Handkastið

Handkastið

Sports IS ↓ 353 episodes

Podcast by Handkastið

Author

Handkastið

Category

Sports

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Mest spennandi lokaumferð í manna minnum á fimmtudaginn 10.03.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp næst síðustu umferð Olís deildar karla. Það eru öll lið að spila um eitthvað á fimmtudaginn? Tekst Þór að komast í úrslitakeppnina? Bjargar ÍR sér frá falli? Ná ÍBV að skemma deildarmeistarapartýið fyrir Val? Stelpurnar Okkar spiluðu vel í 43 mínútur í Svartfjallalandi en svo varð algjört hrun á leik þeirra. Snorri S...

ÍR gæti fallið í sófanum og hverjir ætla að vinna deildina? 05.03.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gunnar Valur mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp 20.umferð Olís deildarinnar. Afturelding kastaði frá sér möguleika á sigri gegn FH á lokasekúndnum leiksins. Settu ÍBV og ÍR markamet í Vestmannaeyjum? Það vill ekkert lið lenda á móti Fram í úrslitakeppninni. Falla ÍR í sófanum á morgun þegar Stjarnan tekur á móti KA? Frábær sigur íslensku stelpnanna g...

Til hamingju Haukar og Valur - Hraðmót framundan í Olís-karla 01.03.2026

Farið var yfir úrslitaleikina í Powerade-bikar karla og kvenna í þættinum auk þess sem spáð var í spilin fyrir hraðm´ótið í Olís-deild karla sem hefst strax á miðvikudaginn þegar bikarmeistararnir mæta norður.

Verða Haukar tvöfaldir bikarmeistarar á umdeildum heimavelli? KA og FH slegnir út af laginu 27.02.2026

Sérfræðingurinn, Einar Ingi Hrafnsson og Guðjón Guðmundsson gerðu upp undanúrslitaleikina í Powerade-bikarnum sem fóru fram á Ásvöllum í vikunni. Haukar og Valur unnu sína leiki kvennamegin á meðan Haukar og ÍR unnu sína leiki karlamegin. Rætt var um nýtt þjálfarateymi Stjörnunnar, umdeildan leikstað bikarúrslitanna og margt fleira í þættinum.

Aukakastið - Ásbjörn Friðriksson 25.02.2026

Ásbjörn Friðriksson er nýjasti gestur Aukakastsins þar sem Stymmi Klippari og Kiddi Bjé fá til sín handboltafólk og gerir upp feril þess allt frá fyrstu æfingu. Ási eins og hann er oftast kallaður fer yfir uppvaxtarárin á Akureyri, árin í atvinnumennsku og hvort þau hefði getað verið fleiri og tíma sinn í FH. Skemmtileg ferðalög sem hann fór í með FH gegnum árin eins og þegar þeir flugu til Rússla...

Lygileg spenna - Bikarvika framundan og ótrúlegar samsæriskenningar 22.02.2026

Sérfræðingurinn settist í Rapyd stúdíóið með þeim Benedikt Grétarssyni og Davíð Má Kristinssyni. Farið var yfir málin í Olís-deildum karla og kvenna þegar þrjár umferðir eru eftir í báðum deildum. Söguleg spenna er í deildunum báðum og allt getur gerst. Ofan í það þá er bikarvika framundan þar sem krýndir verða bikarmeistarar næstu helgi.

Snorri Steinn gerir upp EM! 18.02.2026

Snorri Steinn Guðjónsson mætti Sérfræðingnum í Rapyd Stúdíó-inu og fór yfir Evrópumótið þar sem íslenska landsliðið lauk leik í 4.sæti eftir tap gegn Króatíu í leik um bronsið. Farið var yfir alla leiki mótsins, tilfinningarússíbanann í milliriðlinum, meiðsli Elvars Arnar og undanúrslitahelgina í Herning. Snorri Steinn var spurður út í framhaldið hjá sér sem landsliðsþjálfara - framtíð íslenska ha...

