Handkastið

Handkastið

Sports IS ↓ 353 episodes

Podcast by Handkastið

Author

Handkastið

Category

Sports

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Gamla góða heimilið - heimili þjóðaríþróttarinnar 26.08.2023

Verið velkomin á gamla góða heimili Handkastsins - heimili þjóðaríþróttarinnar. Við hlökkum til að vera með ykkur í allan vetur.

HM Handkastið - Bless bless! 24.01.2021

HM er lokið hjá íslenska landsliðinu. Sigrar gegn Alsír og Marokkó en síðan ekki söguna meir. Tómas Þór Þórðarson og Jóhann Skúli Jónsson fara yfir frammistöðu liðsins ásamt Sérfræðingnum og Snickers-inu. Af einhverri ástæðu fór mikill tími um að ræða Guðmund Þórð Guðmundsson. Útaf dotlu.

HM Handkastið x Steve Dagskrá 18.01.2021

HM Handkastið x Steve Dagskrá by Handkastið

HM Handkastið með Hjamma og King Ploder 14.01.2021

HM er farið af stað. Sérfræðingurinn og Snickers-ið fóru yfir fyrsta leik Íslands á mótinu gegn Portúgal með þeim Hjálmari Erni Jóhannssyni og Agli Ploder. Í lok þáttar drógum við út í Skruf-leiknum. Handkastið í samstarfi við Skruf verða með gjafaleiki á samfélagsmiðlum Handkastsins í kringum leiki Íslands á HM,

HM Handkastið - Upphitun fyrir enn eitt stórmótið 11.01.2021

HM í Egyptalandi hefst í vikunni. Sérfræðingurinn og Stymmi Snickers fengu þá Benedikt Grétarsson og Jóhann Gunnar Einarsson til sín og fóru yfir landsliðið stöðu fyrir stöðu og möguleika þess á mótinu. Auk þess kom Sérfræðingurinn með mola beint frá Frakklandi um einn af landsliðsstrákunum okkar sem og molunum rigndi inn úr Garðabænum. Þátturinn er í boði Skruf.

Viðhafnarútgáfa - Landsliðs og Olís umræða 05.11.2020

Uppáhalds þríeyki þjóðarinnar mætti í stúdíó-ið með grímur og sprittbrúsa að vopni. Allt fyrir ykkur, Bless´ykkur.

Félagsskiptaglugginn krufinn og ótímabær spá 24.05.2020

Í þættinum fórum við yfir félagsskiptagluggann, öllum liðum gerð góð skil og farið yfir ótímabæra spá. Gestur þáttarins var gamla kempan Andri Berg Haraldsson. Þátturinn er í boði BK-kjúklings.

Sérfræðingurinn í Olís - Viðtal við Adda Tedda og Nökkva Fjalar 09.04.2020

Þátturinn var smekksneisafullur þrátt fyrir að enginn handbolti sé spilaður þessa dagana. Við slógum á þráðinn til Arnars Freys Theodórssonar, umboðsmanns Íslands og fórum yfir landslagið í evrópskum handbolta. Við fórum yfir ákvörðun HSÍ um að slaufa tímabilinu. Slúðurmolarnir voru á sínum stað og Nökkvi Fjalar datt í óvænt spjall. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Uppgjöfsþáttur. 31.03.2020

Sérfræðingurinn, Ponzen og Snickers-ið settust niður og fóru yfir mál líðandi stundar í handboltanum. Á að slaufa handbolta tímabilinu hér heima eða bíða lengur með ákvörðun? Hvað á HSÍ að gera ef þeir þurfa að slaufa mótinu vegna Covid19? Við fengum álitsgjafa til að segja sína skoðun og síðan ræddum við málið ítarlega. Auk þess gerðum við upp Olís-deild karla, völdum úrvalslið deildarinnar, vonb...

Bikarþynnka er vandamál og hvar var Kári Garðars? 12.03.2020

20. umferðin í Olís-deild karla var rædd og steinum velt varðandi málefni líðandi stundar og áhrif Covid-19 á Íslandsmótið. HK er fallið og veltum við því fyrir okkur hvað verður um leikmannahóp liðsins. Þátturinn er í boði BK - Kjúklings.

