Handkastið
Handkastið
Podcast by Handkastið
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Stórveldi í vanda, sterkir nýliðar og gæða útlendingar 06.10.2025 1:02:30
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Sly fóru yfir allt það helsta frá helginni í handboltanum. Bikarkeppnin er í fullum gangi og ævintýri ÍBV 2 lauk í gær þegar KA menn komu í heimsókn. ÍR unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í gær og eru komnir í 8 liða úrslit. 4. umferðin í Olísdeild kvenna lauk um helgina og það er eru svakalegir leikir í vikunni hjá stelpunum. Topp 5 listar voru allsráðan...
Erlingur nennir Handkastinu ekki og loksins vann HK 02.10.2025 57:45
Stymmi Klippari, Davíð Már og Geiri Gunn mættu í Handkast stúdíóið í kvöld og gerðu upp 5.umferðina í efstu deild karla í kvöld. Þór og Stjarnan skildu jöfn í háspennu leik fyrir Norðan meðan KA og ÍR voru með markaveislu í kvöld. ÍBV tapaði gegn Selfoss og Erlingur Richardsson nennti ekki að ræða við Handkastið eftir leik. Afturelding eru einir á toppi deildinnar með fullt hús stiga eftir að hafa...
Ár og aldir síðan HK vann leik og svakalegur fimmtudagur framundan 29.09.2025 1:08:33
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í boltanum. Gaupi fór yfir brottrekstur Gumma Gumm í Danmörku og Janus Daði Smárason varð fyrir skelfilegum meiðslum í gær. Haukar og Fram gerðu jafntefli um helgina en Haukar verða án Rutar í vetur þar sem hún er ólétt. Valskonur unnu fyrri viðureign sína í Evrópukeppninni í Hollandi meðan Selfoss tapaði me...
Ristarspyrna Einars Jóns reyndist dýrkeypt og hverjir eru þessir menn? 26.09.2025 59:10
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Andri Berg mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum, bæði hér heima og erlendis. Frammarar eru að glíma við gífurlega mikil meiðsli í leikmannahóp sínum og evrópukeppnin er handan við hornið. Darri Aronsson er mættur aftur á parketið eftir rúmlega 1.000 daga fjarveru frá handbolta. ÍR-ingar verða að fara að byrja leikina ef þetta á ekki að...
Óvænt úrslit í Olís og Arnar að setja saman nýtt lið 22.09.2025 45:11
Stymmi Klippari fékk til sín Gunnar Val og Sigurjón Friðbjörn til að ræða síðustu daga í handboltanum. Stelpurnar Okkar fór til Danmerkur og fengu skell gegn Dönum. Breytingarnar sem hafa orðið á landsliðinu undanfarin ár voru ræddar og þær áskoranir sem Arnar Pétursson landsliðsþjálfari stendur frammi fyrir. Óvænt úrslit voru í Olís deildinni á föstudaginn og allir þrír leikirnir enduðu með 1 mar...
Róbert Geir hættur og allt vitlaust í Eyjum 19.09.2025 1:04:28
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættur í stúdíó Handkastsins og fóru yfir annasama viku. Róbert Geir hættir um áramótin hjá HSÍ eftir 22 ára starfsferil. Ásgeir Snær dæmdur í þriggja leikja bann eftir myndbandsupptöku. Erum við búin að opna pandórubox þar? Hitamálið í Eyjum sem allir eru að tala um. Klúðraði ÍBV framkvæmd leiksins algjörlega? 3.umferðin er komin af stað og klárast í...
Aukakastið - Rúnar Kárason 17.09.2025 1:13:20
Aukakastið er ný hliðarþáttarröð frá Handkastinu sem er stýrt af Stymma Klippara og Kidda Björgúlfss. Í Aukakastinu munum við fá góða gesti sem allir eiga það sameiginlegt að tengjast handbolta. Hvort sem um er að ræða leikmenn, þjálfara, stjórnamenn eða sjálfboðaliða. Markmið þáttarins er að kynnast viðmælandanum betur, allt frá fyrstu kynnum þeirra að íþróttinni, hápunkta ferilsins og hvernig lí...
