RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Höskuldur Jónsson og Bólu-Hjálmar 2 11.01.2026 49:59
Áfram er gluggað í magnaða frásögn skáldsins Bólu-Hjálmars um ævi Höskuldar Jónssonar bónda og sjómanns sem bjó á Siglufirði og í nágrannasveitum á fyrri hluta 19. aldar. Eftir miklar raunir sem fjölskylda hans lenti í vegna snjóflóða tekur almenn lífsbarátta við, en stundum þarf Höskuldur ekki síður að hafa áhyggjur af nágrönnum sínum en náttúruöflunum.
Höskuldur Jónsson og Bólu-Hjálmar 1 04.01.2026 49:57
Í þættinum er gluggað í frásögn sem skáldið Bólu-Hjálmar ritaði eftir Höskuldi Jónssyni bónda, vinnumanni og sjómanni sem lýsir lífsbaráttunni í upphafi 19. aldar, þar á meðal gríðarlegu snjóflóði gróf bæ hans á kaf, svo kona hans og börn voru þar innilokuð í 18 daga.
Sálarlíf konunnar 1 28.12.2025 50:00
Aðalbjörg Sigurðardóttir var ein best menntaða kona á Íslandi á fyrri hluta 20. aldar og skrifaði margt, meðal annars um réttindi kvenna. En viðhorf hennar voru þó líka barn síns tíma og hér er gripið niður í grein sem hún skrifaði í Eimreiðina 1925, þar sem hún fjallar um sálarlíf kvenna og leitast við að sýna að þakklæti kvenna í garð karla sé þeim meira virði en matur og drykkur.
Fjalla-Bensi 1 21.12.2025 50:11
Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson er orðin hin eina sanna jólasaga Íslendinga en þar er byggt á frásögn af eftirleit sem Benedikt Sigurjónsson (Fjalla-Bensi) fór í 1925. Í þessum þætti er lesin sú frásögn eftir Þorgeir Jónsson í Eimreiðinni sem Gunnar byggði á og sagt bæði frá Fjalla-Bensa og viðtökum þeim er Aðventa fékk.
Kropotkin fursti 2 14.12.2025 50:00
Lesið er úr hinni frægu sjálfsævisögu stjórnleysingjans Kropotkins fursta og nú einkum um þau ár þegar hann er að vaxa úr grasi og byrja að átta sig á samfélaginu sem hann býr í. Þrælahald er enn við lýði og yfirstéttarfólk eins og hann tilheyrir "á" þræla sína með húð og hári. Yfir öllu trónir svo keisarafjölskyldan.
Ódysseifskviða 6 - Ódysseifur kemur til sögu! 07.12.2025 50:00
Áfram heldur umsjónarmaður að lesa úr þýðingu sinni á Ódysseifskviðu Hómers. Eftir að fylgst hefur verið með Telemakkusi Ódysseifssyni í fyrstu köflum kviðunnar, þá kemur nú Ódysseifur loksins til sögunnar í hinum magnaða 5. þætti. Hann er í byrjun hálfgerður fangi ástsjúkrar gyðju en mun hann sleppa burt frá henni og komast heim til Íþöku þar sem hin trygga Penelópa bíður?
Árni Óla, einsetumaður og refaveiðar 30.11.2025 52:00
Árni Óla var einn kunnasti og dugmesti blaðamaður landsins á fyrri hluta 20. aldar og var óþreytandi að kynna land og lýð fyrir lesendum Morgunblaðsins. Í þessum þætti verður gluggað í minningabók Árna þar sem hann segir fyrst frá einsetumanni sem hann fór að heimsækja sem blaðamaður og síðan rifjar hann upp minningar sínar frá refaveiðum í æsku.
Ingimundur fiðla og Huldudrengurinn 23.11.2025 52:00
Ingimundur Sveinsson ólst upp í Vestur-Skaftafellssýslu á ofanverðri 19. öld. Hann varð tónlistarmaður og jafnan kallaður Ingimundur fiðla, því fiðlan var hans tryggasti förunautur. Ekki batt Ingimundur bagga sína að öllu leyti sömu hnútum og samferðamennirnir og æskuminningar hans, Huldudrengurinn, er á margan hátt mjög óvenjuleg og hjartnæm ritsmíð. Ekki þarf að orðlengja að Ingimundur var bróði...