Hver felldi ÍR, flóttinn úr Kórnum og pungslausir Þórsarar 16.02.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættur í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina i íslenska og alþjóðlega boltanum. Var þetta síðasta tækifæri ÍR til að halda sér í deildinni? Eru hálft liðið hjá HK að fara? Markmennirnir í kvennaboltanum voru á eldi um helgina. Gróttan á leiðinni upp í Olís deildina? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Bestu leikmenn í Grillinu og fimm liða fallbarátta 12.02.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már kíktu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Bestu leikmenn Grill deildanna valdir Þjálfarakapall að fara af stað? Danska leikin málið fyrir úrslitakeppnina? ÍBV eru komnir í 4.sæti Olís deildarinnar og ekkert gengur hjá Aftureldingu. FH unnu endurkomusigur á sprækum Selfyssingum. Umferðir í Karla og kvenna um helgina. Þetta og...

Olís deildin aldrei verið jafnari 09.02.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Sly mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp helgina í handboltanum. Olís deildin hefur aldrei verið jafnari á allt getur gerst bæði á toppi og botni. Haukar féllu á prófinu gegn ÍBV. FH sluppu með skrekkinn fyrir Norðan. Stjarnan eru komnir í alvöru fallbaráttu. Stórleikur í Skógarselinu í kvöld þar sem fallbaráttan gæti ráðist. Olís deild kvenna er engin unda...

Allt undir hjá ÍR um helgina og verða Haukar alltaf bestir 06.02.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp 16.umferðina í Olís deildinni. Stjarnan eru komnir í alvöru fallbaráttu eftir tap gegn Þór. Haukar mættu á Hlíðarenda og pökkuðu Val saman. ÍR verða að vinna um helgina ef þeir ætla ekki að kveðja Olísdeildina. Markvarðaveisla fyrir aðdáendur Olís deildar karla. Haugur af leikjum í Olísdeildum karla og kvenna um hel...

Evrópumótið gert upp 01.02.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari, Teddi Ponza og Mikael Nikulásson mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu Evrópumótið upp. Ísland endaði í 4.sæti eftir tap gegn Króatíu í leik um bronsið í dag. Er Snorri Steinn á réttri leið með liðið? Markvarslan var vonbrigði á mótinu, hver er næsti maður inn ef Bjöggi hættir? Til hvers var Þorsteinn Leó með á þessu móti? Er kominn tími á að Snorri Steinn fari að þjálf...

Hetjuleg barátta dugði ekki til 30.01.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Arnar Sveinn Geirsson mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp leik Íslands og Danmerkur. Strákarnir voru frábærir en vantaði herslumuninn í kvöld. Viktor Gísli fann sig ekki í markinu og munaði um minn. Dýr vítaklúður á ögurstundu Dagur Sigurðsson lét EHF heyra það og þeir fundu fyrir því Króatar bíða á sunudaginn og brosnið er ennþá möguleiki. Heil umfer...

Leiðin var greið eftir 16 ára bið - Undanúrslit bíða okkar 28.01.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Ási Friðriks mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp sigur Íslands á Slóvenínu. Strákarnir Okkar eru komnir í undanúrslit og mæta þar Danmörku á heimavelli á föstudagskvöldið klukkan 19:30. Frábær síðari háflleikur okkar manna gegn Slóveníu. Markvarslan er áfram hausverkur og vonandi lagast hún fyrir Danaleikinn. Óðinn Þór verið frábær og hægra horninu og Gísli Þorg...

Draumurinn lifir þrátt fyrir afhroð - Snorri þarf að vera meira hann sjálfur 27.01.2026

Það var rússibanareið í Rapyd stúdíóinu í kvöld eftir afhroð strákanna okkar gegn Sviss í dag. Þegar allt var í svartnætti yfir Íslandi mættu Ungverjar og kveiktu von með jafntefli gegn Svíum í lokaleik dagsins. Sérfræðingurinn og Stymmi klippari fengu Aðalstein Eyjólfsson fyrrum þjálfara Kadetten Schaffenhausen í Sviss og við fórum yfir allt sem hægt var að ræða.

Strákarnir Okkar losuðu um handbremsuna og settu allt í botn 25.01.2026

Stymmi Klippari, Einar Ingi og Geiri Sly mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp frábæran sigur Íslands á Svíþjóð í dag. Íslenska geðveikin mætti til leiks og léku allir strákarnir við hvern sinn fingur. Viggó Kristjánsson velkominn til leiks! Haukur Þrastarson varnarlega! Elliði og Ýmir með 20 löglegar stöðvanir! Viktor Gísli, Gísli Þorgeir, allir strákarnir okkar voru magnaðir í þessum si...

