Hefnendurnir Gamli
Hefnendurnir Gamli
Podcast by Hefnendurnir Gamli
Author
Hefnendurnir Gamli
Category
Podcast website
Latest episode
Mar 13, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hefnendurnir 35 - Marvelaði 27.10.2014 44:09
Hefnendur missa nokkra lítra af munnvatni yfir nýrri áætlun Marvel risans, 35 ára afmæli Alien og popptónlist tileinkaðri g-unum þremur.
Hefnendurnir 34 - Ástin og óttinn 20.10.2014 1:13:36
Hulkleikur örvæntir á meðan Ævorman talar um skilnað ostamannsins, en síðan horfast hetjurnar okkar í augu við hrylling í sínum margvíslegu myndum og rifja upp nokkur af þeim atriðum sem þeim hrýs við hugur í tilefni hrekkjavöku.
Hefnendurnir 33 - Trúðaofstæki 13.10.2014 1:22:24
Hetjurnar okkar tvímenna drangana og kvengera draugabana ásamt því að ferðast í framtíðina með Súpermann og félögum áður en þeir ráðast gegn erkióvinum sínum, hinum hvítmáluðu og martraðavekjandi trúðum.
Hefnendurnir 32 - The Saga 06.10.2014 1:57:46
Í fjarveru Ævormanns fær Hulkeikur Sögu Garðars í þáttinn og þau horfa saman á Star Wars. Alla myndina. Frá upphafi til enda. In real time. That's right. Þessi þáttur er eitt stór Star Wars commentary. May the force be with you. (Taka skal fram að við erum að horfa á gömlu orginal theatrical release útgáfuna.)
Hefnendurnir 31 - Digital Hitler 29.09.2014 1:18:57
Í sínum þrítugasta og fyrsta þætti ræða hetjurnar okkar um krossaða sadista, miljón orð frá Alan Moore og feikaða pardusinn hans Steve Martin áður en þeir rýna í gagnrýni og spá í hugumstór hjörtu Skota.
Hefnendurnir 30 - State of the Union 22.09.2014 1:49:56
Hulkleikur snýr aftur í faðm Ævormans og saman halda þeir uppá þrítugsafmælið með nýju Hefnendastefi og heiftarlegu hugarangri um Doktorinn, Stallone og endinn á Contact. Allt fyrir Jarðarbúa.
Hefnendurnir 29 - Pilotpælingar 15.09.2014 1:10:10
Á meðan Hulkleikur heimsækir Finnland lítur Ragnar Rawkeye Hansson aftur í heimsókn til Ævormans og þeir hugleiða finnska fyndni, segja nektarsögur af sjálfum sér og fara á flug um pilot þætti.
Hefnendurnir 28 - Leikur Köngulóarkonunnar 08.09.2014 1:13:21
Á meðan Hulkleikur spókar sig í borg englanna fær Ævorman gestahefnandann Rawkeye í heimsókn til að ræða við sig um klúrar kápur, steðjaverksmiðju og ferskan doktor áður en þeir kafa ofaní kvenhetjur í tölvuleikjum.
Hefnendurnir 27 - De Palmasunnudagur 01.09.2014 1:32:18
Að þessu sinni pizza Hefnendur sig upp áður en Ævorman skreppur frá og Hulkleikur fær í heimsókn kvikmyndafræðinginn og De Palma ástríðumanninn Ara Gunnar Þorsteinsson sem færir alla góða jarðarbúa í sannleikann um það hvers vegna dýrka eigi Brian, meistara myndmálsins.
Hefnendurnir 26 - Bless Boy Wonder 25.08.2014 1:05:49
Í sínum tuttugusta og sjötta þætti hallmæla Hefnendurnir meintum leðurblökuskapara og minningargreina tvær dívur hvíta tjaldsins áður en þeir rifja upp góðu stundirnar með hefnendaheimilisvininum Robin Williams.
Hefnendurnir 25 - Glerdýraborgin 18.08.2014 1:23:47
Hefnendurnir smella í sig steinastaupum, ræða flóttamenn úr æskuparadís og rifja upp minnistæðar bíófarir áður en þeir taka á móti dröfningunni DD Rozas sem leiðir þá í allan sannleikann um það sem gerist bakvið tjöldin í draumaborginni L.A.
Hefnendurnir 24 - Anna í Sveittuhlíð 11.08.2014 1:03:40
Hefnendurnar ræða manngerðar endur, takmarkaða múltíversa og rostungahorror áður en þeir fara í bíó með Önnu Svövu Knútsdóttur. Inniheldur mjög minor spoilera um Guardians of the Galaxy.