Skyttuboltinn er kominn aftur og líkamsárásir í Grillinu 15.09.2025 52:00
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Hefði Arnar Pétursson ekki mátt velja stærri æfingarhóp fyrir landsliðsvikuna? Olís deild kvenna er komin í landsleikjahlé eftir 2.umferðir. Skytturnar eru byrjaðar að láta vaða á markið. Haukar unnu Val á þeirra heimavelli og nýliðar KA/Þór eru með fullt hús stiga. Hvorki gengur né rekur hjá Stj...
Olís deildirnar aldrei verið jafnari 12.09.2025 59:54
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Sly fóru yfir vikuna í handboltanum og spáðu í spilin fyrir helgina. Olís deildirnar hafa aldrei verið jafnari og ærið verkefni að spá í spilin fyrir leikina. FH-ingar pökkuðu Valsmönnum saman í gær. Selfyssingar naga sig í handarbökin að vera ekki komnir með fleiri stig og frábær endurkomusigur hjá Mosfellingum. Nóg af handbolta um helgina og allt saman í...
Nýliðarnir bíta frá sér og nýja logo-ið er ekki allra 08.09.2025 52:34
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi fóru yfir 1.umferðina í Olís deildum karla og kvenna. Sigmundur Steinarsson gefur ekki mikið fyrir nýja logo-ið hjá HSÍ og sendi væna pillu á þá. Stjörnumenn misstu af sæti í Evrópudeildinni eftir vítakastkeppni í Hekluhöllinni. Strákarnir okkar í Magdeburg buðu Krickau velkominn til starfa í Berlín og settu upp sýningu. Nýliðarnir í Olís deildunum byrja t...
Meðbyr með þjóðaríþróttinni og nýjar stjörnur að verða til 05.09.2025 54:01
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Andri Berg mættu og gerðu upp byrjun tímabilsins í Olís deild karla og helstu fréttir erlendis. Valsmenn byrjuðu tímabilið á sigri í Garðabænum, Fram sóttu 2 stig í Karpakrika og ekkert virðist hafa breyst hjá Haukum með tilkomu nýs þjálfara. Strákarnir voru einstaklega jákvæðir með allt í kringum handboltann á þessum fyrstu dögum en fundu þá einn til tvo mínusa...
Ný ásýnd HSÍ og opinber spá Handkastins opinberuð 31.08.2025 56:28
Stymmi Klippari og Benni Gré mættu í stúdíóið á sunnudagsmorgni og fóru yfir allt það helsta í Handboltanum undanfarna daga. HSÍ kynnti nýja ásýnd, nýtt logo og metnaðarfullt prógram fyrir veturinn á kynningarfundi í gær og ríkir mikil bjartsýni fyrir tímabilinu. Valskonur héldu uppteknum hætti og unnu enn einn titilinn í gær þegar þær unnu Meistarar Meistaranna í leik gegnum Haukum á Hlíðarenda....
Starfsfólk HSÍ tekur að sér aukavinnu og leiðinleg viðtöl framundan í vetur? 24.08.2025 53:41
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í stúdíó Handkastsins og tóku fyrir helstu mál líðandi stundar í handboltanum á Íslandi. Er of lítið að gera hjá Óla Víði á skrifstofu HSÍ? Er bannað að gefa skemmtileg viðtöl í vetur? Æfingarmótin á fullu og spennadi vetur framundan hjá stelpunum.
Spennandi vetur framundan og sumarið gert upp 17.08.2025 50:48
Einar Ingi og Davíð Már kíktu í stúdíóið með Stymma og gerðu sumarið upp og komandi átök í deildinni. Hvaða lið eru líklegust og hvernig hafa sumargluggarnir verið?
