Handkastið
Handkastið
Podcast by Handkastið
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Olísdeildin komin af stað og sjaldan launar kálfurinn ofeldið 01.02.2024 1:09:28
Olísdeildin er komin aftur af stað eftir EM pásu. 4 leikir fóru fram í kvöld og voru þeir gerðir upp af strákunum í Handkastinu. Farið var yfir viðtali við Snorra Stein og mótið gert upp í lok þáttarins.
Maður á mann - Snorri Steinn gerir upp EM 31.01.2024 1:20:59
Snorri Steinn Guðjónsson gerir upp EM´24 með Sérfræðingnum.
Hálfleikur frá helvíti drap Ólympíudrauminn 24.01.2024 55:56
Tómas Þór Þórðarson kíkti til okkar í Dominos stúdíóið og fór yfir lokaleik Íslands á Evrópumótinu í handbolta. Farið var yfir leik liðsins gegn Austurríki og rýnt í frammistöðu leikmanna. Undir lok þáttar var það ljóst að Ísland næði ekki Ólympíusæti.
Sögulegur sigur og frammistaðan sem þjóðin hefur beðið eftir 22.01.2024 58:16
Patrekur Jóhannesson og Ásgeir Jónsson kíktu á Stymma Klippara í Dominos stúdíóið og fóru yfir sögulegan sigur Íslands á Króatíu. Rýndum í framhaldið og hvað yrði að falla með okkur svo Ólympíusætið væri möguleiki. Patti rýndi einnig í gott gengi sinna gömlu lærisveina í Austurríki.
Vörnin brást en miði er möguleiki - Handkastið x Siggi Bond 20.01.2024 1:13:08
Siggi Bond kíkti í Dominos Stúdíóið og fór yfir leikinn gegn Frökkum og framhaldið hjá Strákunum okkar. Við eigum ennþá möguleika á umspilssæti fyrir ÓL2024 en til þess þarf margt að falla með okkur. Slúðurmolar úr Olísdeildinni en það styttist í að hún fari aftur af stað.
Snorri hlustaði á Séffann & fáfræðin er víða 18.01.2024 1:03:17
Strákarnir okkar voru einum röngum dómi, fjórum vítaköstum og töluvert af dauðafærum frá því að ná að minnsta kosti stigi gegn Þjóðverjum í fyrsta leik milliriðilsins í kvöld. Sérfræðingurinn, Stymmi klippari og Einar Ingi Hrafnsson gerðu upp leikinn og miklu meira til. Sigfús Sigurðsson var á (síma)línunni og ræddi frammistöðu landsins á mótinu og Gunni Birgisson frá RÚV hitaði upp fyrir næsta le...
Heilladísirnar halda okkur inná EM - Algjört afhroð gegn Ungverjum 16.01.2024 1:09:00
Svartfjallaland tryggði íslenska landsliðinu sæti í milliriðil á EM fyrr í dag. Farið yfir leik Íslands og Ungverjalands sem tapaðist með átta mörkum. Logi Geirsson var á línunni frá Þýskalandi og fór yfir þetta allt saman með Sérfræðingnum, Ponzunni og Gunnari Birgissyni lýsanda stóru leikjanna á RÚV. Framundan eru fjórir leikir í milliriðli þar sem allt getur gerst. Vonin um verðlaunasæti lifir...
Sigur er sigur - Handkastið x Unglingastarf Dr. Football 14.01.2024 1:03:24
Stymmi Klippari fékk þá Jóa Má og Arnar Svein til sín í Dominos Stúdíóið til að fara yfir leik Íslands og Svartfjallalands. Ræddum frammistöðu Íslands í leiknum og mótinu til þessa og hvernig framhaldið liti út. Nocco leikmaður leiksins var valinn ásamt Skitu leiksins. Fórum yfir úrslit í Olísdeild kvenna og ræddum brotthvarf Basta frá HK í lok tímabilsins.
Byrjendamistök Snorra Steins - Mike hefur engar áhyggjur af framhaldinu 13.01.2024 51:51
Sérfræðingurinn, Ponzan og Mike gera upp leikinn gegn Serbíu beint frá Hofbrauhaus í Munchen.
