Kop.is

Gullkastið

Sports IS ↓ 398 episodes

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Author

Kop.is

Category

Sports

Podcast website

www.kop.is

Latest episode

Jun 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Gullkastið – Stemming á Anfield 14.11.2023

Ljómandi góð Kop.is ferð á Anfield að sjá flottan 3-0 sigur á Brentford aðalatriði vikunnar og hvaða úrslit helgarinnar gera fyrir Liverpool í deildinni, liðið er einu stigi frá toppliði Man City sem bíða í næsta leik. Landsleikjapása annars framundan Gullkastið heldur svo áfram að velja lið  Ögurverk lið aldarinnar  og núna voru það hægri bakverðir. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SStei...

Gullkastið – Vintage Liverpool 06.11.2023

Þéttingsfast kjaftshögg í Luton um helgina eftir góðan stíganda í Liverpool 2.0. Vorum svo sannarlega að vona að Liverpool væri núna vaxtið upp úr svona afleitum jafnteflum en svo er greinilega ekki. Deildarbikarsigur í miðri viku var öllu meira hressandi. Nóg drama annars eftir helgina og þá sérstaklega eftir leikinn norður Englandi, yfirlýsingar og hvaðeina. Frammundan er svipað prógramm, Toulou...

Gullkastið - Skyldusigur í öðrum gír 30.10.2023

Fréttir frá Kólumbíu settu mjög svartan blett á annars jákvæða viku innanvallar hjá Liverpool. Góður karakter hjá liðinu eftir hræðilegrar fréttir frá Kólumbíu að vinna Nottingham Forest svo til án þess að fara úr öðrum gír og auðvitað var sigurinn tileinkaður Luis Diaz. Toulouse mætti á Anfield í síðustu viku og fór Liverpool langt með að klára riðilinn í Evrópudeildinni með mjög góðum 5-1 sigri....

Gullkastið – Liverpool borg Er Auðvitað Rauð! 24.10.2023

Everton bætti met W.B.A yfir fæstar heppnaðar sendingar í deildarleik í Úrvalsdeildinni þegar þeir mættu með sína tveggja hæða rútu á Anfield án árangurs. Borgin er og verður alltaf rauð. Er Liverpool í toppbaráttu/titilbaráttu? Tókum stöðuna á deildinni almennt og vottuðum bæði Bill Kenwright (Mr. Everton) og Bobby Charlton (Mr. Manchester United) virðingu en báðir féllu frá í vikunni. Tveir leik...

Gullkastið – Merseyside Derby um helgina 17.10.2023

Liverpool fór inn í landsleikjahlé í töluverðum mótvind eftir aðeins eitt stig af sex mögulegum og einhverja verstu einhliða dómgæslu í sögu deildarinnar. Þrátt fyrir það er liðið aðeins þremur stigum frá toppnum og einu frá Man City sem er hinn raunverulegri toppur og staðan því alls ekkert galin þrátt fyrir allt. Tókum stöðuna á toppi deildarinnar, hvernig helstu keppinautar Liverpool í vetur ha...

Gullkastið – Rán!!! 02.10.2023

Tottenham þurfti tvö rauð spjöld, sjálfmark og líklega verstu dómara"mistök" VARsögunnar til að merja sigur á heimavelli gegn frábæru liði Liverpool. Óbragðið er vægast sagt ekki farið eftir þetta ljóta rán og félagið réttilega að krefjast svara og vitiborinna aðgerða. Helgin gerð upp frá Spáni að þessu sinni. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttar...

Gullkastið - Góður taktur 25.09.2023

Ef að það væri bara spilað seinni hálfleikinn væri þetta Liverpool lið á góðri leið með að verða besta lið sögunnar. Tveir góðir 3-1 sigrar í vikunni og ágætis úrslit annarsstaðar. Deildarbikarinn fer af stað í þessari viku er Leicester kemur í heimsókn og um helgina er það erfitt verkefni í London. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarin...

Gullkastið – Jekyll & Hyde 18.09.2023

Enn ein endurkoman og á endanum góður sigur í hádegisleik eftir landsleikjahlé þar sem Liverpool spilaði alla hittarana í fyrri hálfleik. Ágætis helgi heilt yfir í enska boltanum frá okkar sjónarhóli. Þetta er svo allt að fara í venjulega rútínu í þessari viku þegar við hefjum tvo leiki á viku kafla fram að næsta landsleikjahléi. Austurríki á fimmtudaginn og West Ham mætir svo á Anfield um helgina...