Hefnendurnir 23 - Með sand í egóinu 04.08.2014 1:43:32
Hetjurnar hugumprúðu eygja alklæðnað Amazóngyðju, sækja syndaborgina svarthvítu heim, mæna á minnkaðan mauratamningamann og halda hamingjusamir niður Heiftarveginn, er þeir verja heilum þætti í að gera upp nýafstaðna nördaveislu mega-myndasöguráðstefnunnar í San Diego.
Hefnendurnir 22 - Úr Leðurblökuskápnum 28.07.2014 1:57:53
Heilagar Halakörtur Jarðarbúar! Haldiði ekki að Hefnendurnir hafi hent í heljarstóran hátíðarþátt um Leðurblökumanninn sjálfan. Dýnamíska dúóið okkar heldur upp á 75 ára afmæli hempuklædda krossfarans með löngu og íburðarmiklu spjalli um Batman. Tíu Bill Finger upp til guðs!
Hefnendurnir 21 - Litla Líkkistan 21.07.2014 52:04
Ævör og Hulda hella uppá jurtate og ræða kynskipti ofurhetja, kynþáttaskipti ofurhetja og afstæði apavæmninnar. Örvar Eusébio lýsir úrslitaleik Hefnendadeildarinnar og limir fljúga.
Hefnendurnir 20 - Mirönduheilkennið 14.07.2014 2:02:07
Járnmennið og Grænmetið ákveða bragðbestu brúðuna, kvikindislegustu kvikmyndina og öndverðustu ofurkonuna, auk þess sem þeir fá fróma og fantasíska fótboltafræðslu frá Örvari Eusebio í þessum tvöfalda og tuttugasta tímamótaþætti Hefnenda.
Hefnendurnir 19 - Gulrótarblekkingin 07.07.2014 1:13:13
Hefnendur ræða um keppnisskap, kaiju-konur og karþasis í ofbeldisóperum áður en Ævor Man kemur með fagrar fabúleringar um Franquin sem Hulkleikur þurfti endilega að breyta í íhugun um Andrésar erótík. Við biðjumst velvirðingar á suðinu í þessari upptöku. Það er Doctor Doom að kenna.
Hefnendurnir 18 - Vampýr Áskell vs. Zombie Brown 30.06.2014 1:14:25
Fullhugarnir fílelfdu fagna aldarfjórðungs afmæli Burton blökunnar, agnúast um ódauða uppvakninga og reyna rauðeygðir að réttlæta og verja væskilslegu vinnuna sína.
Hefnendurnir 17 - Snöffbolti 23.06.2014 1:25:45
Hetjurnar okkar díla við drottinssvik, horfa á nokkrar hermikrákumyndir, minnast fallins B'starðs og reyna að fóta sig í boltaheimum.
Hefnendurnir 16 - Dalur doppelgängeranna 16.06.2014 1:24:15
Hulkleikur og Ævor man velta fyrir sér dystópískum útópíum, spá í kúrekageimverubönum og skreppa síðan í heimsókn í dal tvífarakvikmyndanna.
Hefnendurnir 15 - Son of Han 09.06.2014 1:23:51
Hulkleikur og Ævor Man fá Ragga 'Rawkeye' Hansson í heimsókn til sín til að ræða stjörnustjórnarkosningar, tímaflakkandi kynlífsbandíta og mauramann í sköpunarkrísu.
Hefnendurnir 14 - Gremja Górilluhvalsins 02.06.2014 1:12:22
Ævor Man og Hulkleikur ræða um dularfulla ofurkrafta Kitty Pryde, skoða kosningar með sínum augum og fá Kaiju áhugamanninn Ómar Swarez til að uppfræða þá um leyndardóma Godzilla.
Hefnendurnir 13 - Bítladróttinssaga 26.05.2014 1:17:16
Hetjurnar okkar ræða um nýjasta búning Leðurblökumannsins, minnast skrímslasmiðsins H.R. Giger og spekúlera í kvikmyndum sem aldrei urðu.
Hefnendurnir 12 - Jesúsvision 19.05.2014 1:31:42
Hetjurnar okkar syrgja samfélaga sína í Community, rifja upp samfélagsfælni sína á gaggóárunum og kynna nýjan dagskrárlið sem þeir vita ekki hvað heitir en inniheldur syngjandi fabjúlöss ofurhetjujesú.
Hefnendurnir 11 - Öll vötn falla til Tatooine 12.05.2014 1:13:04
Hulkleikur og Ævor man heimsækja uppeldisstöðvar sínar í Nexus á ókeypis myndasögudeginum og kryfja síðan samband sitt við Stjörnustríð í tilefni May the fourth.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.