Hefnendurnir Gamli
Hefnendurnir Gamli
Podcast by Hefnendurnir Gamli
Author
Hefnendurnir Gamli
Category
Podcast website
Latest episode
Mar 13, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hefnendurnir 135 - Yfirhefnsla : Andrea Björk Andrésdóttir 02.10.2017 1:38:08
Hulkleikur yfirhefnir Andreu Björk; Hönnuð, leikstjóra, animator og almennan flippara um glyðrulega fugla í Lumbruskógi, foreldrakynlíf og fimmta frumefnið.
Hefnendurnir 134 - Fanforum forarfen! 25.09.2017 1:35:19
Hefnendurnir babbla um danska hönnun í geimnum, stuðboltastelpu með mjaðmir, legsteinaletur og bestu kóngaræmurnar áður en þeir fara í spoileriffic greiningu á mömmumyndinni þarna sem er að gera allt vitlaust.
Hefnendurnir 133 - Jó(Pesci)kerinn 18.09.2017 1:03:18
Hulkleikur og ÆvorMan rökræða um allt sem skiptir máli. Þar á meðal Emmy verðlaunin, Scorsese Jókerinn, fráfallinn költ karakter, hrædda karlmenn í kvikmyndahúsum og margt fleira. Allt mjög marktækt og vestfirskt.
Hefnendurnir 132 - Allt sem þú vildir vita um Sous Vide, en þorðir ekki að spyrja um 11.09.2017 1:17:00
Hulkleikur og ÆvorMan skeggræða öryrkja-arkítektúr, 11/9, Del Toro prumpið, list í list, ítölsk kvennamorð, of ungan gamm og venjulegheit Howards, skálandi í vatni með útsýni yfir hallargarð ÆvorMans.
Hefnendurnir 131 Ó, Lou 04.09.2017 1:17:33
Hulkleikur og ÆvorMan taka þátt í umræðunni um umræðuna en snúa sér að miklvægari málefnum eins og tölvuleikja anime áNetflix, vaktmenn DC heimsins og hvað Hulli glápti á í góða veðrinu.
Hefnendurnir 130 - The Day The Clown Tried 10.07.2017 1:32:48
Hulkleikur og ÆvorMan tala um ófullnægjandi staðgengla mútanta, minnast fráfallina grínista, hryllingskokka og borgartraðkara og vangavelta hvað sé bestverst og hvað sé verstbest.
Hefnendurnir 129 - Drazzle! 03.07.2017 1:29:43
Hulkleikur og ÆvorMan koma ferskir úr fríinu til að ræða fasískar hliðarvíddir, meinta hræsni vampírubanaskaparans og fara svo yfir allt feita sjittið sem San Diego comic con lofaði þeim í treileraformi.
Hefnendurnir 128 - Smjörkubbsvafflan V Logagrettan: Dawn of Sumarfrí 26.06.2017 1:06:51
Hulkleikur og Ævorman fara saman í bíó og hljóðrita reynsluna. Þeir ræða nineties kóngulær, trumpaða kapteina, strákastelpur með fjólubláa lokka, ameríska guði og barnabílstjóra. Svo fara þeir í sumarfrí! Heyrumst aftur í haustmyrkrinu!
Hefnendurnir 127 - 20 bestu ekki-ofurhetju-myndasögumyndir ever 19.06.2017 1:25:43
Hulkleikur og Ævorman telja upp bestustu og sniðugustu og flottustustu myndasögubíómyndirnar sem eru ekki byggðar á ofurhetjumyndasögum.
Hefnendurnir 126 - Nananananananana Adam 12.06.2017 1:11:21
Hulkleikur og Ævorman setjast í Einarsgarð og ræða pardusaplaköt, nasistanýríki og brotthvarf besta blökumanns bítnikkatímans.
Hefnendurnir 125 - Hashtag feminism 22.05.2017 1:25:27
Hulkleikur og Ævorman ræða um períódur í geimnum, elliæra riddara, sokkaskikkjur og stærsta gamechanger þessa árs, Ungfrú Undur. Hjarta hjarta ex ex.
Hefnendurnir 124 - Rauðhærð og útlæg 15.05.2017 1:08:31
Hulkleikur og Ævorman ræða um hvað er að gerast, hvað þeir eru að glápa á, hvað þeir eru að spila á og minnast moore og boothe.
Hefnendurnir 123 - Doktorsþríleikurinn þrjú : Doktor Allt bú! 08.05.2017 54:53
Sandra Barilli situr með Hullinu og Ævörinni í þriðju lotu epískrar Doctor Who umræðu. Nú er seglum snúið að sitjandi og fráfarandi Doktor: Peter Capaldi. Tímalávarðurinn með hvassa skapið. Klárum þetta! Shut up!
Hefnendurnir 122 - Doktorsþríleikurinn II : Doktor nú þú! 01.05.2017 1:06:14
Sandra, Ævar og Hulli ræða ellefta doktorinn í öðrum hluta doktor who þríleiksins í þessum hundraðtuttugastaogöðrum þætti hefnenda. Frumfluttur á sextánda degi fimmta mánaðar sautjánda árs tuttugustu og fyrstu aldarinnar. Nei bíddu er þetta ekki átjánda árið? hvernig virka aftur aldamót? Allavega Matt Smith og hans tímaflækjur eru spónaðar í atóm! Geronimo!