Kári Kristján vandar ÍBV ekki kveðjurnar 14.08.2025 57:31
Handkastið hefur hafið enn eitt tímabilið og það er óhætt að segja að það byrji á sprengju. Kári Kristján Kristjánsson mætti í stúdíóið hjá Handkastinu í kvöld og fór yfir alla tímalínuna í samningaviðræðum við ÍBV sem silgdu í strand í síðustu viku. Kári Kristján vandar sínu uppeldisfélagi ekki kveðjurnar
Til hamingju Valur & Aron Pálmarsson kveður Þjóðaríþróttina 27.05.2025 1:04:53
Það var þéttsetið í Handkastinu að þessu sinni. Sérrfæðingurinn, Stymmi klippari, Einar Andri Einarsson og Einar Örn Jónsson fóru yfir sviðið. Ræddum úrslitakeppnirnar karla og kvennamegin og fórum yfir ótrúlegan feril Arons Pálmarssonar sem leggur skónna á hilluna eftir tímabilið.
Til hamingju Fram! Tvöfaldir meistarar í ár! 22.05.2025 54:28
Klipparinn, Andri Berg og Geiri Gunn gerðu upp úrslitaleik Vals og Fram. Fram eru Íslandsmeistarar árið 2025. Úrslitaeinvígið hjá Val og Haukum er komið af stað og þar leiða Valsstelpur 1-0. Tókum rúnt um Evrópu og FH-ingar styrkja sig í karla og kvenna.
Evrópubikarmeistararnir mæta ryðgaðar í úrslitin og mætir Breki Hrafn með kústinn á átta skrefum? 19.05.2025 58:31
Farið var yfir leik tvö í úrslitaeinvígi Vals og Fram. Farið var yfir Evrópubikarmeistaratitil Vals kvenna og hitað var upp fyrir úrslitaeinvígið hjá konunum sem hefst 20.maí.
Leiðin er greið í undanúrslit á EM26 og Fram átti fyrsta höggið 15.05.2025 46:10
Klipparinn og Andri Berg fóru í Dominos Stúdíóið og gerðu upp fyrsta leik í úrslitaeinvígi Vals og Fram. Kvennalið Vals getur brotið blað í sögur kvennaboltans á laugardaginn, allir að mæta! Dregið í riðla fyrir EM26 og aftur datt Ísland í lukkupottinn!
Hvar voru Framararnir? Fullt hús hjá landsliðinu og ekkert lið í Evrópu á næsta ári? 11.05.2025 1:03:41
Séffinn, Klipparinn og Einar Ingi gerðu landsleikinn upp. Úrslitaeinvígin í Olísdeildunum eru að byrja og Valskonur geta brotið blað í sögu kvennahandboltans.
Lygilegt gengi Snorra Steins og goðsagnir kvaddar 08.05.2025 46:56
Séffinn og Klipparinn gerðu upp landsleik Íslands við Bosníu. Haukar eru komnar í úrslit gegn Val í Olís kvenna og Viran Morros var á línunni og ræddi Meistaradeildina með okkur.
Dómarastéttin dílar við skjáfíkn og UMFA féllu á prófinu 02.05.2025 1:06:17
Dómarastéttin dílar við skjáfíkn og UMFA féllu á prófinu by Handkastið
Formaður FH sendir pillu og þjálfararáðning fyrir norðan 28.04.2025 1:15:46
Séffinn, Klipparinn og DMK mættu í stúdíó og gerðu upp úrslitakeppni karla og kvenna. Selfoss er komið aftur í deild þeirra bestu og Grótta situr eftir með sárt ennið.
Dómararnir í aðalhlutverki og tekst Robba Gunn það ómögulega? 25.04.2025 1:18:26
Séffinn, Klipparinn og Einar Ingi gerðu upp 3.leiki í undanúrslitum í Olísdeild karla. Selfoss eru komnir yfir í umspilinu um sæti í deild þeirra bestu. Stelpurnar fara af stað á morgun og Viran Morros rýndi í meistaradeildina með Klipparanum.
Sópa Frammarar Íslandsmeisturunum og Vatn á Myllu Séffans! 22.04.2025 1:08:17
Séffinn, Klipparinn og Andri Berg gerðu upp leiki 2 í undanúrslitum Íslandsmótsins. Meistaradeildin er að fara aftur af stað og íslendingar voru í eldlínunni í Evrópudeildinni. ÍR er komið í undanúrslit Olísdeildar kvenna og Séffaumspilið er að ná nýjum hæðum!
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.