Final4 uppgjör og upphitun fyrir Olís 08.03.2020

Final4 helgin er að baki og fórum við yfir bikarúrslitin bæði í karla og kvennaflokki. Jóhann Gunnar Einarsson er gestur þáttarins. Eins fórum við yfir stuðlabergið á Coolbet fyrir næstu umferð í Olís-deild karla en einungis þrjár umferðir eru eftir af deildinni og spennan fyrir úrslitakeppninni eykst með hverjum deginum. Við óskum bæði ÍBV og Fram til hamingju með bikarmeistaratitilinn. Þátturinn...

Finnur Ingi í legkökunudd, Raggi Jó á Selfoss og Prinsinn á línunni 24.02.2020

19. umferðin í Olís-deild karla var gerð upp í þætti kvöldsins, slúðurmolarnir voru fjölmargir og Fjölnismenn voru kvaddir úr deildinni. Eyjamaðurinn, Benóný Friðriksson var í símaviðtali frá Eyjum þar sem hann fór yfir mál líðandi stundar. Við ræddum í lokin Final4 og Olís-deild kvenna. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings.

Haukar orðnir bensínlausir og Nökkva Fjalars effect heldur áfram 17.02.2020

Farið var yfir 18.umferðina í Olís-deild karla með Ingvari Erni Ákasyni, Byssunni sjálfri. Rætt var um árangur Vals í Evrópu og stóra ferðakostnaðarmálið í tengslum við bikarleik Harðar og Þórs. Einnig ræddum við heimavöll Stjörnunnar í umferðinni, gamla góða Ásgarðinn. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Halldór Jóhann í Cocks og Ýmir Örn á línunni 10.02.2020

Farið var yfir 17. umferðina í Olís-deild karla í þættinum að þessu sinni. Auk þess hringdum við í í nýjasta atvinnumann okkar Íslendinga, Ými Örn Gíslason og DJ-Hornið náði nýjum hæðum hjá Sérfræðingnum. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Svarthvítur Hafnarfjörður og Patti í Stjörnuna? 02.02.2020

Í þættinum var farið 16. umferð Olísdeildar karla, þar á meðal Hafnarfjarðarslaginn, fallslaginn í Djúsmýrinni og baráttuna um Suðurland. Einnig var farið yfir stöðuna í Olísdeild kvenna, molar úr heimsboltanum og spáð í spilin fyrir 8-liða úrslit CocaCola bikarsins, sem fer fram í vikunni. Gestur þáttarins var Benedikt Grétarsson, betur þekktur sem Benni Bounty. Þátturinn er í boði BK Kjúklings

Nökkvi Fjalar mættur í Olís og viðkvæmni í Austurberginu 28.01.2020

Olís-deildin er komin á stað eftir 44 daga EM-pásu. Heil umferð fór fram í kvöld og fórum við yfir leikina í þættinum auk þess sem við hringdum í Ponzuna sem er staddur í Hollandi. DJ-Hornið var á sínum stað. Gestir þáttarins voru þeir Jóhann Skúli Jónsson lífskúnster og Baldvin Fróði Hauksson, hnattknattleiksþjálfari. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

EM Krufning Handkastsins 23.01.2020

Íslensku strákarnir hafa lokið leik á EM eftir kaflaskipta frammistöðu. Við fórum yfir frammistöðu liðsins og leikmanna á tveimur klukkutímum, spáðum í framtíðina og ræddum um heilbrigðiskerfið. Gestir þáttarins var Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins og Ásgeir Jónsson aðstoðarþjálfari Aftureldingar. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings.