Krópótkin fursti 1 16.11.2025 52:00
Á 19. öldinni veitti hinn svonefndi anarkismi, stjórnleysisstefnan, sósíalismanum lengi vel harða keppni sem helsta andspyrnuafl gegn kapítalisma og auðhyggju. Einn helsti anarkisti Evrópu var Rússinn Krópótkin fursti sem fæddist 1841 og var af auðugum ættum en snerist til fylgist við alþýðuna. Hann skrifaði merkilega sjálfsævisögu og hér er gluggað í upphafskafla hennar um æskuár hins verðandi st...
Tryggvi Jónsson, Árblik og aftanskin 2 09.11.2025 52:00
Hér segir áfram af Tryggva Jónssyni og ævisögu hans, Árbliki og aftanskini. Hér segir aðallega frá því sem hendir Tryggva þegar hann hefur hrökklast til Ameríku og býr þar í áratugi, en snýr svo að lokum til Íslands aftur og kynnist þá æskuást sinni upp á nýtt.
Tryggvi Jónsson, Árblik og aftanskin 1 02.11.2025 50:00
Tryggvi Jónsson fæddist í Borgarfirði á ofanverðri 19. öld og skrifaði seint á ævinni sjálfsævisöguna Árblik og aftanskin. Þá hafði Tryggvi verið búsettur í Ameríku í áratugi en flutti raunar til Íslands aftur undir ævilokin. Bók hans er merkileg fyrir þá mynd sem hún dregur upp af íslensku alþýðufólki en þó sérstaklega fyrir afar opinskáar og einlægar lýsingar Tryggva á ástum hans og hugarlífi.
Stefan Zweig og Veröld sem var 4 26.10.2025 52:00
Enn er litið í æviminningar Stefans Zweigs, Veröld sem var, þar sem hann lýsir því á eftirminnilegan hátt hvernig það samfélag var samansett sem átti svo eftir að hrynja til grunna þegar fyrri heimsstyrjöldin braust út 1914. Höfðu Zweig og samtímamenn verið alltof andvaralausir?
Stefan Zweig og Veröld sem var 3 19.10.2025 52:00
Í þessum þriðja þætti sem umsjónarmaður tekur saman upp úr æviminningum Stefans Zweigs segir hann frá menningarlífinu í Vínarborg en menningarlífið var þar afar blómlegt, einkum fyrir borgarastéttina og yfirstéttirnar. Jafnframt er sagt nokkuð frá stöðu Gyðinga í Austurrísk-ungverska keisaradæminu.
Stefan Zweig og Veröld sem var 2 12.10.2025 52:00
Í þessum þætti les umsjónarmaður úr upphafsköflum bókarinnar Veröld sem var eftir Stefan Zweig (1881-1942). Jafnframt segir umsjónarmaður frá Austurrísk-ungverska keisaradæminu, en það var heimaland Zweigs og það ríki sem féll í duftið að honum og samtímamönnum hans ásjáandi.
Stefan Zweig og Veröld sem var 1 05.10.2025 52:00
Í þessum fyrsta þætti af nokkrum tekur umsjónarmaður saman og les kafla úr æviminningum og samfélagslýsingu austurríska rithöfundarins Stefans Zweigs. Sumarið 2025 var fluttur eins konar kynningarþáttur þar sem athyglin beindist að ferðalagi Zweigs og Halldórs Laxness á rithöfundaþing á fjórða áratugnum. Í byrjun þessa þáttar er raunar lesin merkileg smásaga Zweigs sem heitir Leiðarlok.
Kristín Sigfúsdóttir 3 28.09.2025 52:00
Enn er litið í æviminningar Kristínar Sigfúsdóttur frá æskudögum hennar í Eyjafirði. Í þessum þætti beinist athygli einkum að ýmsum sveitungum Kristínar og ættingjum. Meðal annars dregur hún upp eftirminnilega mynd af Hansínu frænku sinni og skyldmennum hennar.
Kristín Sigfúsdóttir 2 21.09.2025 50:00
Kristín var Eyfirðingur, fæddist 1876 og varð á þriðja áratugnum einn allra vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar. Í þætti fyrr á þessu ári var lesið úr æviminningum hennar þar sem hún sagði einkum frá afa mínum og ömmu, en í þessum þætti er enn leitað í æviminningarnar og nú fjallar Kristín um foreldra sína.