Hefnendurnir 121 - Doktorsþríleikurinn I : Doktor Hú? 24.04.2017 1:08:30
Ævarinn, Hullinn og Sandran setjast niður og hljóðrita fyrsta kafla í epískri Doctor Who trilógíu. Í þessum þætti ræða þau hinn skammlífa Eccleston og hinn langlífa Tennant. Fantastic! Allons-y!
Hefnendurnir 120 - Sandrés Önd í yfirhefnslu 17.04.2017 1:13:42
Hulkleikur yfirhefnir Söndru Barilli, lífskúnstner, umboðsmann og Pad Thai aðdáenda. Þau ræða um hvað The Sweetest Thing er vanmetin snilld, hvað litla hafmeyjan kann að gera flotta hársveiflu og hvað garðyrkju-ofurkraftar geta verið gagnlegir.
Hefnendurnir 119 - Brúna Eldingin 10.04.2017 1:06:20
Hulkleikur og Ævorman semja heila bíómynd! Eða réttara sagt semja sögu fyrir heila bíómynd! Eða réttara sagt byrjun að sögu fyrir heila bíómynd. Brúna Eldingin er action ævintýri fyrir alla fjölskylduna ef að öll fjölskyldan er eldri en sextán ára. VRÚMM! VRÚMMM!!
Hefnendurnir 118 - Gwyneth gufan 03.04.2017 1:12:43
Hulkleikur heimsækir Dídí í Lalalandi á meðan Ævorman húkir flensuhokinn heima á klakanum. Með aðstoð framtíðartækni tókst þeim þó að taka upp þátt þar sem rætt er um Nælon og sundlaugarpartí, ömurlega umboðsmenn, poppmenningu draumaborgarinnar og svo er síðasti kapítulinn af Lalasápunni skrifaður af Dröfn á englaryki.
Hefnendurnir 117 - Dottið upp 27.03.2017 1:07:52
Hugleikur og Jóhann Ævar setjast á sviðið á myrkum bar og tjá sig um myrka hluti eins og tuðandi trúða, dútlandi drauga, skápasköp og skrímslasprella og flytja lengstu auglýsingu í sögu Hefnendanna sem by the way eru í boði Nexus. Sem er besta búð í heimi.
Hefnendurnir 116 - Konráðs Saga Barbara 20.03.2017 1:13:55
Hulkleikur og Ævorman spjalla um synglýsingar, myrkraprinsa, mömmur á mars, skítaþorp, svarta sjálfselskendur, gluggaveðursbíómyndir, finnskan typpamassa, íslenskar leðurblökur, áru ofurmenna, uppáhalds ósýnilingar og hefndarklám gegn vondum forsetum.
Hefnendurnir 115 - Frussuprumpið 13.03.2017 49:45
Sökum græjuleysis grípa Hullóan og Ævorið til neyðarúrræðis í upptökutækni og æða síðan með litaleiðréttingarspjaldið sitt í Réttlætisdeildarkitluna, ræða það sem er ofur og van í Désaheimum, áður en þeir rabba bara lúnir um Orkuleysi og hamra á heitum Járhnefa.
Hefnendurnir 114 - Hlátrinum fórnað 06.03.2017 1:13:41
Hugarangrið og Ævupestin ausa úr passívaggressívum skálum sína á hvimleiðan Járnhnefa, vafasamt Spiderman spinoff og endurjórtrað Matrix. En fljúga þeir að vit hýpóþetískra spurninga um hvort sé mikilvægara; yfirnáttúruleg hugarorka eða túlkun tilfinninga.
Hefnendurnir 113 - BuffyLove Soldiers 27.02.2017 1:14:06
Huffy og Ævgel ræða feit mútantabörn, vondar löggur á íslandi og auðvitað afmælisbarnið sjálft, drottningu drísladrápsins, skrímslaslátrarann frá Sunnydale; Buffy the fokking Vampire Slayer.
Hefnendurnir 112 - Game Over, Man! 20.02.2017 1:12:19
Piltarnir okkar prúðu reka síðasta líkkistunaglalann í Lalalöndunina áður en þeir jarma aðeins um Jarfa, reyna að skilgreina hvaða ofurhetjur eru eiginlega ofurhetjur og pexa síðan um Paxton sem kvaddi okkur alltof snemma nú fyrir skömmu.
Hefnendurnir 111 - Gamli kallinn með umslagið 13.02.2017 1:13:11
Ævor Man skríður niður í Hulkbunkerinn og þeir Hulkleikur horfa á óskarinn ásamt góðum gestum. Nánar tiltekið þeim God of Thránder (Þrándur Þórarinsson) og Kill Billgju (Bylgja Babýlons). Tilfinningar eru tjáðar, taugar kitlaðar og snakkskálar tæmdar.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.