EM Handkastið - Kaflaskipt spilamennska. "Syngjum, syngjum og tröllum, ÁFRAM ÍSLAND" 19.01.2020

Það er óhætt að segja að EM hingað til hafi verið kaflaskipt hjá strákunum okkar. Svekkjandi tapi gegn Slóvenum var fylgt eftir með góðum sigri á Portúgölum. Gestur þáttarins var Árni Stefán Guðjónsson, þjálfari mfl.kv. í Haukum. Í lok þáttar voru 10 heppnir þátttakendur dregnir út í Coolbet getraunaleiknum. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings

EM Handkastið með Gunnari Birgis og Gaupi á línunni 15.01.2020

Gestur þáttarins var íþróttafréttamaðurinn og gönguskíðagarpurinn Gunnar Birgisson og þá var Guðjón Guðmundsson á línunni í upphafi þáttarins. Farið var yfir tapið gegn Ungverjum auk þess sem spilamennska leikmanna á mótinu hingað til var rædd. Sigurvegarar í Coolbet getraunarleik Handkastsins voru tilkynntir ásamt því að dregið var út sigurvegari í BK Kjúklings leik Handkastsins. Þátturinn er í b...

EM uppgjör með Steve Dagskrá - Ísland komið í milliriðla 13.01.2020

Gestir þáttarins voru stjórnendur Steve Dagskrá, þeir Andri Geir Gunnarsson og Vilhjálmur Freyr Hallsson. Fjallað var um fyrstu tvo leiki Íslands á Evrópumótinu og spáð í spilin fyrir framhaldið. Dregið var í getraunaleik Coolbet í lok þáttar. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings

Handkastið - Upphitun fyrir EM 2020 og viðtal við Viggó Kristjánsson 08.01.2020

Í þættinum ræddu Ponzen og Snickers, ásamt Ásbirni Friðrikssyni leikmanni FH, um Evrópumeistaramótið sem hefst á morgun í Svíþjóð, Noregi og Austurríki. Slógum á þráðinn til Viggó Kristjánssonar leikmanns íslenska landsliðsins. Auk þess var farið yfir stuðlabergið hjá Coolbet. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Handkastið - Valsmenn á siglingu og Gunni Magg í Mosó? 15.12.2019

Í þættinum var farið 14. umferðina í Olís-deild karla sem var síðasta umferð fyrir jól. Einnig var rætt um skrautlegan úrslitaleik á HM-kvenna. Sjóðandi heitur slúðurmoli úr Mosfellsbænum bar á góma auk þess sem úrslit í EM-leik Coolbet og Handkastsins voru tilkynnt. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings.

Hákon Daði á eldi í 2. deildinni og EuroLalli með Jólasmell 09.12.2019

Í þættinum er farið yfir 13. umferðina í Olís-deild karla ásamt því að EM-leikur Handkastsins í samstarfi við Coolbet var kynntur. Davíð Örn Atlason er gestur þáttarins en hann skoraði 18 mörk í síðasta handboltaleik sínum á ferlinum í leik með Víkingi í 3.flokki B. Hákon Daði Styrmisson gerði gott betur um helgina og skoraði 20 mörk með ÍBV U í 2. deildinni og alls 24 mörk sama dag. Athyglisvert...

Handkastið - Þýska 103 í boði Phil Döhler og botnliðin í basli 02.12.2019

12. umferðin í Olís-deild karla gerð upp í þætti kvöldsins. Stefán Árni Pálsson, fréttamaður á Vísi og Stöð2Sport var gestur þáttarins. Phil Döhler lokaði búrinu á Selfossi, botnliðin eru í basli og Siggi Seðill hendir út pillum á twitter. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings

Halldór Jóhann tekur við Fram og Viggó fer í Stuttgart! 25.11.2019

Stútfullur þáttur Handkastsins þar sem Einar Örn Jónsson er gestur þáttarins. Farið var yfir 11. umferðina í Olís-deild karla á handavaði, gengi liðanna í fyrri umferðinni var gert upp og Ponzen valdi besta leikmann hvers liðs. Einar Örn settist síðan í sæti GummaGumm og valdi 17 manna leikmannahóp sem hann myndi fara með á EM í janúar. Handkastið ætlar að gefa tvo miða á EM í janúar á næstu dögum...

Listen to the Handkastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.