Snorri Steinn gerir upp tapið gegn Króatíu í viðtali við Séffann 24.01.2026

Sérfræðingurinn er staddur í Malmö og hitti Snorra Stein Guðjónsson þjálfara íslenska landsliðsins og gerði upp eins marks tap Íslands gegn Króatíu sem fram fór í gær. Sérfræðingurinn spurði Snorra Stein meðal annars út í: - Varnarleik Íslands í leiknum - Hvenær Snorri Steinn fór að bregðast við vandamálunum - Markvörsluna í leiknum - Seinni bylgjuna hjá Íslandi í leiknum og heilt yfir á mótinu -...

Fjallabaksleið framundan hjá landsliðinu eftir tap gegn Króötum 23.01.2026

Stymmi Klippari, Kiddi Bjé og Ási Friðriks gerðu landsleik Íslands gegn Króötum upp í Rapyd stúdíóinu. Lélegur varnarleikur og markvarsla í fyrri hálfleik kom okkur í erfiða stöðu. Óðinn Þór var frábær í leiknum. Gísli Þorgeir var allt í öllu sóknarlega án þess að skora mark í leiknum. Króatar skutu okkur í kaf utan af velli meðan við þurftum að hafa fyrir mörkunum okkar. Svíar bíða á sunnudaginn...

Loksins loksins! Lífið heldur áfram að vera yndislegt 20.01.2026

Loksins loksins! Lífið heldur áfram að vera yndislegt by Handkastið

Lífið er yndislegt og Ungverjar bíða á þriðjudaginn 18.01.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Siggi Bond gerðu upp sigur íslenska landsliðsins á Pólverjum strax eftir leik í Kristianstad. Ýmir Örn var stórkostlegur í vörninni. Elliði svaraði fyrir lélegan leik a´ föstudaginn. Haukur var með frábæra innkomu. Var móment í síðari hálfleik kveikti í stúkunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Þjóðhátið komin af stað og ættum við að hætta að spila með línumann? 16.01.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Siggi Bond gerðu upp sigur Íslands á Ítalíu í opnunarleik liðsins á Evrópumótinu í kvöld. Janus Daði var frábær og breytti gangi leiksins á 20 mínútu. Snorri Steinn var vel undirbúinn og átti svör við öllu sem Bob Hanning kastaði að okkur. Bjarki var með frábæra innkomu í síðari hálfleik og ætlar greinilega að njóta sín í botn á mótinu. Pólverjar bíða á sunnudag...

Síðasta upphitun fyrir EM og síminn var á lofti 15.01.2026

Sérfræðingurinn og Stymmi Klippari fóru yfir lokaupphitun fyrir Evrópumótið í Rapyd stúdíóinu en mótið hjá Íslandi hefst á morgun þegar þeir mæta Ítölum í fyrsta leik. Síminn var á lofti hjá strákunum og var slegið á þráðinn til Gaupa, Tedda, Hödda Magg og Mike. Við eigum engar afsakanir eftir, leiðin hefur aldrei verið greiðari og hópurinn búinn að ganga í gegnum mikið saman undanfarin ár. Handka...

Generalprufunni lokið og alvaran hefst á föstudaginn 11.01.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Jónsson mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp leik Ísland gegn Frakklandi sem fram fór í París í dag. Snorri Steinn var a´ línunni og sagðist heilt yfir vera ánægður með helgina í París en strákarnir fá frí á morgun til að spóka sig um í borg ástarinnar. Einar segir að við getum alveg gert kröfu á að íslenska liðið fari alla leið í undanúrslit á E...

Sigur á löskuðum Slóvenum og Snorri Steinn í beinni frá París 09.01.2026

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp landsleik Ísland gegn Slóveníu. Strákarnir voru frábærir í fyrri hálfleik en síðari hálfleikurinn byrjaði ekki nógu vel. Snorri Steinn var á línunni frá París og gerði leikinn og framhaldið upp með Handkastinu. Viktor Gísli frumsýndi nýtt vopn í vopnabúrinu Hákon Daði er kominn heim til Eyja. Heil umferð...

Farið yfir greiðu leiðina í undanúrslitin og allt þar á milli - 12 dagar í EM! 04.01.2026

Sérfræðingurinn og Klipparinn hófu upphitunina fyrir EM í Rapyd stúdíóinu með þeim Aðalsteini Eyjólfssyni og Einari Erni Jónssyni. Það eru ekki nema tólf dagar í fyrsta leik Íslands á EM.

Listen to the Handkastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.