Ódysseifskviða 5 - Penelópa verst biðlunum 14.09.2025 50:59
Hér segir frá fréttum sem Telemakkus fær af hinum týnda föður sínum í Spörtu, en jafnframt beinist athyglin aftur að Íþöku, þar sem Penelópa kona Ódysseifs verst hinum freku biðlum fimlega. Jafnframt fjallar umsjónarmaður um það samfélag sem kviður Hómers eru sprottnar úr.
Ódysseifskviða 4 - Menelás segir frá heimferð sinni 07.09.2025 50:00
Nú er Telemakkus sonur Ódysseifs kominn til Spörtu í leit að fréttum af föður sínum og þar hittir hann fyrir konunginn Menelás og hina fögru Helenu konu hans við mikinn veisluglaum. Þau hafa margt að spjalla, en fær hann fréttir af föður sínum? Auk lesturs úr kviðu Hómers er fjallað nokkuð um aðdraganda Trójustríðsins.
Örsögur Kafka og týnda brúðan 31.08.2025 50:00
Ástráður Eysteinsson og Eysteinn Þorvaldsson hafa öðrum betur kynnt Franz Kafka fyrir íslenskum lendum og hér er lesið úr nýlegri bók með örsögum ýmsum eftir Kafka. Jafnframt reynir umsjónarmaður að komast að því hvað er hæft í flökkusögu einni um Kafka og litla stúlku sem hafði týnt dúkkunni sinni.
Manngerðir Canettis 2 24.08.2025 49:59
Nóbelsverðlaunahafinn Elias Canetti skrifaði stuttar og skemmtilegar lýsingar á margvíslegu mannfólki. Gunnar Harðarson þýddi þessar grínaktugu og þó hnífskörpu mannlýsingar fyrir 30 árum og hér eru lesnar ýmsar þeirra. Fyrri þáttur með mannlýsingum Canettis var fluttur 6. október 2024.
Ódysseifskviða 3 - Nestor gamli segir Telemakkusi frá 17.08.2025 49:59
Þar var komið sögu þegar umsjónarmaður lagði síðast frá sér Ódysseifskviðu að Telemakkus Ódysseifsson er lagður af stað í leit að föður sínum. Í þriðja þætti kviðunnar er hann kominn ásamt fylgdarmönnum sínum – og gyðjunni Aþenu – til borgarinnar Pylos þar sem baráttufélagi föður hans, Nestor hinn vitri, reynist hafa frá mörgu að segja.
Thor Vilhjálmsson 2 10.08.2025 49:56
Annar þáttur þar sem lesið er úr verkum Thors Vilhjálmssonar rithöfundar sem hefði orðið 100 ára um þessar mundir. Að þessum sinni er athyglinni beint að blaðaskrifum hans og lesið úr ferðafrásögnum hans frá Ítalíu á 7. áratugnum. Jafnframt kemur fram hve lunkinn og skemmtilegur blaðamaður hann var, ekki síst í fróðlegri samantekt um heimspekinginn Bruno sem hann fléttar inn í ferðasögu sína.
Thor Vilhjálmsson 1 03.08.2025 49:59
Um þessar mundir er ein öld liðin frá fæðingu Thors Vllhjálmssonar rithöfundar. Af því tilefni les umsjónarmaður nokkra valda kafla úr skáldverkum Thors sem lýsa orðsnilld hans og innsæi. Í þessum þætti hafa orðið fyrir valinu tvær stuttar frásagnir úr bókinni Maðurinn er alltaf einn, upphafskaflinn úr hinni áhrifamiklu sögu Fljótt fljótt sagði fuglinn, tvær stuttar frásagnir úr Tvílýsi og tvö bro...
Ódysseifskviða 2 - Telemakkus fer að leita föður síns 27.07.2025 50:01
Í apríl las umsjónarmaður fyrsta þáttinn af Ódysseifskviðu Hómers í tilefni af því að nú er verið að taka upp kvikmynd eftir kviðunni á Íslandi. Hér er komið að öðrum þætti kviðunnar þar sem segir frá því er sonur Ódysseifs, Telemakkus, að heiman frá Íþöku til þess að leita föður síns sem er ekki snúinn heim úr Trójustríðinu. Jafnvel er fjallað um hvað er vitað um höfundinn Hómer.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.