RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
29.06.2014 50:02
Beint framhald af síðasta þætti viku áður. Í þættinum les umsjónarmaður eigin greinargerð um aðdraganda morðsins á Franz Ferdinand erkihertoga Austurríkis-Ungverjalands 28. júní 1914. Einkum er fjallað um Franz Ferdinand sjálfan, Gavrilo Princip og Dragutin Dimitrievic, eða Apis.
22.06.2014 49:42
Í þættinum las umsjónarmaður eigin greinargerð um aðdraganda morðsins á Franz Ferdinand erkihertoga Austurríkis-Ungverjalands 28. júní 1914. Einkum var fjallað um Franz Ferdinand sjálfan, Gavrilo Princip og Dragutin Dimitrievic, eða Apis.
10.06.2014 51:33
Umsjónarmaður segir frá Jóni Arasyni biskupi á Hólum á fyrri hluta sextándu aldar, og nokkuð frá siðaskiptatímunum.
03.06.2014 51:23
Umsjónarmaður fjallar nokkuð almennt um vesturferðir og upphaf byggðar Evrópumanna í Ameríku, en les síðan úr greinaflokknum Höfuðþjóðir heimsins: Norður-Ameríkumenn úr Fjallkonunni, 1. árg. 1884, líklega skrifað af Valdimar Ásmundssyni.
27.05.2014 49:26
Í þessum þætti heldur umsjónarmaður áfram þeirri sögu sem hann hóf hálfum mánuði fyrr, að segja frá átökum Serba og Tyrkja á Balkanskaga og vék síðan talinu að Habsborgaraættinni, sem þar kom einnig i vaxandi mæli við sögu.
20.05.2014 50:36
Í þessum þætti fjallar umsjónarmaður um "landkynningu" og "Íslandsvini" og les síðan upp kafla úr Íslandslýsingu Þorláksson Markússonar (1685-1736).
13.05.2014 53:03
Í þættinum fjallar umsjónarmaður um forsögu þeirra atburða sem urðu til þess að hrinda fyrri heimsstyrjöldinni af stað, og rakti sögu Serba og Tyrkja allt aftur í árdaga og fram til orrustunnar við Kosovo 25. júní 1389. Lesari: Vera Illugadóttir
06.05.2014 51:51
Í þættinum fjallar umsjónarmaður um 28. júní 1914, daginn þegar Gavrilo Princip drap Franz Ferdinand erkihertoga Austurríkis-Ungverjalands, einkum þá á Íslandi, og les upp úr blöðum og segir frá fréttum þann daginn Lesari: Vera Illugadóttir
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.