Landsvirkjun
Grænvarpið
Hlaðvarp Landsvirkjunar um grænar lausnir.
Author
Landsvirkjun
Category
Podcast website
Latest episode
May 29, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hvammsvirkjun - Ólöf Rós Káradóttir 26.01.2024 22:21
Ólöf Rós Káradóttir er verkefnisstjóri Hvammsvirkjunar, þess virkjunarkostar Landsvirkjunar sem er einna lengst kominn í undirbúningi. Hún segir okkur frá verkefninu í nýjasta þætti Grænvarpsins. Þátturinn á YouTube
Nýsköpun - Dóra Björk Þrándardóttir 20.12.2023 15:38
Dóra Björk Þrándardóttir, nýsköpunarstjóri hjá Landsvirkjun segir okkur frá samstarfsverkefnum Landsvirkjunar á sviði nýsköpunar. Þátturinn á YouTube
Vatnafarsrannsóknir - Andri Gunnarsson 28.11.2023 30:31
Andri Gunnarsson, verkefnisstjóri vatnafars segist vera í skemmtilegasta starfi landsins. Það hefur til að mynda leitt hann á staði á hálendinu sem nærri enginn fer á og sér. Andri fer yfir hvað er gert í jöklamælingaferðum og ýmislegt fleira. Þátturinn á YouTube
Upprunaábyrgðir - Stefán Gíslason 30.10.2023 29:03
Þóra Arnórsdóttir ræðir við Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðing um eðli og tilgang upprunaábyrgða. Til hvers var kerfið búið til og hver er ávinningurinn af því fyrir íslensk orkufyrirtæki og almenning? Hverjir kaupa þessi grænu skírteini og hvers vegna? Virkar kerfið eins og lagt var upp með? Getur Ísland sleppt því að taka þátt? Hvaða áhrif hefði það? Þátturinn á YouTube
Raforkuöryggi – Tinna Traustadóttir og Gunnar Guðni Tómasson 27.09.2023 26:56
Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu og Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Vatnsafls, ræða um raforkuöryggi frá ýmsum hliðum. Þau útskýra m.a. muninn á afli og orku, hættuna á því að stærri fyrirtæki yfirbjóði heimili og smærri fyrirtæki í kaupum á rafmagni og hvað gerist þegar keypt rafmagn fer yfir tiltækt afl í raforkukerfinu. Þátturinn á YouTube
Úrgangsmál – Ragnheiður Ólafsdóttir og Laufey Lilja Ágústsdóttir 11.10.2021 19:51
Ragnheiður Ólafsdóttir umhverfisstjóri hjá Landsvirkjun og Laufey Lilja Ágústsdóttir, sérfræðingur hjá Loftslagi og umhverfi hjá Landsvirkjun, segja okkur frá fyrirkomulagi úrgangsmála hjá fyrirtækinu.
Plastlaus september – Þórdís Þórhallsdóttir 01.09.2021 14:46
Þórdís Þórhallsdóttir fræðir okkur um Plastlausan september, en átakið leit fyrst dagsins ljós árið 2017.
Algalíf – Orri Björnsson 18.06.2021 14:57
Í þættinum er rætt við Orra Björnsson, framkvæmdastjóra Algalífs, en Algalíf framleiðir fæðubótarefni úr örþörungum. Framleiðsla fyrirtækisins er kolefnisneikvæð, þ.e. hún bindur meira kolefni en hún losar.
Pure North Recycling – Sigurður Halldórsson 21.05.2021 28:05
Sigurður Halldórsson er framkvæmdastjóri plastendurvinnslufyrirtækisins Pure North Recycling. Við spjöllum við hann um starfsemi fyrirtækisins og þann vanda sem felst í plastmengun í heiminum.
Orkuskipti – Sigurður Friðleifsson 27.04.2021 33:07
Sigurður Friðleifsson hjá Orkusetri fræðir okkur um orkuskipti: hvar við Íslendingar stöndum í þeim efnum og hvaða vörður eru á leiðinni að kolefnishlutlausu Íslandi.
Sjálfbærnisjóður hjá Eyri Venture Management – Stefanía Guðrún Halldórsdóttir 12.03.2021 24:27
Í þessum þætti Grænvarpsins segir Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Eyri Venture Management, frá sjálfbærnisjóð sem hún stýrir.
Grænvangur – Eggert Benedikt Guðmundsson 15.02.2021 28:04
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumaður Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir, mætir í Grænvarpið. Hann leiðir okkur í allan sannleika um samstarfsvettvanginn, hlutverk hans og starfsemi.
Kolefnishlutleysi 2025 – Jóhanna Hlín Auðunsdóttir 25.01.2021 23:45
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, verkefnisstjóri aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum, segir okkur frá áætluninni, sem gerir ráð fyrir að Landsvirkjun verði kolefnishlutlaus árið 2025.
Græn fjármögnun – Signý Sif Sigurðardóttir 04.01.2021 19:44
Signý Sif Sigurðardóttir, forstöðumaður fjárstýringar, segir okkur frá grænni fjármögnun Landsvirkjunar undanfarin ár.
Votlendissjóður – Einar Bárðarson 14.12.2020 34:42
Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Votlendissjóðs, fræðir okkur um starfsemi sjóðsins.
Loftslagsmál og orkumál – Hörður Arnarson 24.11.2020 11:02
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, ræðir um hvernig orkumál gegna lykilhlutverki í baráttunni við loftslagsbreytingar.
Sjálfbær þróun – Kristín Linda Árnadóttir 10.11.2020 19:19
Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar spjallar við okkur um hugtakið sjálfbæra þróun.
Fjölnýting í Mývatnssveit – Bjarni Pálsson 26.10.2020 17:01
Bjarni Pálsson segir okkur frá fjölnýtingu í Mývatnssveit, en fjölnýting er nýting á þeim efnum og varmaorku sem falla til við raforkuvinnslu úr jarðvarma.
Orkídea – Sigurður H. Markússon 12.10.2020 19:35
Sigurður H. Markússon fræðir okkur um Orkídeu, nýsköpunarverkefni sem snýst um uppbyggingu orkutengdra tækifæra framtíðarinnar á Suðurlandi, til dæmis við matvælaframleiðslu og líftækni, sjálfbæra nýtingu auðlinda og sprotastarfsemi.
Grænt vetni – Auður Nanna Baldvinsdóttir 29.09.2020 35:37
Auður Nanna Baldvinsdóttir viðskiptaþróunarstjóri ræðir fyrirætlanir Landsvirkjunar um að hefja framleiðslu á grænu vetni við Ljósafossstöð, en grænt vetni er talið munu leika lykilhlutverk í orkuskiptum í Evrópu og víðar.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.