Helgi Ómars

Helgaspjallið

Society IS ↓ 217 episodes

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is

Author

Helgi Ómars

Category

Society

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jul 7, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Þáttur 17 - Helgaspjallið 2.0 - Apríl Harpa / Rvk Gypsy - Part l 02.02.2019

Gestur þáttarins er Apríl Harpa Smáradóttir betur þekkt sem Rvk Gypsy. Hún segir frá magnaðari sögu sinni og fer yfir æskuna, tenginguna og tilfinningarnar. Baksagan á bakvið þann stað sem hún er á í dag ásamt því hvernig hún endaði á Bali í mörg ár og hvernig það ferðalag átti sér stað. Þetta er þáttur af tveimur, en í seinna þætti förum við enn dýpra í sögu Aprílar.

Þáttur 16 - Helgaspjallið 2.0 - Helgi Ómars 21.01.2019

Í þessum þætti snúum við hlutunum örlítið við, en Ragga Nagli tekur viðtal við mig. Ég fer t.d yfir æskuna, byrjunina á sjálfsvinnunni, ofbeldisatvik sem setti strik í reikninginn, hvernig ég komst í gegnum afbrýðissemi og það sem ég hef lært í gegnum tíðina ásamt mörgu öðru.

Þáttur 15 - Helgaspjallið 2.0 - Arnhildur Anna 26.12.2018

Arnhildur Anna Árnadóttir er einstaklega einlæg fyrirmynd. Við setjumst niður og ræðum kraftlyftingarsportið, hvað liggur á baki og hvað hún fór í gegnum til að komast á þann stað sem hún er í dag. Einnig ræðum við meðal annars meðvirkni og hvernig hún heldur andlegu hliðinni sinni í jafnvægi og hvaða verkfærum hún beitir til þess ásamt svo mörgu öðru.

Þáttur 14 - Helgaspjallid 2.0 - Björt Sigfinns 16.12.2018

Björt hefur áður komið til sögu í Helgaspjallinu, en hún er minn umtalaði Life Coach sem tók mig að sér á sínum tíma og lét mig hefja ferðalagið mitt í sjálfsvinnu. Hún er einnig einn af mastermindum á bak við LungA Festival ásamt því að hafa afrekað svo margt meira. Við kynnumst Björt og ræðum ýmislegt, meðal annars tungumál ástarinnar sem er einstaklega áhugavert

Þáttur 13 - Helgaspjallið 2.0 - Edda Falak 08.12.2018

Gestur þátturins er hin sterka og magnaða Edda Falak. Við förum yfir móðurmissi Eddu og að vera alin upp af Líbönskum föður á Íslandi. Við förum einnig yfir Crossfittið, sjálfsagan og mataræði þar sem pizza með döðlum og rjómaosti kemur við sögu.

Þáttur 12 - Helgaspjallið 2.0 - Ragga Nagli snýr aftur 01.12.2018

Við Ragga förum meira útí sálfræði hliðina á hinu daglega hamsi. Hvernig höldum við okkur í jafnvægi og hvaða hugrænu verkfærum eigum við að beita. Ásamt því að tala um allt frá kláða á skrýtnum stöðum og að missa tvisvar.

Þáttur 11 - Helgaspjallið: Eva Dögg Rúnarsdóttir 24.09.2018

Gestur þáttarins er yoga og hollustu drollan Eva Dögg Rúnarsdóttir. Við spjöllum um hið andlega og hið slæma og góða sem býr innra með okkur ásamt líf og tilveru Evu. Við tölum um sjúkdóma sem hafa sett strik í lífið og um allt hið andlega og líkamlega sem hægt er að græða á við að stunda jóga og hugleiðslu, ásamt svo mörgu öðru milli himins og jarðar.