Gullkastið – Hverjir unnu leikmannagluggann? 11.09.2023

Spáðum í byrjun tímabilsins í samanburði við væntingar, hvaða lið "vann" leikmannagluggann, framtíð Salah og Wolves leiknum um helgina. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull  /  Húsasmiðjan  /  Verdi Travel  /  Jói Útherji  /  Ögurverk ehf

Gullkastið – Gluggalok og góður sigur 04.09.2023

Gamlir Gegenpressing taktar á Anfield gegn Aston Villa og spennandi holning að komast á liðið. Glugganum lokaði með Gravenberch og (ennþá) engri sölu á Salah. Áhugaverðar breytingar hjá toppliðunum í sumar og fyrstu línur farnar að skýrast núna þegar fyrsta landsleikjahlé tímabilsins er skollið á. Góð vika fyrir Liverpool. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn Kop.is Hópferð með Verdi...

Gullkastið - Sturluð innkoma Nunez 28.08.2023

Darwin Nunez stimplaði sig inn með látum og afgreiddi Newcastle eftir hroðalega pirrandi leik. Vonandi túrbóskotið sem Liverpool þarf fyrir þessu tímabili og byrjunin fyrir alvöru á hans ferli hjá Liverpool. Aftur kemur Liverpool til baka og vinnur og aftur þarf liðið að spila manni færri stóran hluta leiksins eftir soft rautt spjald. Alvöru karakter í þessu liði greinilega. Þetta er svo síðasta v...

Gullkastið – Lokmetrar leikmannagluggans 22.08.2023

Ágætur endurkomusigur á Anfield til að klára Bournemouth og fyrsta sigur tímabilsins staðreynd. Nýr leikmaður keyptur í síðustu viku en ljóst að það þarf að kaupa annan í þessari viku. Glugganum lokar eftir rúmlega viku. Newcastle bíður svo í næstu viku! Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi Kop.is Hópferð með Verdi Travel á Anfield 10. – 13. nóvember á Liverpool – Brentford Nánar um fer...

Gullkastið – Vika vonbrigða 16.08.2023

Það er ekki hægt að segja að hlutirnir hafi verið að falla með Liverpool í þessari viku, hvorki innan né utan vallar. Tímabilið byrjaði á Stamford Bridge og endaði með enn einu jafnteflinu gegn Chelsea. Þeir keyptu bara bæði Caicedo og Lavia, búnir að eyða meira en La Liga á Spáni samanlagt frá því í fyrrasumar. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Kop.is Hópferð með Verdi Tr...

Gullkastið - Barátta við Chelsea innan sem utan vallar 10.08.2023

Nýtt tímabil hefst á sunnudaginn og það er erfitt að fylgja eftir fréttum af leikmannamarkaðnum í þessari viku svo margar og misvísandi eru þær. Leikurinn við Chelsea virðist a.m.k. löngu byrjaður þar stríðið á leikmannamarkaðnum virðist hvað helst vera gegn þeim. Ekkert annað í stöðunni en að hjóla í Hellinn og hita upp fyrir nýju tímabili og fara yfir helstu fréttir. Stjórnandi:  Einar Matthías...

Gullkastið – Nýja leikmenn strax! 02.08.2023

Það hafa verið viðræður undanfarna daga við Southampton varðandi kaup á Romeo Lavia auk þess sem André leikmaður Fluminense var orðaður við Liverpool í þessari viku. Liverpool þyrfti helst að klára báða í þessari viku. Henderson og Fabinho eru formlega og staðfest farnir og flest hinna liðanna ættu að eiga eftir að gera slatta á leikmannamarkaðnum í sumar. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:...

Gullkastið – Henderson og Fabinho 18.07.2023

Innkoma Saudi Araba í knattspyrnuheiminn tók skarpa beyju til Liverpool í síðustu viku og virðist ætla setja áform Liverpool á leikmannamarkaðnum í annan farveg en leit út fyrir í fyrstu. Fyrirliðinn og Fabinho jafnvel fara jafnvel báðir í þessari viku og svo komu fréttir í dag af dónaboði í Luis Diaz líka, hvaða helvítis bara? Augljóst hvað var á dagskrá í Gullkastinu í dag auk þess sem æfingatím...