"Þetta var þungt" - Handkastið x Steve Dagskrá 12.01.2024 1:10:40
Handkastið gerði upp leik Íslands og Serbíu sem fram fór á Evrópumeistaramótinu í Þýskalandi í kvöld. Steve Dagskrá bræðurnir, Andri Geir og Vilhjálmur, kíktu til Stymma Klippara og fóru yfir leikinn. Sérfræðingurinn var á línunni beint frá Munchen og hafði sitt að segja um leik landsliðsins.
Gleðilegt EM - Handkastið x Dr. Football 10.01.2024 1:15:00
EM í Þjóðaríþróttinni hefst í dag og það var því tilvalið að fá sjálfan Dr. Football, Hjörvar Hafliðason, til okkar í stúdíó og fórum yfir hans uppáhalds stórmót, draumalið og fleira. Hituðum upp fyrir fyrsta leik strákanna okkar gegn Serbíu á föstudaginn, Stymmi Klippari henti í veðmál. Björgvin Páll er að gefa út nýtt Podcast og eru "Strákarnir Okkar" vannýtt vörumerki?
4 dagar í fyrsta leik - Leikirnir gegn Austurríki krufnir að beini 08.01.2024 1:10:53
Íslenska landsliðið vann báða leikina gegn Austurríki um helgina. Farið var yfir frammistöðu liðsins af Sérfræðingnum, Ponzunni og Jóhanni Gunnari Einarssyni sem var gestur þáttarins.
Stóri Upphitunarþátturinn 04.01.2024 1:52:40
Þáttur af lengri gerðinni enda færðu allt sem þú þarft að vita um Evrópumótið í honum. Í þættinum fórum við yfir öll 24 liðin sem taka þátt á Evrópumótinu í Þýskalandi. Hringdum um alla Evrópu og leituðum í viskubrunn sérfræðinga.
Bjöggi á Bessastaði og vinnum við til verðlauna eins og Gaupi spáði? 02.01.2024 1:10:40
8 dagar í EM og 10 dagar í fyrsta leik Íslands á EM! Logi Geirsson og Mikael Nikulásson ræddu allt milli himins og jarðar sem tengist íslenska landsliðinu og gott betur en það.
Uppskeruhátíð og Chris O'Reilly rödd EHF TV hitar upp fyrir EM 28.12.2023 1:09:02
Handkastið gerði árið 2023 upp og fór yfir allt sem tengdist handboltanum á Íslandi og erlendis. Við ræddum einnig við Chris O'Reilly, rödd EHF TV og stjórnanda handbolta podcastsins (Un)informed Handball Hour um komandi Evrópumót sem hefst í Þýskalandi í janúar, möguleika landsliðsins og hverjir munu koma á óvart.
Eftirminnilegustu stórmótin í þjóðaríþróttinni 25.12.2023 1:15:14
Jólagjöfin í ár. Sérfræðingurinn, Theodór Ingi Pálmason, Einar Örn Jónsson og Guðjón Guðmundsson fara yfir þeirra eftirminnilegustu stórmót í gegnum tíðina. Átta stórmót urðu fyrir valinu. 8:00 HM 1986 14:00 ÓL 1992 20:00 HM 1997 28:30 EM 2002 36:00 EM 2006 42:00 HM 2007 55:00 EM 2010 1:03:00 EM 2014
Rúnar Sigtryggs hitar upp fyrir EM - Hverjir verða í landsliðinu 2030? 21.12.2023 1:08:02
22 dagar í EM - Rúnar Sigtryggsson þjálfari Leipzig fer yfir stöðu mála hjá landsliðinu, spáir í spilin og ræðir væntingarnar fyrir EM sem framundan er. Stefán Árni Pálsson er gestur þáttarins og velur sína uppáhalds landsliðsmenn frá upphafi. Á sama tíma valdi Ponzan fimm leikmenn sem spila í Olís-deildinni sem verða bókað í landsliðinu árið 2030. Að lokum hringdum við til Ísafjarðar og heyrðum í...