Þáttur 10 - Helgaspjallið: Brynja Dan 05.09.2018

Hin heilsteypta og gullfallega Brynja Dan er gestur þáttarins. Við ræðum um æskuárin, foreldrahlutverkið, tilfinningalífið, erfiðan foreldramissi og hið ótrúlega ættleiðingar ævintýri og tenging við blóðfjölskyldu sína. Ásamt því ræðum við um allt milli himins og jarðar.

Þáttur 9 - Helgaspjallið: Fanney Ingvars 19.08.2018

Gestur þáttarins er hin ljúfa og yndislega Fanney Ingvars. Hún ræður Ungfrú Ísland ævintýrið og áhrif keppninnar á lífið hennar. Móðurhlutverkið, andlegu hliðina og lífið eins og það leggur sig.

Þáttur 8 - Helgaspjallið: Svala Björgvins 05.08.2018

Gestur þáttarins er hin eina sanna Svala Björgvins. Við ræðum æskuna, unglingsárin, poppstjörnu ævintýrið í LA, bílslysið sem breytti lífi hennar ásamt því að við ræðum hvernig hún dílar við kvíða og almennt andlegu hliðina, tilfinningalífið þá og í dag.

Þáttur 7 - Helgaspjallið: Binni Löve 01.08.2018

Gestur þáttarins er snapkóngurinn Binni Löve. Við ræðum allt milli himins og jarðar. Þyngdartapið, andlegu hliðina, snaplífið og snapævintýrið, æskuna og unglingsárin ásamt allt annað þar á milli.

Þáttur 6 - Helgaspjallið: Sara María Forynja 29.07.2018

Sara María Forynja er gestur þáttarins. Hún er þekkt fyrir að hafa startað Nakta Apanum ásamt því hafa startað öðrum merkjum með prenti í aðalhlutverki. Við kíkjum inná við í hinn gullfallega andlega hugarheim Söru og ræðum hvernig henni hún komst í gegnum fósturmissi, hvernig hún fyrirgaf árásamanni sínum, hvernig hún lærði að elska sjálfa sig ásamt því að fara í gegnum sögu þessarar mögnuðu nátt...

Þáttur 5 - Helgaspjallið: Sólrún Diego 22.07.2018

Ein áhrifaríkasta manneskja Íslands Sólrún Diego er gestur þáttarins. Hún ræður upphaf Snapchat ævintýrsins, Frans, slúðursögurnar, sjálfsþekkingu, tilfinningalífið, fjölskyldulífið og opinberar mjög áhrifaríka staðreynd sem gæti komið hlustendum á óvart. Þátturinn er í lengri kantinum enda nóg af viðfangsefnum að ræða.

Þáttur 4 - Helgaspjallið: Elín Kristjáns 01.07.2018

Elín Kristjáns er gestur þáttarins. Hún er eignandi Gekkó.is og mikill ferðalangur og hugsuður. Við tölum um föðurmissi, tælenska menningu, ferðalög, bílferð til Mosó með glæpamanni, slagsmál á Seyðisfirði og hvernig við lærum að elska sjálf okkur.

Þáttur 3 - Helgaspjallið: Beggi Ólafs 24.06.2018

Þriðji viðmælandi í Helgaspjallinu er Beggi Ólafs. Þeir ræða vegan lífsstílinn, innblástur, karlmenn og tilfinningar, Eurovision, blogglífið og andlega heilsu.

Þáttur 2 - Helgaspjallið: Ragga Nagli 17.06.2018

Íþróttasálfræðingurinn og athafnarkonan Ragga Nagli er gestur Helga að þessu sinni og þau ræða mindful eating, þeirra samband, Þýska bóndabæi, almennar vangaveltur og mátt sálfræðinnar.

Þáttur 1 - Helgaspjallið: Birgitta Líf 14.06.2018

Fyrsti viðmælandi í fyrsta þætti Helgaspjallsins er Birgitta Líf. Þau ræða lífið og tilveruna, samfélagsmiðlana, Ungfrú Ísland, rappara, framtíðina og fortíðina.

Listen to the Helgaspjallið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.