Handkastið

Handkastið

Sports IS ↓ 353 episodes

Podcast by Handkastið

Author

Handkastið

Category

Sports

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Landsliðsumræða - Evrópuævintýrin halda áfram og heitustu pörin 23.10.2024

Farið var yfir ótrúlegan sigur FH á Savehof. Landsliðsumræða með Alla Eyjólfs. Farið yfir Olís-deild kvenna og spáð í spilin fyrir 8.umferðina í Olís-deild karla. Nýr liður hófst í þættinum: Heitustu pörin í Olís-deildunum.

Aron til Veszprém? Baráttan um Íslandsmeistaratitilinn galopin! 18.10.2024

Strákarnir fóru yfir 7.umferð Olísdeildar karla. Er landsliðsfyrirliðinn á leiðinni aftur í atvinnumennsku? Fórum yfir úrslit í Olísdeild kvenna og Meistaradeild Evrópu.

Evrópuveisla í Krikanum og er Olís-deild kvenna Farmers league? 16.10.2024

Þríeykið var mætt og fór yfir Evróputvennuna í Kaplakrikanum. Farið var yfir síðustu umferð í Olís-deild kvenna og hitað upp fyrir næstu umferðir í Olís-deildum karla og kvenna.

Stjarnan bjargar brotlendingu og ná meistaraefni Hauka Playoffs?? 11.10.2024

Farið var yfir 6.umferð í Olís deild karla. Heil umferð er á morgun hjá stelpunum. Kaldi leikmaður umferðarinnar valinn og skitan fór á kunnulegar slóðir. Meistaradeild Evrópu og margt fleira í þætti kvöldsins.

Spilar landsliðið nakið? - Saga Sjonna: Úr Kórnum í Meistaradeildina 09.10.2024

Þátturinn um víðan völl stendur heldur betur undir nafni í dag. Evrópudeildin, Olís-deild kvenna, Olís-deild karla, Strákarnir okkar erlendis, hvað er að frétta af landsliðtreyjunum og hvar verður Final4 haldið? Að lokum hringdum við til Noregs þar sem Sigurjón Guðmundsson markvörður Kolstad var á flugvellinum á leið til Frakklands að spila í Meistaradeildinni. Ótrúleg saga.

Grótta er alltaf Grótta í Gróttu og week of hell hjá Haukum 03.10.2024

Ponzan, Andri Berg og EuroBelli yfir fyrstu 5 leikina í Olísdeild karla þar sem Gróttumenn sitja á toppnum eins og allir spáðu fyrir tímabil. Karen Knúts er mætt aftur á parketið hjá Fram og spilað var til úrslita í heimsmeistarakeppni félagsliða.

Framarar fara með himinskautum og óvænt hetja í Kolstad 29.09.2024

Fram eru farnir að gera sig gildandi í toppbaráttunni. FH átti tvo lélega leiki í vikunni en tókst að sækja 4 stig. Strákarnir okkar erlendis og óvænt hetja hjá Kolstad. Hver er þessi Bjarki Jóhannsson hjá Álaborg? Stelpurnar okkar kláruðu æfingarmót í Tékklandi um helgina í undirbúningi sínum fyrir EM 2024.

Grótta í toppsætinu, ÍR-ingar bíta frá sér og KA ennþá stigalausir 26.09.2024

Stymmi Klippari, Ásgeir Jónsson og Benni Grétars fóru yfir fyrstu leikina í 4 umferðinni í Olísdeild Karla. Valsarar unnu loksins sinn fyrsta sigur og Gróttumenn eru á toppnum. ÍR-ingar sýndu að þeir geta gefið öllu liðum í deildinni leik á góðum degi. Hvað er að gerast fyrir norðan?

Haukar sjálfum sér verstir - átakið #Beintímark er hafið 25.09.2024

FH hafði betur gegn Haukum í Hafnarfjarðarslagnum sem fór ekki framhjá neinum. Hitað upp fyrir 4.umferðina í Olís-deild karla sem hefst í kvöld. Hverjar hafa skarað framúr í Olís-deild kvenna og Strákarnir okkar erlendis. Kíkt var til ársins 2015 í "Aftur til fortíðar" þegar íþróttasíður Morgunblaðsins voru stútfullar af fréttum um Þjóðaríþróttina.

Fjölnir fyrir ofan Val og hvert er uppleggið fyrir Norðan? 20.09.2024

3.umferð Olísdeildar Karla gerð upp með Einari Inga og Nabblanum. Óvænt úrslit í skemmtilegustu deild í heimi þar sem allir virðast getað unnið alla. Olísdeild kvenna er komin í stutt landsleikjahlé og fóru yfir úrslitin í Meistaradeild Evrópu.

Framkvæmdastjóri HSÍ svarar fyrir Handboltapassann - Hvar er Þórey Anna? 18.09.2024

Róbert Geir Gíslason framkvæmdastjóri HSÍ var í viðtali þar sem farið var yfir Handboltapassann, markaðsmál, landsliðsbúningamálin og meira til. Hitað var upp fyrir 3.umferðina í Olís-deild karla og farið yfir 2.umferðina í Olís-deild kvenna. Að lokum var farið yfir Strákana okkar erlendis.

Vanmat í Kórnum og fólk segir "pass" við Handboltapassanum! 13.09.2024

Ponzan, Euro-Belli og Andri Berg fóru um víðan völl í þessum þætti. 2. umferð Olísdeildar karla brotin til mergjar, farið yfir leiki í Olísdeild kvenna, Meistaradeild Evrópu gerð góð skil og meira til!