Gullkastið - Dóri Sly 03.07.2023

Miðjan hjá Liverpool er töluvert sterkari á pappír með Szoboszlai til viðbótar við Mac Allister og kaupin á Ungverjandum eru klárlega aðeins hærra level en við vorum kannski að gera okkur vonir um fyrir nokkrum vikum. Spennandi vikur og nokkuð jákvæður andi yfir Liverpool og miðað við slúðrið er ekkert búið að loka veskinu ennþá. Eins erum við að kynna næstu Kop.is ferð með Verdi Travel sem verður...

Gullkastið – Kop.is hópferðir 2023/24 20.06.2023

Leikjalisti fyrir nýtt tímabil er komin út og af því tilefni er ekki úr vegi að tilkynna nýtt samstarf Kop.is og  Verdi Travel  um hópferðir á næsta tímabili. Tókum púlsinn á leikmannaslúðri tengdu okkar liði og fréttum af fáránlega miklum auknum umsvifum Saudi Araba í enska boltanum og bara heimsfótboltanum almennt. Spáðum í framtíð Trent og hver sé líklegasti arftaki Salah í markaskorun af hinum...

Gullkastið – Alexis Mac Allister 05.06.2023

Setjum fókusinn strax á tímabilið 2023/24 því að miðað við fréttir dagsins í dag virðast forráðamenn Liverpool ekki ætla að sitja aðgerðarlausir hjá á leikmannamarkaðnum í sumar líkt og stundum áður. Alexis Mac Allister er aðalatriðið í vikunni enda sagður vera á leið í læknisskoðun en slúðrið stoppar síður en svo á honum. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þökkum að vanda...

Gullkastið – Loksins búið 30.05.2023

Þessu langa og kolbölvaða tímabili lauk loksins um helgina með ekta lokaleik og 4-4 jafntefli milli tveggja liða sem höfðu augljóslega að engu að keppa. Smá uppgjör á tímabillinu og skoðum hvaða breytingar eru að verða á deildinni næsta vetur og hvað Liverpool er líklegt til að gera á leikmannamarkaðnum.  Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þá...

Gullkastið – Lykilmenn kvaddir á Anfield 22.05.2023

Draumur um Meistaradeild dó líklega endanlega á Anfield um helgina, Bobby, Milner, Ox og Keita voru kvaddir með virktum og ljóst að löngu tímabili er nánast lokið þó enn sé einn leikur eftir. Silly Season er komið á fullan snúning og útlit fyrir að Liverpool láti til sín taka fljótlega eftir að flautað verður mótið af. Titilbaráttunni er einnig lokið og ljóst að þetta tímabil var nánast samfelld v...

Gullkastið – Scouse sigur á Leicester 16.05.2023

Scouse bræðurnir sáu saman um Leicester með aðstoð Mo Salah og viðheldur Liverpool fyrir vikið áfram pressu á Newcastle og Man Utd í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Meira getum við ekki farið fram á eftir þennan langa vetur. Titilbaráttan er hinsvegar búin og línur aðeins farnar að skýrast í æsispennandi fallbaráttu. Næst er það síðasti heimaleikur tímabilsins og kveðjustund tveggja goðsagna hj...

Gullkastið - Velkomin (fals)von 08.05.2023

Eurovision vika í borginni og Liverpool heldur áfram að hlaða niður þremur stigum í erfiðum leikjum, síðast gegn ógeðslega leiðinlegu Brentford liði. Okkar menn því sannarlega farnir að anda ofan í hálsmálið á liðunum fyrir ofan. Dugar það til í lok mánaðar? Skoðum aðeins félagsskiptamarkaðinn og hvar hin liðin eru líkleg til að þurfa styrkja sig og hvar samkeppnin verður mest við okkar menn um ný...

Gullkastið – Give me five 04.05.2023

Fimm sigurleikir í röð og þar af fjórir sigrar með eins marks forystu. Batamerki á Liverpool liðinu og enn smá líflína fyrir Meistaradeildarsæti. Stutt í leikmannagluggann og línur farnar að skýrast smá í deildinni, eða hvað? Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.   Egils Gull  /  Húsasmiðjan...

Gullkastið – Endaspretturinn 20.04.2023

Liverpool rústaði Leeds um síðustu helgi og vann þar með loksins útileik. Nýtt leikkerfi er að taka á sig mynd með Trent Alexander-Arnold í aðalhlutverki og það er ekki til sá miðjumaður í Evrópu sem hefur ekki verið orðaður við Liverpool. Feliz Bergsson mætti með okkur á nýjan og endurbættan Sólon í Miðbænum og fór yfir allt það helsta í þessari viku. Hann er auðvitað á leiðinni til Liverpool í n...

Listen to the Gullkastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.