbúinn og vakandi?
Rödd í eyðimörkinni - Eyðimörkin 17.02.2019
Við erum oft óþolinmóð, okkur finnst ekki gott að þurfa að bíða. Guð þarf að fá að vinna í okkur, móta okkur og þroska okkur. Jóhannes var 30 ár í undirbúningi fyrir þjónustu sem kannski varði eitt ár. En hún skilaði miklu. Þessi predikun er til þess að byggja upp þá sem finnst þeir þurfa að bíða eftir Guði. Hvatning til þeirra sem eru óþolinmóðir, undirbúningur fyrir þá sem upplifa að þeir hafi k...
Rödd í eyðimörkinni - Fyrirrennari 10.02.2019
Jóhannes hafði eitt hlutverk, að undirbúa komu Jesú. Hans köllun í lífinu var að auðvelda einhverjum öðrum að ná til fólks. Þessi predikun fjallar um að vera ekki sjálfmiðuð eða stolt. Við þurfum ekki að vera stjarnan, við erum að vinna að stærri hagsmunum. Við sem erum kristin þurfum að hafa hugarfar guðsríkisins, það þarf ekki allt að vera eins og ég vil, svo lengi sem Jesús kemst til skila. Han...
Ekki stoppa / Persistance 03.02.2019
Þolgæði! Allt of margir hætta þegar verður erfitt, en þá er oft eitthvað gott að gerast. Talað er um hluti sem verða til þess að fólk hættir, í kirkjunni eða þjónustu. Hvernig viðhorf við eigum að hafa til að gefast ekki up.
Keppt að markinu - Taktu skrefin 27.01.2019
Það er ekki nóg að bara ákveða eitthvað, það þarf að taka skref ef það á eitthvað að gerast. Þú verður aldrei tilbúinn eða "nógu góður", ekki bíða eftir slíku. Talað er um hagnýt skref sem hægt er að taka til að vaxa, vera notuð af Guði og vera blessun.
Keppt að markinu - Að reikna kostnaðinn 20.01.2019
Jesús segir: "enginn byggir turn án þess að reikna fyrst kostnaðinn", einnig segir hann "ef þú ætlar að fylgja mér skaltu reikna kostnaðinn fyrst". Ákall um að gefa sig heilshugar Guði, ákveða að vera fús að greiða hvað sem er.
Keppt að markinu - Að leggja grunninn 13.01.2019
Predikun um mikilvægi þess að byrja á að móta eigið líf, bænin og presónulegt samband við Guð. Hagnýt kennsla um bæn og bænaryðma.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.