Ofurlið Vals - Metfjöldi Íslendinga í Meistaradeildinni - Takið 15.október frá! 11.09.2024

Sérfræðingurinn og Gaupinn settust niður og fóru um víðan völl í þætti dagsins. Olís-deild karla, Olís-deild kvenna, Evrópudeildin, Meistaradeildin, vistaskipti Íslendinga í Evrópu og Evrópurúnturinn.

Rán í Garðabænum, ÍR-ingar unnu nýliðaslaginn og skráningarvandamál nýrra leikmanna 06.09.2024

Stymmi Klippari fékk þá Ásgeir Jónsson og Ásgeir Gunnarsson til sín í stúdíó til að fara yfir fyrstu umferðina í Olísdeild karla og kvenna. Félögin virðast flest koma vel undan sumri og eigum við vona á æsispennandi móti í allan vetur.

Veislan er að byrja - Spá Handkastsins fyrir tímabilið opinberuð 01.09.2024

Keppnistímabilið í Olísdeildinni fer af stað í vikunni og Handkastið hefur opinberað spá sína en það þurfti tvær tökur til. Meistarakeppni kvenna fór fram um helgina þar sem Valur hafði betur. Verið með okkur í allan vetur.

Tímabilið handan við hornið og við erum mættir aftur! 21.08.2024

Enn eitt tímabilið er að hefast og Handkastið verður að sjálfsögðu með ykkur í allan vetur. Ásgeir Jónsson og Einar Ingi Hrafnsson kíktu í stúdíóið til Stymma og ræddu sumarið og félagsskiptin í sumar. Verið með okkur í allan vetur.

Hlustendaverðlaun Handkastsins og Steini Arndal í viðtali 02.06.2024

Sigursteinn Arndal þjálfari Íslandsmeistara FH kíkti til okkar í spjall um tímabilið. Hlustendaverðlaun Handkastsins voru einnig veitt. Takk fyrir tímabilið.

FH Íslandsmeistari og leiðin greið í undanúrslit á HM2025! 30.05.2024

Fórum yfir úrslitaeinvígi UMFA og FH þar sem FH-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn 3-1. Dregið var í riðla fyrir HM2025 þar sem Ísland mun spila í Króatíu.

Valsmenn Evrópumeistarar og FH einu skrefi frá Íslandsmeistaratitlinum 26.05.2024

Fengum Aðalstein Eyjólfsson til okkar í stúdíó-ið að ræða leik FH og UMFA. Valsmenn skrifuðu söguna með því að tryggja sér Evrópumeistaratitilinn þegar þeir unnu Olympiakos í vítakastkeppni.

Innkoma Arons breytti öllu og félagsskiptaglugginn farinn á fullt 22.05.2024

Fórum yfir leik UMFA og FH í fyrr í kvöld þar sem innkoma Arons breytti öllu. Farið var yfir félagsskipti innanlands og velt því upp hvort UMFA spili með 3 markverði innanborðs á næsta tímabili.

FH-ingar vankaðir eftir fyrsta höggið - Valsmenn nálgast fyrirheitnalandið 19.05.2024

Afturelding leiðir í baráttunni við FH um Íslandsmeistaratitilinn og Valsmenn eru í góðri stöðu fyrir seinni úrslitaleikinn í Grikklandi næstu helgi.

Mosfellsbærinn leyfir sér að dreyma - Hárblásari Gústa Jó kveikti í Valsstelpunum 16.05.2024

Afturelding er komið í úrslitaeinvígið eftir að hafa slegið út Val í undanúrslitum og mætir þar Aroni Pálmarssyni og félögum í FH. Tímabilinu er þó ekki lokið hjá Val sem mætir Olympiacos í fyrri úrsitaleik Evrópubikarsins um helgina. Valsstelpurnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa sópað úrslitakeppninni.

Ísland á HM og allt undir á Hlíðarenda 12.05.2024

Ísland er komið á HM áttunda mótið í röð eftir þægilega sigra á Eistum. Fagmannleg frammistaða og loksins vinnur Ísland sannfærandi sigur á útivelli. Stefán Rafn Sigurmannsson fyrrum leikmaður Hauka og íslenska landsliðsins var gestur þáttarins ásamt Guðjóni Guðmundssyni. Hitað var upp fyrir það sem koma skal í úrslitakeppninni og farið yfir stöðuna í úrslitaeinvíginu kvennamegin.

Enn eitt stórmótið bíður strákana okkar 09.05.2024

25 marka sigur strákanna okkar á Eistlandi gefur góð fyrirheit fyrir seinni leikinn um helgina. Sæti á HM í janúar bíður. Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil kvenna er farið af stað og það með miklum látum. Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar var gestur þáttarins.

Eyjabölvuninni í Krikanum aflétt og Mosfellingar í lykilstöðu 05.05.2024

Við settumst niður með Ásgeir Jónssyni og fórum yfir undanurslitaeinvígin í Olís deild karla. FH-ingar eru komnir í úrslit og Mosfellingar eru í lykilstöðu í sínu einvígi gegn Val. Kíktum á úrslitaeinvígið hjá stelpunum og skúbbuðum nýju þjálfarateymi hjá nýliðum Fjölnis í Olísdeildinni.

Listen to the Handkastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.