Formaðurinn þögull sem gröfin - Víkingarnir spara aurinn en kasta krónunni 18.12.2023 52:36
Olís-deild karla er komin í jólafrí og Snorri Steinn hefur valið 20 manna æfingahóp fyrir EM. Kraftröðun í Olís-deild karla í boði Tix.is. Hvernig spiluðu strákarnir okkar erlendis um helgina? Nocco leikmaður 13.umferðar og Skita umferðarinnar í boði Skolphreinsun Ásgeirs.
Hverjir verða í hópnum hjá Snorra og hvað er til ráða á Ásvöllum? 15.12.2023 1:08:12
Sérfræðingurinn, Teddi Ponza og Ásgeir Jónsson gera upp þá fjóra leiki sem fram fóru í 13.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi. Stelpurnar okkar eru fastar með Forsetabikarinn í Danmörku þökk sé flugumferðarstjórum og á sama tíma frestaðist það að Snorri Steinn gæti tilkynnt landsliðshópinn fyrir EM þökk sé sömu meisturum.
32 dagar í EM veisluna & Barátta við Kongó um þann stóra 11.12.2023 59:57
Stelpurnar okkar eru komnar í úrslit um Forsetabikarinn þar sem þær mæta Kongó. Upphitun fyrir síðustu umferðina í Olís fyrir jól. Handkastið er farið að hita upp fyrir EM veisluna sem framundan er. Milliriðilinn gæti verið smá vesen en við sleppum við Roland Mikler í riðlinum.
Einelti á Ásvöllum, óléttan bjargaði fjárhag Framara - Svindl á HM? 08.12.2023 1:10:48
12.umferðin í Olís-deild karla er gerð upp í þættinum. Stelpurnar okkar eru á fleygiferð í Danmörku og stefna á Forsetabikarinn. Nocco-leikmaður 12.umferðar og landsliðsins var valinn og Skolphreinsun Ásgeirs gæti verið á leiðinni til Króatíu.
Forsetabikarinn heim, bananahýði fyrir norðan og þjálfarabreytingar á Ásvöllum? 04.12.2023 1:03:18
Stelpurnar okkar voru hársbreidd frá því að komast í milliriðla en nú tekur við nýtt ævintýri. Forsetabikarinn býður og við sækjum hann. Svava Kristín Grétarsdóttir var gestur Handkastsins að þessu sinni og við hituðum einnig upp fyrir 12.umferðina. Strákarnir okkar eru sjóðandi í Evrópu - það er rúmlega mánuður í mót og við erum á leiðinni á pall!
Ásgeir Örn siglir í strand og fyrsta korterið drap Stelpurnar Okkar 30.11.2023 1:11:28
Fóru yfir fyrst leik hjá Íslenska kvenna landsliðinu á Heimsmeistaramótinu í handbolta þegar þær töpuðu gegn Slóvenum. Gerðum upp 11.umferð í Olís deild karla ásamt því að fara yfir Meistaradeild Evrópu. Síðan henti Bjöggi í Status.
Sturluð botnbarátta framundan - Boltabloggið hitar upp fyrir HM 27.11.2023 55:31
Hitað var upp fyrir 11.umferðina í Olís-deildinni þar sem áhugaverðir leikir fara fram í vikunni. Þá heyrðum við í Ragnari Hermannssyni, Boltablogginu sjálfu sem fór yfir landsleikina hjá kvennalandsliðinu í aðdraganda HM og það sem koma skal. Umfjöllunin um kvennalandsliðið er í boði Vogue - fyrir heimilið.
Basl á KFUM félögunum og þjálfaði ekki Gummi Gumm. Bahrain? 23.11.2023 1:08:42
Það voru óvænt úrslit í 10.umferðinni sem gerð var upp í þættinum. Kvennalandsliðið er komið af stað í undirbúningi sínum fyrir HM og íslensku liðin verða í eldlínunni í Evrópu um helgina. Farið var yfir nýjasta styrktarsamning HSÍ.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.